Morgunblaðið - 13.06.1965, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 15. Jönl 1965
Húsmæður athugið
Hreinsum teppi og húsgögn.
Fljót og vönduð vinna.
TEPPAHR AÐHK EIN SUNIN
sími 38072.
íbúð tll leigu
Skemmtileg og vönduð risíbúð, þrjú herbergi, eld-
hús og bað til leigu strax fyrir einhleyp reglusöm
hjón. Tilboð merkt: „Góður staður —6914“ .
Kristinn Guðnason hf.
Laugavegi 168.
Klappiarstíg 27.
Sími 12314 - 21965.
RúðugSer
Fyrirliggjandi 4 mm rúðugler.
Daníel Ólafsson & Co. hf.
Vonarstræti 4 — Sími 24150.
Ný sending
BARNAPEYSUR Glæsilegt úrval.
R. Ó. búðin
Skaftahlíð 28 — Sími 34925.
SVARTAHAFSSTRENDUR
KAUPMANNAHÖFN
Sendnar baðstrendur og
20 gr. hiti.
Sérstök bamaverð.
•fc Ferðamannagengi.
Möguleiki á framleng-
ingu í Kaupmannahöín
K x og Hamborg fyrir
V kr. 3.950,00.
r
Ferðalög til Istanbul — Búka
rest og Rússlanös.
Brottför 8. og 22. júlí; —
5. og 19. ágúst.
15 dagar kr. 12.285,00. —
AUt innifalið.
rr l&l io6
Fyrir örfáum árum var
Rúmenía lokað land og gjör-
samlega óþekkt af erlendum
ferðamönnum. Þetta hefur
gjörbreytzt og í dag hafa
Rúmenar manna mestan á-
huga á að auka ferðamanna-
ítrauminn til lands síns. Þetta
er þeim auðvelt verk, þar
sem náttúra landsins er fjöl-
breytt og fögur, en loftslagið
einkar hentugt og stöðugt.
Rúmenía teygir sig allt frá
lendnum ströndum Svartahafs
ins yfir sléttur Dónárdeltunn
ar allt til Karpatafjallanna,
Þ®r sem náttúran er svo ó-
snortin af mannahönduiji, að
slíkt finnst ekki annars stað
að í Evrópu. Ströndin við
Mamaia er fjögurra km löng
og talin ein sú bezta í álfunni.
Ströndin er smásendin og
grunn langt til hafsins. Loft-
hitinn er venjulega um 30
gráður, sjávaihitinn um
25, en seltan minni en í Mið-
jarðarhafinu Rigning er fá-
tið um þetta leyti árs.
Hótelin á Mamaia liggja við
•tröndina sjálfa og er því
hægt að ganga á baðfötum
frá gististað í sjóinn. Hvert
hótel hefur eigin matsal, bari
og sundlaugar, en útikvik-
myndahús, minjagripaverzlan
ir og næturklúbbar eru í
næsta nágrenni. í flestum
hótelunum er dansað hvert
kvöld.
L&L hefur sérstakan, íslenzk
an fararstjóra staðsettan í
Mamaia, sem tekur á móti
hverjum hóp í Rúmeníu og
annast hann meðan á dvölinni
þar stendur.
8. júlí: Farþegar mæti við
afgreiðslu Loftleiða á Reykja
víkurflugvelli kl. 12,00 og er
þeim þá þegar ekið til Kefla
víkur. Leiguflugvél okkar
flýgur þaðan kl. 13,30 og
lendir í Malmö í Svíþjóð
kl. 21,30. Þar er tekið á móti
farþegum og þeim ekið til
Plaza HoteL
9. júlí: Við borðum snemma
morgunverð og ökum aftur
á flugvöllinn. Flogið er kl. 6
áleiðis til Rúmeníu. Komið er
við í Prag, en lent í Const-
anza kl. 15,05. í Constanza
er tekið á móti farþegum og
ekið til baðstrandarinnar
Mamaia.
10—21. júlí: Þessa daga er
drvalizt í Rúmeníu og farið
í ferðir þaðan svo sem segir
hér á eftir:
22. júlí: Strax eftir morgun
verð er ekið frá Mamaia til
Constanza og flogið þaðan á
sama hátt til Malmö um Prag.
í Malmö er höfð stutt við-
staða en litlu síðar stigið upp
í eina af hinum stóru flug-
vélum Loftleiða, sem flytur
okkur til íslands. Lent £
Keflavík kl. 19,00 og farþeg-
um þá ekið til Reykjavíkur.
Verð ferðarinnar
Eins og greinir að framan
er verð ferðarinnar kr.
12.285,00. — Innifalið í
verðinu er eftirtalið: Öll
ferðalög svo sem segir að
framan. Er þar átt við all-
ar flugferðir svo og flutn
inga milli flugvalla og
gististaða. Gistingar eru
og allar innifaldar. í
Rúmeníu er gist að Hotel
Ovidiu ,sem er 1. flokks.
Er reiknað með 2ja manna
herbergjum, en óski menn
eftir eins manns herbergi,
kostar það aukalega kr.
860,00. Allar máltíðir eru
innifaldar svo og farar-
stjórn og söluskattur. —
Ekki innifalið er: Drykkir
með mat, ferðatryggingar
eða önnur persónuleg út-
gjöld svo sem flugvallax-
skattar.
FERÐAMÖGULEIKAR
í RÚMENÍU
Constanza.
Það er t.d. ágæt tilbreyting
að skreppa til Constanza, sem
er örskammt frá baðströnd-
inni — og er stærsta hafnar-
borg landsins. Constanza var
stofnuð af Grikkjum fyrir
2700 árum síðan og hét þá
Tomi. Þar má t.d. sjá merkt
fiskasafn, sem geymir allar
fiskategundir Svartahafsins
og Dónár, m.a. stærðar styrju,
sem með vissu millibili gefur
af sér 20—30 kg. af dýrmæt-
um kavíar. Einnig er í borg-
inni merkt forngripasafn með
gripum frá grískum og róm-
önskum tímum.
Óperan í Constanza sýnir
hvert kvöld m.a. ballettsýn-
ingar og óperettur, sem hver
maður getur notið, en miða-
verð er ótrúlega lágt. Líflegt
götulíf er í Constanza og
margt um skemmtistaði Þeir
sem vilja kynnast landsmönn-
um sjálfum og þeirra eigin
tónlist gætu heimsótt CRAM
ER-kjallarann, þar sem hvert
kvöld er stemmning og allir
tala við alla.
Istanbul
Hér er um þriggja daga ferð
að ræða. Farkosturinn, skipið
„Trassilvania' er nýtt og
glæsilegt. Flestir munu vilja
nota slíkt tækifæri til að sjá
Istanbul eina merkustu borg
Austurlanda.
1. dagur: Ekið er frá hótel-
inu í Mamaia til hafnarinnar
í Constanza og siglt þaðan
kl. 18,00. Kvöldverður er um
borð og dansað eftir matinn.
2. dagur: Komið til Istan-
bul snemma imm morguninn.
Fyrir hádegið er farið í kynn
isferð með fararstjóra. Há-
degisverður er um borð, en
eftir hádegið er tíminn til
frjálsrar ráðstöfunar. Eftir
kvöldverð geta menn tekið
þátt í „næturferð“ um borg-
ina, ef vilL Skipið siglir frá
Istanbul seint um nóttina.
3. dagur: Komið til Const-
anza um eftirmiðdaginn. Verð
ferðarinnar er frá kr. 1300,00
eftir því á hvaða farrými
skipsins menn kjósa að
ferðast.
Rússland.
Einnig má nota tækifærið og
taka þátt í dagsferð til Rúss-
lands. Er um að ræða heim-
sókn til eins stærsta hafnar-
bæjar Rússa við Svartahaf,
Odessa.
Flogið er frá Constanza og
lent eftir hálfan annan tíma
í Odessa. Þá er þegar farið
í kynnisferðir um borgina.
Hádegisverð borðum við á
einum albezta veitingastað
borgarinnar. Eftir hádegið er
tími þátttakenda frjáls til
eigin ráðstöfunar.
Verð ferðarinnar er kr.
1300,00. Panta verður far með
minnst einnar viku fyrirvara,
þar sem fararstjórinn þarf að
útvega hverjum þátttakenda
vegabréfsáritun fyrir ferðina.
Búkarest.
Ferð til höfuðborgarinnar tek
ur heilan dag. Flogið er að
morgni frá Constanza og tek-
ur flugið 40 mínútur. Eftir
komuna er farið kynnisferð
í bíl um borgina. 3úkarest
er stórborg með mörgum
skemmtigörðum, vötnum og
breiðstrætum. Við sjáum m.a.
Metropolitankirkjuna, þing-
bygginguna og merkt útisafn,
jþar sem gömlum byggingum
hvarvetna frá landinu hefur
verið komið fyrir. Þá borðum
við hádegisverð á veitinga-
stað í Banesa-skóginum.
Eftir rádegi er öllum frjálst
að eyða tíma sínum að eigin
vild, en aftur er safnast sam-
an og borðaður kvöldverður
á Hótel Lido og síðan flogið
til baka til Constanza. Ferðin
kostar kr. 700,00.
Dónárdeltan
Þetta hérað er heimur fyrir
sig, paradis ósnortinnar nátt-
úru. Sifhafið, sem vegna
gróskunnar er líkt við frum-
skóga Amazon í Suður-Ame-
ríku, nær yfir 4000 ferkm.
svæði og eru heimkynni sjald
gæfra fugla.
Ferðin hefst með bíl frá
Mamaia til hafnarbæjarins
Tulcea, en þaðan er siglt með
sérstökum fljótabáti uþp ána.
Síðar er skipt um farartæki
og farið með smábátum. Um
kvöldið er komið til baka til
fljótaskipsins, þar sem við
borðum kvöldverð og gistum.
Seinni daginn er farið til
baka til Mamia. Ferðin kost
ar kr. 700,00.
Ath.: Mögulegt er að
lengja ferðina um eina
viku Er þá fafið bæði
til Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
Vegabréfsáritun: Áritun er
nauðsynleg til Rúmeníu
og annast L&L þessi
formsatriði, farþegum
að kostnaðarlausu
Barnaverð: Eins og getið
er að framan, gilda sér-
stök verð um börn innan
12 ára aldurs. Vinsam-
lega leítið frekari upp-
lýsingar á skrifstofu
okkar.
Gjaldeyrisívilnanir ■ Rúm-
eníu: Ferðamenn, sem
koma til Rúmeníu, er
bent á að skipta ferða-
gjaldeyri sínum í landinu
sjálfu Rúmenski bank-
inn greiðir erlendum
ferðamönnum tvöfalt
verðgildi hins erlenda
gjaldeyris. Þessu til við-
bótar fá farþegar okkar
20% afslátt í mörgum
verzlunum.
Framlenging — 7 dagar.
Kaupmannahöfn — Hamborg
Þó að ferðin til Rúmeníu sé
vissulega dásamleg, munu
margir kjósa að bæta við
nokkrum dögum í Kaup-
mannahöfn og Ilamborg.
FERÐAÁÆTLUN
22.—24. júlí: í stað þess að
bíða eftir farkostinum heim
til íslands tökum við ferjuna
frá Malmö til Kaupmanna-
hafnar. Er komið þar um
miðjan eftirmiðdaginn og
ekið til Hotel Carlton. Þar
búum við nú næstu þrjár
nætur .Meðan dvalizt er i
Kaupmannahöfn mun fulltrúi
okkar þar, Geir Aðils, ann-
ast farþegana og bjóða þeim
ferðir bæði um borgina og út
á Sjáland. Ferðir þessar eru
ávallt skemmtilegar og ódýr-
ar. Ferðin um sjálfa Kaup-
mannahöfn undir handleiðslu
Geirs kostar t.d. kr. 90,00, og
heildagsferðin um Sjáland
kr. 270,00.
25.—27. júlí: Eftir hádegis-
verðinn er ekið til járnbraut
arstöðvarinnar og faxið með
hraðlest til Hamborgar. Farið
er fyrst suður Sjáland en síð
ar með ferju frá Rödbyhavn
til Puttgarten í ÞýzkalandL
Síðar er farið um Lúbeck og
komið til Hamborgar. Þar bú-
um við á hóteli miðsvæðis i
nánd við járnbrautarstöðina.
Borgin sjálf er að mörgu
merk og víða falleg t.d. við
Alster „Tjörn“ þeirra Ham-
borgarmanna. Ekki megum
við svo gleyma St. Pauli,
skemmtanahverfinu, sem
Hamborg er ef til vill fræg-
ust fyrir.
28. júlí: Þennan dag eftir
morgunverð yfirgefum við
Hamborg og förum frá járn
brautarstöðinni áleiðis tif
Travemúnde. Þar tökum við
enn ferju til Trelleborg í Sví
þjóð. Áfram er haldið og kom
ið til Malmö skömmu síðar.
Enn gistum við að Plaza
Hotel.
29. júlí: Enn er eftir allt
að því heill dagur og í þetta
sinn í Malmö. Er nú tilvalið
að verzla með síðustu smá-
aurana, en um kl. 15,00 er
ekið til flugvallarins og farið
þaðan með einni hinna nýju
flugvéla Loftleiða kl. 16,00 og
lent í Keflavík kl. 19,00. Far
þegum er að síðustu ekið til
Reykjavíkur.
VERÐ
Sem segir að framan kost
þessi viðbót við aðalferð-
ina kr. 3,950,00. Innifalið
er: Ferðalög öll svo og all-
ar gistingar. Morgunverð-
ur er innifalinn en ekki
aðrar máltíðir. Fararstjórn
og söluskattur. Ef óskað er
eftir eins manns herbergi
greiðast aukalega kr. 360,-
LÖND OG LEIÐIR
Aðalstrœfi 8 - Símar 20800-20760