Morgunblaðið - 01.08.1965, Page 14

Morgunblaðið - 01.08.1965, Page 14
14 MORCU N BLAÐIÐ Sunnudagur 1. ágúst 1965 “Landið okkar mun fá frelsi á nf Rætt við eistneska flóttamanninn Herman Ramajaa í GffiR leit inn á ritstjórnar- skrifstofur Morgunblaðsins Herman Rajamaa, en nann var einn af fulltrúum Svía á norraena kennaramátinu, sem hér var haldið fyrir skömmu. Rajamaa er þó ekki Svíi held- ur Eistlendingur og er um- sjónarmaðuir vi!ð eistneskan skóla í Stokkhólmi, en sem kunugt er býr fjöldi flótta- manna frá Eystrasaltsríkjun- um í Svíþjóð. — Hversu margir bafa flú- ið Eistland? — Eistneskir flóttamenn eru alls um 80 þúsund. Mjög margir eru í Sviþjóð og líka í Kanada og Bandaríkjunum. Hvar sem við erum ktaddir reynum við eftir fremsta megni að halda hópinn, því að einhvern tíma skal koma að því að við getum snúið aftur heim til Eistlands. Markmið okkar með því að reka skóla er það að halda þjóðernistil- finningu Eistlendinga vak- andi. í Stokkhólmi er eistnesk- ur bamaskóli og annar í Gautaborg. Auk þess er eistn- eskur menntaskóli I Stokk- hólmi. Víðis vegar í Svíþjóð eru svo eistneskar deildir við sænsku skólana, þar sem eistneSk börn laera mó'ður- málfræði • og eistneska þjóð- söngva. Og í Toronto í Kan- ada ef eisneskur barnaskóli, sem sóttur er af 450 börnum. — Við viljum kenna æsk- unni okkar að þekkja EistLand eins og það var þegar það var frjálst. Við lifum í þeirxi bjargföstu trú, að sá tími muni koma, að landið okkar fær frelsi á nýjan leik. Það var t.d. alltaf siður í Eistlandi að halda ýmsa hátíðisdaga, svo sem jól, mæðradag og svo sérstaka söngvahátíð. Nú er allt þetta bannað heima, líka jólin. Síðast þegar söngvaihátíð var haldin heima, það var árið 1938, voru söngvararnir alls 22 þúsund og áheyrendur 110 þúsund tailsins. Árið 1969 verða 100 ár liðin síðan söng- daguirinn okkar var fyrst hald inn hátíðlegur heima, og er undinbúningur þegar hafinn undir að halda það hátiðlegt Herman Ramajaa. í Svíþjóð það ár. — En hvernig er þá háttað sambandi ykkar flóttamann- anna víð Eistland? — Þetta er næstum alveg lokað land fyrir okkur. Við skrifumst þó á við ættingja okkar heima og sendum þeim gjiafir. Áður fyrr gátuim við sent þeim matarpakka, en nú hefur verið tekið alveg fyrir það, svo að við sendum þeim í staðinn skófatnað og vefnað arvöru, en á hvoru tveggja er mikill skortur heirna. Og frétt irnar sem vi'ð fáum eru ekk- ert skemmtilegar. Þannig er nú búið að flytja fjölda Eist- lendinga út úr landinu og Rússa inn í staðinn. í Tallin eru um 375 þúsund íbúar, en aðeins um helminguirinn Eist- lendingar. Þar verður alls staðar að nota tvö tungumál í öllum opinlberum skrifstof- um og öll götuheiti á hús- veggjum er skrifuð bæði á rússnesku og eistnesku, Til þess að fá að fara út fyrir borgina þurfa menn að fá sér- stafct leyfi yfirvaldanna rúss- nesku. Þannig eru Eistlend- ingar fangar í eigin landi. — Hvernig er að vera á ís- landi? Er ekki allt hér gjör- ólík’t því sem er í Eistlandi? — Þa’ð er nú ýmislegt nokk uð svipað í' þessum löndum. Þegar ég skrúfaði frá heita vatninu ykkar hérna í Reykja vík kamnaðisf ég strax við lyktina. Og sömu lyktina fiainn ég þegar ég fór til að skoða Geysi um daginn. Þetta er gífurlegur auður sem þið ís- lendingar eigið í hverunum ykkar. Heima í Eistlandi reist um við verksmiðjur, sem pressuðu olíur út úr brenni- steini. Það hljótið þið íslend- ingar að geta gert líka. Olían okkar í Eisitlandi er líka fy-rsta flokks að gæðum, enda notuð fyrir flugvélar og kafbáta. — Gufuböð ykkar Eistlend inga og Finna eru heimsþekkt. Notið þið hveravatn til upp- hitunar? — Nei, það gerum við ekki. Yið höfum svo mikla skóga, að enginn skortur er á eldi- viði til upphitunar. Gufubað- ið er ævagamalt í Eistlamdi. Faðir minn-var bóndi, og ég er meira að segja fædduir í gufubaði. — Mér finnst þið íslending ar vera duglegt fólk. Þið eruð að byggja svo mikið upp. Og æskan ykkar og börnin eru einstaklega faUeg og lífleg. Þið hljótið að hafa það gott hér á íslandi. En þið megi'ð ekki búa allir hér í Reykja- vík. Það er miklu hollara að búa i þorpurn úti á lands- byggðinni. Þið eigið að byggja fleiri verksmiðjur úti um landið. Og — sagði Her- man Rajamaa að lokum — di'lkakjötið íslenzka er alveg ágæbt. A Fundir æðstu manna GETA FUNDIR háttsettra stjórnmálamanna, jafnvel fundir „æðstu manna“, sem nú eru svo mjög í tízku, haft áhrif á viðburðarás mannkynssögunnar? Geta þeir einhverju um það ráðið, hvort friður haldist eða styrjaldir brjótist út? Eða er þessu kannske þveröfugt farið og sagan háð ótal smáatvikum, sem stjórnmála- mennirnir ráða engu um? Þrennar kenningar hef ég * hér á takteinum um þetta og stangast hver á við aðra. Fyrst þeirra er kenning Tolstoys, sem taldi að leið- togar þjóða væru ekki skapendur viðburðanna, heldur fylgjendur þeirra, þó þeir gætu hinsvegar staðið í þeirri góðu trú, að þeir fengju því áorkað, sem þeir í raun og veru væru að beygja sig undir. Tolstoy tók -gjarnan Napóleon sem dæmi og sagði: „Napóleon var snillingur í herstjórnarlist, segja menn, en hvað tákn- ar það eiginlegg? Herstjórnarsnillingur ætti að geta séð allt fyrir, geta getið sér til um fyrirætlanir óvinar- ins — en það er ómögulegt. Á taflborðinu, jú, þá er það hægt, bæði vegna þess að þá hafa menn tíma til þess að hugsa milli leikja og þó einkum og sér í lagi vegna þess að taflmennskan er háð ströngum reglum. Riddari er alltaf sterkari maður á borðinu en peð, tvö peð eru sig- urstrangíegri en eitt. En í hernaði getur heilt herfylki verið veikari fyrir en ein herdeild. Þar er allt undir sið ferðisþreki hermannanna komið og hver getur skapað það eða sagt fyrir um það?“ Engu að síður segir sagan okkur, að hvenær sem landvinningar hafa orðið eða frásagnarverðir sigur- vinningar þ^fa komið fram sigurvegarar og landvinn- ingamenn. Miklum umbrotum þjóða á sviði mann- kynssögunnar hafa jafnan fylgt miklir menn. „Satt að vísu“, svarar Tolstoy, „sérhverju sinni sem sigurvegarar komu fram á sjónarsviðið var stríð, en það sannar ekki, að þeir hafi verið orsök stríðanna. Sérhverju sinni, sem eimreið fer af stað, heyrist blíst- ur í flautu, en það sannar samt ekki, að blístrið sé or- sök þess að eimreiðin fari af stað. Þegar við lejtum lög- mála mannkynssögunnar, verðum við að undanskilja stjórnmálamenn og hershöfðingja og beina huganum að öllum smáatriðunum, sem áhrif hafa á fjöldann, á allan hinn mikla sæg óbreyttra borgara. Þessi smáat- riði eru of mörg til þess að mannleg greind fái hent á þeim reiður og þessvegna verða lögmál mannkynssög- unnar okkur að eilífu lokuð bók. En það er að minnsta kosti öruggt og víst, að fundir „æðstu manna" breyta engu um eitt eða neitt. Það, sem máli skiptir, er það sem er að gerast í hugarfylgsnum fólksins í landinu“. Þannig hljóðar kenning Tolstoys. Önnur kenning- in er komin frá einum vini mínum í utanríkisþjónust- unni. „Ég er ekki eins hræddur við neitt“,-segir hannr „og við þessa fundi gáfaðra manna og valdamikilla, sem vilja endilega freista þess að leysa öll heimsins vandamál sín í milli. Það er ekki til sú lausn neinna alþjóðlegra deilumála er öllum heimsins ríkisstjórnum sé að skapi og þessvegna hlýtur sérhver tillaga, sem fram er lögð á slíkum fundum að vera einhverjum til óþægðar. Heimurinn býr nú við frið að heita má. Þrátt fyrir nokkur átök á stundum höfum við ekki átt í stór- styrjöld um tvo tugi ára. Þér spyrjið, hvort kommún- ismi og kapítalismi séu samrýmanlegir — skrítin spurning það. Sambúð þeirra hefur nú staðið í hart- nær hálfa öld — en fyrir tilverknað stopuls jafnvægis og vandmeðfarins, sem nálgast kraftaverk að staðizt hafi storma þessara tíma. Látum nú kyrrt liggja þó einhvers staðar sé pottur brotinn. Hversu fór ekki um Kóreu? Landinu er skipt í tvennt, jú, víst er það af- leitt, en þar ríkir þó friður. Látum það gott heita og leitum ekki betri „lausnar“. Sérfræðingarnir eru vísir til að finna einhverja slíka og áður en lýkur er "allt komið í óefni. Trúið mér til, Talleyrand fór villur veg- ar er hann hélt því fram hérna í gamla daga, að allar deilur mætti leysa með viðræðum einum saman“. Þessi tortryggni vinar míns í utanríkisþjónustunni í garð mannanna yfirleitt felur í sér nokkurn sann- leik, rétt eins og kenning Tolstoys, þó þeir séu á önd- verðum meiði. Það er augljóst mál, að viðburðarás sög- unnar er mörgum smáatvikum háð. En er það nokkur sönnun þess að mikilmenni geti aldrei fengið neinu góðu fram komið? Ég er ekki þeírrar skoðunar og þessvegna er mín kenning, sú þriðja og síðasta í röð- inni, þessi: Ég fellst á þá skoðun, að í sögunni séu stríðir straumar, sem mannlegur máttur megi sín harla lítils gegn, ef veita á mótspyrnu á röngum stað og stundu. En rétt eins og leikinn farmaður getur stýrt fleytu sinni í örugga höfn þó óveður skelli á, ekki með því að etja kappi við storma og stórsjó heldur með því að sæta lagi að beita í vindinn, eins getur hygginn stjórn- málamaður sætt'lagi að beita valdi sínu og mætti, hversu mikið éða lítið sem það er, til þess að ná ein- hverjum árangri. Hann verður kannski ekki eins mik- ill og æskilegt hefði verið, en altént betri en árangur sá, sem náðst hefúr undir forystu leiðtoga, sem minna væri x spunnið. Frakkar ekki með í „Fallex“ París, 30. júlí, NTB. FRAKKAR hafa í hyggju að láta heræfingar Atlantshafsbanda- lagsins, „Fallex-195“, lönd og leið, að því er hermt var í Paría í dag. Reyndar hafði verið til- kynnt "þegar í maí sl. að Frakkar myndu ekki taka þátt í æfingun- um, en þá tálið að herforingjar þeir sem tilheyrðu NATO myndu þar undanþegnir. En í bréfi sem Charles * Ailleret, herforingi, skrifaði Lyman Lemnitzer, yfir- manni NATO-hersins í Evrópu nú fyrir nokkrum dögum, sagði að enginn hinna frönsku herfor- ingja, sem starfa á vegum NATO myndu taka þátt í æfingunum, en hinsvegar myndi samgöngu- og símakerfi Frakka heimilt til afnota eins og ráðgert hefði verið. Því var við bætt, að Frakk ar hefðu tekið þessa ákvörðun sína þegar fyrir tveimur árum. Uiiglingaskemmt- un að Breiðabliki HINN 7. júní sl. gekkst Héraðs- samband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu fyrir unglinga- skemmtun að Breiðabliki i Miklaholtshreppi. Var það tilraun í þá átt að bæta samkomuhald í héraðinu. Tilraunin þóttist takast mjög vel. Rúmlega 200 unglingar sóttu samkomuna víðsvegar að úr hér- aðinu, en auk þess frá Akranesi og víðar að. Allt var þétta unga fólk snyrti- legt til fara og framkoma þess öll til mestu fyrirmyndar. Ekki þarf að taka frám, að vínlaus var sam- koman með öllu. Hljómsveit úr Stykkishólmi lék fyrir dansi, en auk þess fóru fram nokkur dag- skráratriði. Sr. Árni Pálsson í Söðulsholti talaði við unga fólkið bæði í gamni og alvöru, tveir pilt ar úr Menntaskólanum í Reykja- vík sungu þjóðlög frá ýmsum löndum og stúlkur úr Stykkis- hólmi sungu með gítarundirleik. Vegna þess hve samkoma þessi tókst vel í alla staði, er fyrirhug- að að halda þessari stárfsemi á- fram og mun næsta unglingasam- koma HSH verða haldin í ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.