Morgunblaðið - 01.08.1965, Page 21
Sunnudagttr 1. ágúst 1965
MORCUNBLÁÐIÐ
21
Flugnablóm og fjöldl annarra blóma prýða fjöruna.
Grágulir vikurflekkir úr Syrtlingi í fjörunni.
ast. Jökulruðningurinn er sér-
staklega skýr, en ofan á hon-
um eru hraunlög, milli þeirra
jarðvegur, sem eldur hefur um
farið.
Þessi jarðlög eru eins og opin
kennslubók í náttúrufræði.
Rétt ofam við Litla Ker er
hringstuðull í háu berigi, en þar
rétt hjá má greima jökulrispur
í ló'ðréttu bergþilL
Þegar við göngum upp Ker-
hólinn situr þar spói. Hann ber
við sólarlagshimininin í vestr-
inu. Það er rétt eiins og hann
setji í herðarmar, þegar hainn
vellur sinn graut. Ekki lengra
frá honum en spönn, situr
Heiðlóan, og baeði hún og spó-
inn fylgja okkur yfir Helluvað
ofanvert við Ker, upp allt Ker.
barð og upp á melana fyrir of
an Gramilastekk, þar sem ég einiu
sinni sá litla hagamús, rauð-
brúna, snyrta sig og snurfusa
framan við holuna sína í fall-
egri og bústinni þúfu, rétt við
rústár stekksins, sem notaður
var í gamla daga.
Og innan tfðar erum við aft
ur komin heim. — Þetta reynd-
ist tveggja tíma gönguferð í
góða veðrinu. Sólin er sigin.
Bæirnár undir Akrafjalli kúra
enn þá í fjallskuggamum. Roða
slær á Hafnarfjall og Hrúta-
dalur í Esju er fjólublár á að
líta. Júlínóttin gengur í garð.
Það eru raunar einmitt júlínæt
ur, sem skáldin hafa dásamað
mesí í Ijóðum sínum.
Alger kyrrð ríkir um lágnætt
ið. Þá viiðist friður á jörðu.
Færi betur, að bann reyndist
jafn miikill í xruannheimum og í
hinná óspilltu náttúru og nótt-
lausu voraldar veröld. — Fr. S.
Hér horfum við út fjöruna Alls staðar ríkir kyrrðin.
“Þar sem ellin óskar
þess að vera
orðin að æsku“
Viðtal við Guðbrand í Broddanesi,
nýkominn út til Islands
FRÉTTARITARI Mbl. á
Ströndum, Guðbrandur Bene-
diktsson, fyrrum bóndi í
Broddanesi fór nýlega í sína
fyrstu utanreisu til Danmerk-
ur og Noregs. t því tilefni tók
Mbl. hann tali til þess að for-
vitnast lun það hjá honum,
hvernig honum hafi litist á
sig erlendis.
— Þú hefuir aldirei út fyrir
lanidsteina komið fyrr, Guð-
bramdiur?
— Nei, en nú þegar tengda
sonur minn og dóttir hafa tek-
ið við búskapnum gaf ég mé<r
tima til þess að fara í þessa
bændaför, sem Búnaðairfélag
íslands gekkst fyrir um Dan-
mörku og Noreg.
— Og hvernig leizt þér niú
á þessi miklu landbúnaðar-
lönd? «
— iMér leizt mjög vel á
bæði lönd og þjóðir. Danmörk
eæ mdkið ræktað land, hvergi
þumlumgur lands óræktaður.
Ef ekki er um akra að ræða,
þá er skógur.
— Hvenær lögðuð þið upp í
ferðina?
— Það var hinn 26. júní, að
við fórum fl’UgleiðLs til Kaup-
mannahafnar með flugvél frá
Flugfélagi íslands. í förinni
voru bærndur víðs vegar af
landinu frá N-Þingeyjarsýslu
og ailt til Skaftafellssýslu.
Hins vegar voru engir bænd-
ur aí Austfjörðum og ísafjarð
arsýskun. Fararstjóri var Gísli
Kristjánsson, heppilegur leið-
beinandi, enda hefur hann
dvalist í Dainmörku á sínum
yngri áruim. Hann bókstaflega
þekikti allt.
— Fannst þér ekki gaman
að koma í stórbongima Kaup-
mannahöfn?
Jú, þegar til Hafnar kom
fórum við fynst um bongina,
en þeðar kvöldaði að fóirum
við í Tívolí, þar sem við
dvöldum fram eftir kvöldi.
— Og þið hafið skemmt
ykkur í Tívolí?
— Já, já, Tívolí er sá stað-
ur, þar sem ellin óskar þess
að vera orðin að æsku.
— Hvar gistuð þið á leið-
inni?
— Gististaðir voru venju-
lega í búnaðairskóknm. í Höfn
. gistum við t.d. í búmaðarhá-
skóla, sem er skammt fyrir
utan bongina. Þar hittum
við nokkra íslenzka náms-
menn er létu allsæimilega af
dvöl sinni. Þeir voru mismun-
andi langt komnir í námi eins
og genigur og gerist. í þesisum
skóla virtist mér taisverð
áherzla lögð á byggingarmál.
Við sáum þar líkön af íbúðar-
húsum og peningshúsum og
það var haft etftir kennurun-
um, að það væru tímarmir,
sem bezt væru sóttir.
— Nú, svo aikið þið út á
landsby ggðina ?
— Já, næstu diaga ökum við
uim Sjáland og skoðum margt
merkilegt. Við skoðum hallir
og gamlar bygginigar. Að
morgni þriðja dagsins ök-
um við svo vestur tdl Stóra-
Beltis og förum þar yfir á
bílferju. Þótti okkur mikið til
um að sjá þessa stóru bíla aka
inn í ferjuna og það marga
í senn. Þá komum við til Óð-
insvéa þar sem við skoðuðum
Landsmandsskolen. — Hittum
við þar námsfólk frá vanþró-
uðu löndunum, en þar var því
kennt að læra. Það fór svo eft
ir frammistöðu þess, hvort
það heldur áfraim námi eða
er látið hætta. Þar sáum við
líka hús það, er sagt er, að
H. C. Andersen hafði búið í,
en flest okkar höfðu að sjálf-
sögðu heyrt hans getið.
— Var þetta nokikuð hröð
yfiferð?
— Nei, ekki svo. Við gistum
alltaf í tvær nætur á sama
stað og notuðum daiginn á
milli til þess að líta í kring
um okkur. Einn daginn sáum
við saufjárræktarbú þar sem
bóndinn leggur mesta áherzlu
á að rækta holdaíé og að hans
áliti með góðum árangri. Þá
sáum við einnig heymjöls-
verksmiðju. Fylgdumst við
með heyinu allt frá því, er því
var kastað blautu inn í vélam
ar og, þar til það kom út hvítt
sem hveiti. Svo ókum við um
Jótland þvert og endilangt,
komurn við í Árósum, en þar
var þá landbúnaðarsýning. Á
þessari sýningu var allt, sem
nöfnum tjáir að nefna. Allt
frá hinni smæstu vél í búri
konunnar, tid hinnar stærstu
vélar bóndans. Þá voru og
sýndar skepnur alls konar
eins og t.d. nautgripir, hestar,
sauðfé, svín, hænsni o.m.fL
Meðan við dvöldumst í Árós-
um fórum við svo í ferð um
Guðbrandur Benediktsson.
himnafjöllin svokölluðu, sem
okkur þótti nú lág. Þar kom-
um við á svæði, sem Vestur-
heimsdanir eiga, mjög vel hirt
og þrifalegt. Þangað koma
þeir til mannfagnaðar annað
slagið. Frá Árósum var faarið
til Álaborgar, þar sem skoðað
voru sláturhús. Þótti okkur
ailt ganga þar fljótt og greið-
lega og virtist allt vel af
hendi leyst.
— Er nú ekki brátt komið
að því að þið farið til Noregs?
— Jú, frá Álaborg förum
við með flugvél til Kristjan-
sand í Noregi. Föstudaginn 2.
júlí erum við í Osló. Þá um
kvöldið sköðum við Vigelands
garðinn, en þar var margt að
sjá og allt svo prýtt og dá-
samlegt. í Osló skildi ég við
ferðafélaga mína um stund,
því að ég á dóttur gifta í Lar-
vík og fór ég í eins dags heim
sókn til þeirra og óku þaiu
með mig um nágrennið og
sýndu mér hið markverðasta.
Ég kom m.a. í höll þá er sagt
er að Ihsen hafi oft dvalið L
Sá ég þar mynd, af karlinum
í fullri stærð, þar sem sér á
bakið á honum út um dyr.
Talar það sjálfsaigt sínu máli
um það, að hann hafi oft verið
úti við. Mánudag 5. júlí er svo
brottfairardagurinin heim. Þá
hittumst við öll til miðdegis-
verðar, sem norska búmaðar-
sambandið hélt okkur. Var
það í gamalli h'erraigarðisbygg
ingu, þar sem veittur vor
norskur málsverður eins og
tíðkaðist að fomu. Var þetta
hið ánægjulegasta skilnaðar-
hóf. Að kvöldi var svo komið
til Reykjavíkur úr ferð, sem á
áreiðanlega eftir að verða
ferðafélögunum minnisstæð.
Að endingu vil ég svo biðja
ykkur að bera ölkam ferða-
félögunium kveðju mína, sagði
Guðbrandiur í Broddanesi um
leið og han kvaddi okkur.
Hef opnað SNYRTISTOFU
Veiti almenna snyrtingu svo sem:
Andlitsböð Handsnyrtingu
Andlitsnudd Augnahárliðun
Peeling-húðhreinsun Diatermi
og ýmsar séraðgerðir.
jf^orheló
óóon
Hlégerði 14, Kópavogi
snyrtisérfræðingur Sími 40613.