Morgunblaðið - 01.08.1965, Síða 25
Sunnuðagur ?. Sgúst 1965
MORGUNBIAÐIÐ
25
Andstæða
Sir Aléc
EFTIR einhverja stytztu valda-
baráttu í sögu íhaldsflokksins
■brezka, var Edward Heath val-
inn leiðtogi hans. Jafnframt verð
lur hann, að öðru óbreyttu, næsta
forsætisráðherraefni hans.
Margir stjórnmálafréttaritarar
telja, að það beri vitni aðlög-
unarhæfileikum flokksins, að
Heath skuli hafa valizt til þessa
hlutverks. Hann er aðeins 49 ára,
og komst fyrst á þing fyrr 15
árum.
Heath á að mörgu leyti ólíka
fortíð frá fyrirrennurum sínum.
Hann er ekki aðalsmaður, faðir
hans var byggingameistari. Hann
gekk ekki í frœga skóla, eins og
Eton, sem er venjulega óaðskilj-
onlegur þáttur uppeldis varðandi
valdamikilla manna innan íhalds
flokksins. Hann sótti venjulegan
menntaskóla. Hann er ógiftur,
og aðaláhugamál hans, utan
stjórnmála, er hljómlist.
■ Fæst af þessu hefði áður fyrr
verið talið líklegt til að verða
þeim manni til framdráttar, sem
hefði hug á forystuhlutverki
íhaldsflokksins. Það hefur hins
vegar löngun verið ein sterkasta
hefð flokksins, að leita eftir hæfi
leikamönnum, sérstaklega, þegar
erfiðlega gepgur, eins og nú,
eftir ósigurinn í þingkosningun-
um í fyrra.
Heath hefur hins vegar undir-
búið jarðveginn. Hann hefur
reynzt gæddur einstökum aðlög-
tmarhæfileikum. Rödd hans og
virðulegt grátt hár hæfa vel
manni í hans stöðu. Þá er hann
sagður njóta fylgis þeirra, sem
telja, að íhaldsflokkurinn eigi
ekki að halda fast við gamlar
hefðir, heldur grípa tækifærin,
þegar þau gefast. Margir álíta,
að Heath sé sinnar eigin gæfu
smiður. Hann fékk á sínum tíma
skólastyrk og komst til Oxford.
Er styrjöldin brauzt út, komst
hann einnig til nokkurrar tign-
ar innan hersins.
Heath er sagður mjög vel gef-
inn maður, og mjög vinnuharð-
ur. Margir telja hann þó dugleg-
aa ræðumann, frekar en fágað-
an. Hann byggir ræður sínar á
ákveðnum skoðunum, en ekki
framkomu sinni eða orðalagi.
Fáir eru þeirrar skoðunar, að
hann sé gæddur sérstakri sköp-
unargáfu eða hugmyndaauðgL
Stjórnmálaferill hans hefur ein-
kennzt meira af því, á hvern
hátt hann fylgir eftir stefnumál-
um sínum, en hæfileika til að
sjá fram í tímann, og skipuleggja
í samræmi við það.
Heath vakti fyrst á sér athygli
fyrir dugnað, og honum fór bet-
ur framkvæmd verka en skipu-
lagning. Einkum á það við, er
honum var fólgið að samræma
afstöðu flokksbræðra sinna í
neðri málstofunni, meðan á Suez
deilunni stóð. Þá sýndi hann í
sem mikla lagni — og hörku.
Athygli heimsins beindist að
Heath, er hann gerðist aðalfull-
trúi Breta í umræðunum um
væntanlega aðild þeirra að Efna
hagsbandalagi Evrópu. Þar sýndi
hann góða samningshæfileika,
þótt svo færi að Frakkar settu
Bretum um síðir stólinn fyrir
dyrnar.
Heath varð iðnaðarmálaráð-
herra, er Sir Alec Douglas Home
tók við af Harold Macmillan,
1963. Það var fyrsta ráðherraem-
bætti Heath, og mun Home hafa
gert það í þakklætisskyni fyrir
veittan stuðning í þeirri valda-
baráttu. Aftur vakti Heath á sér
athygli, er honum tókst að fá
' breytt gömlu fyrirkomulagi, þar
sem framleiðendum var gert
ókleift að ákveða smásöluverð
varnings síns.
Eftir ósigur íhaldsflokksins í
kosningunum á sl. hausti var
Heath gerður að aðaltalsmanni
flokksins í efnahagsmálum. Þá
Var honum falin yfirumsjón með
gerð nýrrar stefnuskrár flokks-
ins. Erfitt er að fella nokkurn
dóm um, hvernig honum hefur
tekizt til við það hlutverk, því
að flokkurinn hefur ekki komizt
til valda síðan.
Þvx eru margir haldnir nokkr-
um efa um hæfileika Heath til
að stjórna Íhaldsflokknum. Hann
hefur litla reynslu á því sviði
flokksstarfseminnar. Fáar nýjar
hugmyndir hafa verið raktar til
hans, en starf hans hefur aðal-
lega legið í framkvæmd stefnu-
mála, sem aðrir hafa unnið að.
Þó hefur hann náð svo langt, og
það þrátt fyrir, að margir
íhaldsmenn hafi verið lítt hrifn-
ir af þeim tveimur stefnumál-
um flokksins, sem Heath hefur
einbeitt sér hvað mest að: aðild
Breta að Efnahagsbandalaginu
og afnám smásöluverðsákvörð-
unar framleiðenda.
Það er erfitt að komast hjá
þeirri niðurstöðu, að val Heath
standi í sambandi við persónu
hans. Hann berst. Hjá honum
gætir hörku, sem margir telja,
að höfuðandstæðingur hans nú,
Reginald Maudling, hafi ekki til
að bera. íhaldsmenn láta það
sennilega margir gott heita um
þessar mundir að þeim sé sýnd
einbeittni því að flokkurinn vill
aftur taka við stjórnartaumun-
um.
íhaldsmenn hafa valið algera
andstæðu Sir Alec Douglas
Home, sem margir hafa talið í
hópi áhugamanna. Heath hefur
stjórnmál að atvinnu.
"Hægri" sósíal-
ismi Belga
STÓR loforð um velmegun og
sósíalisma einkenna stjói'n þá,
sem nú hefur tekið við völdum
í Belgíu, undir stjórn Pierre
Harmel. Almenningur hefur tek-
ið stjórnarmynduninni vel, enn
sem komið er a.m.k., eftir níu
yikna stjórnai'kreppu.
Stjóm Harmel er ný sam-
steypustjórn kaþólskra og sósíal-
ista, nær nákvæm eftirmynd
þeirrar stjórnar, sem ósigur beið
í kosningunum í maí. Lciðtog-
inn er Valloni, að visu, en stjórn
arsamstarfið byggist nú, eins og
áður, á gagnkvæmum stuðningi
stjórnarflokkanna við fyrirhug-
aðar framkvæmdir í ákveðnum
landshlutum. Langar viðræður
eiga að tryggja, að lítil gagnrýni
stjórnarflokkanna einkenni sam-
starfið.
Þótt svo sé, hafa kosningarnar
sennilega ekki verið árangurs-
lausar. Stjórnarflokkarnir eru
nú ekki allsráðandi á þingi.. Þing
mannafjöldi þeirra er nú nær
fjórðungi minni en áður, en
sjtórnarandstaðan þeim mun
sterkari. Áður réð stjórnin yfir
180 þingsætum, en andstaðan að-
eins 32. Nú er staðan 141 á móti
71.
Erfiðasta vandamálið nú er
stjórnarskráin, því að stjórnar-
flokkana vantar nú eitt atkvæði
til að hafa tilskilinn meirihluta.
Kjördæmabreyting sú, sem gerð
var á síðasta þingi, færði Flæm-
ingjum aukin áhrif. Á móti kem-
ur, að tryggja verður frönsku-
mælandi minnihluta í landinu
vissan rétt.
Stjórnarflokkarnir hafa tekið
höndum saman um lausn, sem
aðrir flokkar geta ekki fallizt á.
Hér er um afleiðingu þess að
ræða, að reynt hefur verið að
halda öfgamönnum í hópi Flæm-
ingja innan kalþólska flokksins.
Hugmyndin er, að sérhver
þingmaður telji sig annað hvort
í hópi Flæmingja eða Vallóna.
Ekkert frumvarp sem hefur bein
áhrif í landshlutum hvors um
sig, á að samþykkja, nema fullt,
samkomulag hafi náðzt milli
beggja hópa. Þannig yrði land-
inu skift í tvennt, eftir tungu-
málum, en Brússel, þar sem bæði
málin eru viðurkennd, yrði nokk
urs konar ,eyja“ í landinu.
Margir telja það sorgleg örlö.g
fyrir borg, sem gegnir svo þýð-
ingarmiklu hlutverki í Evrópu
nútímans.
Á þessari hugmynd hvílir
stjórnarsamstarfið. Áætlun Harm
el er að láta ganga til kosninga
um hana, en þó ekki fyrr en
tekizt hefur að tryggja nauðsyn-
legan atkvæðafjölda. Þar á for-
sætisráðherrann við sína eigin
stuðningsmenn að etja. Vall-
ónsku sósíalistarnir voru þessu
andvígir, og tveir þriðju hlutar
þeirra greiddu atkvæði gegn
stjórnarsamstarfinu. Því er allt
undir því komið, hvernig til
tekst að halda einingu innan
sósíalistanna.
Meginstefna nýju stjórnarinn-
ar er á sviði húsnæðismála, fé-
lagsmála og almannatrygginga.
Hún byggir á aukinni iðnvæð-
ingu, aukningu þjóðarframleiðsl
unnar um 3—4% árlega, jafn-
framt því sem unnið skal mark-
visst að því að hindra frekari
samdrátt í nýtingu kolanám-
anna.
Þó er ekki um að ræða, að ka-
Framh. á bls. 31
Bandaríski geimfarinn Gordon ferð sína. Gert er ráð fyrir að samt Charies Conrad, ein-
Cooper (í geimfarinu á sjón- Cooper fari í geimferð í geim- Uverntíma í ágúst.
um) æfir undir næstu geim- fari af gerðinni „Gemini“ á-