Morgunblaðið - 19.01.1966, Síða 2

Morgunblaðið - 19.01.1966, Síða 2
€> MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. janúar 1966 % Bjargaði íslenzkum sjó- mönnum fyrir 3 mánuðum MATTHEW Mecklenburgh, skipstjóri strandaða togarans Wyre Conquerer, er sá hinn sami sem 18. október í haust sýndi mikla hugdirfsku er hann bjargaði skipverjum af vélbátnum Strák undan Grindavík. f>á var hann með . togarann Imperialist og renndi upp að bátnum, sem var að fara í brimgarðinn, svo tveir síðustu mennirnir gætu stokk- ið yfir í togarann. Eftir þá björgun hélt Slysa- varnafélag íslands skipbrots- mönnum á Strák og skipverj- um á Imperialist kaffiboð, þar sem Gunnar Friðrikss., forseti Slysavarnafélagsins hélt ræðu. Færði hann Mecklenburgh skipstjóra og skipverjum hans þakkir fyrir þessa björgun og sagði að hennar yrði minnzt, sem einnar glæsilegustu björg unar hér við land. Og nú hafa þessir sömu brezku sjómenn, sem þá björguðu íslenzkum félögum sínum, notið starf- semi slysavarnadeildanna og sjálfum verið bjargað úr sjávarháska. Svo sem kunnugt er af frá- sögnum blaða, fórst Strákur Matthew Meckler.burgh, skipstjóri. út af Grindavík hafði leki komið að bátnum og rak hann út af Grindavík í ofsa- veðri. Höfðu skipverjar kom- ið upp segli og héldu sér frá brimgarðinum, en lekinn fór vaxandi og ófært var inn til Grindavíkur. Óttuðust menn að báturinn færi upp í klett- ana. Togarinn Imperialist var þarna skammt frá, eftir að Mecklenburg skipstjóri vissi um Strák og aðstæðurnar þar, sigldi hann nær og 7 menn komust yfir í togarann á gúmbáti, en skipstjóri og stýrimaður urðu eftir. I>eir voru bátlausir. Sigldi þá brezki togarinn hvað eftir annað upp að bátnum, þar sem hann lá, og loks tókst mönnunum tveimur að stökkva yfir í hann. Sagði Mecklenburg í viðtali við Mbl., að hann hefði verið hálf ragur við að sigla til bátsins, þar sem veður var mjög vont og hann þekkti lítið til á þessum slóðum. Hann lét það samt ekki á sig fá, og bjargaði mönnunum, sem fyrr er sagt. Fjárleitarmenn í hrakn ingum við Þórisvatn SÍÐASTLIÐINN sunnudag héldu 3 menn á jeppabifreið frá Herru í Holtum inn á Seltjarnnrnes Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Seltirninga verður haldinn í Val höll í kvöld kl. 20,30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Axel Jónsson, alþm. ræðir stjórnmálaviðhorfið. afrétt í eftirleit. Var fólkið, sem mun hafa verið ein kona og tveir karlmenn, væntan- legt til byggða aftur á mánu- dagskvöld. Slæmt veður gerði hins vegar á mánudag á leitarslóðum við Þórisvatn, en þangað var ferð- inni heitið, og ekki kom bíll- inn fram á þriðjudagsmorgun. Var þá leitað til Flugbjörgunar- sveitarinnar í Reykjavík og hún beðin að aðstoða við eftirgrennsl Sigurður Þorsteinsson varð- stjóri varð fyrir svörum af hálfu Flugbjörgunarsveitarinnar og hafði hann samband við flugfé- lögin, sem fljúga til Austurlands og bað þau að kanna þetta svæði í gærmorgun. Flugvél Flugfél- ags íslands, sem var á leið aust- ur leitaði með Þórisvatni að sunnan og fann þar bílslóðir en missti þær nálægt brúnni á Köld ukvísl. Var þá haft samband við Hall- dór Eyjólfsson frá Rauðalæk, sem er við Tangarfoss við Þjórsá að vatnsmælingum, og hann beð inn að huga að bílnum. Þegar vélin kom austan frá Egilsstöðum síðari hluta dags í gær gáði hún að hvort eitthvað nýtt sæist með Þjórsá og sá þá tvo bíla á leið niður Búðarháls og þótti þá sýnilegt að Halldór hefði fundið leitarmenn, enda gat ekki verið um aðra bíla að ræða á þessum slóðum. an. Skákir Fribriks off Vasjúkov í biS Sandgerði Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Miðneshrepps verður haldinn í kvöld kl. 21,00 í samkomuhúsinu Sandgerði. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Sverrir Júliusson, alþm. ræðir stjórnmálaviðhorfið. Friðrik heldur forusfunni enn í GÆRKVÖLDI voru tcfldar biðskákir á Reykjavíkurmótinu úr þriðju og fjórðu umferð. Urðu úrslit þan að Kieninger vann biðskák sína úr þriðju umferð á móti Birni Þorsteinssyni, og Jón Kristinsson vann skák sína úr fjórðu umferð á móti Jóni Hálfdánarsyni. Þá gerðu þeir Hæðin yfir Grænlandi var mjög föst í sessi í gær, og eins lægðin yfir N-Atlants- hafi. Berst nú mikið af ís- hafslofti til landsins, og var frostið víða 10-15 gr. í gær, mest 21 gr. á Hólsfjöllum. Böök og O’Kelly jafntefli i bið- skák þeirra úr fjórðu umferð. í gærkvöldi voru svo tefldar skákir í fimmtu umferð og urðu úrslit sem hér segir: O’Kelly og Guðmundur Pálmason gerðu jafn tefli. Björn Þorsteinsson og Boök einnig jafntefli. Jón Kristinsson og Wade jafntefli, en skák þeirra Friðriks og Guðmundar Sigur- jónssonar, Freysteins og Jóns Hálfdánarsonar, og Vasjúkovs og Kieningers fóru allar í bið. Hafa allir þeir sem framar eru taldir betri stöðu. Staðan eftir 4 umferðir: 1. Friðrik Ólafsson 4 vinninga. 2. Vasjúkov vinning. 3. O’ Kelly 3 vinninga. 4. Guðmundur Pálmason 2% vinning. 5.—8. Böök, Björn Þorsteinsson, Jón Kristinsson, Kieninger 2 vinn- inga hver. 9. Freysteinn 1% v. 10. Guðm. Sigurjónsson 1 vinn- ing. 11. Wade % vinning og 12. Jón Hálfdánarson 0 vinning. Á morgun tefla: Guðm. Sigur- jónsson og Vasjúkov; Böök og Friðrik ólafsson; O’Kelly og Björn Þorsteinsson; Guðmundur Pálmason og Jón Hálfdánarson; Wade og Freysteinn, og Kiening er og Jón Kristinsson. Nokkrir rithöfunidanna, sem fundinn sóttu. Útlán bóka ísl. rithöfunda óheimil — úr almenningsbókasöfíium nema greiðsla komi fyrir í GÆRKVÖLDI var haldinn fundur í Rithöfundasambandi ís- Iar.'Js í Tjarnnrbúð. Björn Th. Björnsson, formaður Rithöfunda- sambandsins, setti fundinn og minntist í fundarbyrjun Helga Hjörvars rithöfundar, sem lézt fyrir skemmstu. Meginmálin á dagskrá fundarins, voru greinar gerð um gang bókasafnsmálsins, og umræður um eftirfarandi til- lögu sambandsstjórnar: „Almennur fundur í Rithöf- undasambandi íslands ályktar að mælast eindregið til þess við aila félaga sína, svo og aðra er við bókritun og þýðingar fást, að þeir láti frá og með 1. maí 1966 prenta á bækur sínar algjört bann við því, að þær séu lánaðar út af almenningsbókasöfnum nema gjald komi fyrir til höf- unda eða þýðenda. Fundurinn brýnir það fyrir ísl. rithöfundum og þýðendum, að þeir sjái til þess áð samþykkt þessari sé fylgt fram við prentun bóka sinna, enda eru þeir þar í full- um höfundarétti." Stefán Júlíusson flutti greinar- gerðina um gang bókasafnsmáls- ins. Hann sagði m.a. að rithöf- undar hefðu lengi reynt að fá framgengt lagasetningu varðandi það, að rithöfundar fengju greiðslu fyrir útlán og afnot af bókum sínum á almennum bóka- söfnum, eins og .tíðkaðist t.d. í flestum ríkjum Evrópu. Norður- landaráð hefði látið málið til sín taka, og árið 1964 hefði ráðið samþykkt áskorun til allra aðild arríkjanna þess efnis, að greiðsl- ur til rithöfunda fyrir bókaút- lán yrði gagnkvæm um öll Norð urlönd. Hefðu ísl. fulltrúarnir greitt þessu atkvæði. Hann sagði ennfremur að í ársbyrjun 1963 hefði menntamála ráðherra skipað nefnd til þess að athuga höfundarétt rithöfunda, vegna útlána og afnota ísl. bóka á almennum bókasöfnum. Nefnd- in, en í henni áttu sæti, Þórður Eyjólfsson, hæstaréttardómari, Guðmundur Hagalín, bókafull- trúi ríkisins, Dr. Finnur Sig- mundsson landbókavörður og ribhöfundarnir tvelr, Stefán Júlíusson og Matthías Johannes- sen, skilaði áliti í ársibyrjun 1964. Hefði nefndin verið sammála um álit sitt og skilaði hún niður- stöðum til menntamálaráðherra í formi „frumvarps til laga um breyting á og viðauka við lög um almenningsbókasöfn“. Stefán Júlíusson sagði enn- fremur áð menntamálaráðherra hefði þegar látið setja frumvarp- ið, en það hefði þó aldrei kom- izt lengra en í próförk, því að þá hefði ríkisstjórnin stöðvað það. Rifhöfundasamibandið hefði þá farið fram á það við mennta- málaráðherra að fá fjóra þing- menn, einn úr hverjum flokki, til þess að bera frumvarpið fram, og hefði ráðherrann ver- ið því algjörlega samlþykkur. Hefði þegar verið ymprað á málinu við tvo stjórnarþing- menn og þeir tekið mjög vel í það. En þá hefði verið liðið svo langt á þing, að ákveðið var að fresta málinu þar tiil núna i haust. Hann kvað þá aftur hafa verið farið þess á leit við þessa tvo- stjórnarþingmenn að þeir tækju að sér að flytja málið á þessu þingi, og þeir tekið vel í þ'að, en síðan hefði verið leitað ti.1 tveggja stjórnarandstöðuþing- manna, sem einnig hefðu tekið málaumleitinni mjög vel. Kvaðst Stefán hafa búizt við að málið yrði tekið upp á Alþingi um miðjan nóvember, en raunin hefði orðið sú, að það hefði ekki enn verið tekið fyrir, þar sem málið hefði borizt ríkisstjórninni í gegnum stjórnarþingmennina, og hún ekki viljað láta taka það upp. Hefði Rithöfundasambandið þá ákveðið að taka málið í sínar hendur, og samið áðurgreinda til lögu, enda stæðu þeir í óskoruð- um rétti. Fremur fátt rithöfunda var á þessum fundi, enda skýrði Björn Th. Björnsson, formaður sam- bandsins, frá því að mistök hefðu orðið í sambandi við útburð á fundarboðunum. Allfjörugar um- ræður urðu um áðurgreinda til- lögu, en c.llir voru þeir sem töl- uðu henni samþykkir. Fundurinn samþykkti ennfremur að senda sænska ljóðskáldinu, Gunnar Eke löf, sem hlaut þókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs fyrir skemmstu, heillaóskaskeyti og ennfremur var samþykkt tillaga um, að er íslenzka sjónvarpið hæfi göngu sína skyldi sjónvarp- ið á Keflavíkurflugvelli verða takmarkað við herstöðina eina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.