Morgunblaðið - 19.01.1966, Side 14

Morgunblaðið - 19.01.1966, Side 14
14 MOkGUHBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. íanúar 1966 Útgefandi: Framkvæmdastj óri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 95.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. SJÁLFSTÆÐISFL OKK- URINN OG VERKA- L ÝÐSHREYFINGIN Cjálfstæðismenn hafa á síð- ^ ustu árum haldið nokkrar stjórnmála- og verkalýðsráð- stefnur í hinum ýmsu lands- hlutum. Hafa þær yfirleitt tekizt vel og átt þátt í að stuðla að auknum áhrifum Sjálfstæðisflokksins innan verkalýðshreyfingarinnar. Nú síðast beitti verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins sér fyrir slíkri ráðstefnu á ísafirði um síðustu helgi, og var hún sótt af fólki úr kaupstöðum og kauptúnum við Djúp. Þessi ráðstefna fór prýðilega fram og sýndi vaxandi áhuga á verkalýðsmálastefnu Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörð- um. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur farið mjög vaxandi inn- an verkalýðsfélaganna á und- anförnum árum .Orsök þess er fyrst og fremst sú að al- menningur í landinu gerir sér ljóst að Sjálfstæðismenn hafa barizt með raunhæfum hætti fyrir bættum lífskjörum fólksins. Þeir hafa haft alla forustu um hina miklu at- vinnulífsuppbyggingu, sem stóraukið hefur arðinn af starfi þjóðarinnar. Af því hef ur svo leitt að meira hefur komið til skiptanna milli einstaklinganna. Lífskjörin hafa stöðugt verið að jafnast og efnahagur alls almennings að batna. ★ Það ex hin mikla fram- leiðsluaukning í skjóli nýrra og fullkominna framleiðslu- tækja, sem hefur gert þjóðfé- laginu mögulegt að gera marg víslegar ráðstafanir til þess að skapa félagslegt öryggi. Á fjárlögum ríkisins eru nú veittar um 1000 milljónir króna til félagsmála. Þar af eru veittar um 700 milljónir króna til almannatrygginga. Dylst engum, að engin ríkis- stjórn hefur unnið jafn ötul- lega og Viðreisnarstjórnin að eflingu hvers konar lýðhjálp- ar og félagslegs öryggis. Á það má einnig benda, að engin ríkisstjórn hefur stigið jafn stór skref til stuðnings við íbúðabyggingar í landinu og núverandi ríkisstjórn. Á síðastliðnu ári voru samtals veittar 303 milljónir króna til íbúðalána og útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis. — Húsnæðismálastjórn tókst nú í fyrsta sinn í sögu sinni að veita öllum þeim lán er áttu fyrirliggjandi fullgildar um- sóknir. ★ Almenningur í landinu sér og finnur að stjórnendur landsins hafa einlægan vilja á að bæta hag fólksins, jafna og tryggja lífskjörin. Þess vegna fer fylgi Sjálfstæðis- flokksins stöðugt vaxandi inn an verkalýðshreyfingarinnar. Sannleiksgildi kjörorðsins ,st,étt með stétt“ verður stöð- ugt augljósara. VANDAMÁL VERZLUNAR- INNAR ¥ tíð núverandi ríkisstjórnar hefur frjálsræði í verzlun og viðskiptum landsmanna verið aukið til mikilla muna. Árangurinn má sjá í því mikla vöruúrvali, sem nú er í verzl- unum landsmanna og gefa neytandanum það val, sem hann á rétt á. Og auðvitað hefur þetta aukna frjálsræði einnig komið verzluninni til góða. Hinu er ekki að leyna, að þrátt fyrir aukið frjálsræði í innflutningi eiga vissar grein- ar verzlunarinnar við tölu- verða erfiðleika að glíma, sér- staklega vegna ósanngjarnra verðlagsákvæða. í sjálfu sér er ekkert við því að segja, þótt hér sé nokkurí eftirlit með verðlagi. En eftirlit með verðlagi er auðvitað allt ann- að en verðlagshöft. Hitt er auðvitað ófært til lengdar, að álagningu á ákveðnum vöru- tegundum sé haldið svo niðri, að ekki nægi fyrir sannanleg- um dreifingarkostnaði. Af þessum sökum eiga viss- ar greinar matvörudreifingar og vefnaðarvöruverzlana nú við mikla erfiðleika að etja, sem ekki verður komizt hjá að bæta að einhverju leyti úr. Það er engum til góðs, að svo verði þrengt að ákveðnum greinum verzlunarinnar að hún geti ekki veitt neytend- um þá þjónustu, sem þeim er skylt. Á hinn bóginn er það einnig ljóst, að mjög hefur verið rýmkað um verðlagsákvæði síðustu árin og það leggur verzluninni einnig þær skyld- ur á herðar að gæta hófs í verðlagningu. í þeim efnum verða neytendur að veita verzluninni sterkt aðhald, en sannast sagna virðast neyt- endur hér á landi ekki hugsa ýkja mikið um það, hvort vör- ur eru nokkrum krónum dýr- ari eða ódýrari. Á undanförn- um árum hefur töluverð breyt ing orðið • í verzlunarháttum hér á landi. Nýjar og glæsi- legar verzlanir með miklu í GÖMLXJ frönsku húsi við veginn, sem liggur að Tan Son Nhut-flugvellinum í Sai- gon hefur Bandaríkjamaður, að nafni Edward Lansdale, bækistöð sína. Lansdale, sem er 57 ára að aldri, er fyrrver- andi hershöfðingi í handa- riska flughernum og á að baki sér viðburðaríkan starfsferil. Hann er nú starfsmaður bandaríska sendiráðsins í S- Vietnam og við hann binda margir Bandaríkjamenn nú vonir sínar um, að komið verði á þjóðfélagslegum um- bótum í S-Vietnam. Landsdale er þeirrar stað- föstu trúar, að stríði'ð í Viet- _nam verði ekki unnið með vopnum einum, — hann telur, að það verði aldrei unnið nema því' aðeins, að þjóðin verði unnin til fylgis við rót- tæka sjórnmála- og þjóðfé- lagsstefnu, sem geti komið i stað þeirrar stefnu, sem Viet Meðlimir úr ungmennasveitunum að starfi. Cong hreyfingin boðar. þeim lestur, skrift og reikn- ing. Þessar sveitir ungmenna eru að því leyti frábrugðnar bandarísku friðarsveitunum, að þær eru búnar vopnum, sem hiklaust er beitt gegn árásum skæruliða Viet Cong, ef með þarf. Haft er eftir bandarískum embættismanni í Saigon, að mikill hugur sé í unga fólk- inu og hann telur líkur til þess að þetta starf beri mun meiri árangur en t. d. víg- girðingar þorpanna í stjórn- artíð Diems. Þetta er þó aðeins upphaf lausnar mikils og flókins vandamáls. Viet Cong skæru- liðar ráða nú fyrir u. þ. b. 25% allra íbúa S-Vietnam sem eru um 15 milljónir talsins. Stjórnin í Saigon ræður einnig fyrir u. þ. .b. 25% en hvorugur aðilinn getur talizt hafa algera stjórn á þeim 50^ sem þá eru eftir. Það er verk- efni Lansdales og Thangs hershöfðingja að auka áhrif stjórnarinnar — en hætta er á því, að það verði torsótt verk, þar sem þeir hafa að- eins yfir að ráða 25 milljón- um dollara á ári og nokkrum þúsundum ungmenna. Fram að þessu hafa þeir Lansd. -j og Thang ekki getað bent á mörg ytri merki ár- angurs, en haft er eftir banda- rískum embættismanni: Það er erfitt að mæla tilfinningar þjóða og ekki hlaupið að því að koma við skoðanakönnun — en við höldum að hugmynd ir Lansdales séu að bera ávöxt“. Enginn þorir að vera of bjartsýnn, ekki einu sinni verkalýðsleiðtogarnir, mennta mennirnir og hermennirnir, sem koma saman kvöldin í húsi Lansdales til þess að skeggræða þarfir þjóðarinnar vi'ð bandarísku ráðgjafana. Og Bandaríkjamenn eru ekki allir á eitt sáttir um gildi hugmynda Landales, þótt margir telji rétt, að hann fái Framlh. á bls. 18 Edward Lansdale Lansdale kom til Saigon síðla sl. sumars — en hann á að baki langa dvöl í Aust- urlöndum og er m. a. frægur fyrir að vera fyrirmynd að sögupersónunni Edwin B. Hillanlale, ofursta — ö'ðru nafni „The Ragtime Kid“ i metsölubókinni ,Ljóti Ame- ríkumaðurinn" eftir þá William J. Lederer og Eugene Burdick. Sú bók var skrifuð sem ádeila á stefnu Banda- ríkjanna í SA-Asíu en Hill- andale var einn af fáum bandarískum starfsmönnum, sem höfundar töldu hafa unn- ið málstað Bandaríkjanna gagn og stuðning. Lansdale var um tíma ráð- gjafi Ramsons Magsaysay, fyrrum forseta á Filippseyjum og síðar ráðgjafi Ngó Dinh Diem, fyrrum forseta í S-Viet- nam og barðist fyrir því að þeir kæ.mu á lýðræðislegum endurbótum og stjórnarhátt- um. Þegar Henry Cabot Lodge, sendiherra Bandaríkj- anna í S-Vietnam, kallaði hann þangað til starfa í sum- ar töldu margir, að honum væri ætlað að losa landið við herforingjastjórn Nguyens Cao Kys og koma á borgara- legri stjórn. Var talið, að Ky sjálfum litist ekki meira en svo á blikuna. Samstarfsmenn Lansdales neita því hinsvegar með öllu, að þetta sé verkefni hans og segja: „Auðvitað vonum við allir, að fyrr eða síðar verði komi á borgaralegri stjórn í S-Vietnam, en það er ekki tímabært nú. í miðri hörku- styrjöld“. Sem stendur er helzta verk- efni Lansdales a.m.k. að að- stoða S-Vietnamstjórn við að skipuleggja og framkvæma nýja áætlun um umbætur í landbúnaði. Vonazt er til, að þessar umbætur leiði til bætts efnahags og vinni landsbúa til aukinnar hollustu við stjórn- ina í Saigon. Ky og hershöfðingjar hans hafa sýnt fullan samstarfs- vilja enda þótt svo sé ráð fyrir gert í þessari áætlun, að kosningar verði í landinu og borgaraleg stjórn taki við af hershöfðingjastjórninni þegar er því verður við komið. Ky hefur skipað Nguyen Duc Hhang, ungan hershöfð- ingja, til þess að hafa yfir- umsjón me'ð framkvæmd þess arar áætlunar. Hann hefur í samráði við Lansdale stofnað sveitir ungmenna með svip- uðu sniði og Friðarsveitir Bandaríkjanna. A'ð loknu tíu vikna námskeiði fara sveitar- menn, sem flestir eru á aldr- inum 20 — 30 ára, til þorp- anna sinna og vinna þar að því að leggja vegi og byggja brýr, kenna íbúunum hrein- læti og jafnframt að kenna i vöruúrvali og sjálfsafgreiðslu fyrirkomulagi hafa risið upp og að þeirri þróun ber að stuðla. í verzluninni eins og öðrum atvinnugreinum verð- ur framþróunin að vera stöð- ug, nýir tímar kalla á breyt- ingar þar eins og annars stað- ar. —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.