Morgunblaðið - 19.01.1966, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.01.1966, Qupperneq 19
Miðvikudagur 19. janúar 1966 MORGU N BLAÐIÐ 19 Þörf bók um umferðarmál í UMFERÐINNI J6n Oddgeir Jónsson tók saman @ Eókin er 84 blaðsíður að stærð í svipuðu broti og „Umferðar- bókin“, eftir sama höfund. Myndin er af kápusíðu bókar- innar. Komin er út ný kennslubók í umferðarmálum, sem nefnist „í UMFERÐINNI“. Hún er einkum ætluð nemendum gagnfræða- stigsins og kemur að gagni þeim, sem búa sig undir aksturspróf á vélhjóli eða bifreið. Einnig eru þar leiðbeiningar fyrir gangandi vegfarendur. í bókinni birtast umferðarlög og reglur með 180 \ skýringarmyndum og litmyndir af öllum umferðarmerkjunum., Jón Oddgeir Jónsson tók bókina saman, en Torfi Jónsson sá um teiknun eftir myndavali höfundar. Fræðslumálastj óri skrifar stutt- an íormála. Litbrá h.f.‘ prentaði bókina, en Ríkisútgáfa námsbóka gaf út- Hér birtast sex af blaðsíðum bókarinnar „í umferðinni", smækk- aðar um %. Það getur skipt miklu máli að komast leiðar sinnar. Hindrið því aldrei þá, sem gefa merki um að aka fram hjá. Ef vélknúin ökutæki eru notuð í einstök skipti í þjónustu lögreglu, slökkviliðs eða í lífsnauðsyn, svo sem við flutning slasaðra, skulu þau auðkennd greinilega með veifu. Ökumaður skal tilkynna lögreglunni innan sólarhrings aksturinn. Á myndinni er sýnd tvöföld akbraut, Á hvorri akbraut eru tvær ak- reinar fyrir akstur í sömu átt. Notið vinstri akrein og hleypið þeim, sem hraðar aka, fram hjá yður á hægri hönd. Vinstri akrein er ætluð fyrir hæga umferð, en sú hægri fyrir hraðari umferð. Varúðarlínur: Varúðarlínur skipta akbrautum Iangsum. Þær eru ýmist óbrotin lina eða brotin lína samhliða óbrotinni linu. Varúðarlínur gefa til kynna, að hættulegt sé að skipta um akrein, og er óheimiltað aka yfir þær, nema brýna nauðsyn beri til. Brotin varúðarlína samhliða óbrotinni llnu. Obrotin varúðarlína. Þar sem brotin llna er samhliða óbrotinni línu, má þó aka yfir þær þeim megin frársem brotna línan er, ef nauðsynlegt er, enda sé gætt fyllstu varúðar. Varúðarlínur skal einkum nota á hæðum og í beygjum, þar sem Útsýn er verulega hindruð. AKREIIMAR Ef tvær eða fleiri akreinar fyrir sömu akstursstefnu eru á vegi, skal ökumaður I tæka tið, áður en komið er að vegamótum, færa ökutækið á þá rein, sem heppilegust er, miðað við fyrirhugaða akstursstefnu. Ekið aftur á bak. Ekki má snúa ökutækjum á vegi eða aka þeim aftur á bak, nema unnt sé að gera það án áhættu eða óþæginda fyrir aðra. Óheimilt er að nota vörubifreið til flutnings farþega á palli nema f vönduðu skýli, örugglega festu á pallinn. Bifreiðaeftirlit ríkisins metur, hvort skýlið fullnægir öryggisreglum. Flytja má aðstoðar- menri um stuttan veg á palli, enda þótt þar sé ekki skýli. Skal þá vera traust handfang á efri brún stýrishúss eða fremst á vöru- pallinum og mega þar ekki fleiri vera en haft geta öruggt hald á handfanginu. Sérhvert ökutæki skal svo gert og haldið þannig við, að af notkun þess leiði hvorki óþarfa hættu né óþægindi.þarmeðtalinnhávaði, reykur eða óþefur eða hætta á skemmdum á vegi. Viðgerðarverksteeði og öryggisbúnaður bifreiðar. Verði starfsmaður viðgerðarverkstæðis þess var, að öryggisbúnaði vélknúins ökutækis, sem þar er til viðgerðar eða breytinga, sé á- fátt, skal hann skýra yfirmanni verkstæðisins frá þvl, en honum ber að gera eiganda ökutækisins aðvárt og síðan tilkynna það bif- reiðaeftirlitsmanni eða lögregíu- stjóra, ef eigi verður úr bætt. SÉRREGLUR UM VÉLHJÓL (reiðhjól með hjálparvél). Æfingaakstur á vélhjólf: Nám I akstri vélhjóla má fara fram án kennara. Æfingaakstur má ekki fára fram, fyrr en fengin hefur verið til hans heimild hjá lögreglustjóra og ekki fyrr en 14 dögum áður en próf skal þreytt. Meðan á æfíngaakstri stendur, skal ökumaður hafa með sér sönnunargögn um, að hann hafi fengið heimild til æfingaaksturs. Lögreglustjóri getur ákveðið, hvar æfingaakstur má fara fram. Námskeið f umferðarreglum: Heimilt skal lögreglustjóra að krefjast þesd, að umsækjandi takl þátt t stuttu námskeiði [ umferðarreglum, akstri og meðferð vél- hjóla. 15. ára: Enginn má stýra vélhjóli, nema hann sé fullra 15 ára að aldri. Vélhjól er ætlað einum manni: Óheimilt er að hafa búnað til farþegaflutnings á vélhjóli. Vélhjól eru skrásetningarskyld: Vélhjól eru skrásetningar- og tryggingarskyld. Akstursheimild rituð á vegabréf: Heimild til aksturs á vélhjóli skal rituð á öftustu síðu innlends vegabréfs, undirrituð af lögreglustjóra. Það krefst ákveðins tíma og vegalengdar að stöðva öku- tæki, sem er á ferð. Séð,.,. hugsað,,.. hemlað; -aCK- -=^6*. /I Viðbragðsvegalengd. 'Hemlunarvegalengd. Talsverður tími Ifður, frá þvi að þér sjáið hindrun á vegi, þar til þér stígið á hemilinn .að gagni. Viðbragðstími þessi er mismun- andi hjá einstaklingum eða ’/2 til'2 sekúndur. Meðalviðbragðs- tími er talinn vera. 0,9 sek. Á þejm tíma getur ökutækið runnið áfram um 15 metra.miðað við 60 km-aksturshraða á klukkustund, og er þessi vegalengd nefnd viðbragð§vegalengd. Frá þvi þér stígið á herhil ökutækis, þar til það stöðvast, getur það runnið verulegan spöl áfram. Ökuhraði, yfirborð og halli vegar, svo og hemlabúnaður og ástand hjólbarða, hefur'auðvitað áhrif á það, hve'hemlunarvegalengdin verður löng, en sem dæmi má nefna, að hún getur orðið 36 m á þurrum malarvegi,' miðað við 60 km aksturshraða á klukkustund.'4/ Viðbragðsvegalengd og hemlunarvegalengd saman iagða’r eru nefndar stöðvunarvegalengd, er verður í nefndu atviki 51 m. Þetta er eflaust meira en ökumenn gera sér almennt grein fyrir, og þvi full ástæða til að fara nákvæmlega eftir ákvæðum, sem tett eru í lög og reglugerðir um aksturshraða. Hemlunarvegalengdir. Hemlunarvegalengdir eru m. a. háðar aksturshraða. Teikningin sýnir hemlunarvegalengdir við ó- llkan aksturshraða. Veitið þvi at- byglí, hve hemlunarvegalengdin vex hlutfallsiega meira en hraða- aukningin. vMoiuiiii ci umeiuarbijorum ao gefa hljóðmerki, nema umferö- in gefi tilefni til þess. Bifreiðarstjórar skuiu gæta þess, einkum að næturlagi, að valda eigi hávaða á annan hátt. 'Þeim ber að sjá um, að farþegar i vögnum þeirra hafi ekki neinn hávaða, er raski friði. Ökumenn skulu nema staðar við gangbrautir, ef vegfarandi bíður sýnilega færis að komast yfir götu eða er I þann veginn að fara út á brautina. Þegar öku- menn af þessum ástæðum hafa numið staðar, skulu þeir biða, unz hinirfótgangandi vegfarend- ur eru komnir leiðar sinnar. Fótgangandi vegfarendur eru og skyldir tii að gæta almennrar var- karni, er þeir leggja leið sin^ út á gangbrautir. Sérstaklega skulu þeir gæta þess, að ökutæki, sem nálgast, hafi nægan tíma og svig- rúm til þess að nema staðar utan markalínu gangbrautarinnar, ef þess er þörf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.