Morgunblaðið - 22.01.1966, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Laugarcfagur 22. lanúar 1966
Skodaeigendur
athugið
Tökum að okkur allar alm. viðgerðir.
Fljót og góð afgreiðsla.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðaverkstæði
SIGURÐAR HARALDSSONAR
Skjólbraut 9, Kópavogi.
HÓTEL BORG
Kalda borðið kl. 12
Kvöldverður kl. 7
Canapé Caviar
i —O—
Kjötseyði Troisfillet
eða
Cremesúpa Portugaise
—O—
Fiskifilé Argenteiul
—O—
Kálfafilé Boyale
eða
Roastbeef Anglaise
eða
Hamborgarhryggur s/c Cumberland
—O—
Perur Belle Helene
—O—
Ananasfromage
—O—
Hljómsveit GUÐJÓNS PÁLSSONAB
Söngvari: ÓÐINN VALDIMABSSON.
OPIÐ TIL KL. 1.
Sjötugur í dag:
Haraldur Johnson
70 ÁRA er í dag Haraldur S.
Jahnson, fyrrverandi lögreglu-
maður í Qhicago, merkur Vestur
íslendingur.
Haraldur er fæddur á Rauð-
kollsstöðum á Snæifellsnesi, son-
ur Sigurðar Jónssonar frá
Syðstumörk í Rangárvallasýslu,
af Högnaætt og konu hans Mar-
grétar Gísladótfcur frá Saurum í
Helgafellssveit. Þau Í0.u'fctu 1901
til Ameríku og námu land í
Mouse River-byggð, Norður-
Dakóta-ríki og bjuggu þar til
seviloka. Sigurður var rifcfær vel,
skrifaði m.a. sögu landnámsins
í vesturhluta Dakóta. Ennfrem-
ur aeviminningar sínar, sem er
fróðleg bók.
Haraldur er elztur 6 mann-
vænlegra systkina, sem öll eru
á Íífi. Hann tók fljótt virkan
þátt í landnámsstarfi foreldra
sinna. En þó nóg væri að starfa
voru erfiðir tímar hjá bændum.
Haraldur hleypti því brátt
'heimdraganum og leitaci ti'l
Ohicago í atvinnuleit. Hann var
vel gefinn, með allra stærsfcu
mönnum, viðkynningagóður og
sterkur vel. Um tíma tók hann
þátt í aflraunum og fjölbragða-
glímu, en síðar gekk hann í lög-
reglulið Chicagoborgar, en á
þeim tímum var þar sannikölluð
skálmöld. Lenti Haraldur í ýms-
ui ævintýrum í starfi sínu.
M.a. var hann viðstaddur er hinn
frægi íanndrápari Dillinger var
náðinn að dögum eftir mikinn
eltingaleik. Er sú viðureign
sígil't frásöguefni lögreglusagna
vestur þar.
IJtboð
Tilboð óskast í smíði jnnréttinga í sótthreisunardeild
Borgarsjúkrahússins í Fossvogi. Útboðsgögn eru af-
hent í skrifstofu vorri Vonarstræti 8 gegn 2000 kr,
skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN BEYKJAVÍKUBBORGAR.
Flugfreyjur
Áríðandi fundur verður haldinn hjá Flugfreyjufé-
Iagi íslands sunnudaginn 23. jan. að Bárugötu 11
kl. 3 e.h. — Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Keflavík —
Suðurnes
Hyggðu vel að vali þínu
og vandaðu kaupin eins og ber.
Við kjólaefnin eigum fínu
og úrvals gardínur handa þér.
Verzlun Sigríðar Skúladóttur
Sími 2061.
1930 kom Haraldur hingað til
lands til starfa í lögreglu
Reykjavíkur vegna aiþingis-
hábíðarinnar. Var það að tilihlut-
an frænda hans, Jóns Helgason-
ar, þáverandi biskups, sem
gjarnan vildi fá Harald í hina
fáliðuðu foringjasveit lögregl-
unnar hér. Var Haraldur hér
hátíðarsumarið og var vel látinn
af samstarfsmönnum og öðrum
sem kynntust honum.
Ekki vildi hann þó ílendast
hér og sleppa stöðu sinni
vestra, þar sem erfibt var um
atvinnu á þeim árum og fór
hann þvi til Chicago um haustið.
Siðar varð Haraldur einkalög-
regluþjónn hjá stóru vegagerðar
fyrirtæki þar í borg, en er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir
fyrir þremur árum, flutti hann
til fós'burbyggðar sinnar, þorps-
ins Upham í Mouse River-byggð.
Sú byggð var honum kær og
þangað fór hann jafnan í sumar-
leytfum þrátt fyrir 1500 km.
vegalengd. Nú býr hann þar
ásamt konu sinni Elsy, sem er
ættuð frá Ohicago. í>ar ræktar
hann sinn garð og hefur það
náðugt etftir erilssamt starf í
heimsborginni.
Haraldur er drengskaparmað-
ur og góður og gegn bandarískur
þegn. Hann er jafntframt góður
Vestur-ísdendingur. Hann ólst
upp á íslenziku heimili vestur á
slétfcunum miklu. ís'lenzkan varð
hans móðurmál. Hann fylgist
vel með og gleðst yfir framför-
um á gamla fróni. Var honum
mikil ánægja af heimsókn sinni
hingað fyrir 10 árum, í sumar-
leyfi sínu. — Með þessum fáu
línum fylgja beztu afmælis-
kveðjur til hans, frá æbtingjum
og kunningjum á íslandi með
ósk um friðsælt ævikvöld.
Þórður Kárason.
Æskan og Sjálfstæöisflokkurinn
NEFNIST UMRÆÐUEFNI 3 UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA Á FUNDIFULLTRÚARÁÐS SJÁLFSTÆÐ-
ISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU KL. 20,30 N.K. MÁNUDAGSKVÖLD 24. JAN.
RÆDUMENN VERÐA:
■
KOSNIR VERÐA FULLTRUÁR
í KJÖRNEFND VEGNA
BORGARSTJÓRNARKOSNINCA
22. MAI NÆSTKOMANDI
ÁRMANN SVEINSSON BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON STYRMIR GUNNARSSON
menntaskólanemi borgarfulltrúi formaður Heimdallar
FULLTRÚAR SÝNI SKÍRTEINI
VIÐ INNGANGINN.