Morgunblaðið - 27.01.1966, Side 3

Morgunblaðið - 27.01.1966, Side 3
Fimmtudagur 27. janúar 1966 MORGUNBLAÐID 3 f KVÖLD frumsýnir I»jóð- leikhúsið tvo gamanleiki í Lindarbæ, Hrólf og Á rúm- sjó. Hrólfur er eftir Sig-urð Pétursson sýslumann, sem fæddur var 1759 og lézt 1827. Er þetta eitt með fyrstu leik- ritum sem samið er á íslenzka tungu, og var upprunalega skrifað fyrir skólapilta í Hóla vallaskóla og fyrst sýnt þar í skólanum árið 1796_. Léku skólapiltar að sjálfsögðu öll hlutverkin, sem eru 8 að tölu. Næsta leikrit Sigurðar Péturs sonar Narfi var frumflutt þremur árum síðar, eða nánar tiltekið 1799. STAK8TF1I\IAR Bæjaiútgerðir. Bæjarútgerðir, sem reknar hafa verið með miklum halla, hafa verið bæjarfélögum víða um land þungur baggi á undan- förnum árum. Þau bæjarfélög, sem aldrei létu glepjast til þess að setja á stofn bæjarútgerðir, eru nú mun betur sett en hin, sem réðust í þann rekstur. Hafn- arfjarðxrbær hefur átt í sérstak- lega miklum erfiðleikum vegna hallareksturs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar,, og v.ar svo kom- ið fyrir tæpum fjórum árum, þegar Sjálfstæðismenn tóku við stjórn bæjarins, að Bæjarútgerð- in var á algerri heljarþröm. Samt sem áður hefur tekizt að starf- rækja hana, en þrír togarar hafa verið seldir úr landi, og hefur sú ráðstöfun yfirleitt verið talin skynsamleg. Með hliðsjón af þessum miklu erfiðleikum Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, vekur það óneitanlega nokkra furðu, að Verkamannafélagið Hiíf í Hafnarfirði skuli leggja sérstaka áherzlu á aukinn og viðameíri rekstur Bæjarútgerð- arinnar og telja að „samdráttur í rekstri Bæjarútgerðarinnar skaði Hafnarfjörð“. Fordæmi kommúnista Kommúnistar hafa löngum verið talsmenm bæjarútgerða, og þeir hafa jafnan rekið upp ramakvein í hvert sinn, sem tog ari einhvernar bæjarútgerðar hefur verið seldur. Þeir höfðu hátt þegar Bæjárútgerð Hafnar- fjarðar seldi togara og þeir hafa einnig látið til sín heyra í hvert sinn sem minnzt er á slikt í sam- bandi við Bæjarútgerð Reykja- víkur. En athyglisvert er að sjá hverja stefnu kommúnistar hafa tekið í því bæjarfélagi á land- inu, sem þeir ráða yfir, Nes- kaupstað. Þar var fyrir nokkrum árum rekin viðamikil bæjarút- gerð með togurum og öllu til- heyrandi. Segja má, að komm- únistar hafi nú raunverulega lagt þessa bæjarútgerð niður, þótt einhver rekstur sé þar enn, en það er þá einungis með minni bátum, en ekki með togurum. Breytinga er Jiörf. Sannleikurinn er sá, að reynsl an af bæjarútgerðum hefur verið mjög slæm. Hér í Reykjavík varð borgarsjóður að borga 15 milljónir króna á síðastliðnu ári til þess að standa undir halla- rekstri Bæjarútgerðar Reykjavík ur. Bæj.arútgerðir voru upphaf- lega stofnaðar í þeim tilgangi að tryggja næga atvinnu í kaup- stöðum kringum landið, þegar hana var ekki alltaf að fá, en þær forsendur eru nú ekki leng- ur fyrir hendi. Atvinna er meiri en nóg í landinu, og bæjarútgerð er ekki lengur annað en baggi á þeim bæjarfélögum, sem rekið hafa slíkar útgerðir. Þess vegna vekur það óneitanlega furðu og bendir til þess að viðkomandi aðilar horfi fremur til haka en fram á við, þegar gerðar eru ki'öfur um aukinn og viðameiri rekstur bæjarútgerða, ekki sízt á stað eins og Hafnarfirði, þar sem Bæjarútgerðin. hefur verið bæjarfélaginu og bæjarbúum alveg sérstaklega þungur baggi. „Hrólfur" „Á rúmsió 2 einþátfungar frumsýndir i kvöld Bæði þessi leikrit Sigurðar áttu miklum vinsældum að fagna meðal almennings á sínum tíma og voru sýnd út alla nítjándu öldina. Á þess- ari öld hafa þau sjaldan verið sýnd á leiksviði, en bæði voru þau flutt í útvarp fyrir nokkru. Það má með sanni segja, að leikrit Sigurðar Péturssonar séu börn síns tíma. Þau eru samin fyrir nemendur í Hóla- vallaskóla o.g allur útbúnaður í leiknum í samræmi við þær aðstæður sem skólasveinar hafa út við að búa, enda hafa þeir tæplega gert sterkar kröf ur til leiksviðsbúnaðar. En með því að einbeita athyglinni að persónusköpun höfundar- ins o.g skapa sem sannferð- ugasta mynd af heimilisbún- aði þessara tíma fæst án vafa sönn og skemmtileg aldarfars lýsing og Hrólfur hefur jafn- an verið mjög þakklátt verk- efni fyrir leikendur víðsvegar um land. Bóndi hefur borið sauðaþjófnað á Jón, granna Gissurar, og hér slær í hart á milli þeirra. — Það lekur Framh. af bls. 1. hægt að koma þeim í fram- kvæmd nema að örlitlu leyti. Arkitektinn segir, a'ð umræð ur hafi verið um það, hvort sýningarsalurinn á Charlotten borg geti talizt fullnægjandi sýningarsalur, þótt viðgerð verði látin fara fram og séu flestir sammála um, að hann svari engan veginn til nútíma kröfum. Loks segir Preben Hansen að þess verði reynd ar að gæta, að veðráttan í vet ur hafi verið slík, að ekki verði hjá vatnssköðum komizt Frá v.: Hrólfur (Bessl BJamason), bóndl, og helmasætan (Margrét Guðmundsson). Megin inntak þessa stutta leikrits eru svik og ill ámæli, sem snúast fyrir tilverknað góðra manna upp í sannkall- að kærleiksverk. Ekki hefur vakað fyrir höf- undi að skapa rismikið leik- húsverk með „dramatískum" tilþrifum og ógnlegum örlög- um, eins og nú er mikil tízka, heldur dregur hann upp á einkar viðfeldinn og gæzku- lausan hátt trúverðuga mynd af mannlegum viðskiptum, og mannlegum ófullkomleik. Leikendu'r í Hrólfi eru 8 eins og fyrr er getið, Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason, Valdemar Helgason, Sverrir Guðmundsson, Þóra Friðriks- dóttir, Margrét Guðmunds- dóttir, Anna Guðmundsdöttir, Jón Júlíusson. Leikmynd gerði Lárus Ingólfsson. Seinni leikþátturinn er tölu- vert nýrri af nálinni, saminn af ungum, pólskum rithöfundi Slawomir Mrozek að nafni. Hann gerist á rúmsjó, eins og nafnið gefur til kynna og virð ist mjög í anda nútímastefnu, sem kölluð er „avant-garde". Aðalhlutverkin í þessum ein- þáttung eru þrjú. leikin af Bessa Bjarnasyni, Árna Tryggvasyni og Valdemar Helgasyni. Auk þess fara þeir Valdimar Lárusson og Sverr- ir Guðmundsson með minni hlutverk. Gunnar Bjarnason hefur gert leikm,yndir við ein þáttunginn. Slawomir Mrozek er þekkt- ur leikritahöfundur í heima- landi sínu og eru leikrit hans sýnd í mörgum leikhúsum í Evrópu um þessar mundir. Þetta er fyrsta leikrit þessa höfundar, sem sýnt er hér á landi. Leikstjóri Hrólfs og Á rúm- sjó, er Flosi Ólafsson. Bóndinn á bænum (Árni Tryggvason) og Gissur úr Grindavík Valdemar Helgason) hafa uppgötvað, að Hrólfur hefur svikið inn á hóndann aflóga bykkju í stað forláta gæðings. Dæmi um vatnsskemmdir i lofti sýningarsalarins. enda hafi þeir orðið í nýjum húsum jafnt sem gömlum. En hann kveðst hinsvegar ekki bjartsýnn á að f járveitingar til lagfæringar sýningarsalarins í Charlottenborg verði aukn- ar á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.