Morgunblaðið - 30.01.1966, Qupperneq 2
2
MORGU NBLAÐIÐ
Sunnudagur 30. janúar 1966
Tveimur flugvélum
f ROKINU í gær lögðust
tvær gamlar og þekktar flug-
vélar á hvolf suður á Reykja-
víkurflugvelli. Önnur var
Catalínuflugvél Landhelgis-
gæzlunnar, sem þjónaði hér
um langan aldur, en hafði
nú verið rifin að mestu. þann
ig að vélarnar höfðu verið
teknar úr henni og raunar
alit, sem verðmætt getur tal-
izt. Var fyrir dyrum að rífa
vélina og setja hana í málm-
bræðslu.
Hin vélin, sem á hvolfi ligg-
ur, er önnur af fyrstu flugvél-
um Loftleiða, af Stinson-gerð
og keypt hingað til lands ár-
ið 1944 eftir að fyrsta vél
Loftleiða, sem var af sömu
gerð, hafði eyðilagzt á Mikla-
vatni. Er hér því um að ræða
sögufrægan grip, en eins og
er með lanndhelgisvélina hef
ir hún ekkert gildi lengur,
nema scm sögulegur minja-
gripur.
Karl Guðmunds-
son fyrrv. skip-
stjóri, látinn
Karl Guðmundsson, Öldugötu
4 í Reykjavík, fyrrum skipstjóri
og verzlunarstjóri í timburverzl
un Slippfélagsins, lézt í Lands-
spítalanum í Reykjavík í gær.
Hann var á sjötugasta aldurs-
ári, er hann lézt.
Karl var Reykvíkingur, sonur
Guðmundar Sigurðssonar sjó-
manns og Sigríðar Beinteins-
dóttur. Hann stundaði sjó-
mennsku frá 12 ára aldri, fyrst
á skútum og mótorbátum, en
síðan á togurum og lauk skips-
stjóraprófi 1916. Var hann eftir
það lengi skipstjóri á togurum,
en tók síðan við verzlunarstjórn
í timburverzlun Slippfélagsins,
er hann kom .í land.
Var Karl kunnur maður í borg
inni og vinsæll, bæði af störfum
sínum sem skipstjóri og í
Slippnum. Kvæntur var Karl
Maríu Hjaltadóttur.
Maður fót-
brotnar illa
í FÁRVIÐRINU í gærmorgun
gerðist sá atburður á Hlemm
torgi, að miðaldra maður féll
í einni stormhrinunni með
þeim afleiðirgum að hann
hlaut mjög slæmt opið fót-
brot. Sjúkrabíll kom þegar á (
vettvang og flutti rranninn /
rakleiðis í Landsspítalann. ;
- HEKLA
Framh. af bls. 1
mildi að ekki varð stórslys á
mönnum.
— Hvað heldurðu að tjónið
nemi miklu?
— Ég get ekki sagt um það
með vissu, en það nemur
áreiðanlega hundruðum þús-
unda króna eða er jafnvel
milljónatjón. Það er alveg
hroðalegt á að líta hér á staðn
um.
í gær var óveður um allt
land. Veðurhæðin var mikil
alls staðar en auk þess snjó-
aði víðast hvar. Minnst var
úrkoman á suðvestanverðu
landinu, en þar var samt
víða mjög lélegt skyggni
vegna skafrennings. Hiti var
við frostmark á Austfjörð-
um, en kólnandi til norðvest-
urs. Á Vestfjörðum var um
10 stiga frost. Á Bretlands-
eyjum var sumarhiti á ísl-
enzka vísu, kringum 10 stig.
Sfewart kominn
frá Washington
London, 29. jan. NTB.
MICHAEL Stewart, utanríkisráð
herra Bretlands, kom til London
í gærkvöldi frá Washington, þar
sem hann hefur átt viðræður við
bandarísku stjórnina um varnir
Vesturlanda, þróun mála í Viet
nam, Rhódesíu ,og herafla Breta
í Austurlöndum. Varnarmála-
ráðherra Breta, Dennis Healey,
sem einnig tók þátt í viðræðum
þessum, er farinn til Ástralíu til
viðræðna við ráðherra þar.
— Hlutu fangelsisd.
Framhald af bls. 32.
5. Albert Karli Sanders, raf-
virkja, Holtsgötu 27, Ytri-
Njarðvík,
með ákæru dagstttri 27. apríl
1965.
Gegn ákærðum Jósafat var
málið höfðað fyrir skjalafals
samkvæmt 155. gr. í. mgr. hgl.
tiigreindu í 85 liðum ákæru. Þá
var málið höfðað á hendur á-
kærðum Jósafat fyrir fjársvik
samkvæimt 248. gr. hgl. með því
að hafa með sölu innistæðulausra
tékka við póstdeildina á Kefla-
víkurflugvelli náð að svíkja út
fé er nam í febrúarmánuði 1964
rösikum 2,3 milljón króna.
Gegn ákærðum í>órði Einari
var málið höfðað aðallega fyrir
hlutdeild í svikum ákærðs Jósa-
fats ennfremur fyrir brot í opin-
beru starfi, o.fl.
Gegn ákærðum Eyþ-óri var
málið ihöfðað fyrir blutdeild í
3* ' •" fölsunarbrotum ákærðs Jósafats
í 6 liðum.
Gegn ákærðum Áka Guðna og
Albert Karli var málið höfðað
fyrir að viðhalda ávinningi af
broti ákærðs Jósafats ennfrem-
ur fyrir fjársvik í því sambandi,
auk þess að hafa gerzt sekir um
'hlutdeild í brotum ákærða Þórð-
ar Einars sem opinbers starfs-
manns.
Niðurstaða dómsins var á þá
leið að því er ákærðan Jósafat
varðar að kröfur ákæruvaldsins
vegna föisunarbro'ta hans voru
að verulegustu leyti teknar til
greina. Þá voru kröifur ákæru-
valdsins um f jársvikaþátt
ákærðs Jósafats og teknar til
greina en þó miðað við lægri
upplhæð eða um 2,5 miljón króna.
Þáttur Þórðar Einars hlaut þá
niðurstöðu, að hann var talinn
hafa aðstoðað við að ihalda ávinn-
ingi af fjársvikabroti ákærðs
Jósafats og jafnframt haft í huga
að hann var þá opiruber starfs-
maður.
Ákærður Eylþór var talinn
hafa gerzt sekur um þá hlut-
deild í fölsunarbrotum ákærðs
Jósafats, er um getur hér að
framan.
Ákærðir Áki Guðni og Albert
Karl voru fundnir se'kir um að
hafa stuðlað að því að viðhalda
óvinningi ákærðs Jósafats af
fjársvikabroti hans.
Dómsorð er svohljóðandi:
Veðurhæð komst upp í 12 vindstig
Hjá Veðurstofunni fékk Mbl.
eftirfarandi upplýsingar:
Mikil veðurhæð var í gær og
norðaustanátt með snjókomu um
nær allt land, nema suðvestur-
horninu í nánd við Reykjavík.
Víða voru 9—10 vindstig og mest
12 vindstig í gær kl. 14 í Æðey
og á Hornbjargsvita. í Reykjavík
voru 9 vindstig og fór upp í 12
í hryðjunum. Mikil snjókoma
var á Norður- og Austurlandi,
en á Suðvesturlandi var víða svo
mikill skafrenningur, að ekki sá
út úr augum. Og við sjóinn var
sælöður langt upp á land.
Þetta óveður byrjaði á föstu-
dag með stormi og snjókomu á
norðanverðu landinu, 1 gær hafði
— Þök fjúka
Framhald af bls. 1
Ingólfsgarð. Hafði skipið verið
bundið sérstaklega vegna veður-
ofsans, en skyndilega kubbuðust
sexfaldir vírar í sundur, sem
skipið var bundið með að fram-
an. Varðskipið lét þegar akkeri
falla, og fékk dráttarbátinn
Magna til að ýta sér að bryggju
aftur.
Á meðan á því stóð slitnaði tog
arinn Haukur, sem lá fyrir ofan
varðskipið, frá landfestum og
varð annar dráttarþátur frá höfn
inni að koma honum til aðstoðar.
Um svipað leyti var tilkynnt, að
togarinn Síríus, sem liggur inn
í Sundunum, væri að reka upp.
Hefur því nóg verið að gera í
höfninni í þessu aftaka veðri.
Þess má geta að ís hefur hlaðizt
mjög á varðskipið og á önn-
ur skip í höfninni.
það náð um land allt, og í nótt
var gert ráð fyrir að byrjaði að
lægja á austanverðu landinu.
Lægð er fyrir sunnan land og
norðaustanáttin, sem henni fylg-
ir, færist með henni vestur á
bóginn.
DÓMSORÐ:
Ákærður, Jósafat Arngríimis-
son, sæti fangelsi í 2 ár. Gæzlu-
varðhaldsv’ist hans frá 31. janú-
ar 1964 til 14. marz sama ár
komi með fullri dagatölu refs-
ingu hans til frádráttar.
Ákærður, Þórður Einar Hall-
dórsson, sæti fangelsi í 8 mónuði.
Cíæzluvarðhaldsvist hans frá 27.
febrúar 1964 til 7. marz sama ár
komi með fullri dagatölu refs-
ingu hans til frádráttar.
Ákærður, Eyþór Þórðarson,
sæti fangelsi í 7 mánuði. Fulln-
ustu refsingar hans skal fresta
cg niður falla eftir 2 ár frá upp-
kvaðningu dóms þessa, ef ákærð
ur iheldur almennt skilorð 57.
gr. 1. nr. 19/1940, sfer. 4. gr. 1.
nr. 22/1955. — Komi refsing til
framkvæmda skal frá henni
draga gæzluvarðshaldsvist
ákærðs frá 31. janúar 1964 til
20. febrúar sama ár með fullri
dagatölu.
Ákærður, Áki Guðni Granz,
sæti fangelsi í 6 mánuði. Fulln-
ustu refsingar feans skal fresta
og niður falla eftir 2 ár frá upp-
kvaðningu dóms þessa, ef ákærð
ur heldur almennt skilorð 57.
gr. 1. nr. 19/1940, sbr. 4. gr. 1.
nr._ 22/1955.
Ákærður, Albert Karl Sanders,
sæti fangelsi í 6 mánuði. Fulln-
ustu refsingar hans skal fresta
og niður falla eftir 2 ár frá upp-
kvaðnngu dóms þessa, eif ákærð-
ur heldur almennt skilorð 57. gr.
1. nr. 19/1940 sfer. 4. gr. 1. nr.
22/1955.
Ákærður, Jósafat Arngrímsson,
greiði málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns Áka Jakobssonar,
hrl., kr. 35.000.00.
Ákærður, Þórður Einar Hall-
dórsson, greiði málisvarnarlaun
skipaðs verjanda síns Guðmund-
ar Ingva Sigurðssionar, hrh, kr.
30.000.00.
Ákærður, Eyþór Þórðarson,
greiði málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns, Árna Guðjónsson-
ar, hrl., kr. 50.000.00.
Ákærður, Áki Guðni Granz,
greiði skipuðum verjanda sínum,
Benedikt Sigurjónssyni, hrl., kr.
15.p00.00.
Ákærður, Alfeert Karl Sanders,
greiði skipuðum verjanda sínum,
Páli S. Pálssyni, hrl., kr.
15.000.00.
Ríkissjóður greiði dónarfeúi
Guðmundar Ásmundssonar, hrl.,
kr. 10.000.00.
Allan annan kostnað málsins
þar með talin saksóknarlaun til
ríkissjóðs kr. 60.000.00 greiði á-
kærður Jósafat Arngrímsson að
hálfu, en ákærðir, Þórður Einar
Halldórsson, Eyþór Þórðarson,
Áki Guðni Gránz og Allbert
Karl Sanders að hálifu, in solid-
um.
Dóminum skal fullnægja með
aðför að lögum.
I.O.O.F. 10 s 147131814 =
Wlm&ím
í óveðrinu fuku bráðabirgðahlið ar, sem slegnar eru upp til skjóls,
úr stórhýsi Bræðranna Orm-son h.f., og lá timbur og jám
eins og hráviði um allar trissur, og lokuðu meðal annars Háa-
leitisbraut. Myndin sýnir, hvemig byggingin leit úr eftir þetta,
en hliðin hinu megin fór algerlega úr. Ljósm.: Sv. Þorm,