Morgunblaðið - 05.04.1966, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. apríl 1966
Stóraukin starfsemi
Verzlunarbankans
Frá aðalfundi bankans, sem haldinn var sl. laugardag
ráðs, flutti skýrslu um
starfsemi bankans á liðnu
ári. Kom fram í henni að
öll starfsemi bankans hafði
vaxið verulega á árinu. —
Spariinnlán við bankann
hækkuðu á árinu um 108.8
millj. kr. en það svarar til
25% innstæðuaukningar.
Heildarinnstæður í bank-
anum námu í lok síðasta
árs 544.9 millj. kr. Útlán
bankans jukust um 63
millj. kr. á árinu 1965 og
námu heildarútlán í lok
ársins 429 millj. kr.
Að undanförnu hefur verið
unnið að breytingum á húsa-
kynnum bankans í Banka-
stræti 5 og hefur öll starfsað-
staða bankans batnað. Jafn-
framt er unnið að endurbót-
um á bókunar- og afgreiðslu-
kerfi bankans.
Hjá Alþingi er nú til með-
ferðar frumvarp til laga um
stofnlánadeild við bankann,
og gerði formaður ýtarlega
grein fyrir því, en sterkar
vonir eru bundnar við upp-
byggingu sérstaks fram-
kvæmdalánasjóðs til starf-
semi verzlunarfyrirtækja.
Höskuldur Ólafsson, bankastj óri, les upp rcikninga bankans.
X. v. er Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, sem var fundarstjóri.
Höskuldur Ólafsson, banka-
stjóri, las upp endurskoðaða
reikninga bankans og skýrði
þá. Voru þeir samþykktir sam
hljóða.
Á fundinum komu fram
mjög ákveðnar skoðanir um
að nauðsynlegt og eðlilegt
væri að bankinn fengi heim-
ild til að annast erlend við-
skipti.
í bankaráð voru kjörnir þeir
Egill Guttormsson, stórkaup-
maður, Magnús J. Brynjólfs-
son, kaupmaður, og Þorvald-
ur Guðmundsson, forstjóri. —
Varamenn voru kjörnir Har-
aldur Sveinsson, forstjóri,
Sveinn Björnsson, skókaup-
maður, og Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, stórkaupmaður.
Endurskoðendur voru kjörn
ir þeir Jón Helgason, kaup-
maður, og Sveinn Björnsson,
stórkaupmaður.
Fundurinn var fjölsóttur og
sátu hann um 250 hluthafar.
AÐALFUNDUR Verzlun-
arbanka íslands hf. var
haldinn sl. laugaxdag í veit
ingahúsinu Sigtúni.
Fundarst.jóri var Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri,
en fundarritarar Gunn-
laugur J. Briem, verzlunar
maður, og Knútur Bruun,
f ramkvæmdarst j óri.
Egill Guttormsson, stór-
kaupmaður, form. banka-
EgiII Guttormsson, stórkaupmaður, formaður bankaráðs, flytur
skýrslu um starfsemina á liðnu ári.
Fá Húsvlkingar heitt
vatn við bæjardyrnar?
Húsavík, 2. apríl.
ÁRIÐ 1959 voru gerðar allmiklar
viðnámsmælingar á Húsavíkur-
beiðni
vegna brnnans
á Hauksstöðum
4 VEGNA hins stórfeilda bruna
á Hauksstöðum á Jökuklal,
sem 9agt hefur verið frá í út-l
varpi og blöðum þar sem hjón /
með 5 ung börn misstu nær 1
aleigu sína vildi ég beina t
þeim tilmælum til lands-1
manna að leggja eitthvað fé /
fram heimilinu til endurreisn-*
ar. Tjónið er tilfinnanlegt, i
þar sem íbúðarhúsið var mjög t
lágt vátryggt og innbú ekkert. /
Framlögum er veitt mót- 1
taka hjá dagblöðunum. \ ,
Sr Bragi Benediktsson ( ;
Eskifirði. í i
höfða, og samkvæmt þeim var
ákveðið að gera hitavatnsleit með
jarðborunum. Álitlegasti staður-
inn var talinn sunnan við Laug-
ardal, yzt í bænum.
Borunarframkvæmdir hófust
sumarið 1953, og var þá borað á
þessum stað með Norðurlands-
bornum. Boruð var 1506 metra
djúp hola. Berghiti í henni
reyndist á 300 metra dýpi vera
94 gráður á Celsius, en vatn kom
ekki upp. Ákveðið var þá að gera
síðar tilraun með dælingu, en þá
var ekki til á Islandi dæla, sem
var fær um það. Undanfarna
daga hafa svo menn frá Jarð'hita-
FELACSHEIMIU
ÞRIÐJUDAGUR:
OPIÐ HÚS.
MIÐVIKUDAGUR:
SKEMMTIK V ÖLD.
HEIMDALLAR
• í GÆR var smálægð yfir land og auk þess var hvassviðri á
/ inu. Þokaðist hún suðaustur, Vestfjörðum og frostið þar 8
1 en NA-áttin færðist jafnframt stig. Ekkert sést fram undan
4 hægt suðaustur landið. Víðast ennþá nema norðvestlæg átt
4 á vestanverðu landinu snjóaði með frosti.
Þyrlan kemur ■ maí
deild raforkumálastjóra undirbú-
ið tilraunadælingu úr þessari
holu, og getur dæla sú, er þeir
nota, aðeins dælt 5—6 sekúndu-
lítrum.
Sl. sólarhring hefur svo verið
stöðug dæling úr holunni, og
þaðan hafa fengizt 5,4 sekúndu-
lítrar af 94 stiga heitu vatni.
Rennslið virðist stöðugt, og að
dómi mælingamanna er kominn
jöfnuður á hitastig og vatnsmagn.
Með stórvirkari dælu má senni-
lega fá meira vatnsmagn úr hol-
unni. — Fréttaritari.
HIN nýja þyrla Andra Heið-
bergs, kafara, mun væntanlega
koma til landsins síðari hluta
maímúnaðar, að því er Andri
tjáði Mbl í gær.
Þyrlan er af Brantly-gerð, smíð
uð í Bandaríkjunum, og mun
væntanloga verða notuð í al-
mennt flug hér innaalands, og
e.t.v. einnig við ýmis björgun-
arstörf. Þyrlan á að geta tekia
fimm manns í sæti.
Andri Heiðberg mun fara
vestur til Bandaríkjanna um
miðjan maí til þess að sækja
þyrluna, auk þess sem hann mun
sækja þar námskeið. Andri vinn-
ur nú að því að reisa flugskýli
yfir þyrluna á Reykjavíkurflug-
velli.
Nær 4. alda gömul bók á uppboði
SIGURÐUR Berediktsson held- i
ur 4. bókauppboð sitt á þessu
ári í dag kl. 5, og verða 140 ;
númer boðin upp að þessu sinni.
Meðal bókanna, sem boðnar
verða upp í dag er elzta ís-
lenzka bókin, sem á uppboð hef-
ur komizt hjá Sigurði. Nefnist
hún Ein Ny IIuss Postilla, sam-
antekin af Guðbrandi Þorláks-
syni og gefin út á Hólum 1597. í
þessa bók vantar siðasta blaðið.
Af öðrum merkum ritum má
nefna öll ritverk Halldórs Lax-
ness í fyrstu útgáfu óbundin
með flestum kápum. Margar
bókanna eru áritaðar af höfundi.
Þá má nefna bók Magnúsar
Stephensen: Eftirmæli Átjándu
aldar, útgefin í Leirá 1805, og
einnig tilraun um Jafnvægi
Búdrýginda, skrásett af Jóni
nokkrum Jónssyni útgefin í
Kaupmannahöfn 1801.
Á uppboðinu er 1.-4. árg. af
Ármanni á Alþingi, Khöfn.
1829-’32 og segir uppboðshald-
ari að þetta rit sé fágætara en
Fjölnir. Af erlendum bókum
merkum skal nefnt ritið Historiæ
Septentrionalium Gentium Brevi
arium, útgefið í Leiden 1649,
og bók A. Trollope’s: How the
„Mastiffs" went to Iceland, gef-
in út í London 1878. Af fágætum
ritum, sem sjaldan eru á upp-
boði skulu nefnd Kongs Christ-
ians þess Fimmta Norsku lög,
Hrappsey 1779, og Gestur Vest-
firðingur I.-V. bindi, Rvík og
Khöfn. 1847-’55.
Síðasta númerið á uppboðinu
er Jarðabók Árna Magnússonar
og Páls Vídalíns, verkið allt.
Sigurður Benediktsson mcð fyrstu útgáfu allra verka Halldórs
Laxness Efst á staflanum eru Nokkrar smásögur, sem Morgun-
blaðið gaf út 1923. (Ljósm. Ól. K. M.)