Morgunblaðið - 05.04.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.04.1966, Blaðsíða 28
MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 5. apríl 1960 28 SUZANNE EBEL: ELTINGALEIKUR — Þetta var bara barnapían okkar. Hún vildi fá að vita hvernig ætti að opna kampavínsflösku! — Þú verður að vera (hér kyrr, og ef ég er ekki kominn fyrir til- tekinn tíma, verðurðu að að hringja í Steve og síðan í lög- regluna. Röddin í 'honum var lág, vin- gjamleg og flöt eins og pönnu- kaka. Aftur hafði karlmaður skellt á mig hurðinni. Mér hefði verið eins gott að tala við fangavörð, hringlandi lyklum. Rod hafði ákveðið að fresta för sinni þangað til eftir mið- nætti, og við eyddum nokkrum tíma yfir lélegum kvöldverði, sem ætlaði alveg að kæfa mig og þó lengri tíma yfir kaffi í for- s^lnum með timbuxþiljunum og rauðu gólfábreiðunni Ég horði á gestina, sem sátu þarna hér og hvar. Eins og ég var í skapinu, sýndust þeir mér allir vera gaml- ir og Ijótir. Og líklega voru þeir allir með hárkoilur. —- Ég er farin að sjá ofsjónir, sagði ég við Rod. Honum þótti þetta eitthvað skrítið og þegar ég sagði honum frá 'hárkollunum, rak hann upp skellihlátur. Loksins fórum við bæði upp og Rod sagðist ætla að fara að „vopna sig í herferðina". Hann sagði þetta dálíttS hátíðlega og ég hresstist nokkuð við, þegar ég fann, að ég gat orðið vond við hann. — Þér er betra að Mta til beggja hliða, áður en þú kemur inn til mín, sagði 'hann. — Skot- arnir eru dálítið vandlátir með svona. Það var svo fjarri mér að vera neitt að hugsa um kynferðismál, jafn hrædd og ég var, að ég glápti bara á hann og skildi ekk- ert, hvað hann var að fara. Hann hiló aftur. Svona augna- tillit er nú ekki neitt til að verða upp með sér af. Komdu bara inn telpa mín. Þú ert sakleysið upp- málað. Og heldur ekki líkiztu neitt laglegri herbergiaþernu. Hann virtist vera í góðu skapi, en hvort það var ekki bara upp- gerð og mannalæti, gat ég ekki vitað. Og ég þekkti heldur ekki Rod, nema rétt sem kurteisan, hugrakkan og hlédrægan fé- laga með nokkurt höfðingasnið á sér Og þegar ég horfði á hann festa á sig allan þennan útbúnað amerískra sjónvarpshetja: byssu og skothylki, þá fékk ég skjálfta. Án þess að taka eftir, að ég vaf að horfa á hann, festi hann byss- una vandlega undir jakkanum, sem fíni klæðskerinn í Savile Row hafði áreiðanlega ekki snið ið fyrir skotvopn. Svo fór hann að greiða sér. Ég sat í hnipri á rúminu og spennti greipar um hnén. Hann leit á mig í háa, umgerð arlausa speglinum og sagði við spegilmyndina mína: — Jæja, taktu nú támann þegar ég fer. Hún er vist um það bil kortér yíir tólf. Ef ég er ekki kominn aftur klukkan tvö, verðurðu að hringja til Steve, og segja hon- um alla söguna. Hann verður bálvondur, en hann hjálpar þér nú samt. Þegar þú hefur talað við han-n og sagt honum að ná sambandi við Wrexford lávarð, þá farðu beint í Edinborgarlög- regluna Ef ég kemst ekki inn í þetta hús og út úr því aftur, með eða án Firths, innan tveggja tíma, geturðu sagt lögreglunni, að þeir hafi náð í mig. — Þú tekur þetta heldur ró- lega. Hann lauk við að greiða sér, lagði frá sér greiðuna, og gekk til mín. Rétti út höndina og lyfti upp hökunni á mér. Svo hleypti hann brúnum. — Þú sérð ekki eftir þessu, Virginia? — Vitanlega ekki. Hvernig gat ég svarað þessu öðruvisi. Ég hafði beðið hann að nffega hjálpa honum við þetta. Þetta var verk, sem var einhvers virði! Eitthvað annað en auglýs- ingarnar! Ég hafði ekki kunnað að meta öryggið meðan ég hafði það. Dugleg stúlka! Rétt sem snöggvast hélt ég, að hann ætlaði að kyssa mig. Kysstu ekki hermenn alltaf stúlk umar sínar áður en þeir lögðu til orustu- En í stað þess k'lapp- aði hann mér bara á báðar kinn ar, eins og utan við sig, rétt eins og faðir klappar efnilegri dóttur sinni, og síðan gekk hann eftir ganginum, áleiðis til lyftunnar. Þar sneri hann sér og veifaði hendi. Hann var farinn. 6. kafli. Ég gekk aftur inn í herbergið hans ogr settist á sama stað á rúmið. Ég hafði ekki einusinni ráðið það við mig, hvort ég □----------------------------q 20 □—,—------------------------□ ætti að sofa þessa tvo tima, sem ég yrði að bíða, eða hvort ég ætti að bíða eftir honum hér eða í mínu herbergi Ég sat grafkyrr og spennti greipar um hnén. En hvað þarna gat verið kyrrlátt. Mér fannst tifið í ferðaklukk- unni hans Rod, sem hann hafði komið fyrir við rúmið, vera hávaðaglamur. Ég stóð upp og gekk að snyrti borðinu, og tók upp greiðuna, sem hann hafði verið að nota fyrir stundarkorni. Hann gat varla verið kominn út úr gisti- húsinu enn. Mér varð óglatt. Þegar ég leit upp sá, ég mína mynd í speglinum. Rauðhærð stúlka með lit á vörunum og svört strik við augnakrókana. Ekki ólöguleg Ofurlítið frek- nótt. Þarna var fallegi svarti kjóllinn, sem Maurice hafði sagt að væri „ginnandi". Ég leit nið- ur á höndina á mér. Ég hélt enn á greiðunni. Og í sama bil sá ég svo greinilega, að Rod var að leggja út í opinn dauðann — eins greinilega og hefði ég séð hann vaða gegn um forina í Flandem, eins og sjá mátti í gömlum fréttamyndum .... Við hlutum að vera viti okkar fjær. Auðvitað hlutu þeir að hafa séð okkur. Var ég ekki búin að segja það hundrað sinnum? Þessi bjánalegi áberandi hvíti bíll hafði elt þá gegn um Banbury og alla leið til Edinborgar. Ég hljóp yfir að ferðatöskunni hans, rótaði þar gegn um hrúgu af hreinum skyrtum og fann að lokum það, sem ég var að leita að — hina byssuna. Borgin var eyðileg og rök, enda þótt rigningunni hefði stytt upp Það var hráslagalegt og íll- kalt. Ég hljóp niður eftir Prins- stræti þangað til ég fann bíla- stæðið, skauzt inn í bílinn og hálfkjökrandi ók ég til litla torgsins, þar sem við höfðum séð Daimlerinn stanza. , Áður en við ókum til gisthúss- ins, höfðum við svipazt um bak við húsið, þar sem Firth var nú fangi. Þarna var húsagarður og lágur steinveggur kring um lóð- irnar. Ég lagði bílnum á torginu, lét vélina vera í gangi og hljóp svo eftir þverstíg og að bakdyr- unum á nr. 21. Sem betur fór var veggurinn svo lágur, að ég gat auðveldlega klifrað yfir hann. s AUKIN ÞÆGINDI - AUKIN HÍBÝLAPRÝDI i DÖIMSKIJ SKRIFBORÐIIM ERI) KOMIIM DÖIMSK SKATTHOL KOMMÓÐLR TILVALDAR FERMINGAGJAFIR LÍTIÐ í GLUGGANA sími 22900 Það er barnaleikur að strauja þvottinn með Baby strauvélinni Baby strauvélin léttir ótrúlegu erfiði af húsmóðurinni. — Baby strauvélin pressar, straujar, rúllar, Pressar buxur — straujar skyrtur — rúllar lök. — Baby strauvélin er opin í báða enda. Baby strau- vélinni er stjórnað með fæti og því er hægt að nota báðar hendur við að hagræða þvottinum. Baby strauvélin er ómetanleg heimilisaðstoð . . . , Verð krónur 6.900,60. Viðgerða- og varahlutaþjónusta. S'imi 11687 21240 Laugavegi 170-172

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.