Morgunblaðið - 05.04.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.04.1966, Blaðsíða 31
¥>ri$5udagur 5. apríl 1966 MORGUNBLAÐIÐ 31 Mannfjöldi tók á móti „Baldri" í Stykkishólmi Stykkishólmi, 4. apríl: FLÓABÁTURINN Baldur kom til heimahafnar sinnar, Stykkis- hólms, í gærkveldi, og tók mik- £11 mannfjöldi á móti honum, þegar hann lagðist að bryggju. Sllimmu eftir komuna var heimamönnum boðið að skoða hátinn, og var forráðamönnum bæjarins og fleirum boðið upp á kaffiveitingar í hinum vistlega sal bátsins. Við það tækifæri flutti, Ásgeir Ágústsson, stjórnarformaður Baldurs, ræðu og bauð gesti - ít>róftir Framhald af bls. 30 þeim tókst að skora hvert markið af öðru í upphafi síð ari hálfleiks (4 fyrstu) öðl- uðust leikmennirnir ekki að- eins sigurvonina, heldur brutu þeir á samri stundu loftkastala 1 ísl. leikmanna niður. Sigur- ; gangan varð úr því auðveld I>önum. ýý Liðin. Bezti maður ísl. liðsins var Gunnl. en Hermann og Hjatl í markinu stóðu sig einnig með prýði. Ingólfur átti ágætan fyrri hálfleik — en hvarf algjörlega í þeim síðari. Hörður Kristins- son átti sinn lakasta leik um langt skeið, — sást varla allan leikin í stað þess að ógna sem hann á auðvelt með vegna hæð- ar sinnar. Karl Jóih. átti og slakan leik nú, skaut í tíma og ótíma og var liðinu oft til traf- ala. Þannig brugðust 3 af sterkustu stöðum liðsins. Við bættist að skiptingar voru ekki réttar Það er auðvelt að gagnrýna eftir á. En að láta létta, lipra og góða leik- menn sitja utan línu á meðan þeir gömlu bregðast hver af öðr- um er ekki rétt taktik. Væri ekki ráð að skipta hlut- verki Karls þjálfara. Allir eru sammála um hæfni hans sem þjálfara, en er það rétt að hann beri einnig ábyrgð á skiptingum liðsmanna? Danska liðið í þessum leik var alls ekki af ósigrandi klassa .— Bezti maður liðsins var Jörgen Fetersen sem íslenzka liðið réði alls ekki við. Hann skoraði 10 mörk Dana og sum á svo glæsi- legan hátt að unun var á að horfa. Samt höfðu flest hans mörk svo langan aðdraganda að vel hefði átt að vera hægt að gæta hans — en leikmennirnir horfðu á hann með svipaðri að- dáun og áhorfendur. Og það átti hann að vísu skilið. Yngri menn íslenzka liðsins stóðu sig bezt, t.d. Hermann, Geir, Stefán og Auðunn, ekki sízt í vörninni. Gunnlaugur var þó þeirra allra beztur og er lang- bezti maður ísle’nzka liðsins. — Hjalti varði allvel, en Þorsteinn brást illa og var þrátt fyrir það mikið hafður í marki. Dómari var Hans Carlsson og betri dómara, réttsýnni, réttlát- ari er varla hægt að hugsa sér. Hann fylgdist ekki einungis með þar sem knötturinn er. Margoft stöðvaði hann leikinn fyrir brot sem framin voru langt frá þeim stað er barizt var um knöttinn. Hann gætu allir dómarar tekið sér til fyrirmyndar. Mörk íslands skoruðu Gunn- Jaugur 8 (3 úr vítum), Ingólfur, Hermann, Geir 3 hver, Auðunn 2 og Stefán 1. Mörk Dana skoruðu Jörgen Petersen 10 (3 úr vítum), G. Anderson 5, Ale Sandihöj 3, Iwan Ohristiansen og Klaus Kaae 2 hvor, Arne Andersen 1. Fjórum Dönum var vísað af velli fyrir leikbrot og þar af ein- um tvívegis. Tveir íslendingar blutu sömu örlög. — A. St. velkomna og lýsti tildrögum að smíði bátsins, og starfsemi félags ins á undanförnum árum. Hlut- hafar í félaginu eru Rikissjóður, og kauptúnahreppar við Breið- fjörð, ásamt nokkrum einstakl- ingum og fyrirtækjum. Einnig töluðu þarna Sigurður Pálsson, sveitarstjóri, Friðjón Þórðarson, sýslumaður, og Krist- in Gíslason, sem buðu allir bát- inn velkominn. Að lokum lýsti Lárus Guðmundsson kipstjóri skipinu fyrir komumönnum. Voru allir mjög ánægðir yfir því að fá þennan glæsilega far- kost á Breiðafjörð. Baldri er ætlað að annast flutn inga á hafnir Breiðafjarðar, og er gert ráð fyrir að vikulegar ferðir verði til Reykjavíkur. Auk þess hefur verið rætt um það, að um helgar í sumar annaðist hann hópferðir um Breiðaf (5rð. — Fréttaritari. Mbl. sneri sér til Sigurðar Ágústssonar alþingismanns og útgerðarmanns í Stykkishólmi, og spurðist nánar fyrir um bát þennan. Sigurður sagði, að feðg- arnir Guðmundur heitinn Jóns- son frá Narfeyri og Lárus sonur hans hefðu í mörg ár unnið ó- m'etanlegt starf fyrir Breiðfirð- inga og raunar marga aðra lands menn með rekstri Breiðafjarðar- bátsins „Baldurs“, en þessa þjón- ustu hefðu þeir feðgar látið hyggðarlaginu í té í marga ára- tugi, og notið mikils traust fyr- ir þessa frábæru þjónustu. Sigurður sagði ennfremur: Fyrsti báturinn, sem Guðmund ur Jónsson eignaðist til þess- ara ferða, var aðeins 6 rúmlest- ir, en eftir’ því sem flutninga- þörfin jókst sá hann og síðar Lárus sonur hans nauðsyn þess að afla sér stærri skipa til þess- arar þjónustu — skipa, sem jafn- framt gátu .flutt farþega, bæði innanfjarðar og í ferðum skipsins til Reykjavíkur. — Enn hefur verið gert stórt átak í sambandi við Breiðafjarð- arferðirnar með byggingu glæsi- legs stálskips 180 rúmlesta, sem ber nafnið „Baldur“. Er þetta, nýja skip að hefja ferðir sínar — og veit ég að allir Breiðfirðing- ar munu fagna komu þess og votta aðilum öllum þakklæti, sem á einn eða annan hátt hafa aðstoðað við framkvæmd þessa, sem vissulega var mikil þörf fyr- ir. í því sambandi má fyrst til nefna skipstjóra og framkvæmda stjóra skipsins Lárus Guðmunds- son, svo og mjög jákvæða af- stöðu ríkisstjórnarinnar með því að gerast stór hluthafi í Baldur h.f. Sovézkir sjálfboða- liðar til Vietnam? Moskvu, 4. apríl, NTB. Alexei A. Yepishev, hershöfð- ingi, og yfirmaður stjórnmála- deildar hers og sjóhers, sagði á 23. flokksþingi kommúnista- flokks Sovétrikjanna í Moskvu í dag, að mörg þúsund sovézkra hermanna, þar á meðal heilir herflokkar, hefðu boðist til þess að fara til Vietnam. Ekki fór hershöfðinginn þó neinum orð- um um það hvort sovézkir sjálf- boðaliðar hefðu farið eða myndu fara austur þangað. Rúmt ár er nú liðið síðan fyrst var farið að tala um sov- ézka sjálfboðaliða sem hefðu gefið sig fram til austurfarar, en AðaJfundur Slyrkfarfélags vangefina AÐALFUNDUR Styrktarfélags vangefinna var haldinn í dag- heimiiinu Lyngási sl. sunnudag. Formaður félagsins, Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri, setti fundinn og stjórnaði hon- um. Las hann úr skýrslum fé- lagsstjórnar, og skýrði frá helztu framkvæmdum á sl. ári. Fram- kvæmdastjóri félagsins, séra Er- lendur Sigmundsson las upp reikninga félagsins fyrir 1965, og gerði grein fyrir þeim. Frú Sig- ríður Ingimundardóttir las reikn inga kvennasjóðs félagsins. Voru reikningarnir samþykktir at- hugasemdalaust. Úr aðalstjórn félagsins áttu að ganga, Hjálmar Vilhjálmsson og Sigríður Ingimundardóttir, en voru þau bæði endurkosin samhljóða. Úr varastjórn áttu að ganga Halldór Halldórsson og Vilhelm Hákanson, og voru þeir einnig samhljóða endurkjörnir. Aðalstjórn félagsins skipa nú: Hjálmar Vilhjálmsson, formaður, Aðalsteinn Eiríksson, Guðmund- ur St. Gíslason, Kristrún Guð- mundsdóttir og Sigríður Ingi- mundardóttir. aldrei hefur verið frá því skýrt að nokkrir þeirra hafi farið. í Bandaríkjunum er yfirlýs- ingu þessari tekið fálega og þyk- ir benda til þess að Sovétríkin vilji ógjarnan skipta sér of mik- ið af styrjöldinni í Vietnam þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um aðstoð við N-Vietnam og skæruliða Viet Cong. TOGARINN Þorsteinn Þorska- bítur er nú kominn til Ulsteinvik í Noregi, þar sem á að breyta honum í nútíma fiskiskip með kraftblökk, segir í frétt frá Noregi. Eigandi bátsins, Sigurður Finnsson frá Grímsey, er með hann úti. Auk kraftblakkar á að setja á bátinn hliðarskrúfur, stækka lestaropin o. fl. Er þetta mjög mikið verk og verður því ekki lokið fyrr en í lok maí. Er haft eftir Sigurði Finnssyni, að fleiri skipum sem lagt hefur verið, verði breytt. Húnavakan á páskum Blönduósi, 4. apríl: HÚNAVAKAN hefst á Blöndu- ósi á annan í páskum, og stend- ur í sjö daga. Þar verða sýndir fjórir sjónleikir, og 3 karlakórar syngja, auk margra smærri skemmtiatriða. Að Húnavök- unni standa fimm félög og fé- lagasambönd í sýslunni, en Ung- mennasamband A-Húnvetninga annast framkvæmdastjórn. — Björn. Meðalafli Keflavíkur báta 8,3 lestir Keflavík 4. april. FRÁ Keflavík róa nú 37 bátar. Hafa þeir aflað þáð sem af er þessari vertíð til mánaðannóta síðustu 9237 lestir í 1107 róðrum. Meðalafli er því um 8,3 lestir. í fyrra á sama tíma vax aflinn 8475 lestir í 1255 róðrum, og ár- ið þar áður 14410 lestir í 1895 róðrum. Mestan afla hefur nú Lómur Skemmdir unnar á bllum UM HEtGINA var ráðist á tvo bíla, sem stóðu við Bakkastíg og við Ránargötu, og brotnar af þeim loftnetsstangir og sprengd upp framhurðin á öðrum þeirra, og hún eyðilögð. Þá var ekið á kyrrstæðan bíl, sem stóð við Borgartún, en öku maðurinn á bifreiðinni, sem á- rekstrinum olli, hvarf strax af staðnum. Þá var einnig ekið á kyrrstæða bifreið, sem stóð við Laugalæk, sl .fimmtudag, og hvarf ökumaður bifreiðar þeirrar sem árekstrinum olli þar, einnig staðnum. Eru allir þeir, sem ein- hverjar upplýsingar gætu gefið um árekstra þessa beðnir að snúa sér til Rannsóknarlögreglunnar. 607 lestir, annar er Helgi Fló- vetnsson með 501 lest, og þriðji Jón Finnsson með 442. Þetta er mest netafiskur. Hefur fiskurinn oft verið tveggja til þriggja nátta, og því að verulegu leyti verið verkaður í skreið og salt. Frystihúsin hafa ekki haft nægan fisk til fullra afkasta. Frá áramótum hafa borizt á land í Keflavík 143 þúsund tunn- ur af loðnu, og voru þrær verk- smiðjánna orðnar fullar, svo að geyma varð loðnuna úti á víða- vangi. Undanfarna daga hefur lítið borizt að af loðnu og því losnað nokkurt rúm j þrónum. Gæftir hafa verið mjög slæmar það sem af er vertíð. —- H.s.j. — Visindamenn Framhald af bls. 32 störf sín allan daginn, eða til kl. 5. Voru þeir m.a. að koma fyrir jarðskjálftamæli. En í eynni hefur verið vandaður jarð- skjálftamælir, sem tók upp hrær ingar frá tveimur stöðum á eynni og var nú bætt við þriðja staðnum. Var ætlunin að taka maélinn með í land, en það þótti ekki óhætt, ef svo dýrmætt tæki blotnaði. Er Surtseyjarfarar ætluðu um borð, hafði hvesst nokkuð, og varðskipsmenn, sem voru það langt frá að þeir sáu ekki strönd ina á eynni, töldu ekki lendandi. Voru þeir farnir að gera ráð- stafanir til að fá sendan útbún- að og vistir, til að skilja menn- ina eftir í eynni. En eftir að mennirnir í landi höfðu náð sam bandi við þá um talstöð og skýrt frá hvernig útlitið væri hjá þeim, var skipsbáturinn send- ur út, og úr honum sendur gúmmíbátur í land á taug. Gekk vel að flytja mennina út og draga þá á taug gegnum brim- garðinn. Engum varð meint af volkinu. — Við blotnuðum bara, en þorrn uðum nokkuð meðan við vorum við störf í landi, sagði Þorbjörn. — ísland fái Framhald af bls. 32 þjóða er ekki hafa áunnið sér rétt til lokakeppninnar og bæri því auða sætið. Endanleg ákvörðun mun verða tekin á fundi stjórnar- innar 18. apríl og hefur Ás- björn Sigurjónsson, formaður HSÍ, verið boðaður á þann fund. Tækninefndin dró um það hvernig riðlar skyldu skipað- ir í lokakeppninni og urðu úr- slit þessi: A-riðill: Svíþjóð, Júgóslavía, Pólland, Sviss. B-riðiIl: Japan, Noregur, Ung- verjaland, V-Þýzkaland. C-riðill: Rúmenía, Sovét, Kanada, A-Þýzkaland. D-riðill: Tékkóslóvakía, Dan- mörk, Frakkland, Túnis (eða það land sem ákveðið verður í stað Túnis). Þá hefur og heyrzt að Kan- adamenn muni ekki geta kom ið til lokakeppninnar vegna fjárskorts. En eins og sjá má væri mun hagstæðara fyrir ís- lendinga að fá sæti Túnis, því í þeim riðli væri alls ekki úti- lokað að íslendingar kæmúst áfram, sem næsta litlar vonir væru til ef þeir kæmu í loka- keppnina í stað Kanada. Kennedyhöfða, 4. apríl, NTB. ÁTTA manns fórust og 150 slös- uðust er mikið óveður gekk yfir Floridaskaga í dag. Einnig varð það til þess að fresta varð fyrir- huguðu geimskoti af Kennedy- höfða, en aftur verður reynt á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.