Morgunblaðið - 05.04.1966, Page 4
4
MORGU NBLAÐIO
Þriðjudagur 5. apríl 1966
Bí LALEIG AN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílaleigan
Ingólísstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Volkswagen 1965 og ’66.
BfFREIÐALEIGAIU
VECFERD
Grettisgötu 10.
Simi 14113.
Húrarar
Husbyggjendur
Höfum fyrirliggjandi milli-
veggjaplötur, 5, 7 og 10 cm.
Hellu og Steinsteypan
sf.
Bústaðabletti 8, við Breið-
holtsveg. Sími 30322.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Grundarstíg 2 A.
Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
BOSCH
Þurrkumótorar
6 volt
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9» — Sími 38820.
Góður snjór fyrir
vestan
Þá er páskahelgin fram-
undan. Um síðustu heigi hitti
ég kunningja minn, sem var á
leið til ísafjarðar. Hann ætlaði
flugleiðis á laugardag, en þá
var ekki flogið. Á sunnudag
var heldur ekki flogið — svo
að hann ko.mst ekki fyrr en á
mánudag.
Ástæðan til þessara truflana
á samgöngum var sú, að stöðug
snjókoma var á ísafirði — og
loksins, þegar úr henni dró, var
mikið verk að ryðja snjónum af
flugbrautinni. Aðfaranótt mánu
dags var unnið að hreinsun
flugbrautarjnnar, en þegar því
var lokið kom í ljós, að nær
tveggja metra hár snjóruðning-
ur meðfram brautinni var of
hár — og þurfti þá enn að
hefja vinnu með ýtum — til
þess að ýta snjónum lengra frá
brautinni
BÍLAR
1965 Opel Caravan, tvilitur
með toppgrind.
1965. DAF, ekinn 14 'þús. km.
1963 Mercedes Renz 220-S
Stórglæsilegur, nýinnfluttur.
1962 Saab, ekinn 32 þús. km.
1964 Willys jepp, US-hús,
drifL útv.
1954 Willys jepp, uppgerður
í vetur fyrir ca. kr. 30 þús.
1962 Taunus station, ekinn
35 þús. km. Blár.
Ingólfsstræti 11.
15 0 14 - 113 25 - 1 91 81.
S.E V.
Rúðuþurrku-
mótorar
fyrir:
Simca Ariane
— 1000
Renault Dauphine
— R-8
— Estafette
Peugeot 404
Varahlutaverzlun
Jóh. Olafsson 8 Co.
Brautarholti 2.
Sími 1-19-84.
Færðin milli flugvallar og
kaupstaðarins mun ekki vera
allt of góð, því á ísafirði er
allt á kafi í snjó. Þeir, sem
sækja skíðavikuna og landsmót
ið ættu því ekki að verða í
vandræðum.
Og það eru ekki svo fáir, sem
ætla vestur að þessu sinni.
Flugfélagið segir, að farnar
verði 3-4 aukaferðir á miðviku-
dag og fimmtudag — og í gær
voru farnar fjórar ferðir til
ísafjarðar.
Vonandi fá þeir, sem fljúga
suður á bóginn, jafnmikið af
sól og sumri og hinir fá af
snjónum.
-Ar Meiri ýsu
Kona nokkur hringdi
hingað og bað Velvakanda að
köma þeirri fyrirspurn áleiðis
tií sjómannanna, hvort þeir
væru í raun og veru hættir að
veiða ýsu. í þeim fiskibúðum,
sem konan segist hafa haft
samband við undanfarið, hafi
aldrei fengizt ýsa með gamla
laginu, en nóg hafi verið af
ýsuflökum.
Fiskkaupmenn virðast því
flaka nnegnið af þeirri ýsu sem
þeir fá, en þessi frú vill hana
óflakaða — og biður þá að
halda eftir einni og einni, þegar
flakað er
Jr Veika kynið
Hér er bréf frá ungum
manni:
„Heill og sæll, Velvakandi.
Eg er ekki ánægður með það
hvernig karlmennirnir um-
gangast kvenfólkið. Mér finnst,
að þeir eigi að sýna því meiri
tillitssemi og kurteisi en hér
tíðkast. Mér finnst oft áberandi
hve erlendir karlmenn eru
kurteisari, stimamýkri og fág-
aðri í framkomu sinni en ís-
lendingar — og gildir þeð ekki
aðeins um viðskipti þeirra við
kvenfólkið. fslenzkir karlmenn
standa jafnvel ekki upp fyrir
kvenfólki í strætisvagni
Það hefur tíðkazt frá alda
öðli, að karlmenn sýndu kven-
fólki meiri umhyggju en kyn-
bræðum sínum. Kvenfólk kann
þessu vel — og ég sé enga
ástæðu til þess að karlmenn uni
AURORA
toiletpappír
Óviðjafnanlegur ameriskur
W.C. pappír, 500 bl. í rl.,
tvöföld, 4 litir, — ávallt
fyririiggjandi.
Heildsölubirgðir
IVEVZLUVÖRUR HF.
Snorrabraut 50. Sími 12816
því illa að kvenfólkið telji sig
vesælli og aumari en okkur
(karlmennina). Með því að láta
veita sér sérstaka lynhyggju
viðurkennir kvenfólkið auðvit-
að, að það sé hálfvesælt og
aumt frá náttúrunnar hendi
Einn í strætó“.
-Ar Bifreáð á Þingvalla-
veginum
Hér er stutt bréf itm um-
ferðarmál:
„Kæri Velvakandi!
Hversvegna hægri handar
akstur? Stýrið vinstra megin
skapar nú mikið öryggi í um-
ferðinni á mjóu vegunum okk-
ar. Hafið þér, lesandi góður,
ekki séð, hve miklu verr þeir
víkja, sem hafa stýriS 'hægra
megin? Hverjir lenda í vand-
ræðum þegar þeir þurfa að aka
bíl í útlöndum, þar sem hægri
handar akstur er?
12 ár var undirritaður í út-
löndum (ca. 66 löndum). Ýmist
var hægri eða vinstri handar
akstur. Enginn af þeim, sem ég
starfaði með átti í erfiðleikum
með að aka bifreið hvort sem
ekið var hægra eða vinstra
megín. Hægri handar akstur,
hugsið yður, ef stýrið vapri nú
komið hægra megin í bíl yðar
og þér væruð að mæta bifreið
á Þingvallaveginum, þar sem
kantarnir eru varasamir. Mund
uð þér þá treysta yður til að
víkja út á blá kantinn, eins og
þér gerið svo auðveldlega nú,
með stýrið vinstra megin?
Virðingarfyllst
Jónas Þorsteinsson,
siglingafræðingur“
-Ar Fyllri veðurspá
Og hér kemur orðsending
til Veðurstofunnar:
„Kæri bróðir!
Það rekja allir raunir sínar
við þig, og ber er hver að baki
nema sér bróður eigi. Mig lang-
ar til að biðja þig að koma
því á framfæri við Veðurstof-
una, að nú sé hægt að hringja
beint í 17000, frá mörgum stöð-
um á landinu (Þökk sé lands-
símanum.) síðan sjálfvirka
sambandið komst á, og fá þann-
ig veðurspána af vörum spá-
mannsins, og veit ég um
nokkra sem hafa ætlað að not-
færa sér þessa þjónustu, en
komust þá að þeirri einkenni-
legu staðreynd, að veðurspáin
sem lesin er, er aðeins fyrir
suðurhluta landsins. Það getur
komið sér vel fyrir sjómenn,
bændur og aðra, sem alltaf
þurfa að fylgjast með veðri, að
geta hringt þegar veðurfregn-
um er ekki útvarpað, sbr. sl.
föstudagskVöld, þegar umræð-
umar fóru fram um „vantraust-
ið á ríkisstjórnina", þó umræð-
urnar virtust nú snúast um
ýmistlegt annað. Persónulega
held ég að það hefði enginn
haft við það að athuga, þó gert
hefði verið 5 mínútna hlé til að
lesa veðurfréttir. Sem sagt, þú
ætlar að koma þessu á fram-
færi fyrir mig bróðir sæll. Það
kemur líka stundum fyrir að
við verðum rafmangslausir úti
á landsbyggðinni og getum
ekki hlustað, en þá er síminn í
lagi.
Með fyrirfram þökk fyrir að-
stoðina
Þinn bróðir
Velviðrandi".
■Ar Áríðandi breyting?
Annað bréf um hægri/
vinstri:
„Árangur af fórnfúsu starfi í
þágu s'lysavarna hefur leitt af
sér mikla blessun. En á meðan
einstaklingar og hópar víðsveg-
ar um landið sameina krafta
sína til að koma í veg fyrir
slys á sjó og landi, þá eru al-
þingismennirnir að þrátta um
það dag eftir dag hvernig eigi
að auka slysahættuna á þjóð-
vegum landsins. Hafa nú sem
slegið því föstu að tekin
verði upp hægri handar akstur
hér á okkar litla landi. Til-
gangur með því að þessi breyt-
ing verði gerð hér, hefur fáar
jákvæðar hliðar, þvert á móti
er ómögulegt að gera sér grein
fyrir þeirri ógn sem þessi breyt
ing hlýtur að skapa í umferð-
inni, og er þó nægilegt öng-
þveiti fyrir í þeim efnum.
Hér er mikið lagt í sölur,
annars vegar fyrir þá erlendu
gesti sem aka vilja sjálfir bif-
reiðum sínum um landið og
hinsvegar fyrir þá Íslendinga,
sem berast svo mikið á, að þeir
fara með bifreiðar sínar í ferða
lög um þau lönd, sem hafa
hægri handar akstur. Fjár-
magn það, sem hver einstakl-
ingur og þjóðin Öll verður
krafin um til að stíga þetta
ðheillaspor, verður áreiðanlega
mikið. Þó verður hitt miklu
þyngra á metum að stofna af
ásettu ráði til fleiri slysa sem
óhjákvæmilega hlýtur að koma
í kjölfar þessara umibrota. Það
lýsir ekki miklu sjálfstæði að
apa allt eftir öðrum þjóðum, án
tillits til þess hvort það er okk-
ur til ilis eða góðs
Hveragerði, 2673. — 1966
Guðfinna Hannesdóttir".
■jr Burt með bjór
og brennivín
Loks eru hér nokkrar lín-
ur frá einum bindindissinnuð-
um:
„Ekki held ég að þeir menn,
sem að ölfrömvarpinu standa,
geti vaxið að áliti íslenzku
þjóðarinnar með þessari fram-
komu sinni. Hvað munu þessir
menn gera ef þeir væru á sjó
og leki kæmi að skipinu?
Mundu þeir telja það bjargar-
von að bæta einum lekastað
við þann leka sem fyrir væri?
NeL ég hugsa að þeir mundu
reyna að ausa eða þétta leka-
staðina, sem auðvitað öll heil-
brigð skynsemi bendir til að
gera. En hér er farið öðru
vísi að. Það á að bæta áfengis-
leka þjóðarinnar með því að
bæta einum lekastað við. Þið
ættuð að athuga þetta. Annars
er eitthvað athugavert við
ykkur
Þá vilja Keflvíkingar og Ak-
umesingar fá áfengisútsölur,
þ.e.a.s. nokkrir menn hafa farið
fram á atkvæðagreiðslu um
það hvort þetta skuli leyft eða
ekki. Ég held, að þessir menn,
sem um þetta biðja, geri þess-
um miklu og myndarlegu stöð-
um lítinn sóma og litla virðingu
með þessu, heldur þvert á móti
ósóma og óvirðingu. Vonandi
verður ölfrumvarpið, ef til at-
kvæðagreiðslu kemur, fellt —.
og einnig leyfi um áfengisút-
sölu. .Það er menning, hitt er
ómenning. — E.“