Morgunblaðið - 05.04.1966, Page 10
10
MORGU NBLAÐID
Þriðjudagur 3. aprH 1963
Luna 10 komin á braut
umhverfis tunglið
— fylgihnöttur þess um
ófyrirsjáanlega framtíÖ
IVIetsala Víkings
í Þýzkalandi
' * ■
Agætar sölur annarra togara erlendis
Moskvu, 4. apríl, NTB.
S E I N T á sunnudagskvöld
stýrðu sovézkir geimvísinda-
menn á braut umhverfis
tunglið gervihnettinum Lunu
10, sem skotið var á loft sl.
fimmtudag. Tókst allt sem til
stóð og mun Luna 10 ganga
sporöskjulaga braut sína um-
hverfis þennan næsta ná-
granna jarðarinnar um ófyrir
sjáanlega framtíð. Hringferð
sína umhverfis tunglið fer
Luna 10 á þremur klukku-
stundum og er minnsta fjar-
lægð frá tungli 350 km en
mest 1.000 km.
„Við erum stoltir af því að
fyrsti fylgi'hnöttur tungls, sem
gerður er af mannahöndum sé,
eins og fyrsta gervitungl jarðar,
á sinn stað kominn fyrir tilstilli
Sovétríkjanna“, sagði i tilkynn-
ingu þeirri um þetta, sem lesin
Jakarta, 4. apríl. — NTB:
ADAM MALIK, utanríkisráð-
herra Indónesíu, sagði í dag að
Indónesía myndi endurskoða ut-
anríkismálastefnu sína og yfir-
vega hvort landið skyldi aftur
gerast aðili að Sameinuðu þjóð-
unum. Hann sagði og á blaða-
mannafundi í dag að deilurnar
við Malasiu myndu halda áfram,
en Malik kvað Indónesa hafa
áhuga á að vinna að friðsam-
legri lausn í því sambandi.
Indónesía sagði sig úr Sam-
einuðu þjóðunum fyrir liðlega
ári til þess að mótmæla aðild
Malasíu að Öryggisráðinu.
Nær 400 indónesískir lögreglu-
menn hafa verið handteknir, sak
aðir um að hafa verið flæktir
í hina misheppnuðu byltingartil-
raun í október sl., að því er opin
berlega var tilkynnt í Jakarta í
dag. Þá hafa 49 borgarar og verið
handteknir fyrir sömu sakir.
BRIDCE:
*
Asmundur
og Hjalti
Islandsmeistarar
TVÍMENNINGSKEPPNI íslands-
mótsins í bridge fór fram um sl.
helgi og sigruðu þeir Ásmundur
Pálsson og Hjalti Elíasson.
Röð efstu paranna varð þessi:
1. Ásmundur Pálsson og
Hjalti Elíasson 1671 st.
2. Einar Þorfinnsson og
Gunnar Guðmundsson 1636 st.
3. Eggert Benónýsson og
Stefán Guðjohnsen 1622 st.
4. Símon Símonarson og
Þorgeir Sigurðsson 1513 st.
5. Margrét Jónsdóttir og
Kristjana Steingrímsd. 1500 st.
í 1. flokki sigruðu Kristmann
Guðmundsson og Sigfús Þórðar-
son frá Selfossi, hlutu 1677 stig.
í öðru sæti urðu Gísli Hafliðason
og Gylfi Baldursson með 1577
stig og nr.'3 Bernharður Guð-
mundusson og Torfi Ásgeirsson
með 1551 stig.
Sveitaképpnin hófst í gær-
kvöldi og heldur áfram í kvöld
og verður spilað að Hótel Sögu.
var upp á 23. flokksþingi sov-
ézka kommúnistaflokksins í
Moskvu í morgun. Fimm þúsund
þingfulltrúa, erlendra og inn-
lendra, og aðrir gestir, fögnuðu
tilkynningunni ákaft og klöpp-
uðu mikið er Luna 10 lét til sín
heyra óravegu utan úr geimnum
og gamalkunnir tónar Inter-
nasjónalsins hljómuðu um há-
talarakerfi þingsalarins — segul-
bandsupptaka sem Luna 10 hafði
haft meðferðis í tunglreisuna.
Luna 10 er 245 kg. að þyngd og
er ætlað að veita ýmisskonar upp
lýsingar um þyngdarafl tungls-
ins, geislun frá þvi ef einhver
er og hitastig á því, sem á eru
sagðar miklar sveiflur. Ekki er
talið að neinn ljósmyndaútbún-
aður sé með í förinni að þessu
sinni, en fyrirrennari þessa
fyrsta fylgihnattar tunglsins,
Luna 9, sem lenti á því hægri
lendingu í janúarmánuði sl.,
sendi margt mynda af ferðalagi
sínu.
Sovétríkin hafa ekki skotið á
Þá hafa 18 ráðherrar úr fyrrv.
stjórn Sukarnos verið handtekn-
ir, að því er innanríkisráðherra
Indónesíu, Rachmat, hefur sagt.
Meðal þeirra er dr. Subandrio,
fyrrum utanríkisráðherra. Segir
innanríkisráðherrann að hinir
fyrrum ráðherrar hafi verið hand
teknir vegna þess að grunur
leiki á að þeir hafi á einn eða
annan hátt verið flæktir í bylt-
ingartilraunina.
Malik, utanríkisráðherra, sagði
í dag að hin nýja stjórn í Indó-
nesíu myndi reyna að afla auk-
innar efnahagsaðstoðar, bæði í
austri og vestri.
Er hann var spurður um af-
stöðu stjórnarinnar til Kína,
svaraði Malik: „Stefna okkar
gagnvart Peking er óbreytt. Við
viljum vera vinir allra, einnig
Peking. Ef Peking gerir sig ekki
ánægða með þetta, getum við
ekki að því gert“.
AÐFARANÓTT sunmudags k»m
upp eldur í mb. Rán SU-58, sem
lá hér í höfninni. Eldurinn kom
upp afta.st í bátnum, og mun hafa
liðið talsverður tími frá að eld-
ur k«m upp, og þar til hans
varð vart.
Þegar slökkviliðið í Keflavík
kom á vettvang um kl. 2.30 var
eldur orðinn mjög magnaður, í
káetunni. Einnig logaði mikill
eldur í stjórnklefa bátsins. Mjög
erfitt er að eiga við eld í bátuim,
Akureyri, 4. apríl.
SNJÓÞYNGSLI í Grenivík og
Höfðahverfi eru nú orðin geysi-
langvinn og mikil, og til mikilla
erfiðleika fólki þar. Mjólk hefur
verið flutt til Akureyrar tvisvar
í viku á trukk, sem ýta hefur
dregið. Ferðalagið þessa 47 km.
leið hcjur venjulega tekið 12
klukkustundir.
Mikill skortur var að verða á
ýmsum nauðsynjum í Grenivík,
sérstaklega á fóðurvörum, og fór
loft mönnuðu geimfari síðan 18.
marz í fyrra, er Alexei Leonav
varð til þess fyrstur manna að fá
sér gönguferð um himingeiminn
og var það hald margra, að nú
mætti eiga von á tilþrifamikilli
geimferð er sett yrði 23. flokks-
þ.ng kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna. Svo er að sjá sem Luna
10 muni eiga að koma í stað þess,
enda telja sovézkir vísindamenn
það hálfu meira afrek að koma
henni á braut umhverfis tunglið
en að koma á stefnumóti tveggja
geimfara, eins og Bandaríkja-
menn hafa gert. Almennt er talið
að Rússar standi nú töluvert bet-
ur að vígi í kapphlaupinu um að
koma mönnuðu geimfari til
tunglsins og allar líkur sagðar
á að næsta skrefið verði að skjóta
á loft systurhnetti Lunu 10 með
flóknari tæknibúnað, ljósmynda-
vélar o. fl. meðferðis.
Lunu 10 og eldflaugarútbúnaði
hennar — samtals 1.600 kíló —
var skotið á loft á fimmtudag —
eins og áður sagði og „lagt“ á
braut umhverfis jörðu áður en
hafin var sjálf ferðin til tungls-
ins. Þá var eftir þrautin þyngri,
er á leið ferðina, að hefta svo
mátulega skrið Lunu 10, að að-
dráttarafl tunglsins, sem er % af
aðdráttarafli jarðar, næði að
festa þennan óvænta fylgi'hnött
þess á braut.
Hefði þetta ekki tekizt væri
Luna 10 nú á leið til sólarinnar.
En á sunnudagskvöld fékk hún
skipanir sínar af jörðu — 400.000
km. fjarri —• hemlaflaugunum
var beitt eins og til stóð, hrað-
inn minnkaður á 20 sekúndum
niður í 1.25 km. á sekúndu og
gervihnötturinn og áföst mæli-
tæki losuð frá eldflauginni.
Og nú gengur Luna 10 tilskilda
braut umhverfis tunglið með
senditæki sín og loftnet og ann-
an tækjabúnað, sem ætlað er
eins og áður sagði, að koma til
skila ýmsum upplýsingum um
tunglið. Einnig eru innanborðs
litlir þotuhreyflar, sem eiga að
varna veltingi ef einhver verður
og sömuleiðis hefur Luna 10 eig-
ið hitakerfi og orkuframleiðslu
til eigin þarfa.
1 maí almennur
frídagur
f GÆR var lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um almennan
frídag 1. maí. Segir í greinargerð
frumvarpsins, að í tilefni af 50
ára afmæli Alþýðusambands ís-
lands hafi ríkisstjórnin ákveðið
að beita sér fyrir setningu laga
um að gera 1. maí að almennum
frídegi.
því allt er þar mjög þröngt og
innilokað, þó tókst fljótlega að
hefta útbreiðslu eldsins, en ekki
var lokið að slökkva fyrr en um
sex leytið um morguninn.
Báturinn er talsvert mikið
skemimdur og er nú kominn í
dráttarbraut Keflavíkur til við-
gerðar. Ekki er örugglega vitað
hvað olli eldsupptökum, en lík-
legast er að kviknað hafi út frá
rafmagni.
Rán er 60 tonna bátur úr tré,
og var á netaveiðum. — h.j.s.
Drangur þangað í kvöld, auka-
ferð með nauðsynjavarning.
Menn eru enn sæmilega birgir
af olíu, sem flutt hefur verið
heim á sveitabæi að undanförnu
í tunnum. Símalínur í Höfða-
hverfi ery á kafi í snjó á löng-
um svæðum. Línur voru hækk-
aðar fyrir nokkru um rúman
metra með því að negla fram-
lengingu ofan á staurana, en nú
eru þær aftur komnar á kaf í
fönn. — Sv. P.
B.v. VÍKINGUR seldi í Brem-
erhaven í Þýzkalandi s.l. laug-
ardag 221 tonn fyrir 222.500
mörk, og er það hæsta sala í
Þýzkalandi til þessa á eigin afla.
Aflinn var mest megnis karfi
eða um 140 tonn, auk um 50 tonn
af ýsu, 20 tonn af ufsa, og auk
þess lítilsháttar af öðrum teg-
undum. Karfinn var mest megn-
is stórkarfi. Var mesti hluti afl-
ans fenginn hér á heimamiðum,
en einnig nokkuð við Grænland.
Eigandi b.v. Víkings er Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjan á
Akranesi, en skipstjóri á togar-
anum er Hans Sigurjónsson.
London, 4. apríl, NTB.
Wilson forsætisráðherra hvíldi
sig um 'helgina eftir kosninga-
sigurinn en hófst handa þegar í
dag um verkefni þau sem mest
kalla að, breytingar á ríkisstjórn
inni og viðræður um Ródesíu-
málið og um efnaihagsástandið í
Bretlandi.
Hlutur Verkamannaflokksins
af greiddum atkvæðum var 47.9%
en var 44,1% í kosningunum 1964
íhaldsiflokkurinn fékk 41.9%
Blönduósi, 4. apríl.
f VETUR hafa snjóalög verið með
óvenjulegum hætti hér í Austur-
Húnavatnssýslu. Sumsstaðar er
mjög mikill snjór, en annars
staðar hefur aldrei komið snjór
að verulegu ráði. T.d. hefur ver-
ið mjög snjólétt í öllum Vatns-
dal, og sama er að segja um
Laxárdal og Blöndudal, vestan-
verða, en i austurhlíðum þeirra
er stórfenni.
Siðan um miðjan vetur hafa
samgöngur oft teppzt um stund-
arsakir, og talsverðar truflanir
orðið á mjólkurflutningum. Flest
Djúpavogi, 4. apríl.
ELDUR kom upp í gamla íbúðar-
húsinu á Bragðavöllum í Ham-
arsfirði si. föstudagskvöld, og
brann það til kaldra kola á
skömmum tíma, án þess að
nokkru yrði bjargað úr því.
í gamla íbúðarhúsinu bjó
einn maður, Sigfús Jónsson, en
hann var hins vegar í fæði hjá
bóndanum sem býr í nýja íbúð-
arhúsinu.
Var kl. um 7 að kvöldi, þegar
eldsins var fyrst vart, en þá var
Nokkrir aðrir togarar hafa
selt undanfarna daga erlendis og
fengið ágætt verð fyrir aflann.
T.d. seldi Sigurður í Cuxhaven
189.2 tonn fyrir 184.980 nr/irk,
Þorkell máni seldi í Bretlandi
164.500 tonn fyrir 17.259 sterl-
ingspund, og Hvalfellið seldi s.L
sunnudag í Bremerhaven 102
tonn fyrir 114.800 mörk.
Næstu sölur íslenzkra togara
erlendis verða sem hér segir:
Úranus selur í dag í Bretlandi,
Kaldbakur á morgun og Röðull
á skírdag, en Þormóður goði sel-
ur í Þýzkalandi í dag.
Á laugardagskvöld voru kunn-
gerð í London endanleg úrslit
kosninganna, en nokkru áður var
vitað, að meirihluti Verkamanna
flokksins á þingi yrði 97 þing-
sæti.
Hluhföllin milli flokkanna
verður því þessi:
(43.4% áður) og frjálslyndir
8.5% en höfðu 11.2%.
Fylgisaukning Verkamanna-
flokksins var 2.6%.
ir vegir hafa þó verið hreinsað-
ir, a. m. k. tvisvar í viku, ef þess
hefur þurft með. Erfiðast hefur
verið að fást við Langadalsveg,
og bændur þar flestir orðið að
flytja mjólkina á dráttarvélum
vestur yfir Blöndu, og koma
henni á mjólkurbílana, sem fara
Svínvetningabraut. Leiðin frá
Blönduósi um Ása, Þing og Vatns
dal hefur oftast verið fær ölluin
bílum.
Á stöðuvötnum er um 80 cm
þykkur ís. Er þá miðað við ís,
sem vatn eða krap hefur aldrei
frosið ofan á. — Björn.
Sigfús úti við gegningar. Norð-
austan hvassviðri var þá, og
brann húsið, sem er járnklætt
timburhús, til kaldra kola á um
tveimur tímum, og var engu
hægt að bjarga út úr húsinu af
eigum Sigfúsar.
Ekki er með vissu hægt að
segja um út frá hverju kviknaði
í húsinu, en þó logaði í eldavél,
er Sigfús yfirgaf húsið, og eru
taldar mestar líkur á að kvikn-
að hafi út frá henni. — Dagmar.
Sækir Indónesía
um inntöku í 8Þ?
Bátur skemmist af eldi
Símolínur fennir í kuf
Lokatölur í brezku
kosningunum
Verkamannaflokkurinn 363 þingsæti unnu 49 töpuðu 1
íhaldsiflokkurinn 253 þingsæti unnu 0 töpuðu 51
Frjálslyndir 12 þingsæti unnu 4 töupðu 2
írski lýðv-fl. 1 þingsæti unnu 1 töpuðu 0
Atkvæðj féllu sem hér segir (a tkvæðatölur frá 1964 í svigum).
Verkamannaflokkur 13.057.941 atkv. (12,205.800)
íhaldsfl. 11.418.433 atkv. (12.002.642)
Frjálslyndir 2.327.533 atkv. ( 3.099.283)
Aðrir fl. 452.689 atkv.
Óvenjuleg snjóalög
í A-Húnavatnssýslu
íbúðorhús í Hamorsfirði
brennur til knldrn kcta
Maður missti aleigu sína í eldinum