Morgunblaðið - 05.04.1966, Side 32
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
nrignmMaíJiifo
Helmingi útbreiddara
en nakkurt annað
íslenzkt blað
79. tbl. — Þriðjudagur 5. apríl 1966
Framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins samþykktur ein-
róma á fulltrúaráðsfundi
A FUNDI Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík í
gærkvöldi var tillaga kjör-
nefndar um skipan framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins við
borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík einróma sam-
þykkt.
Fundarstjóri var Höskuld-
ur Olafsson, bankastjóri, en
formaður kjörnefndar, Bald-
vin Tryggvason, gerði grein
Inflúensa í borginni
INFLÚENSA hefur nú aff
undanförnu gert mjög vart
viff sig hér í bænum, og hef-
ur hún mjög ágerzt núna síð-
ustu daga.
Jón Sigurðsson, borgariækn
ir tjáði Mbl. í gær, að meira
virtist vera um þessa inflú-
ensu meðal barna og unglinga
en meðal fullorðna, og að hún
virtist því vera mjög áþekk
þeirri inflúensu er geisaði í
Bretlandi nú skömmu eftir
áramótin. Kvaðst hann hafa
af því fregnir að í suma skóla
borgarinnar hefði vantað um
fjórðung nemenda.
Jón sagði, að annars væri
ákaflega lítið hægt að segja
um inflúensu þessa að svo
stöddu. Oft væri erfitt að
greina á milli hennar og
venjuiegs kvefs, en verið væri
að rækta veiruna að Keldum,
og niðurstöður væntanlegar
bráðiega.
Hann kvað rétt að vekja
athygli manna á þvi að verj-
Vegagjalc!
i efstu flokk-
uEium lækkar
VTDGAGJALDIÐ á Reykjanes-
braut hefur nú verið lækkað
talsvert fyrir bifreiðir, sem eru
í fjórða og fimmta flokki. Fyrir
bifreiðir sem eru i fjórða flokki,
en þar eru bifreiðir yfir fimm
tonn, lækkar gjaldið úr 200
krónum niður i 135 krónur, og
í fimmta flokki, en í honum eru
aðaJlega stórar bifreiðar með
tengivagn, kranar, skurðgröfur
O- fl. lækkar gjaldið um 100 kr.,
eða úr 300 kr. niður í 200 kr.
Vílja flngvöll
ó Rnufnrhöín
Raufarhöfn, 4. april.
VEÐTJR er hér gætt í dag, logn
og sólskin, og hiti i kringum
frostmark.
Samgöngur á landi eru þó eng-
ar, því að allt er á kafi 'hér í
snjó, og al'lir vegir lokaðir. Er
þvi ekki um neinar samgöngur
að fæða, nema á sjó, því að flug-
völiur er hér enginn. Er mikill
álhugi hjá mönnum hér, að gerð-
ur verði hér flugvölluf- sem fyrst
til þess að sem greiðastar sam-
göngur fáist innanJands.
— Einar.
ast ofkælingu og klæða sig
vel. Og ef fólk kenndi ein-
hvers lasleika að fara þá ekki
á mannamót.
fyrir tiilögum nefndarinnar.
Nokkrar umræður urðu um
tillögur kjörnefndar og tóku
til máls Sigurður Magnússon,
Sigurjón Bjarnason og Ás-
björn Björnsson. Tillaga kjör-
nefndar var síðan einróma
samþykkt. Að því loknu tóku
til máls Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, og Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra.
Fundurinn var mjög fjöl-
mennur og mikil eining og
sóknarhugur ríkti á fundin-
um.
Læknadeilan:
Heimild til þess að
kalla á sérfróða lækna
EKKI hefur enn verið samið
í læknadeilunni svonefndu,
en sem kunnugt er sögðu 19
læknar upp við spítalana
skömmu fyrir áramót, og áttu
uppsagnir þeirra að taka gildi
núna um miðjan apríl. Hafa
átta læknar þegar hætt starfi
sínu við spítalana og í þess-
um mánuði munu tíu bætast
í hópinn, ef samkomulag næst
ekki.
Árni Björnsson, formaður
Læknafélags íslands, tjáði
Mbl. að málin stæðu nú þann
ig, að læknar hefðu undan-
farið átt í stöðugum samn-
ingaviðræðum við ríkisstjórn
ina, en ekki gott að segja um
samkomulagshorfur að svo
stöddu.
Nefnd sú, sem heilbrigðis-
málaráðherra, skipaði til þess
að reyna að finna lausn á
þessu máli, hefði enn ekki
skilað áliti, en hún ynni stöð-
ugt að verkefni sínu.
Árni greindi ennfremur
frá því, að nú fyrir skömmu
hefði yfirlæknum spítalanna
verið gefin heimild til þess
að kalla inn sérfróða lækna
ef knýjandi nauðsyn væri á,
og að þeim yrði greitt fyrir
ákveðið verk.
Myndin tekin viff skipshliff, þegar vísindamennirnir voru aff
leSSja af staff í land i Surtsey. Ljósrn, Adolf Hansen.
Vísindomenn blotnuðn
í Surtseyjnrferð
Misstu myndavéí og byssu i sióinn
VÍSINDAMEiNN í Surtseyjar-
ferð fengu kalt bað í sjónum á
laugardaginn, er gúmmiMt
hvolfdi í fiæðarmálinu í eynni.
En svo óheppilega vildi til, að
í fyrri bátnum voru óbundin
byssa og myndavél, sem týndist.
Mbl. spurði próf. Þorbjörn
Sigurgeirsson, um ferðina. Hann
sagði að hópurinn hefði farið á
varðskipinu Óðni frá Þorláks-
höfn aðfaranótt laugardags og
Símostaunu brotoo uadan
snjóþungo d Snæfellsnesi
StykkisíhóJmi 4. apríJ.
SL. laugardag hlóffst niður mik-
ill snjór á Snæfellsmesið, svo að
vegir allir tepptust. Símasam-
bandslitið var viff Grundarfjörff,
enda brotnuffu nokkrir simastaur
ar beggja vegna kauptúnsins, og
viða slitnuðu símalínur, en
bráðabirgffaviðgerð fór fram í
gær.
Áætlunapbiifreið ætlaði suður
til Reykjavíkur um ‘helgina frá
Stykkishólmi með skólanemend-
ur og eins stúlkur og drengi úr
Stykkishólmi, sem ætluðu að
keppa i körfuibolta. Bíllinn komst
ekki nema stuttan spöl og varð
þá að snúa til baka. Bifreiðar,
sem voru á leið til Stykkishólms
frá Reykjavíkur komust ekki
alla leið.
í dag er verið að moka til þess
að áætlunarbifreið komist til
Reykjavíkur í áætlunarferð en
kl. 4 var hún ekki komin upp í
Skarð. Mjólkurflu'tningar hafa
líka gengið mjög erfiðlega.
— Fréttaritari.
Tillaga um að Island fái
laust sæti í lokakeppni
ÞÓ fslendingar hafi tapað
leiknum við Dani á sunnudag-
inn er ekki loku fyrir það
skotið að þeir komist í loka-
keppnina um heimsmeistara-
titilinn. Lokakeppnin fer fram
í Sviþjóð i janúar nk. og
keppa 16 þjóðir .Fimmtán
hafa þegar áunnið sér rétt til
lokakeppninnar, en óvíst er
um eitt sætið. Áttu Egypta-
land og Túnis að leika saman
og sá er sigraði hl jóta sess í
úrslitakeppninni. Nú hafa
þessi lönd ekki stjórnmála-
samband og geta ekki komið
sér saman af pólitískum ástæð
um og tækninefnd aiþjóða-
sambands handknattleiks-
manna hefur ákveðið að vísa
þeim úr keppninni. — Lpgði
tækninefndin jafnframt til að
fsiand hlyti auða sætið í loka-
keppninni — en ennþá á
stjórn alþjóðasambandsins eft
ir að staðfesta þá ákvörðun.
Eftir því sem til fréttist í
gærdag, voru uppi raddir um
það innan stjórnar alþjóða-
sambandsins aff láta hlutkesti
ráða milli Austurríkis, fsl.,
Finnl., Spánar og Hollands um
auða sætið. Tækninefndin
taldi hinsvegar augljóst að ís-
land væri langsterkast þeirra
Framhald á bls. 31
voru við Surtsey í morgunsárið.
Var þá farið að senda menn i
land, eins og venja er með tvedm
ur gjúmrníbátum. Annar með mót
or beið fyrir utan, en hinn var
sendur í land. Ylgja var við
Surtsey og í flæðarmálinu sner-
ist báturinn á öldunni og hvolfdi.
í bátnum voru Sturla Friðriks-
son, erfðafræðingur, Amþór
Garðarsson, fuglafræðingur og
varðskipsmaður. Þetta var rétt
í flæðarmálinu og mönnum ekki
'hætta búin. En myndavél.Sturlu
og byssa Armþórs týndust.
í næstu ferð fóru Þorbjörn
Sigurgeirsson og Gunnar Guð-
mundsson. Hafði línu verið skot-
ið í land og var gúmmíbáturinn
dreginn. En á línunni slaknaði,
svo báturinn snerist. — Sló fyr-
ir um það leyti sem bátunnn var
að lenda ,svo þeir tveir fengu
líka bað. Þeir úr fyrsta bátn-
um fóru nú aftur úr í skip, en
í land komu 6 vísindamenn í
tveimur ferðum og gekk allt vel.
Mennirnir voru nú í landi við
Framhald á bls. 31
Miklar umræður
um dfmól
SÍÐASTLIÐINN laugardag
hófst umræða um álsamning-
inn í Neðrideild Alþingis og
stöð þá þingfundur til kl. 7.
Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra fylgdi málinu
úr hlaði og er ræða hans rak-
in á 8. síðu blaðsins 1 dag. —■
Aðrir er töluðu á laugardag-
inn voru Eysteinn Jónsson og
Lúðvík Jósefsson. í gær var
svo umræðum fram haldið og
tók þá fyrstur tli máls Bene-
dikt Gröndal. Aðrir er flutt
höfðu ræðu er fundi var frest
að kl. rúmlega 7 voru Einar
Olgeirsson og Sigurvin Einars
son. Fundi í deildinni var síð-
an fram haldið kl. 9 í gær-
kvöld og stóð fram á nótt.
Sökum rúmleysis í blaðinu í
dag er ekki hægt að rekja
ræður áðurtalinna þing-
manna.