Morgunblaðið - 21.05.1966, Blaðsíða 11
Laugardagur ÍT. maí 1986
MOHGU NBLAÐIÐ
11
lÍK ÍKOK(;iNMÍ l R KOKGIMIMI
auk hitaveitu, eru rafmagns-
| veita, vatnsveita og strætis-
| vagnar.
| Fjárfesing rafmangsveitu,
! vegna aukningar veitukerfis-
ins, nam á sl 4 árum 150
millj. kr., en svæðið nær, eins
og kunnugt er, frá Kjalarnes-
hreppi og suður í Garða-
hrepp. Til framhalds þessara
framkvæmda verður á næstu
4 árum varið 248 millj.
Vatnsveita Reykjavíkur
miðlar vatni til Reykjavíkur,
Seltjamarneshrepps og Kópa
vogs, en íbúar á þessu svæði
eru nú nær 90.000. !>ví er
eðlilegt, að vatnsmagn
Gvendarbrunna geri ekki
betur en anna lágmarks'þörf
á þessu svæði f>ví hefir nú
verið ráðizt í virkjun vatns
við Bullaugu, en þar eru
mikil og góð vatnsból. Varið
verður til framhaldsvirkjana
þar um það bil 10 millj. kr.
á næstu árum, auk þess,
sem bætt verður aðstaða
við Gvendarbrunna. Heildar-
framkvæmdir vatnsveitu fara
úr 64 millj. kr. í 131 millj. á
næstu 4 árum. Ai þessari
upphæð verður varið til
nýrra byggingarhverfa um
60 millj. kr.
Strætisvagnar Reykjavíkur
Áformuð er bygging mjög
fullkominnar þvóttastöðvar
fyrir SVR á þessu ári, en jafn
framt verður hafin bygging
nýs verkstæðis á næsta ári.
Verður hún um 13000—15000
tn3 að stærð.
Á árinu 1968 er gert ráð fyr
lr, að upp verði tekinn hægri
handar akstur hér á landi.
Þess vegna hefur lítið verið
keypt af nýjum vögnum að
undanförnu, og má því búast
við tiltölulega skjótri endur-
nýjun vagnakostsins. Til
hans verður varið 30 millj.
kr. á næstu 4 árum“.
Önnur fyrirtæki
„Enn er ógetið fjárfestingar
á vegum Vélamiðstöðvar,
Pípugerðar og Malbikunar-
stöðvar, en áherzla er lögð á
að hafa jafnan nægan og full-
kominn vélakost, og þá eink-
um þær tegundir véla, sem
eingöngu eru notaðar af borg-
arstofnunum og ekki fást á
almennum markaði. Má þar
nefna gatnahreihsunartæki og
ýmsar sérstakar vélar fyrir
rafmagnsveitu. Á síðustu ár-
um hafa Pípugerð og Malbik-
unarstöð verið endurnýja'ðar,
og má segja, að þær hafi nú
yfir að ráða fullkomnasta
tækjakosti, sem völ er á“.
— og aðrar framkvæmdir
„Hér hafa verið taldar upp
þær framkvæmdir, sem mest
ber á í framkvæmdaáætlun-
inni, en þó eru ótaldir ýmsir
þættir, s. s. bygging mynd-
listarhúsa á Miklatúni, en þar
hefjast framkvæmdir í haust.
Síðan verður ráðizt í bygg-
ingu bókasafns, ráðhúss og
eðrar framkvæmdir, sem ekki
eru beint tegndar vexti g
uppbyggingu nýrra borgar-
hverfa. Ennfremur verður
veittur verulegur fjárstuðn-
ingur til leikhúsbyggingar".
Tengsl framkvæmda-
og rekstraráætlunar
— Að hve miklu leyti helzt
framkvæmdaáætlunin í hend-
ur við tekjuaukninguna?
„Það atriði, sem er nátengt
samningu framkvæmdaáætl-
unarinnar, og er raunar að
mörgu leyti undirstaða henn-
ar, er gerð rekstraráætlunar
til langs tíma fyrir borgar-
sjóð og borgarstofnanir. Mark
visst hefur verið stefnt að því,
að niðurstöðutölur fram-
kvæmdaáætlunar væru rými-
lega innan þess ramma, sem
jöfn tekjuaukning borgarsjóös
mun fyrirsjáanlega leyfa á
næstu árum. Samt sem áður
er það sú stefna, sem upp
verður tekin, að gerður verð-
ur rammi að fjárhagsáætlun
til lengri tíma“.
Borgaryfirvöldum þröngur
stakkur skorinn til frjálsrar
ráðstöfunar tekna
„Þegar hafðar eru í huga
tekjuöflunarlefðir borgar-
sjóðs, þá leiðir það jafnframt
hugann að útgjaldaþörfinni.
Henni er í stórum dráttum
þannig hagað, að lagaboð og
önnur ákvæði sníða borgar-
yfirvöldunum ákaflega þröng-
an stakk til frjálsrar ráðstöf-
unar teknanna.
Má þar t.d. nefna stærstu
útgjaldaliðina:
Félagsmál.
fræðslumál,
löggæzlu,
brunamál,
hreinlætis- og heiibrigðis-
mál.
Sé sí'ðan tekin fjármuna-
myndun borgarsjóðs, þá má
ætla, að eftir standi skv. fjár-
hagsáætlun þessa árs, tæplega
15% heildarteknanna til þess
að standa straum af þáttum
eins og listum, íþróttum og
útiveru, sem einnig eru að
miklu leyti bundin útgjöld,
svo og framlagi til SVR og
stjórnnuarkostnaðar borgar-
innar, en sá liður nam á síð-
asta ári rúmlega 4% heildar-
teknanna.
Óréttmæt gagnrýni: Stjórn-
unarkostnaður hlutfalls-
lega lægri nú
Því hefur oft verið haldið
fram, að möguleiki væri til
stórfelldra útgjalda á nýjum
sviðum, með því að draga
saman á öðrum, en að ofan-
sögðu má sjá, að möguleikarn-
ir eru ákaflega takmarkaðir.
Hvað skrifstofubákninu svo
nefnda líður, en þá mun vera
átt við stjórnunar- og tækni-
deildir borgarinnar, þá má sjá
með samanburði, að kostnað-
ur þeirra hefur lækkað veru-
lega í hlutfalli við annan
kostnað á undanförnum árum,
þ.e. úr 5.3% heildarútgjald-
anna 1960 í 4,0% árið 1965.
IJK KOKGIMMI IJR KORGIMMI
Heimsmeistarakeppni i dag
Clay spáð sigri
1 DAG berjast þeir um heims-
meistaratitil í þungavikt hnefa-
leika heimsmeistarinn Cassius
Clay og brezki meistarinn Henry
Cooper. Keppnin fer fram á
leikvelli Arsenal í London.
Leikurinn verður 15 lotur, nema
annar hvor liggi fyrr.
Veðmál standa Clay í hag 11
móti 2 og vilja fáir ræða annan
möguleika en sigur hans. Cooper
reynir að vinna heimsmeistara-
titilinn til Englands en Englend-
ingur hefur ekki haft hann sið-
an 1697.
Clay er ósigraður í 23 leikjum
í röð. Bent er á að Cooper sé
sterkur og vinstri hand-ar högg
hans einhver þau beztu sem vit-
að er til.
Cooper skoraði í gær á dóm-
arann að stöðva ekki leikinn þó
skurður komi á augabrún eða
því um líkt. „Ég vil fá tækifæri
að berjast við Clay til þrautar"
sagði hann. Dómarinn sagðist
myndu fylgja reglum og sínu
hyggjuviti, en í Bretlandi hefur
dómari í hnefaleikum mjög mik-
ið vald.
: Stjórnarmenn Félags matvörukaupmanna. Frá vinstri: Jónas Sigurðsson, kaupmaður, Hverfis-
• götu 71, Hreinn Sumarliðason, kaupmaður, Kjörbúð Laugaráss, Reynir Eyjólfsson, kaupmað-
; ur, Reynisbúð, Torfi Torfason, kaupmaður, Verzl. Þingholt, Björn Jónsson, kaupm., Verzl.
■ Halli Þórarins, og formaður félagsins, Óskar Jóhannesson, kaupmaður, SunnubúðinnL
Sigurliði
Kristjánsson
heiðraður
Á AÐALFUNDI Kaupmanna-
samtaka íslands, sem haldinn
var 28. apríl sl. var samþykkt
einróma að gera Sigurliða
Kristjánsson kaupmann að
heiðursfélaga Kaupmannasam
taka íslands og sæma hann
fyrsta gullmerki samtakanna
fyrir áratuga starf í þágu sam
takanna og stéttarinnar. Síð-
astliðinn mánudag var Sigur-
liða afhent gullmerkið við há-
tíðlega athöfn í skrifstofu sam
takanna að Marargötu 2. Þar
sæmdi Sigurður Magnússon,
formaður samtakanna, Sigur-
liða gullmerkinu og afhenti
honum heiðursskjal. Viðstadd
ir athöfnina voru stjórnir
Kaupmannasamtakanna og Fé
lags matvörukaupmanna.
Sigurður Magnússon t. h. sæmir Sigurliða Kristjánsson gull-
merki Kaupmannasamtaka íslands.
Pétur Frlðrik sýnir
PÉTUR Friðrik, listmálari,
opnar málverkasýningu kl.
3 í dag í Listamannaskálan-
um. Er þetta sjötta opinbera
sýning Péturs og eru á henni
56 olíumálverk, sem listamað
urinn hefur málað s.l. 2—3
ár. Þá verða einnig til sölu
nokkrar vatnslitamyndir.
Myndirnar eru flestar lands
lagsmyndir og blómamyndir,
svo og myndir af húsum í
Hafnarfirði, Grindavík og
Reykjavík.
Leiðrétting
NOKKRAR villur slæddust inn
í minningargrein um Stefán
Jónsson rithöfund í föstudags-
blaðinu. Hér skulu leiðréttar
þær helztu um leið og velvirð-
ingar er beðið á mistökunum.
í greininni stóð:
.... við upphaf dags; á að
vera: við upphaf vinnudags.
.... svo máltengt . . ; á að
vera: svo nátengt.
. . . . og enn síður ævisögur; á
að vera: og enn síður æsisögur.'
.... hugarskot; á að vera:
hugskot
Sýningin verður opin frá
kl. 1—22 daglega, en ef til
vill heldur lengur um helg-
ar. Ráðgert er að sýningunni
ljúki 30. maí n.k.
Hvítasunnu-
keppni í golfi
í dug
HVÍTASUNNUKEPPNI Golx-
klúbbs Reykjavíkur hefst í dag
kl. 1.30. Keppnin er höggaleikur
með forkeppni. Leiknar verða í
dag 18 holur og þeir sem skipa
16 efstu sætin verða áfram í
keppninni.
Svanur leikur
á Austurvelli
Lúðrasveitin Svanur heldui
sína fyrstu útiihljómleika á Aust-
urvelli á sunnudag kl. 3. Verð-
ur leikin létt og fjörug músik
undir stjórn hljómsveitarstjór-
ans, Jóns Sigurðssonar.
Kef la vík
SÍMAR skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Kefiavík á kjördag
eru:
Upplýsingar: 2021.
Bílasími 1478.
Utankjörstaðaatkvæði: 1817.
Kjörskrá: 2442.
Sandgerði
SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins er að Suðurgötu 16,
sími 7475. og vörubílastöðinni i Sandgerði.
Akureyri
SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður á
kjördegi í Sjálfstæðishúsinu.
Almennar upplýsingar: Símar 11578, 21375 og 21376.
Bílar: Símar 12770, 21377 og 21378.
Hverfisstjórar: Sími 21379.