Morgunblaðið - 21.05.1966, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.05.1966, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLADIÐ Laugardagur 21. maí 1966 Rætt við nokkra borgara um kosningarnar á sunnudag Heildarskipulag borgarinnar heíur tekizt vel — HVERT er álit þitt á mál- efnum borgarinnar? spyrjum við Armann Kr. Einarsson. — Ég er kunnugastur þeim málum, sem snerta skóla og uppeldi og má vissulega ræða margt og mikið um þau mál- efni. Ef höfð er í huga hin öra fólks- fjölgun í Reykjavík að undan- förnu, jþá hefur í fáum orðum sagt verið unnið stórvirki í byggingarmálum skólanna. — Stefnt er að því marki, að tvísetja í barnaskólana en ein- setja í gagnfræðaskólana. Tals- vert hefur áunnizt, en samt vant- ar enniþá nokkuð til að ná þessu marki. Vonandi verður þess ekki langt að bíða. — En hvað um kennsluhætti í skólunum? — Ég álít að þar sé gagngerr- ar breytingar þörf. Hraðfara tækniþróun og framfarir á svo að segja öllum sviðum knýr fast á um breytta kennsluhætti. Endurskoða iþarf gamlar náms- bækur og semja nýjar. Einnig verður ekki hjá því komizt að undirbúa útgáfu ýmissa hand- bóka, sem sniðnar eru við kröfu tímans. Þá er mikil nauðsyn á góðu og fjölbreyttu bókasafni við hVern skóla, þar sem nemendur hafa aðstöðu til að vera út af fyrir sig og afla sér þekkingar með leiðsögn kennara. Fræðslu- löggjöfin ÖU er nú í athugun og borgin hefur í sinni þjónustu sér- menntaða menn á sviði uppeldis- mála, sem góðs má af vænta. Einnig mun ráðgert að hefjast bráðlega handa um nýja bygg- ingu fyrir Borgadbókasafn Rvíik- ur. — Hvað hefur þú að segja um skipulagsmál borgarinnar? — Margir útlendingar hafa orð á því hve Reykjavík sé falleg og nýtízkuleg borg. Þó hlýtur undrun okkar sjálfra að vera enn meiri, sem höfum fylgzt með vexti borgarinnar á undanföm- um ámm og áratugum. Það er hreinasta undur og ævintýri hvernig bær lítilla bárujámshúsa hefur á skömmum tíma breytzt í stílhreina og nýtízkulega borg. Það á sér áreiðanlega fáar eða engar hliðstæður. Að vísu má lengi deila um smáatriði í byggingu og skipulagi einstakra húsa eða gatna, en þeg- ar á heildina er litið er ekki með sanngirni hægt að segja annað, en heildarskipulag borgarinar hafi tekizt vel og sé til fyrir- myndar. Það viðurkenna allir, jafnvel þeir sem reyna að finna flestum hlutum eitthvað til for- áttu. — Hvað viltu segja að lokum? — Er ég læt hugann reika til framtíðarinnar þá sé ég háreist- ar, glæstar byggingar meðfram beinum breiðgötum. Víða blasa við græn gróðursvæði með trjá- lundum og blómabreiðum. Þessir almenningsgarðar verða skreytt- ir gosbrunnum, höggmyndum og öðrum listaverkum til yndis ungum sem öldnum. Ævintýrið um skipulagningu og byggingu borgarinnar er haf- ið. Ég vona fastlega að framhald verði á því, til 'hagsældar og ánægju fyrir samiborgarana. Æskumenn í íremstu röð Karl Þórðarson, verkamað- ur, sagði: — Ég hef verið að velta því fyrir mér frá því ég fyrir nokkrum dögum fékk bréf frá Guðmundi J. Guðmunds- syni, starfsmanni okkar Dags brúnarmanna, hvort árgjald okkar til félagsins hefur ver- ið hækkað úr 700 í 1000 kr. til þess að standa undir kostn aði af útsendingu þessa bréfs og samningu þess. Guðmundur skrifar okkur bréf og biður um stuðning við sig og sína flokksmenn í borgarstjórn- arkösningunum. Ég get hinsvegar ekki fallizt á að veita honum stuðning til að fara með mál okkar borgaranna þar og vitna ég þar til þess lýðræðis, sem ríkir á Dagsbrúnarfunum, þegar einhver rís þar upp til að and- mæla stjóm kommúnista á fé- laginu. Þar er öskurlýður hafður á takteinum til að kveða niður hverja þá rödd er hreyfir and- mælum og það einmitt oft og einatt undir fundarstjórn þessa manns. Með hækkun félagsgjalds okk- ar höfum við ekki séð að betur hafi verið unnið að félagsmálum okkar. Nú þessa dagana er skrif- stofa Dag'dbrúnar undirlögð við kosningastarfsemi fyrir kommún ista í borgarstjórn. Þegar ég ætl- aði að leita upplýsinga hjá Guð- mundi J. Guðmiundssyni fyrir fá- um dögum, var mér sagt að hann væri ekki við, en svo /heyrði ég í honum í útvarpinu ræða um borgarmál. Við höfum hann, og fleiri, á launum til að berjast fyrir og vinna að hagsmunamálum okkar verkamanna én ekki til að vinna að kosnigum fyrir G-listann í þeim vinnutima, sem ætlaður er fyrir Dagsrbún. Pólitísk hags- munamál þeirra eru mörgum okkar alls óviðkomandi. Það er einnig algerlega skakkt að kommúnistar vinni bezt fyrir verkamenp. við samningaborðið. Við höfum fyrir okkur glögg dæmi, þar sem Sjálfstæðismenn hafa náð völdum í verkalýðsfé- lögum, að þar er friðsamlega imnið að samningagerð og betur en þar sem kommúnistar eiga hlut að málum. Ég tel að sá borgarstjórnar- meirihluti, sem stjórnað hefir Reykjavík að undanförnu hafi gert það mikið og vel fyrir borgarbúa að hann eigi skilið að fara áfram með stjórn og vinna verðskuldaðan sigur í kosningun- um á sunnudaginn. Ekki hvað sízt ber ég til Sjáifstæðismanna mikið traust vegna þess að æsku- menn eru nú komnir í fremstu röð til starfa í borgarstjórn með hinum eldri. Því skulum við tryggja D-list- anum sigur á sunnudaginn. segir Karl að lokum. Metum framkvæmda- mennina að verðleikum Guðmundur Nikulásson, verkamaður, er vistmaður á Hrafnistu. Hann hefur löng- um verið áhugasamur um stjórnmál og ákveðinn í skoð- unum. Við spyrjum hann hverjar skoðanir hann hafi á kosningunum, sem nú fara í hönd, og hann svarar: — Þegar ég hugsa um kosn- ingarnar. sem fram fara á sunnu- daginn kemur mér fyrst í hug hinir ágætu kjósendafundir, sem borgarstjórinn okkar, Geir Hall- grímsson hélt nú fyrir skömmu. Þar kom berlegast í ijóe, hve dugandi maður hann er og hversu vel honum hefur farnazt stjórn borgarinnar á liðnu kjör- timabili. Á fundinum lýsti hann skilmerkilega, þeim málum, sem hann mun beita sér fyrir á næsta kjörtímabili og svo eitthvað af því sé nefnt má minnast á hinar stórhuga framkvæmir í hita- veitumálum. Ætlunin er að virkja jarðhita á Nesjavöllum og leiða hann til borgarinnar. Þetta er mikið framfaramál, því að ekkert er fegurra, en hrein og reyklaus borg auk iþess sem upp- hitun húsa með jarðhita er ódýrust. Það var athyglisvert að hús- fyllir var á öllum fundum borg- arstjóra og honum bárust fjöidi fyrirspurna, sem hann svaraði greiðlega. Mikils er nú krafizt af borg og ríki, bæði í félagsJegum og persónulegum málum, en allt krefst þetta mikillar fyrirhyggju og góðrar stjómar. Hér áður fyrr þurfti maður að treysta á mátt sinn og megin og taka því sem að höndum bar, en nú hefur ör- yggið a.m.k. meðal okkar aldr- aða fólksis vaxið gífurlega. Það má teljast mikil heppni okkar borgarbúa, að Geir Hall- grímsson skuli gefa kost á sér aftur, því hann er mikill mann- kostamaður og mikilhæfur borg- arstjóri. Framtíð borgarinnar veltur á því, að Sjálfstæðismenn fái aukinn meirihluta við kosning arnar nú. Það mun tryggja hags- muna- og uppbyggingarmál borg arinnar. í 7., 8. og 9. saeti D-list- ans eru ungir og stórhuga menn. Ég hefði að vísu kosið, að fleiri konur hefðu vetið á listanum, en þess má geta að þar skipar hin mikilhæfa kona, frú Auður Auð- uns verðugt sæti. — Hvað viltu taka fram að lokum? — Ég vil hvetja alla, karla og konur til þess að fyl'kja sér um lista Sjálfstæðismanna og vinna ötullega að sigri hans. Kommún- istar þurfa ekki gróft að tala, því að það er ekki vitað, að þeir hafi lagt í neitt þjóðþrifafyrir- tæki og það skulu þeir vita, að það er ekki nóg að tala digur- barkalega. Ég met hins vegar m i k i 1 s framkvæmdamennina, sem bæta lífskjör fólksins og þar eru Sjálfstæðismenn í farar- broddi og hafa ávallt verið, sagði Guðmundur um leið og við kvöddum hann. Vel séð íyrir þörfurr unga fólksins — Borgarstjórnin hefur haldið mjög vel á málum borgarinnar og staðið við öll veigamestu kosningaloforð sín, sagði Stefán Hjaltested, yfirmatreiðslumaður í sam- tali við blaðið. Stefán sagði ennfremur: — Það sem mér finnst mest vert um af öllum þeim stórvirkj- um, sem borgarstjórnin hefur látið framkvæma er bygging hinnar veglegu íþróttahallar í Laugardal, sem tæpast á sinn líka á öllum Norðurlöndum. Hvað viðvíkur heildarskipulag- inu, þá lízt mér mjög vel á það, þótt fyrirkomulagið í Fossvogn- um komi mér dálítið spánskt fyrir sjónir, en þetta er að sjálf- sögðu atriði, sem verkfræðingar hafa vendilega athugað. Listi borgarstjórnarmeirihlut- ans er vel skipaður ungum og áhugasömum mönnum, sem væn- legir eru til afreka. Geir Hall- grímsson hefur líka sýnt það og sannað, að hann er einhver ágæt- asti borgarstjóri, sem við höfum átt að öllum öðrum ólöstuðum. — Húsnæðismálin eru mál mál anna að margra áliti. Þau eru vandamál, sem borgarstjóri hefur glímt við af alkunnri elju og framsýni. Húsnæðismálin hafa alltaf verið og munu alltaf vera vandamál meðan fólksfjölgunin er svo ör, sem raun ber vitni hér í Reykjavík og það er á einskis manns færi að kippa þeim í lag á fáeinum árum. — Mér finnst prýðilega hafa verið séð fyrir þörfum unga fólksins í borginni. Það sem á bjátar núna er skortur á hent- ugu húsnæði fyrir skemmtanir æskufólks og ég er þess fullviss, að borgarstjóri mun finna við- unandi lausn á þessu vandamáli. — Það gætir mikillar spennu í kasningabaráttunni meðal al- mennings og vart er um annað talað en kosningarnar á sunnu- daginn. Ég hef heyrt suma segja, að núna ætli þeir ekki að kjósa og mér er spurn: Hvaða tilgangi þjónar þessi hugsunarháttur? Fólk á einmitt að fjölmenna á kjörstað og fylkja sér undir eink- unarorðiðÁfram. Skrif blaða and stæðinganna eru alltaf sjálfum sér lík og ég fæ ekki annað séð en minnihlutinn hafi ekkert ann- að að gera en að níða það niður, sem vel hefur verið gert. Það er einlæg von mín, að borgarstjórnin vinni mikinn sig- ur í komandi kosningum og hún megi reynast jafn styrk og far- sæl og verið hefur. Verum ekki of bjartsýn — Mér finnst að yfirleitt líti fólk björtum augum á kosningarnar, sem nú fara í hönd, sagði Halldóra Valde- marsdóttir, formaður Félags starfsfólks í veitingahúsum, er blaðið átti við hana stutt rabb um kosningarnar. — Ég óttast það mest að borg- arar Reykjavíkur séu um of bjartsýnir. Persónulega finnst mér gott að við höldum óbreyttu fylgi og borgarfulltrúar meiri- hlutans verði hinir sömu og var síðasta kjörtímabil. Það sem veldur þessu kann að vera tímatoundin óánægja 'með ýmislegt, sem landsstjórnin hefir orðið að gera og ekki verður tal- ið vinsælt. Fólk ruglar of mikið saman landspólitikinni og mál- efnum höfuðborgarinnar. Hins v'egar ættu menn að vita, að hér er um alls óskyldar kosningar að ræða. Og iþótt stjórn landsins þurfi að framkvæma mál, sem óvinsæl eru, kemur það í engu borgarstjórninni við. Dýrtíð og verðhækkanir eru mál sem borg- arstjórn getur ekki ráðið við. Ég vil sérstaklega taka fram að mér finnst borgarstjórnin, eða réttara sagt meiri hluti hennar, hafa unnið mjög vel síðasta kjör- tímabil. Hitt veit ég að margt er vanþakkáð, þótt vel sé gert, og öllum er ekki að fullu Ijóst að margt er nauðsynlegt að fram- kvæma, sem fylgir mikill kostn- aður. Gatnagerð og hitaveitu- framkvæmdir hafa verið áber- andi miklar í tíð síðustu borgar- stjórnar og við öll loforð hefir verið staðið í sambandi við þær og raunar framar öilum vonum. Ég vil að síðustu, segir Hall- dóra, óska Sjálfstæðismönnum alls góðs í kosningunum á sunnu- daginn og ég vona að þeir bæti við sig fulltrúum, þótt ég álíti hinsvegar því miður að það verði ekki að marki. Við skulum því ekki vera of bjartsýn. Hið góða skaðar ekki. S j álf stæðisf lokkurinn hefur vaxið með borginni — Ég hefi frá upphafi kos- ið D-Iistann í borgarstjórn vegna þess, að á vegum hans hafa verið unnin stórvirki f gatnagerð og hitaveitufram- kvæmdum, sagði Valur Lár- usson, vörubílstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.