Morgunblaðið - 08.06.1966, Síða 4

Morgunblaðið - 08.06.1966, Síða 4
4 MORGUNBLADID Miðvikudagur 8. júní 1966 BÍLALEIGAN FERÐ Daggjald kr. 400. Kr. 3,50 per km. SfAff 34406 SENDUM LITLA bílaleigan Ingólísstraeti II. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 m^—BiLALEiGAN rALUR ám RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 SÍMI3-1Í-BO m/UFW/fí Volkswagen 1965 og ’66. BIFREIBALEIGAK VEGFERÐ Grettisgötu 10. Sími 14113. IVIAOIMUSAR skipholti21 símar21190 effirlokun simi 40381 1 Fjölvirkar skurðgrofur I ö I* /Vv v % Ff. I R 'A * K í, ÁVALT N N TIL REIÐU. Sími: 4045G lagtækur maður óskast á býli 15 km. frá Reykjavík. Verkefni: Mála útihús; þétta glugga og fleira þess háttar. Upplýsingar x síma 38397. B O S C H ÞOKULUKTIR BRÆÐURNIR ORMSSON Lágmúla 9. — Simi 38820. Ónóg merking Strætisvagnafarþegi skrif- ar: „Kæri Velvakandi! Strætisvagnarnir eru ekki nógu vel merktir. Þeir eru að vísu númeraðir á hliðunum, en þessi númer eru það lítil, að þau sjást ekki nema maður standi alveg vi'ð vagninn. Af lengra færi sér fólk ekki hvort það er „rétti“ vagninn sem er að koma — eða það hefur misst af. Þessi númer þurfa að vera stærri, þau þurfa að vera upp- lýst og standa á þaki vagnanna, fjögur númer, sem sjást úr öll- um áttum. Það er eitt og annað, sem forráðamenn strætisvagnanna gætu fært í betra horf til bættr ar þjónustu, en ég er þess full- viss, að þeir ferðast aldrei með strætó og vita því ekki hvað lagfæra þarf. Þessir ágætu menn ættu að hafa það fyrir reglu að fara ferð og ferð með farþegunum — og þeir þyrftu líka a'ð koma upp einhverjum póstkassa í aðalstöðvunum við Kalkofnsveg til þess að taka á móti orðsendingum og ábend- ingum frá farþegum. — Strætisvagnafarþegi". ýk' Smjörið Húsmóðir skrifar: „Velvakandi góður! Nú eru þeir að hækka mjólkurvörurnar einu sinni enn. Við erum fyrir löngu orð- in þreytt á þessum víxlhækk- unum á vinnulaunum og vöru- verði. En það eru svo margir spekingar, sem þykjast vita hvernig lækna eigi þetta allt (þótt öll þeirra læknisráð virð- ist ekki duga), að ég ætla ekki að hætta á að blanda mér í mál- ið, fávis konan. Hitt er rétt að benda á, að smjörið hækkar ekki — og fæst nú við sama „lága verð- inu“. Við urðum mjög glaðar, þegar smjörið lækkaði. En ég vona samt, að húsmæður fari ekki að nota óhóflega mikið af smjörinu. Þá lækka þær smjör- fjallið svonefnda það mikið, að bændur telja óhætt að hækka smjörverði’ð á ný. — Húsmóðir". Moldarflag Vesturbæingur skrifar: „Kæri Velvakandi! Hvenær ætla þeir að ganga endanlega frá Hringbrautinni vestanverðri? Þar á ég við moldarflagið meðfram sam- býlishúsunum sunnan _ við Hrmgbrautina — á Melunum. Það langt er liðið síðan hús þessi voru byggð, að tími ætti að vera kominn til þess að full- gera götuna þarna. Svæðið milli akbrautar og húsa er þarna nógu breitt til þess að hægt væri a'ð koma fyrir bíla- stæði ásamt gangstétt. Athugið þetta. — Vesturbæingur". ★ Lögreglan Lesandi hefur beðið um að eftirfarandi yrði komið á fram- færi: „Hvernig stendur á að lög- reglan lætur það viðgangast, að strætisyagnar og aðrar stórar bifreiðir aki stöðugt á miðjum akbrautum — t.d. á Skúlagötu? Margoft kemur það fyrir, a’ð stór flutningatæki aka þarna hlið við hlið á sama hraða og hefta allan framúrakstur. Oft aka þessi tæki það hægt (þó ekki strætisvagnar, því þeir eru alltaf á ólöglegum hraða), að þeim á ekki að leyfast að „stífla" götuna. Þessir menn verða að aka á vinstri akrein eins og aðrir. Lögreglan ætti að líta eftir þessu og sýna meiri árvekni við umferðargæzluna yfirleitt". Símtöl Borgari skrifar: „Kæri Velvakandi! Ég fór í söluturn og þurfti að fá lánaðan síma til innan- bæjarsamtals. Símtalið kostáði mig tvær krónur, en kostar raunverulega eina krónu. Þetta er okur. — Borgari". Fékk ekki verðlaun Húsmóðir við Kleppsveg skrifar: „Ég á 11 ára gamlan son, sem um daginn fór með reið- hjól sitt í skoðun þá, sem er nú í öllum barnaskólum borgarinn- ar, á vegum lögreglu og Um- ferðarnefndar Reykjavíkur. Drengurinn var búinn að kosta talsverðu til að koma hjólinu í gott lag og bjóst við að fá viðurkenningu þá, sem börnun*” var lofað, sem koma með hjól sín í lagi. Meðal annars keypti hann nýja flautu á það í reið- hjólaverzlun. Þegar drengurinn kom frá því a'ð láta skoða hjólið var hann allt annað en ánægður. Orsökin til þess að hann fékk ekki viðurkenningu var ein- ungis sú, að hann hafði flautu en ekki bjöllu á hjólinu. Nú spyr ég: Hver er ástæðan fyrir því að flautur þessar sem seld- ar eru í reiðhjólaverzlunum, eru ekki leyfilegar á reiðhjól- um og því er þá verið að selja börnum þær á hjól sín.“ — Undr andi móðir við Kleppsveg". Kosygin eða Mao? Útvarpshlustandi skrifar: „Kæri Velvakandi! Fyrir nokkru las ég í pistl- inum þínum bréf frá einhverj- um, sem var að koma frá út- löndum. Sagði hann, að frétta- stofa útvarpsins gæfi ekki rétta mynd af því, sem væri að ger- ast úti í heimi, og tilfærði hann sérstaklega stríðið í Víetnam. Sjálfum finnst mér áberandi hvernig fréttamennirnir velta sér upp úr þessu stríði og oft virðist ekkert annað vera að gerast í heiminum. Dagblöðin leiða þó annað í ljós við og við. Á hvítasunnudag sagði svo fréttastofan, að nunna hefði brennt sig (að mig minnir) „vegna ofbeldisstefnu Ky- stjórnarinnar". Ekki er fréttastofan vön að kveða upp eigin dóm í ýmsum öðrum málum. Eða sagði frétta- stofan, að rithöf. Daniel og Sinjavski hefðu lent í þrælabúð um „vegna ofbeldisstefnu Sovét stjórnarinnar"? Nei, ætli það. Nú er ég ekki að lýsa yfir stuðningi mínum við Ky- stjórnina. Ég hvorki mæli gegn henni né með. Stjórnirnar þarna syðra virðast margar hverjar hafa brugðizt og ekki ráðið við verkefnin og ástandið er mjög flókið. En úr því að fréttastofan hefur tekið á- kve'ðna afstöðu til Ky-stjórnar- innar, má ekki biðja hana að gera grein fyrir afstöðu sinni til Peking annars vegar og Moskvu hins vegar? Hvorum arminum fylgir hún? — Hlustandi'*. ★ Hjálp Sendill á Morgunblaðinu hefur beðið fyrir eftirfarandi: „Um þessar mundir er verið að sýna mynd, sem einkum er ætluð yngri kynslóðinni, enda þótt fólk, sem telur sig í full- orðinna tölu, bíði í upp undir klukkutima, til að fá miða á þessa skemmtilegu gamanmynd, sem leikin er eðallega af hinum heimsfrægu The Beatles. Ekki er ætlunin að rekja efnið, enda myndi það eýðileggja ánægj- una fyrir bíógestum. Myndin er ágæt, enda láta bítlarnir það ekki undir höfuð leggjast að leika lög í þessari mynd sinni frekar en þeirri fyrri, sem er mörgum minnisstæð. Það er myndin „A Hard Days Night“. Titillag myndar þessarar heitir það sama og myndin sjálf: „Help“. Sjö lög eru leikin í myndinni, og eru þau öll eftir þá félaga John Lennon og Paul McCartney. Hafa þeir félagar samið mörg lög, og eru þau öll heimskunn. Ég ætla að hvetja menn til þess að sjá þessa mynd, þótt þeir þurfi að bíða i klukkutíma, eins og fólk gerði í gær, úti í rigningunni. Ég veit að fólk sem á eftir að fara á þessa mynd á eftir að skemmta sér konunglega við að sjá og heyra þessa fjóra, ungu, síð- hæi'ðu pilta frá Liverpool. Sem betur fer var enginn „kór“ eina og í fyrri mynd þeirra félaga. Ég ætla svo ekki að hafa þetta spjall lengra að sinni. — Hjörtur Sandholt. Fulltrúi Þekkt heildsölufyrirtæki óskar að ráða duglegan og reglusaman mann til fuUtrúastarfa nú þegar. — Viðkomandi þyrfti jafnframt að geta annast bréfa- skriftir á dönsku og ensku. Upplýsingar á skrifstofu félagsins, Tjarnargötu 14. Félag íslenzkra stórkaupmanna. IVIercedes Benz Lítið ekinn og vel með farin Mercedes Benz bifreið 220 Sb, árg. 1962 til sölu, nú þegar. Úpplýsingar ígefur Oddgeir Bái ðarson c/o . Ræsir , h.f. — Sími 19-550. Samband Iðnskola á íslandi óskar að ráða starfsmann, karl eða konu, til að veita skólavörubúð iðnskólanna og Iðnskólaút- gáfunni forstöðu. Þeir, sem hefðu áhuga á starfinu sendi nöfn sín og upplýsingar um menntun og fyrri störf, til skóla- stjóra Iðnskólans í Reykjavík fyrir 15. júní nk. Lausar stöður 2 stöður aðstoðarmanna á Veðurstofunni á Kefla- víkurflugvelli eru lausar til umsóknar. — Laun samkvæmt launasamningum starfsmanna ríkisins. Umsóknir, er greina alduf, menntun og fyrri störf sendist sltrifstofu Veðurstofunnar, Sjómannaskól- anum fyrir 20. júní nk. Veðurstofa íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.