Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 2
MORGU NBLAÐIÐ Laugardagur 16. júlí 1966 Hátíðahöldin hófust á ísafirði í gær H gærnior^un var dtimbungsveðtir en birfi til er Eeið á daginn, og í gærkvöldi var sólskin og blaðviðri ísafirði, 15. júlí. I’YRSTl þáttur hátíðahaldanna í tilefni af aldarafmæli ísaf jarðar- lcaupstaðar var opnun sögusýn- ingar í húsakynnum byggða- safns Vestfjarða. Sýningin var opnuð fyrir boðsgesti kl. 18 í dag og fyrir almenning kl. 20 í kvöld og er ætlunin að sýningin verði opin fram eftir sumri. Fjölmenni var við opnun sýn- ingarinnar og bauð Jón Páll Halldórsson, forstjóri gestina velkomna. Skýrði bann frá því, að Sögufélag ísfirðinga hefði að beiðni bæjarstjórnar tekið að sér að koma upp þessari sýningu. Hefði stjórn félagsins falið þeim Jóh. Gunnari Ólafssyni, bæjar- fógeta og Jóni Páli Halldórs- syni að sjá um að ráða skipulagi og efnisvali sýningarinnar. Ingvi Hrafn Magnússon, auglýsinga- teiknari úr Kópavogi hafði yfir- umsjón með uppsetningu sýn- ingarinnar. Jón Páll Halldórsson gat þess, að verulegur hluti sýn- ingargripa væri úr Byggðasafni Vestfjarða. Kvað hann tilgang sýningarinnar að gefa hugmynd um upphaf, vöxt og viðgang bæjarfélagsins í þau eitt hundrað ár, sem liðin eru frá því, að bæjarstjórn var kosin. Jón Páll lýsti síðan sýningar- deildum og rakti í stuttu máli þróunarsögu bæjarins eins og hún kæmi fram á sýningunni. Bauð hann síðan gestum að skoða sýninguna. ítarleg frásögn af sögusýning- unni var hér í blaðinu í gær og Sýningargestir við opnun sýnin garinnar. Ljósm. Mbl. Ámi Matthiasson. vísast til hennar. Sérstaka at- hygli sýningargesta vakti líkan það, sem Jón Hermannsson, loft- skeytamaður hefur gert af ísa- fjarðarkaupstað og Eyrinni árið 1866. Sýningargestum kom saman um að sýningin væri mjög fróð- leg og komið upp af mikilli smekkvísi. Margir gamlir ís- firðingar voru meðal sýningar- gesta og var gaman að heyra þá rabba saman um liðna tíma, sem rifjuðust upp við skoðun gam- alla mynda á sýningunni. Norræna félagið á ísafirði efn- ir til skemmtifundar í kvöld, og eru þangað sérstaklega boðnir Nauölending af völdum Ijðna Brússel 15. jú'M — NTB. FLUGVÉL, sem var á leið til Englands varð að nauðlenda í Briissel í dag, og urðu flug- stjórinn og aðstoðarflugmað- urinn að brjóta glugga í flug- stjórnarklefanum og skríða þar út — eltir af þnemur hungruðum ljónum. Flug- mennirnir komust undan, en áður höfðu þeir upplifað nokkrar mínútur, sem þeim munu ugglaust seint úr minni líða, er aðstoðarflugmaðurinn hélt ljónunum í fjarlægð með lítilli öxi á meðan flugstjórinn nauðlenti vélinni. Vélín var ekki fyrr lent en flugmennirnir brutu gkiggann og stukku niður á fliugbraut- ina, og höfðu þa urrandi ljón- in fullan yfirráðarétt í tómri flugvélinni. Flugvélin hafði verið leigð til þess að flytja Ijónin frá Þýzkalandi til Bretlands, en eigandi þeirra er markgreif- inn af Bath, sem rekur dýra- garð til þess að laða ferða- menn að herragarði sínum í Longleat í Englandi. En á leiðinni opnaðist búr ljón- anna, og þau „litu framí“ til flugmananna. Sluppu úr búri sínu, „litu framí“ til flugmannanna Flugstjórinn, Paul Vihrman, segir sivo frá: „Ljónalbúrið stóð fyrir aftam eldsneytisgeymana. E n g i n n milliveggur var á milli búrs- ins og stjórnfeleifans.“ „Sfeyndilega 'varð ég var við eittíhvert hnus fyrir aftan mig, og er ég leit við, sá ég Ijónsunga standa rétt fyrir aftan mig. Þyínæst kom ég auga á bæði fullorðnu ljónin, sem voru á leiðinni framí til okkar. — Þetta var andartafe, sem tók á iaugarnar“. Setjið þau í bensíngeyminn Flugmennirnir köiluðu í oif- boði í flugturninn í Brússel og báðu um heimild til nauð- lendingar. En þeir áttu í nofekrum erfiðleikum með að sannfæra flugturninn um, að hér væri ekki um að ræða spaug. „Við erum með þrjú Ijón í stjórnfcleifanum", sagði flug- maðurinn. „Setjið þau í bensíngeym- inn“, svaraði flugtuminn! Er flugstjórinn beindi netfi flugvélarinnar niður til lernd- ingar, tóku fullorðnu Ijónin að gerast óróleg. Aðstoðar- flugmaðurinn reif þá öxi af veggnum og hjó til þeirra. Á þennan hátt 'hélt hann ljón- unum í hæifilegri fjarlægð þar til flugvélin var komin niður á brautina, og hafði verið um- kringd af lögreglumönnum með vél'byssur. Ljónatemjarar og gæzlu- menn frá dýragarðinum í Antwerpen aðstoðuðu við að handsama ljónin og koma þeim í búrið. Á laugardag halda þau áfram ferðinni til Bretlánds. Markgreifinn af Batíh, eig- andi ljónanna, heldur því hinsvegar fram, að dýrin séu með öllu skaðlaus. „Þetta eru smáljón" sagði hann í dag. Kannske er flugmönnunum einihver huggun í því! 2 skemmtiferða- skip hér í gœr 3 væntanleg í næstu viku fVÖ skemmtiferðaskip sóluðu ig í góða veðrinu á ytri höfninni lér í Reykjavík í gær. Voru það Andes frá Englandi og Carónía frá New York. Voru skipin sam- tals með rúmlega 1000 farþega, Hvert skemmtiferðaskipið af öðru heimsækir nú Reykjavík. 1 I gærmorgun voru tvö stór skip á ytri-höfninni, Caronia og Andes, og tók Ijósmyndari Mbl. Ól. K. M. þessa mynd af þeim. Andes fór síðdegis í gær, en Caronia í gæskvöldi, böðuð geisl- um kvöldsólarinnar. og mun áhöfnin á skipunum vera annar eins fjöldi. í gær var einn- ig skemmtiferðaskip á Akureyri, Nieuw Amsterdam, sem var hér í Reykjavík á dögunum með rúm lega 800 farþega. I dag kemur svo Regina Maris hingað, og hafa þá samtals komið fimm skemmtiferðaskip í þessari viku. Þrjú skip eru svo væntanleg hingað í næstu viku, og eru þau öll frá Þýzkalandi. Það eru Hanseatic, Bremen og Evropa, og er hvert þeirra með um 800 far- þega. Hin tvö síðastnefndu munu fara til Akureyrar. Geir Zöega tjáði Mbl. í gær, að þegar Nieuw Amsterdam var hér á ferðinni sl. miðvikudag, hefði að vanda verið farið með farþeg- ana á vinsælustu ferðamanna- staðina hér á Súðurlandi, eins og Geysi og Gullf03S. Þá hefði þjóna verkfallið enn staðið yfir, og hefði hann því gripið til þess ráðs, að fá lánaða 22 þjóna af skipinu sjálfu, til þess að bera fram veitingar til fólksins við Gullfoss, Geysi, í Aratungu og á LaugarvatnL Jón Hermannsson, sá er smíðaði líkanið af fsaf jarðarkaupstað eins og hann leit út fyrir hundr- að árum, árið 1866. fulltrúarnir frá vinabæjum ísafjarðar á Norðurlöndum. Hróaskeldu, Joensuu, Linköping og Tönsberg. Enn streymir mikill fjöldi ferðamanna til bæjarins með flugvélum og bifreiðum og er erfitt að kasta tölu á allan þann fjölda. í dag var hér hægviðrL dumb- ungsveður fram eftir degL en síðdegis var glaða sólskin og hið fegursta veður. Verið er að Ijúka undirbún- ingi að hátíðahöldunum. í dag voru settar veifur í íslenzku fánalitunum á ljósastaura við aðalgötur bæjarins og hátíða- höldin hefjast í fyrramálið með því, að fánar verða dregnir að hún kl. 08.00 árdegis, og vísast að öðru leyti til dagskrár, sem birtist í föstudagsblaðinu. Hér á eftir fer dagskrá sunnu- dagsins 17. júlí: Kl. 10.30 Knattspyrnukeppni III fl. Hörður — Vestri. ÓTISKEMMTUN á hátíðasvæð- inu við Túngötu. Kl. 14 Lúðrasveit ísajarðar leik- ur. Einsöngur. Óperusöngvar- arnir Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson. Una- irleik annast Ragnar H. Ragnar. Brynjólfur Jóhannesson flytur skemmtiþátt. Lúðrasveit skólanna leik- ur. Tvísöngur: Óperusöngvar- arnir Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson. Und- leikur: Ragnar H. Ragnar. Upplestur: Guðmundur G. Hagalín, rithöfundur. Vikivakasýning: — Kven- fél. Hlíf. Stjórnandi Ást- hildur Hermannsdóttir. Kl. 17 Á íþróttasvæðinu á Torfu nesi: Lúðrasveit fsafjarðar leik ur. Knattspyrnukeppni milli ísfirðinga frá Rvík. og heimamanna, 40 ára og eldri. Litli leikklúbburinn skemtir. Lifandi manntafl — Tafl- félag ísafjarðar. Hópsýning 80 unglinga. Stjórnendur: Ásthildur Hermannsdóttir og Karl Aspelund. Kl. 22 Dansleikir: í Alþýðuhúsinu: BG og Árni. f Templaralhúsinu: V.V. og Barði. —- H.T. Jón Páll Halldórsson opnar sögu sýninguna í húsakynnuui byggðasafnsins í gær. GÓÐVIÐRl var um allt land í austur á Kirkjubæjarklausti gær. Víða var skýjað fyrir há- var 18 stiga hiti kl. 15. degi, en glaðnaði síðan til og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.