Morgunblaðið - 17.07.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.1966, Blaðsíða 2
2 MORCU N BLAÐIÐ Sunnudagur 17. júlí 1966 Iðnsýningin verð ur opnuð 30. ág. Byrjað verður að koma sýningar- munum fyrir um mánaðamótin Tveir gæðingar á La ndsmóti hestaiuanna. Roði hlaut heiðursverðlaun stóðhesta á landsmótinu AKVEÐIÐ hefur verið, að Iðn- sýningin 1966 verði opnuð ]þriðjudaginn 30. ágúst næst- lcomandi í Sýningar- og íþrótta- Siöllinni í Laugardal og ráðgert «r að henni ljúki um miðjan septembermánuð. Um 140 iðn- fyrirtæki hafa tilkynnt þátttöku í sýningunni. Um miðjan ágúst -verður byrjað að koma sýningar- munurn fyrír. Sýningardeildir verða 12 tals- ins, en deildimar eru mismun- andi stórar að flatarmáli og hvað fjölda sýnenda snertir. Sú stærsta verður tré- og húsgagna- iðnaðardeildin, en í henni munu um 30 fyrirtæiki sýna framJeiðsliu sýna, 22 fyrirtæki sýna í fataiðn- aðardeild og sú þriðja stærsta A 4. hundrað Oddlellowur i heimsókn hér Á FJÓRÐA hundrað Oddfellow ar frá Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu komu til Reykjavíkur á þýzku skipi, „Stella maris“ á laugardagsmorgun. Þeir eru á lcynnisferð til ýmissa landa, þar sem þeir sitja fundi í Oddfellowa stúkum. Hingað koma þeir frá Norðurlöndum, en héðan fara þeir um Færeyjar og Skotland heimleiðis. í gær og í dag ferðast þeir um Reykjavík og út um land. í gær kvöldi áttu þeir að sitja fund og mannfagnað Oddfellowastúkn- anna í Reykjavík, en í kvöild bjóða þeir islenzkum stúkubræðr um um borð í farkost sinn, Þeir halda héðan aðfaranótt mánu- dags. verður málmiðnaðardeiMin með 19 sýnendur. Af einstökum fyrir- tækjum hefur Sláturfélag Suður- lands stærsta sýningarrýmið, þar sem m. a. • verða sýndar niður- suðuvörur, skinnavörur og pylsu- gerðarvörur. Sýningarrými inn- anihúss verður alls um 2.500 fer- metrar að flatarmáli. 1500 aðilum kynnt kaupstefnan Iðnsýningin 1966 verðuir jafn- framt kaupstefna, sú fyrsta sinn- ar tegundar hér á landi. Tíminn milli 9—12 árdegis er sérstaklega ætlaður kaupsýslumönnum, þar sem þeim gefst tækifæri til að gera viðskipti sín við fraimleið- endur. Sýningin verður svo opin ölium almenningi frá kl. 14—23 síðdegis, en á þeim tíma verður kaupstefnan einndg opin. Um 650 verzlunum og kaup- félögum úti á landsbyggðinni hafa verið sendar upplýsingar -um kaupstefnuma og á næstunni verður þessum aðiljum, svo og kaupsýslumönnum í Reykjavík, kynnt hún sérstaklega. Ætlunin er að þessi kynning nái til sem flestra kaupsýslumanna og verð- ur haft samlband við um 1500 að- ila í þessu skyni. Veitingasalur fyrir 250—300 manns Á Iðnsýningunni verður opinn veitingasalur, sem mun taka 250—300 manns í sæti. Þar verða á boðstólum smurt brauð, pyls- ur, kaffi og kökur o. fl. Annars staðar í sýninganhúsinu verður einnig unnt að fá gosdrykki, sæl- gæti, tóbak o. fl. Iðnsýningamefnd hefur haft skrifstafu sína í húsnæði Lands- samlbands iðnaðarmanna, Iðnað- arbankah úsinu, en næstu da-ga verður skrifstofan flutt í skrif- stofubygginguna við hlið Sýn- ingar- og Iþróttahallarinnar í Laugardal. Þar verður fram- kvæmdarstjórn Iðnsýningarinnar til húsa. Hólum Hjaltadal, 16. júlL Frá blaðakonu MbL Elínu Pálmadóttur. LANDSMÓT hestamanna á Hól- um hélt áfram í morgun. Á ann- að þúsund manns er á staðnum, og er búizt við miklu fjölmenni á bílum eftir hádegi. Veður er milt og gott en svolítið skýjað. í morgun var sýning stóð- hesta í dómhring, og lýsti Þor- kell Bjarnason dómum. Fyrstu heiðursverðlaun hlaut Roði frá Ytra-Skörðugili í Skagafirði. Eigandi Hrossaræktarsamband Vesturlands. í dómum segir: Afkvæmi Roða eru fríð, prúð, og ennfremur fínbyggð. Þau eru mjúkvaxin, lundgóð og þæg. í þeim býr allur gangur, þó mætti brokk vera meira rikjandi og skeið fjarlægara á hægri ferð. Prúðleiki og frjólsleg framkoma ásamt fleiri kostum eru góður samnefndari fyrir systkinahóp- inn og sýna hvað bezt kynfestu föðurins. Með Roða voru sýnd fjögur afkvæmi. Fyrstu verðlaun hlutu: Hörð- ur frá Kolkuósi í Skagafirði. Eigandi Jón Páisson og Páll Sig- urðsson, og Þytur frá Akureyri. Eigandi Haraldur Jónsson. Núm- er 1 af stóðhestum 6 vetra og Hafnarfjarðarbær hefur ákveð- ið að fjölda í unglingavinnu á sínum vegum í sumar og verða ráðnir unglingar á aldrinum 12—15 ára til þess að vinna við hreinsun bæjarins, fegrun o.fl. Jafnframt verða ráðnir flokks- stjórar til þess að hafa eftirlit eldri var Blési frá Skáney. Eig- andi Marino Jakobsson. Númer 1 af stóðhestum 5 vetra var Blakkur trá Kýrholti í Skaga- firði. Númer 1 af stóðhestum 4 vetra var Baldur frá Vatnsleysu. Sýndir voru 3 stóðhestar tveggja og þriggja vetra. Númer 1 var Bliki frá Vatnsleysu sem er svo- lítið taminn og fékk eigandi hans H. J. Hólmjárn mikið hrós fyrir ræktunarstöf sín, en hann sýndi marga unga stóðhesta. Klukkan 2 voru hryssur sýnd- ar í dómhring. Fyrstu heiðurs- verðlaun fékk Gletta frá Laug- arnesi. Er hún sýnd með tveim- ur afkvæmum. Eigandi Sigurður Ólafsson. Fvrstu verðlaun hlaut Blésa frá Sauðárkróki og Skjóna frá Grund. Núrr.er 1 af hryssum 6 vetra og eldri var Bára frá Akurejmi. Númer 1 af hryssum 4 — 5 vetra var Perla frá Svert- ingsstöðum. Klukkan 18 áttl að vera nagla- boðhlaup milli Norðlendinga og Sunnlendinga, en það hafði ekki farið fram þegar blaðið fór í prentun. Á sunnudagiifn verður m. a. helgistund í Hóladómkirkju. Hestamenn ríða fylktu liði á sýn ingasvæðið, landbúnaðarráðherra með vinnu unglinganna. Ákveðið hefur verið að hafa þann hátt á kaupgreiðslu að þriðjungur kaupsins verður greiddur vikulega en eftirstöðv- ar, þegar skólar hefjast í haust. Frestur til að skila umsóknum er til 23. júli. flytur ræðu og formaður Lands- sambands hestamanna flytur ávarp. Þá verður góðhestasýn- ing og úrslit kappreiða. Dregið verður í happdrætti L. H. og hefur happdrættishesturinn ver ið sýndur. Á laugardags og sunnudagskvöld verða dansleik- ir í samkomuhúsum í Skaga- firði og Húnavatnssýslu. Athugasemd fróSVG „Vegna yfirlýsingar Jóns Maríassonar, formanns Félags framreiðslumanna, í Alþýðublað inu og Þjóðviljanum í gær ósk- ar Samband veitinga- og gisti- fbúsaeigenda (SVG) að taka fram að formaðurinn fer ekki með rétt mál, þegar hann segir fram- reiðslumenn hafa boðið upp á gerðardóm, að því er varðar deiluna um stimpilkassann. Slíkt tilboð hefur aldrei komið fram. Hins vegar er rétt, að fram komi, að framreiðslumenn neit- uðu harðlega tilmælum SVG, sem sáttasemjari flutti á milli á seinasta sáttafundi, þess efnis að frestd til 1. okt. deilunni um stimpilkassana og önnur atriði, er snerti fyrirkomulag á vinnu- stað, en reyna hins vegar að semja um aðra þsetti í kröfum framreiðslumanna." (Frá SVG). Hvatarferð LAGT verður af stað í ferða- lag Sjálfstæðiskvennafélagsiiis Hvatar þriðjudaginn 19. júlí kl. átta fyrir hádegi frá Sjálfstæðis" húsinu við Austurvöll. Þessi mynd er úr mælingaleið angri þyrlunnar á vegum sjón- varpsins. Þyrlan tekur eldsneyti í Stykkishólmi og krakkarmr þyrpast að umhverfis vélina. (Ljósm. Eirikur Árnason) flnhin uaglingavinna í Hoinoríirði — Þriðjungur kaups greiddur vikulega — Eftirstöðvar, þegar skólar hetjast Þyrla að mœlingum fyrir sjónvarpið SIÐASTLIÐINN þriðjudag var þyrla Landhelgisgæzlunnar að mælingum fyrir íslenzka sjón- varpið á Snæfellsnesi. Var ver- ið að mæla útbreiðslu frá Reykjavík til Stykkishólms og að finna út hentugasta stað sjón varpsstöðvar fyrir Stykkishólm og umhverfi. Sæmundur Óskarsson, yfir- verkfræðingur hjá radíótækni- deíld landssímans tjáði blaðinu, að hann héfði farið vestur ásamt Eiríki Árnasyni, símvirkja til þess að gera þessar mælingar. Hann kvað þyrluna mjög heppi- lega til þessa, þar eð unnt væri að mæla miklu stærra svæði en ella, auk þess, sem ekki þyrfti að reisa möstur í hvert sinn, sem mælingar væru gerðar. Mælingar þessar báru tilætl- aðan árangur, þar eð heppileg- ur staður fannst, við Tíðaás, en eftir er að finna stað, sem hent- ar fyrir útbreiðslu til Vestfjarða og er því ekki víst, hvórt endan | legur staður sé fundinn, því að margír koma til greina og þá sérstaklega ef um fjallastöð verð ur að ræða. Það munu mælingar sýna, sem gerðar verða næsta sumar. Það er landssíminn, sem sér um útsendingar fyrir sjónvarp- ið, sendana og útbreiðsluna. Við þessar mælingar, var sett sér- stakt loftnet utan á þyrluna. Ekki kvað Sæmundur frekari mælingar verða gerðar með þyrlunni í sumar, en mælingar myndu hins vegar halda áfram til hausts. Samkvæmt áætlun munu um 60 sjónvarpssendar verða staðsettir úti á landi, en sendirinn við Stykkishólm mun verða 5 kw. í GÆRMORGUN var stillt stöku stað. Sólarlítið var á og gott veður, en vestanlands NorðurlandL en glampandi var vindur að snúast í suðrið sóiskin í Skaftafellssýslum og og jafnvel farið að súlda á á Austfjörðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.