Morgunblaðið - 17.07.1966, Síða 16
MORCU NBLAÐID
Sunnudagur 17 júlí 1966
16
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti S. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 5.00 eintakið.
FYRSTA
ndirritun samninga um
kaup á fyrstu þotu ís-
lendinga er mikill viðburður
í flugmálasögu og samgöngu-
málum þjóðarinnar. Þar með
hefur þotuöldin innreið sína
á íslandi og má nú búast við
jafnvel enn örari framförum
í flugmálum okkar og sam-
göngumálum en hingað til og
hafa þó breytingamar fram
að þessu verið hraðar.
Flugfélag íslands hefur nú
á stuttum tíma ráðizt í hvert
stórvirkið á fætur öðru til
endurnýjunar flugvélakosti
sínum, fyrst til innanlands-
flugs og nú til millilanda-
flugs. Endurnýjun flugvéla til
innanlandsflugs hefur þegar
borið ríkulegan ávöxt fyrir
félagið, bæði í bættri þjón-
ustu við almenning og hag-
kvæmari rekstursafkomu. —
Farþegaþoturnar, sem hafa
verið að ryðja sér til rúms á
undanförnum árum, hafa
reynzt svo hagkvæmar í
rekstri að rekstursafkoma
flugfélaganna, stórra og
smárra, hefur batnað til mik-
illa muna. Með kaupum á
hinni nýju þotu hefur Flugfé-
lag íslands lagt grundvöll að
bættum og hagkvæmari
rekstri félagsins á næstu ár-
um, jafnframt því sem þjón-
usta þess við landsmenn mun
stórbatna.
Þota Flugfélagsins mun
kosta með varahlutum 300
milljónir króna og er það
eins og Birgir Kjaran, stjórn-
arformaður Flugfélagsins,
sagði, er samningar höfðu
verið undirritaðir, „ein mesta
fjárfesting, sem einkafram-
takið á íslandi hefur lagt í“.
Til þess að geta ráðizt í þessa
miklu fjárfestingu hefur
Flugfélagið ákveðið að stór-
auka hlutafé sitt eða um 40
milljónir króna. Því ber að
fagna, að Flugfélagið hefur
valið svo heilbrigða leið til
fjármagnsöflunar í þessu
skyni og er engum vafa bund-
ið, að það mun styrkja stöðu
félagsins mjög í framtíðinni.
Allt frá því, að farþegaflug
hófst fyrst hér innanlands,
hafa breytingar og framfarir
í flugmálum okkar orðið ó-
trúlega örar. Flugið er ekki
aðeins mikilvæg samgöngu-
bót innanlands og milli landa
fyrir íslendinga, heldur höf-
um við einnig náð töluverð-
um markaði erlendis til flutn-
inga á farþegum yfir Atlants-
hafið.
Með kaupum á fyrstu þot-
unni til íslands hefur Flugfé-
lag íslands lagt grundvöll að
byltingu í íslenzkum flugmál-
um. Það er ánægjulegt til
þess að vita, að þetta félag,
sem oft hefur átt við erfið-
leika að etja í rekstri sínum,
ÞOTAN
en á að baki merkt braut-
ryðjendastarf, hefur nú tekið
slíkt frumkvæði í flugmálum
íslendinga og vissulega
munu allir landsmenn taka
undir þá ósk forstjóra Flug-
félagsins, Arnar Johnson, að
þessi fyrsta jóota íslendinga,
verði þjóðinni til gagns og
heilla.
LODDARAR OG
LÝÐSKRUM
að vekur athygli, að í skrif-
um sínum um hækkun á
gjaldskrá Hitaveitunnar og
fargjöldum SVR forðast
stjórnarandstöðublöðin* eins
og heitan eld að ræða efnis-
hlið málsins. Málgögn Fram-
sóknarflokksins og kommún-
ista hafa algjörlega leitt hjá
sér að gera grein fyrir hvern-
ig leysa eigi fjármagnsþörf
Hitaveitunnar svo að hún geti
lokið þeim framkvæmdum,
sem þegar hafa verið ákveðn-
ar á næstu þremur árum og
þessi sömu blöð hafa á engan
hátt gert grein fyrir því,
hvernig standa eigi undir vax
andi reksturshalla strætis-
vagnanna í Reykjavík, vegna
launahækkana, sem á einu
ári hafa að jafnaði numið
27%.
í sambandi við gjaldskrá
hitaveitustjóri að hækka
saka meirihluta borgarstjórn-
ar Reykjavíkur um það eitt
að hafa ekki lagt til hækkun
gjaldskrárinnar fyrr til þess
að tryggja fjárhagsgrundvöll
þessa mikilvæga «fyrirtækis.
Það eru hreinar falsanir, þeg-
ar Tíminn heldur því fram,
að ekki sé eingöngu um að
ræða hækkun á gjaldskránni
vegna hækkana á kostnaði
sem orðið hefur heldur einn-
ig fyrir kostnaðarauka í fram
tíðinni. Þvert á móti telur
hitaveitustjóri að hækka
hefði þurft gjaldskrá Hitaveit
unnar meira en meirihluti
borgarstjórnar féllst á að
gera.
Á sama hátt eru fargjöld
SVR hækkuð eingöngu vegna
mikilla launahækkana á sl.
ári. Ef fargjöldin hefðu ekki
verið hækkuð nú hefði önnur
leið ekki verið fær en sú, að
leggja enn frekari útsvör á
borgarbúa til þess að standa
undir hallarekstri SVR, en
borgarsjóður greiðir nú þeg-
ar 10% af rekstrarútgjöldum
SVR.
Er ástæða til að beina þeirri
fyrirspurn til Framsóknar-
manna og kommúnista, hvort
þeir vilji leggja til aukin út-
svör vegna rekstrarerfíðleika
SVR. Þá er ennfremur á-
stæða til að þeir svari þeirri
spurningu, sem margoft hef-
Konfusius varpar
skuuga á IVIao
Konfúsius varpar skugga á 4
MEÐAL meiri háttar vanda-
mála, sem kínverskir komm-
únistar eiga við að etja, eru
hinar aldagömlu kenningar
vitringsins Konfúsiusar. Þeir
hafa reynt að kveða niður
þann „draug“, en með litlum
árangri — hann heldur áfram
að ásækja þá í ýmsum mynd-
um og keppa við kenningar
og hugsanagang Mao Tse-
tungs um hugi kínverskra
borgara.
Þegar þess er gætt, að kenn
ingar Konfúsiusar hafa verið
grundvallar heimspeki Kín-
verja í u.þ.b. 2.500 ár og lifað
af marga storma og misjafna
meðferð, er ekki furða þótt
þær eigi sér dýpri rætur í
þjóðinni en svo, að kommún-
isminn nái að uppræta þær á
nokkrum áratugum — ekki
sízt þar sem þær fela í sér
flesta kosti kommúnismans en
fæsta galla hans og eru öllu
betur aðlagaðar mannlegu
eðli en hann. Afstaða kín-
verskra kommúnista til kenn-
inga þessara er að mörgu
leyti eins og afstaða rússn-
eskra kommúnista til krist-
innar trúar og lífspeki, enda
eiga þær margt sameiginlegt.
f augum kommúnista eru
þetta hættuleg öfl, sem þarf
að uppræta svo að kommún-
ískt þjóðfélag fái staðizt.
Kínverskir kommúnistar
eru hinsvegar ekki alltaf sjálf
um sér samkvæmir í með-
ferð sinni á Konfúsiusi. Þeir
hafa stöðugt imnið að því að
draga úr áhrifum hans en jafn
framt átt það til að gera hon-
um all hátt undir höfði og
jafnvel benda á hann sem
fyrirmynd. Til að mynda ár-
ið 1961, þegar Kínverjar voru
að vakna upp við þann vonda
draum, að brýna nauðsyn
bæri til að efla menntun og
fjölga vísinda- og mennta-
mönnum. Þá skoraði utanrikis
ráðherra Kína, Chen Yi, á
unga Kínverja að taka sér til
fyrirmyndar Konfúsius, sem
„lærði svo mikið, að hann
gleymdi að borða“, eins og
hann sagði. Um svipað leyti
birtist grein um Konfúsius
eftir kunnan og virtan
menntamann Liao Mo-sha,
grein, sem þá var vel tekið af
opinberum aðilum, en hefur
að undanförnu orðið fyrir
Mao Tse-tung
harðri gagnrýni og sett í sam
band við menningaruppreisn-
ina, sem að undanförnu hefur
staðið yfir í Kína. Er sagt, að
Liao-Mo-Sha hafi notað heim
speki Konfúsiusar til þess að
hvetja til árása á Mao tse-
tung og kenningar hans. Liao
Mo-Sha er aðeins einn aí
mörgum fremstu mennta-
mönnum Kína, sem orðið
hafa fórnarlömb hreinsan
anna — og leikrit og bók-
menntagreinar, sem hann
skrifaði fyrir nokkrum árum
eru nú dregin fram sem sönn-
unargagn fyrir andkommún-
ískum tilhneigingum hans.
Það var einnig árið 1961,
eftir að ljós urðu mistökin í
framkvæmd „stóra framfara-
stökksins“, að Pekingsstjórn-
in tók allt í einu upp á því
að bjóða „76. beina afkom-
anda Konfúsiusar" til Pek-
ing til þess að taka þátt í
fimmtíu ára afmæli bylting-
arinnar 1911. Var það Kung
Ling Tsan, sem á ættir sínar
að rekja til þeirrar greinar
Konfúsiusar - fjölskyldunnar,
sem á tólftu öldu fluttist suð-
ur að ströndinni með Sung-
ættinni. Eftir fall Sung-ættar
innar — og um 700 ára skeið
eftir það — átti hin grein fjöl
skyldunnar, „nyrðri greinin"
svonefnda, jafnan sæti hjá
stjórnvöldum landsins og 77.
beini afkomandi Konfúsiusar
úr þeirri grein er enn í dag
nákominn stjórn Chiang Kai
Sheks á Formósu.
En þetta dekur kínverskra
kommúnista varð ekki lang-
líft. Það kom brátt í ljós, að
kínverskir menntamenn létu
sér býsna tíðrætt um mannúð
arhugsjónina, sem er ein
grundvallarkenningin í líf-
speki Konfúsiusar og þar sem
hún stangaðist í svo mörgu á
við kommúnismann varð
flokkurinn að taka í taum-
ana. Þegar komið var fram á
árið 1963 varð Konfúsius og
kenningar hans orðið eitt
helzta árásarefni flokksins.
Sögðu flokksleiðtogarnir að
frelsa yrði fólkið undan þess-
um hugsanagangi. Sjálfsagt
væri að bera tilhlýðilega
virðingu fyrir minningu þessa
forna hugsuðar og kennara,
en menn skyldu minnast þess,
að lénsherrar og aðrir drottn-
arar hefðu notað sér kenning-
ar hans í tvö þúsund ár til
þess að halda fólkinu í fjört-
um, andlega og líkamlega.
Ekki er neinn vafi á því, að
hin djúpu og langvarandi
áhrif sem kenningar Konfús-
iusar hafa haft á Kínverja,
ásamt ævafornri tilhneigingu
þeirra til fjölbreytilegra
heimspekiiðkana, hafa haft
veruleg áhrif á þá þróun
menntamála Kínverja, sem
nú hefur orðið tilefni hreins-
ana. Menningar- og mennta-
saga Kínverja er slík, að
kommúnisminn hlýtur að
vera þeim geysilegur andleg-
ur fjötur.
Menntamenn vísa hvað oft-
ast til mannúðarhugsjóna
Konfúsiusar, kærleiksboðun-
ar og fjölþættrar vizkuleitar,
en kommúnistar segja, að
mannúðarhugsjón hans hafi
þann stóra galla, að hún hafi
ekki tekið tillit til þjóðfélags-
stöðu mannanna og þar með
sé hún ekki gild. f augum
kínverskra kommúnista er
hugtakið „mannlegt eðli“
beinlínis rangt. Það, sem
skiptir mál, er „stéttareðli",
en ekki „mannlegt eðli“.
Kommúnistar neita því til
dæmis að meðal borgarastétt-
anna hafi verið til óeigin-
girni og tillitssemi, þeir
eiginleikar, voru aðeins til
meðal verkalýðsins. „Stéttar-
eðli“ borgarastéttanna var og
og er segja kommúnistar, sá
eiginleiki að arðræna.
(OBSERVER — öll rétt-
indi áskilin).
ur verið beint til þeirra hvaða
hverfi þeir vilja að fái ekki
hjtaveitu úr því að þeir neita
að fallast á nauðsynlegar ráð-
stafanir til að tryggja fram-
gang framkvæmdaáætlunar
Hitaveitunnar, Árbær, Breið-
holt, Fossvogur? Meðan mál-
gögn Framsóknarmanna og
kommúnista gera ekki grein
fyrir afstöðu sinni til þessara
atriða er þýðingarlaust fyrir
þau að ráðast á borgarstjórn-
armeirihlutann fyrir hækkan
ír, sem ekki varð komizt hjá.
Sá tími er liðinn á íslandi, að
stjórnmálaflokkar og blöð
þeirra geti leikið hlutverk lýð
skrumara og loddara, þegar
um er að ræða mikilvæg hags
munamál fólksins í landinu.
Fremur lítil
síldveiði
Raufarhöfn 15. júlí.
Samkvæmt upplýsingum er
fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn
Einari Jónssyni, höfðu nokkrir
bátar orðið varir demantssíldar
um 200 mílur NA af Raufar-
höfn. Hafði Garðar GK fengið
þar 300 tunnur, kastað aftur en
misst. Þá hafði Arnarnes kast-
að en ekkert fengið seint í gær-
kvöldi.
Einar kvað mörg skip á leið
þar út og að veðurspá væri góð.
Góð von er um að þarna sé góð
söltunarsíld.
Er Mbl. hafði samband við
síldarleitina á Dalatanga í gær-
kvöldi, var því tjáð, að bræla
væri við Jan Mayen og suður
eftir.
Ægir er á Húnaflóa og hefur
fundið einhverja síld, sem eftir
er að rannsaka betur. í gær voru
6-7 vindstig 150-180 mílur norð-
ur af Dalatanga.
Hér fara á eftir síldarfréttir
LÍÚ fyrir föstudag 15. júli:
Bræla var á síldarmiðunum
s.l. sólarhring og lítil sem eng-
in veiði.
Ægir hefur verið að leita síld
ar við Kolbeinsey og lóðaði þar
á nokkrar torfur. Sigurður frá
Siglufirði var á þessum slóðum
og kastaði tvisvar í nótt á þess-
ar lóðningar, en fékk aðeins
nokkrar loðnur. Ægir leitar nú
síldar vestur með Norðurlandi.
Samtals 3 skip með 450 tonn.
Raufarhöfn: tonn:
Sigurborg SI 90
Dagfari ÞH 150
Dalatangi:
Jón Garðar GK 210