Morgunblaðið - 22.09.1966, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.09.1966, Qupperneq 12
12 MORCUNBLAÐID Fimmtudagur 22. sept. 1961 ErÍendur Jónssons Rætt og ritað m uppiestur Ijóða ER >AÐ svo, að kveðskapur njóti sin ekki nema í upplestri? í fyrra vetur lagði brezka út- varpið þessa spifrningu fyrir nokkur ljóðskáld. Svör þeirra urðu ekki alveg samhljóða. Flest skáldin hölluð- ust þó að því, að ljóð nytu sín betur í upplestri heldur en í hljóðlestri. Eitt skáldið hélt því fram, að sá maður, sem laesi kveðskap i hljóði, yrði að vera gæddur nokkurs konar inhta eyra, það er: hann yrði að heyra hrynjandina með sjálfum sér, ef hann ætti að njóta kveðskaparins. Eftir að skáldin höfðu svarað spurningunni, hvert fyrir sig, endaði dagskrárliðurinn með þv', að flutt var eitt kvæði, fyrst af höfundi þess, síðan — sama kvæðið — af leikara. Vafalaust hafa þeir báðir, skáldið og leikarinn, gert verk- efnum sínum þau skil, sem til var ætlazt, hvor á sína vísu. En betur kunni ég við upp- lestur skáldsins, sem var að mín- um dómi hófsamlegur, en þó skýr, og — umfram allt ljóð- rænn. Lestur skáldsins ein- kenndist af reglulegum, en létt- um áherzlum og var þó engan veginn blæbrigðalaus. Heyra mátti, að lesarinn hugsaði ljóð- rænt. Leikarinn las hins vegar af sýnu meiri krafti, lézt vera í geðshræringu, las stundum lágt og stundum hátt, stundum hægt og stundum hratt, stundum styrkri röddu, stundum veikri og titrandi rödd, og svo fram- vegis. Sjálfsagt hafa einhverjir metið þann lestur að verðleik- um. En í mínum e;yrum hljóm- aði hann sem hrein og bein of- túlkun. Kvæðið sjálft fór alveg fram hjá manni. Svo virtist, sem ljóðið væri aukaatriði, lesturinn einn ætti að skipta máli. Enda þó ég segi frá þessu hér. er ég hreint ekki að segja, að enginn geti lesið upp Ijóð nema skáldin sjálf; enn síður að kveða upp neinn áfellisdóm yfir leik- urum sem ljóðalesurum. >eim kann að takast misjafnlega upp á þeim sviðum sem öðrum. Hins vegar hlustaði ég á þenn- an útvarpsþátt af því meiri at- hygli, að ég hafði þá fyrir skömmu hlýtt á Charles Tom- linson skáld lesa upp nokkur Ijóð sín í „Union“, nýju og stór- glæsilegu félagsheímili stúdenta við Bristolháskóla. Tomlinson kennir enskar og amerískar nútímabókmenntir við háskólann, og upplestur hans var einn af fjöldamörgum skemmti- og menningarviðburð- um á svonefndri rag-week, sem er sæluvika brezkra stúdenta. Gifford prófessor, annar kennari minn við skólann, hafði nokkrum vikum áður skotið því að mér, að Tomlinson ætlaði að lesa upp úr bókum sínum; og til- tók stað og stund, af því hann vissi, að ég hafði sérstakan áhuga að hlýða á þess konar recital. Ég var honum þakklátur vegna þeirra upplýsinga, því við- burður sá hefði annars farið fram hjá mér, býst ég við. í „Union“ voru hengd upp hundruð auglýsinga, þegar leið að sæluvikunni, sumar galsaleg- ar og stórar. En þó ég kæmi þangað við og við, sá ég hvergi auglýstan upplestur Tomlinsons. Daginn áður en hann skyldi lesa upp, kom ég sem oftar í „Union“. >á var ekki enn farið að auglýsa upplesturinn. Og ég hugsaði sem svo, að skáldið hefði hætt við allt saman; kannski óttast, að enginn kæmi. Fór samt upp í „Union“ daginn eftir, stundu áður en upplesturinn skyldi hefjast samkvæmt því, sem Gifford prófessor hafði tjáð mér. Og viti menn — þá rakst ég á smáauglýsingu, sem áð öllum líkindum hafði verið fest bar upp um morguninn. Og á þeirri auglýsingu stóð skrifað, að Mr Tomlinson læsi upp úr eigin verkum klukkan tvö eftir há- degi. Ég stóð þarna nokkra stund og virti fyrir mér auglýsingarnar og leit á klukkuna. Hún var hálí tvö. Sá fær líklega að þylja yfir auðum bekkjum, hugsaði ég. Nokkrum mínútum síðar geKk ég til sætis í salnum, þar sem upplesturinn skyldi fara fram. >ar voru fyrir nokkrir stúd- entar, sem reyktu og spjölluðu saman. Og höfðu vöðlað yfirhöfn um sínum, hver undir sitt sæti, eins og lenzka er í þvísa landl Fleiri tíndust inn, karlac og konur, ungir menn ög miðaldra; síðar taldi hópurinn fámennari að sjálfsögðu. En háskóli setur ekki aldurstakmark. Maður verður aldrei svo gamall, að hann þurfi ekki að læra meira. Nú vantaði klukkuna tíu mín- útur í tvö. í salnum var hvert sæti skipað. Mínúturnar' mjök- uðust áfram. Sígarettureykurinn hringaði sig upp í loftið og varð að bláleitu mistri. Og fleiri komu inn. Fáeinir stólar voru bornir inn í salinn og komið fyrir á milli sætaraðanna. Og þeir komu strax í góðar þarfir. >að var orðið rækilega messu- fært. Og þar kom, að ekki vo'-u fleiri sæti á stólum. >á var að tylla sér á miðstöðvarofnana og sólbekkina. Og það var gert. >á voru ekki fleiri sæti aflögu, og nokkrir, sem enn tíndust ina. létu hallast upp að veggjum. Tomlinson skáld gekk í sal- inn, langur og krangalegur og — eins og dálítið þurr á mann- inn. Með honum var prófessor Gifford, en þeir eru miklir vin- ir og starfa saman á fleiri svið- um en kennsiu. Einhverjir, sem verið höfðu að reykja, drápu í sígarettum sín- um. Ungur maður með alskegg rak hælinn í samanvöðlaðan frakka sinn og mjakaði hrúgunni lengra inn undir sætið. >ýzkar stúdínur, sem verið höfðu að tala saman, steinþögnuðu og toguðu niður um sig pilsin, svo faldurinn stæði nákvæmlega fimmt&n sentimetra fyrir ofan hné. Kolsvört stúdína með sex dularfull ör á kjömmunum, þrjú á hvorum kjamma, strauk um sitt sjálfstæða hár. En stríhærðir lokkarnir létu ekki sérlega vel að stjórn. Óstýrileiki frumskóg- arins verður ekki bældur með einu handtaki. í hverju andliti mátti lesa dá- lítinn vott af eftirvænting. Væri þetta fólk að gera sér upp áhuga á Ijóðlist, þá var sú uppgerð að minnsta kosti dável leikin Gifford prófessor kynnti Tom- linson með fáeinum orðum; sagði sem satt var, að varla þyrfti að kynna hann, því nem- endur hans voru þarna allfiól- mennir. Að því búnu hóf skáldið lest- urinn. Og las í eina klukkustund. Og sú klukkustund leið fljótt. Tomlinson las fyrst úr eldri bókum sínum, það er að segja: las upp úr safninu Poems, sem Oxford University Press gaf út með völdum kvæðum eftir hann sjálfan, Austin Clarke og Tony Connor. Fyrst gerði hánn stuttlega grein fyrir hverju kvæði, sem hann las, sagði t.d. hvar og hvenær það var ort, hvert var tilefni þess, að hann hafði ort það; út- skýrði síðan ýmis atriði, sem viðbúið var, að ekki skildust í fljótu bragði (brezkum skáld- um flökrar ekki við að útskýra kvæði sín; T. S. Eliot samdi t.d. sjálfur skýringar við The Waste Land). Og þannig las Tomlinson hvert kvæðið á fætur öðru. Að lokum las hann fáein kvæði úr síðustu bók sinni, American Scenes, sem þá var raunar rétt ókomin út. Hann hafði dvalizt ár i New Mexico, Bandaríkjunum, ort allmörg kvæði um veru sína þar og skýrt bókina eftir þeim yrkisefnum. Og sem hann hóf að lesa þessi nýjustu kvæði sín, lyftist brún- in á mörgum, því þau voru ekki aðeins lipurlega kveðin, heldur einnig mjög skemmtileg í víð- tækustu merkingu þess orðs. Stundum, þegar tilefni gafst í lestrinum, brá skáldið á að herma eftir framburði og orðfæri Am- eríkumanna — ' Tliarik you, I say and they reply in American You‘re welcome ... Áheyrendur reyndu ekki að hemja niðri í sér hláturinn. Bretum er lagið að henda svo gaman að Bandaríkjamönnum, að hvorki leynist í lítilsvirðing né öfund. Áheyrendur skemmtu sér eins og fólk á að skemmta sér á sælu viku. Og hlógu. Og skáldið tók undir hlátur þeirra með því að brosa laumulega út í annað munnvikið. Klukkan var eilítið tekin að hallast yfir á fjórða tímann, þeg- ar Tomlinson lokaði bókum sín- um. Áheyrendur þökkuðu með stuttu, en ákveðnu lófataki, drógu samanvöðlaðar yfirhafnir undan sætum sínum, kveiktu í sígarettum og tíndust út, hægt og rólega, því engum lá neitt á. En sólin skein yfir Bristol. — -k — Nokkru síðar hitti ég prófess- or Gifford og sagði við hann, að hefði verið tekin Ijósmynd af áheyrendahóp Tomlinsons, þá hefði ég viljað eiga eintak af þeirri mynd til að sýna löndum mínum, svart á hvítu, að enn væri til fólk, sem áhuga hefði á ljóðlist. Gifford prófessor brosti og kvað slíka mynd — þó tekin hefði verið — ekki mundu hafa sýnt Ijóðlistaráhuga landa sinna i réttu ljósi. Tomlinson væri gott skáld. >ess vegna hefðu margir komið til að hlýða á hann. Og hefði ekki hver, sem var, hlotið svo góða áheyrn. Ég hugsaði í laumi, að gott væri að eiga góðan vin. Gifford prófessor hlutaðist til um, að saman bæri fundum okk- ar Tomlinsons, nokkrum sinn- um. Og var þá spjallað um bók- menntir, einkum enska og am- eríska nútímaljóðlist. Ég sagðist álíta, að landar mín- ir hefðu enn mætur á Eliot, eftir því sem ég vissi bezt. „Jæja,“ sagði Tomlinson, „það er skrýtið." >á dró ég Four Quartets upp úr töskunni og sagði honum, að ég hefði séð staðhæft á prenti, að sá Ijóðabálkur væri langmerk- asta framlag til enskrar ljóða- gerðar síðan á sautjándu öld. „Amerískrar ljóðagerðar — skulum við heldur segja", sagði Tomlinson. „>essi ljóð eru hrein- ræktaður, amerískur púrítan- ismi. — En hefurðu lesið Yeats? „Var hann ekki guðspekingur og spíritisti?" sagði ég. „Að vísu,“ sagði Tomlinson og glotti við. „En það er nú ekkx svo, að allur hans kveðskapur sé guðspeki og spíritismi." „Ef ég hefði komið hingað til Englands upp úr 1920,“ sagði ég, þá hefði ég ekki viljað láta The Waste Land fara fram hjá mér. — Er nokkurt af yngri ljóskáld- „Ó, þetta er indælt strið“ Sýningar eru hafnar aftur í Þjóðleikhúsinu á söngleiknum Ó, þetta er indælt stríð. Leikurinn var sem kunnugt er fruinsýndur á s.l. vori og hlaut mjög góða dóma og þá sér- staklega leikstjórn enska le ikstjórans Kevin Palmer, sem sem þykir með afbrigðum snjöll. Næsta sýning verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. IVIyndin er af: Helgu Valtýsdótlur í hlutverki sínu í leiknum. unum, sem nú eru uppi, líklegt til að hafa áhrif, viðlíka sem Eliot átti þá eftir að hafa?“ „Alls ekki“, svaraði Tom- linson. „Ted Hughes er líklega eftirtektarverðastur af yngri skáldunum. En hann er of ein- hæfur. Það er nóg að lesa fá kvæði eftir hann.“ Og þannig barst talið að fleiri skáldum, sem athygli hafa vakið í enskum bókmenntum á seinni árum. Tomlinson sagði, að stemming undanfarinna ára hefði ekki verið hagstæð ljóð- listinni, ekki í Englandi. í Am- eríku væri stemmingin líflegri og þar væri fleira á döfinni. „Hefirðu verið í Ameríku? Þú þarft endilega að komast til Ameríku.“ ■— ~k — Það er vandi að lesa ljóð, svo laust nokkra þjálfun. En þjálfun laust nokkra þjáfun. En þjálfun í upplestri, almennt, dugir þó engum til brautargengis á þeim vettvangi. Til að lesa ljóð sóma- samlega, að ekki sé sterkara að orði kveðið, verður upplesari að skynja, innra með sjálfum sér, þá hrynjandi, sem er aðal kveð- skapar, hvort sem um er að ræða rímað ljóð eða órímað. En kunnátta og tilfinning — svo góðir sem þeir eiginleikar annars eru — nægja ekki held- ur einir til að gera upplestur eftirminnilegan. Hæfur upples- ari, sem kemur fram fyrir áheyr endur og les lýtalaust og kunn- áttulega, kann að ná eyrurn þeirra, sem áhuga hafa á upp- lestri, sérstaklega. En hann mun ekki vekja mikinn áhuga meðal hinna, sem ekki hafa tilfinnan- legan áhuga á ljóðlist framar öðru, sem mannleg viðleitni hef- ur skapað, ef hann leggur ekki í lesturinn annað og meira en lærða kunnáttu og áunna til- finning. Eigi upplestur að vera áheyri- legur og eftirminnilegur, verður hann jafnframt að vera persónu- legur. Ekki nægir, að upplesari bjóði fram rödd sína. Hann verð- ur einnig að bjóða fram persónu sína, koma fram eins og maður við mann Dauður upplestur kann að hæfa dauðu efni. En góðum kveðskap hæfit hann ekki. Á tímabili voru hér mjög 1 tízku svokallaðar bókmennta- kynningar; tíðkast raunar enn, þó þær gerist nú fátíðari en áð- ur. Þeir, sem staðið hafa fyrir þess konar kynningum, eiga lof skilið fyrir viðleitni sína. Og formið sjálft er ákjósanlegt. £n um framkvæmdina hefur gegxlt öðru máli, oft og tíðum. Bókmenntakynningarnar hafa allt of oft stirðnað í óeðlilegum og óviðeigandi hátíðleika, slepju legum uppskafningshætti eða umsnúinni feimni. >eir, sem kvaddir hafa verið á vettvang til að „kynna“ viðkomandi höf- unda, hafa ósjaidan lagt megin- kapp á að vera „lærðir"; hafa lesið löng og leiðinleg erindi upp af blöðum og aldrei litið upp af blöðunum fremur en þeir væru staddir aleinir uppi á miðj- um Sprengisandi að tala við sjálfa sig. Og höfundar, sem lesið hafa úr verkum sínum, hafa í sama anda stuðzt við regluna: „mitt er að yrkja, en ykkar að skilja’*. — Og varazt að láta út úr sér aukatekið orð, sem ekki stæði í bókum þeirra. Tilgangur þessara bókmennta kynninga hefur auðvitað átt að vera sá að kynna og auglýsa rit- verk, brúa bilið milli höfunda og lesenda. En ég er hræddur um, að afleiðingarnar hafi oft orðið þveröfugar, að bilið hafi breikkað, en ekki mjókkað. Ég minnist að vísu bókmenntakynn- inga, sem ég mundi telja til undantekninga; kynninga, sem tekizt hafa í alla staði ágætlega. En ég hygg, að þær hafi verið langtum færri en hinar, sem miður hafa tekizt. Ég hef getið hér um ljóða- lestur Tomlinsons í Bristol — ekki vegna þess að þar væri á ferðinni heimsfrægt skáld, því það getur hann tæplega talizt, heldur vegna hins, að þar þótti mér skáld rækja erindi sitt við Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.