Morgunblaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. nóv. 1966 MORGUNBLAÐÍtí „Jarðarmen II Ljóðabók eftir Hafliða Jónsson UM þessar mundir kemur í bókabúðir ný ljóðabók JARÐ- ARMEN eftir Hafliða Jónsson frá Eyrum. Bók þessi er um marga hluti sérstæð. Hún er ljósprentuð eftir eigin vélriti höfundar og einnig hefur hann myndskreytt bókina. Hann hefur sjálfur gert káputeikningu, en hana teikn- ar hann á striga, sem síðan er ljósprentað. Letur ljósprent- aði, en Bókaskemman gaf . bókina út. Bókin er 94 blað- síður að stærð og í henni eru 29 ljóð. Hafliði Jónsson frá Eyrum er 43 ára gamall, og kunnur lesendum sem garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar. Þetta er fyrsta ljóðabók höf- undar. í tilefni af útkomu bókar- innar hitti Mbl Hafliða að máli, og bað hann að segja svolítið frá tildrögum að út- komu Jarðarmens. „Eiginlega má segja, að þetta sé dýrðaróður minn til móður moldar. í sambandi við starf mitt hef ég verið í nánum tengslum við blóm, gróður og mold. Elzta ljóðið er Blóm í glugga, og mun vera frá því um 1944. Ég held ég megi segja, að _það sé ort, vegna allra blómanna í gluggunum hennar Guðrúnar ekkju Þorsteins Erlingssonar, sem voru að mig minnir Pela- góniur, en kvæðið er á þessa leið: „Eitt stendúr hús í Þingholtinu með gluggatjöld af rauðum rósum. Hver býr þar? Sú hönd guðs, er sair, sér bað veika smáa, hugsar hlýtt og vökvar. í>ar býr Marta Maria, móðir barna þinna.“ Holdin launar, mennirnir ekki Mynd af einni síðu bókarinn- ar Jarðarmen. Teikning eftir höfund hennar „Nú er það alkunna, Haf- liði, að þið Jón úr Vör eruð bræður. Viltu segja okkur nokkuð um það, hvort ljóð ykkar séu skyld?“ „Auðvitað er hætta á því, að gerður verði samanburður á okkur bræðrum. Við erum vaxnir upp úr sama umhverf- inu á Eyrum við Patreks- fjörð, í 14 systkina hóp, faðir okkar var skósmiður á staðn- Togbátar frá Suðurnesjum eru ekki ágengir við línubáta VEGNA fréttar Finnboga Guð- mundssonar í Morgunblaðinu nú fyrir skömmu um yfirgang tog- báta við línubáta, óska skipstjór ar og útgerðarmenn togbátanna að koma á framfæri á sama vett- vangi: Frétt Finnboga Guðmundsson- ar um ágengni togbáta við línu- bátana er algjörlega úr lausu lofti gripin. Togbátar eru á allt öðru svæði en línubátarnir og rekast því ógjarnan saman með veiðcirfæri sín. Finnbogi mun hafa haft samband við einn af línuskipstjórum sínum, er kvart- aði yfir ágengni togbáta, en þar mun rangt með farið. Togbátarnir eru ekki á línu- evæðinu, sem er innan landhelgi að mestu leyti — en þar sem tog- bátar og línubátar veiða fyrir ut- an landhelgi geta árekstrar kom Um helgina var haldinn í Tjarn arbúð þing Iðnnemasambands ís lands. Sóttu það tæplega 50 full trúar frá 5 Reykjavíkurfélögum «g 8 félögum utan af landi. Þinghald var fjörugt og urðu miklar umræður um hin ýmsu hagsmunaanál iðnnema, svo sem kjaramál, iðnfræðsluna, skipu- lagsmál sambandsins og almenn félagsmál. Gestur þingsins var Kjeld Andersen frá Faglig Ung- dom í Danmörku. Eftirtaldir voru kjörnir í stjórn ið fyrir, eins og átt hefur sér stað um mörg undanfarin ár. Útgerðarmenn og skipstjórar togbátanna eru að sjálfsögðu reið ir yfir aðdróttunum Finnboga um landhelgisbrot, og segja þeir að í því sambandi komi einkenni- lega fyrir sjónir að fyrir ári hafi Finnbogi verið aðalhvatamaður- inn um að opna landhelgina á vissum svæðum, til þess að skapa frystihúsunum hráefni til vinnslu. Nú telur F. G. hagkvæmara að hafa línubáta og kemur því með staðlausar aðdróttanir að togbát- unum. Skipstjórar togbátanna telja þessa hundeitni gegn þeim næsta óeðlilega, þar sem þeir skapa meira verðmæti en flestur ann ar veiðiskapur. Um borð í tog- bát eru 4 tii 6 menn, en á línu- bát 10 til 12 — og mannskaps- sambandsins: Helgi Guðmunds- son húsasm.n., formaður, Ingi Torfason,húsasm.n., v-formaður, Guðný Gunnlaugsdóttir, hárgr. n., Hannes Einarsson frá iðn- nemafélagi Suðurnesja og Ólaf- ur Þorsteinsson frá félagi nema í rafmagnsiðn í Rvík. f vara- stjóm vom kjörnir: Sig. Magn- ússon rafiðn.nemi, Sturla Har- aldsson frá fðn.n.félagi Hafnar- fjarðar, Björn Björnsson, járn- iðn.nemi og Sveinn Gunnarsson prentnemi. Hafliði Jónsson um. Segja má, að leiðir okkar hafi eiginlega aldrei skilið, en það er samt nýlega, að Jón fékk. að vita það, að ég fengist við ljóðagerð Um þenna samanburð á ljóðum okkar get ég auðvitað ekkert dæmt sjálfur. Ég flyzt til Reykjavíkur al- farinn 1942, en árið áður hóf ég nám við garðyrkjuskólann á Reykjum, svo að öll Ijóðin í bókinni eru gerð hér sunnan lands. Segja má, að ég hafi í starfi mínu párað eitt og annað niður til minnis, stung- ið því í vasann, svo eftir langa mæðu komið því fyrir í gulla- stokknum mínum, þangað til um síðustu áramót, að ég fór að skoða í stokkinn. Auðvitað hef ég ekki fengið þessar hugdettur allar á gangi út um borg í bæ, því að þetta hefur verið mér afþreying að loknu starfi, ómetanleg hvíld eftir eril dagsins. vandamálið ætti að vera Finn- boga kunnugt — og einnig það að togbátar njóta ekki verðupp- bóta. Togbátasjómenn telja sér ekki vandalaust að gera út með góðum árangri ef þeir fengju á- kveðin svæði innan landhélgi, þar sem hreppapólitík kæmi ekki nálægt. Togbátasjómenn telja það hlut verk fiskifræðinganna að opna svæði innan landhelgi, þar sem fiskvon er, en að öðru leyti ber að virða landhelgina. Frystihúsin hafa undanfarin sumur lifað af afla togbáta og dragnótabáta — Finnbogi Guð- mundsson veit þetta vel þótt hann sé nú með útgerð línubáta. Annað hvort verða togbátar að hætta útgerð og frystihúsin að loka, eða fiskifræðingar, og aðr- ir ráðamenn að koma þessum málum í viðunandi horf. Það var ýmislegt annað, sem togbátasjómenn vildu segja, en sumt af því var heldur hart und ir tönn og látum því bíða betri tíma eða gefins tilefnis. — hsj. Sáttafundur í Búr- fellsdeilunni SÁTTAFUNDUR var í gær með deiluaðilum í Búrfellsdeilunni, en sættir náðust ekki og hefir verið boðað til nýs fundar í dag. Eiginlega hef ég meira fengizt við að semja sögur, bæði stuttar og langar, á það allt í handriti, utan eina, sem birtist í Lebók Mbl. fyrir fá- um árum. Svo skrifaði ég æviminningar Kristínar Dahl- sted, sem út komu fyrir 5 ár- um, en þetta er eina ljóðabók mín, og ég teiknaði myndirn- ar einungis fyrir hana, en hef samt ekki fengizt við slíkt. Handritið var í sömu stæxð og ljósprentunin, einnig myndirnar, og káputeikning- in. Af ásettu ráði hafði ég ekki upplagið meira en 250, því að ég vil ekki að hún komi í annarra hendur en þeirra, sem kæra sig um að eiga hana og lesa. Hvort þau séu rímuð? Ja, svona eitt og eitt. Það er nú svona með órímuð ljóð, að þau veita skáldunum meira frjálsræði við gerð ljóðsins, en ef það er bundið við leit að rímorðum. Ég er nærri viss um, að séra Hallgrimur hefði verið atóm- skáld, væri hann uppi núna. Ég er ekki að einblína á eitt né neitt í ljóðum mínum, einungis að ná því fram, sem ég meina, fer máski króka- leiðir að því en viss meining er í öllum línum, ég er að lýsa skoðunum mínum í fáum orðum, og geri ekkert af þessu til að þóknast einum eða neinum. Og varðandi nafnið á bók- inni: Jarðarmen, þá stendur það í sambandi við óð minn til moldarinnar, því að allt blóð fellur aftur til inoldar- innar, hver maður sverst í fóstbræðralag við móður jörð“. Og með það gekk Hafliði á braút, aftur til síns starfs að sinna blómum og gróðri. Fr. S. Líðon drengs- íns skórri Ökumaðurinn er slysinu olli með 13 daga gamalt öku- skírteini LÍÐAN drengsins, sem varð fyrir Landroverjeppanum á Hvassaleiti í fyrrakvöld, var heldur betri í gær, samkvæmt upplýsingum er Mbl. tókst að afla sér á Landakoti í gær, en þó var hann ekki talinn úr allri hættu. ökumaðurinn, er slysinu olli var 17 ára að aldri, og með 13 daga gamalt ökuskírteini. Sam- kvæmt upplýsingum lögreglunn- ar kveðst hann ekki geta sagt til um hraða bifreiðarinnar, er slys ið varð, þar sem hraðamælirinn var í ólagi, en bifreiðin skyidi eftir sig 14 metra hemlaför. Ökumaðurinn kveðst ennfrem- ur hafa blindazt af ljósum bif- reiðar, sem kom á móti honum, og því ekki séð drenginn fyrr en hann skall á bifreiðina. Var mikil dæld á hægra frambretti bifreiðarinnar. Drengurinn sem hér um ræðir heitir Valdimar Þórhallsson til heimilis að Hvassaleiti 105, og 10 ára að aldri. KÝR OG MJÓLK í NOREGI Á árunum 1949 — 63 fækKaði nautgripum í Noregi úr 1224 þús. í 1122 þús. eða um ca. 8%. En með kynbótum og betri meðferð gripanna hefur mjólkurfram- leiðslan samt aukizt á sama tima um rúmlega 7.7%. He!gi Guðmundsson kosinn form. Iðnnemusumbundsins STAKSTEINAR Kosningagæra Sósíalistaflokksins Tíminn birtir í gær forysta- grein um hinn svonefnda lands- fund Alþýðubandalagsins, og þar segir: „Forsíða Þjóðviljans í gær minnir helzt á skemmtilega kímnisögu. Aðalfyrirsögnin á síð- unni segir frá kosningaúrslitum á nýloknum landsfundi Alþýðu- bandalagsins, þar sem Hannibal Valdimarsson hefur verið endur- kosinn formaður. Aðeins neðar á síðunni er þridálka ramma- auglýsing undir stórri fyrirsögn, sem hljóðar á þessa leið: Fundur í Sósíalistafélagi Reykjavíkur í kvöld í Lidó, efni auglýsingar- innar er það, að á fundinum eigi að kjósa fulltrúa á 11. þing Sósí- alistaflokksins. Öllu betur gat Þjóðviljinn ekki auglýst hversu stórfelldur skripaleikur lands- fundur Alþýðubandalagsins var. Undanfarin misseri hefur borið á vaxandi óánægju þeirra aðila, sem staðið hafa að Alþýðu- bandalaginu ásamt Sósíalista- flokknum. Þeim hefur réttilega fundizt að Alþýðubandalagið væri aðeins gæra Sósialistaflokks ins eins og einn af forystumönn- um Þjóðvarnarflokksins hefur komizt að orði. Þess vegna hafa þeir krafizt þess, að Alþýðu- bandalagið yrði óháður stjóm- málaflokkur líkt og flokkur Ax- els Larsens í Danmörku og Þjóð- legi sósíalistaflokkurinn í Noregi. Báðir þessir flokkar hafa slitið öll tensl við kommúnista. Til þess að tryggja það að þetta yrffi, hafa þessir menn viljað stofna sérstök alþýðudandalagsfélög þar sem ekki gætu verið menn, sem jafnframt væru flokksbundnir í öðrum flokkum, og í framhaldi af því yrði stofnað til stjórn- málaflokks. Til þess að forðast klofning út af þessari óánægju, hafa kommúnistar gengizt inn á það að stofnuð yrðu Alþýðu- bandalagsfélögin og sérstök lands samtök. Þeir hafa hins vegar lagt á það meginkapp undir for- ystu Einars Olgeirssonar og Lúð- víks Jósefssonar, að Alþýffu- bandalagið yrði ekki sérstakur stjórnmálaflokkur líkt og hinir áðurnefndu flokkar í Danmörku og Noregi, heldur stjórnmála- samtök, sem menn gætu verið í þótt þeir væru jafnframt flokks bundnir annars staðar“. Kommúnistar bera sigur af hólmi „Hinn nýlokni landsfundur Al- þýðubandalagsins sker alveg úr um það, að konxmúnistar hafl borið sigur af hólmi í þessum átökum. Á landsfundinum var vísað frá tillögu, sem fjórir Þjóð- varnarmenn báru fram um að gerð yrði sú breyting á frumvarp inu, að lögum fyrir bandalagið að þaff yrði stjórnmálaflokkur, en ekki stjórnmálasamtök eins og stóð í frumvarpinu. Alþýðu- bandalagið verður þvi áfram nákvæmlega eins og það var. Ef nokkuð nýtt hefur gerzt, er það helzt það, að yfir- ráð Sósíalistaflokksins í Al- þýðubandalaginu hafi verið enn betur tryggð, þar sem hann getur nú látið flokksmenn sína starfa innan Alþýðubandalagsfé- laganna. Ljóst dæmi um að Sósí- alistaflokkurinn ræður nú lögum og lofum innan Alþýðubanda- lagsins er, að 18 af 25 miðstjórn- armönnum þess í Reykjavík eru flokksbundnir í Sósíalistaflokkn- num. Áður hafði Sósíalistaflokk- urinn ekki nema 4 af 9 mönnum í miðstjórninni. Tilraunir þeirra, sem vildu ekki láta Alþýðu- bandalagið vera gæru kommún- ista heldur gera þáð að óháð- um stjórnmálaflokki hafa þvi meira en mistekizt. óánægja þeirra hefur ekki minnkað við I Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.