Morgunblaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 32
Helmíngi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
LAMPA URVAL
Ljós & Hiti
Sími 15184
252. tbl. — Fimmtudagur 3. nóvember 1966
Fjögur banaslys
á10 dögum
Lögreglan skorar á vegfarendur
að gæta varúðar í umferðinni
ÞAÐ ERU uggvænleg tíðindi,
að á réttum tíu dögum hafa
orðið fjögur banaslys í Reykja
vik, auk fjölda árekstra og
meiri eða minni háttar slysa.
Og í hönd fer hættulegur tími
hvað umferðina snertir. Verða
því allir vegfarendur, hvort
sem þeir eru gangandi eða ak
andi, að leggjast á eitt um að
afstýra slysum — með það í
huga, að þeir, eða þeirra nán
ustu geti orðið fyrir eða vald
ir að slysi.
Morgunblaðiö sneri sér í
gær til Óskars Ólasonar, yfir
lögregluþjóns umferðamála,
og sagði hann þá m.a.:
„Lögreglan hefur á þessu
ári haft afskipti af ökumönn-
um svo þúsundum skiptir, ým
ist með ábendingum, aðvörun
um eða með kærum. Þrátt fyr
ir aukinn bílainnflutning fjölg
aði árekstrum og umferðar-
slysum ekki verulega fyrstu
níu mánuði þessa árs, borið
saman við sama tímabil í
fyrra.
Þetta hefur því miður
skyndilega breytzt og undan-
farið hafa mörg alvarleg slys
orðið í umferðinni. Lang flest
hafa slysin orðið í myrkri og
rigningu, þegar akstursskil-
Framhald á bls. 31
Maðurinn lézt af
völdum áverka
Sjötta banaslysið í umferðinni
MAÐURINN, sem varð fyrir bif-
reiðinni á Suðurlandsbraut á
móts við hús H. Benediktssonar
og Co. í fyrrakvöld, lézt af völd-
um áverka sinna í Landakots-
spítala í fyrrinótt. Maðurinn var
56 ára aldri, utanbæjarmaður, en
starfaði hér í Reykjavík. Um-
ferðardeild rannsóknarlögregl-
unnar vildi ekki gefa upp nafn
38 nefndarmenn
á einum degi
VIÐ umræður í sameinuðu
þingi í gær benti Ingólfur Jóns-
son, Iandbúnaðarráðherra á það,
að á þessum fundi lægju fyrir
sex tillögur framsóknarmanna
um ýmis mál, og væri þar gert
ráð fyrir kosningu nefnda.
Fjöldi nefndarmanna í þessum
tillögum er samtals 36, og benti
ráðherra á það, að hér væri um
einkennilega leið að ræða til
lækkunar á rikisútgjöldum eða
til minnkunar skriffinnsku, en
þau mál hafa verið framsóknar-
mönnum kært umræðuefni.
hans að svo stöddu, þar sem ekki
hafði náðst til allra aðstandenda.
Ekki hafði enn í gærkvöldi
tekizt að hafa upp á vitnum, sem
sáu aðdraganda slyssins, og bið-
ur rannsóknarlögreglan því alla
þá, sem hann sáu að hafa sam-
band við sig sem fyrst í síma
21108.
Samkvæmt framburði öku-
manns bifreiðarinnar, þá telur
hann sig hafa ekið á um 40 km
hraða er slysið varð. Sjálfur sá
hann ekki manninn, fyrr en
hann skall á bifreiðina, en á hinn
bóginn sá stúlka er sat í fram-
sætinu, manninn örskömmu áð-
ur, og hrópaði aðvöruwarorð til
ökumannsins, en þá var það um
seinan.
UNGIR ÖKUNIÐINGAR
TEKNIR.
LÖG-REGLAN tók í gærkvöldi
tvo ökuníðinga, en það voru
ungir piltar, sem óku um bæinn
með ofsalegum hraða. Bílarnir
voru teknir af þessum glanna-
fengnu unglingum og þeir fengu
að ganga heim.
Yfirnefnd úrskurðaði síldarveröii
Dómur væntanlegur á laugardag
UNDANFARNA daga hafa
staðið yfir umræður og samn
ingaumleitanir í verðlagsráði
sjávarútvegsins um verð á
bræðslusíld norðan lands og
austan á tímabilinu frá 1.
nóv. til áramóta. í upphafi
viðræðnanna náðist samkomu
lag um að sama verð og gilti
í októbermánuði, þ.e. kr. 1,37
hvert kg. bræðslusíldar,
skyldi gilda 5 fyrstu daga
nóvember, meðan leitað
væri eftir samkomulagi.
í gær slitnaði upp úr samninga
umleitunum og var málinu vís-
að til yfirnefndar verðlagsráðs-
ins til úrskurðar.
í yfirnefndinni eiga sæti: Jón-
as Haralz, forstjóri Efnahags-
samvinnustofnunarinnar, sem
oddamaður, Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri og Vésteinn
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri, sem fulltrúar síldarverk-
smiðjanna og þeir Guðmundur
Jörundsson, útgerðarmaður, og
Tryggvi Helgason, formaður Sjó
mannafélags Akureyrar, sem
fulltrúar útgerðarmanna og sjó-
manna.
Dómur yfirnefndar er vænt-
anlegur í síðasta lagi n.k. laug-
ardag 5. þ.m.
Á slysstað í fyrrinótt: Glöggt má sjá afstöðuna milli húfu mannsins, sem er á þeim stað er slysið
varð, og bifreiðarinnar, sem stöðvaðist 25 m frá húfunni, en maðurinn barst með bifreiðinni alla
leið.
Hörð átök á fundi SósiaRistafélags Reykjavikur:
10 miðstjórnarmenn féllu við
fulltrúakjör á flokksþingi komma
Brynjólfur hefur undirtökin
SL. ÞRIÐJUDAGSKVÖLD
efndi Sósíalistaflokkur
Reykjavíkur til fundar í Lidó,
þar sem m.a. fór fram kjör
fulltrúa á flokksþing sem
hefjast mun n.k. föstudag.
Miklir flokkadrættir og áköf
smölun stóð yfir dagana fyr-
Mig var búið að dreyma fyrir þessu
• Segir Albert Vigfússon, sem lenti í
hafvillu út af Vestfjörðum i sl. viku
ísafirði, 1. nóv.: —
— ÉG VISSI fyrirfram, að
þetta myndi allt fara vel. Mig
var búið að dreyma fyrir
þessu. — Það er Albert Vig-
fússon, sem talar þannig um
hrakninga sína á sjó úti fyr-
ir Vestfjörðum í hálfan fjórða
sólarhring. Bátur hans, Særún
liggur hér í höfninni og á að
fara í viðgerð á morgun. Hann
skemmdist lítilsháttar, þegar
hann strandaði undan Mölun-
um í Bolungarvík.
— Ég fór í róður um eitt-
leytið aðfaranótt miðvikudags
og um morguninn þegar ég
ætlaði að setja í gang, gat ég
með engu móti komið vélinni
í gang. Ég var þá um 40 mílur
út af Patreksfirði og fyrir utan
alla togara. Þá setti ég upp
segl og rétt á eftir sá ég tvo
enska togara, en þeir sáu ekki
merkið frá mér, enda lagði þá
yfir þokubakka. Veðrið var af
leitt fyrstu tvo sólarhringana,
þoka og mikill sjógangur og
ég sá enga báta eða skip nema
fyrsta morguninn.
— Bátinn rak til hafs í
stefnu norðaustur og ég var
hræddur um að ég mundi
lenda út í ísnum. Ég hafði
ekki á móti með seglunum,
því vindurinn stóð þannig. —
Svona rak mig í sólarhring til
hafs og hef ég þá líklega verið
40—50 mílur frá landi. Svo
gat ég siglt í átt til lands og
reyndi að komast inn á Súg-
andafjörð, en tókst það ekki
og þá reyndi ég að komast
inn í Djúpið, en þá gerði
vonzku veður og bátinn rak
til hafs. Þá hef ég líklega verið
kominn 60—70 mílur út, og út
fyrir alla togaraslóð. Það tók
18 tíma siglingu með fullum
seglum þangað til ég grillti í
Skálavík og Stiga á laugardags
morgun.
Ég var eiginlega alltaf við
stýrið, því ég ætlaði að reyna
að ná Djúpinu og ef ég fór
frá stýrinu, þá snerist bátur-
inn alltaf, því að straumurinn
var svo mikill.
Ég var kominn inn í Djúpið
um fjögurleytið á laugardag
og hélt mig þá sjá færabát ná
lægt laridi, en gat ekki gefið
honum merki, því að ég var
búinn með allar eldspýturnar.
Ég var nokkrum sinnum bú-
inn að kveikja bál og eyða
eldspýtunum, og svo drapst á
Framhald á bls. 12.
ir fundinn og hörð átök urðu
um kjör fulltrúa á flokksþing
ið enda náðu 10 miðstjórnar-
menn flokksins ekki kjöri
sem fulltrúar á þingið og þrír
aðrir skriðu með naumind-
um. Eftir þessa kosningu er
talið að Eggert Þorbjarnar-
son og Páll Bergþórsson, með
Brynjólfi Bjarnasyni sér við
hlið hafa tögl og hagldir á
þinginu.
A fundinum voru mættir um
270 fundarmenn, en kjósa skyldi
52 fulltrúa. Þessir miðstjó r-
menn Sósíalistaflokksins náðu
ekki kosningu að þessu sinni
sem fulltrúar á flokksþing: Har-
aldur Steinþórsson, Ingi R.
Helgason, Adda Bára Sigfúsdótt-
ir, Magnús Torfi Ólafsson (íor-
maður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík), Sigurður Guðg us-
son, Ægir Ólafsson, Einar Og-
mundsson, Stefán Sigfússon,
Haukur Helgason, og Guðmund
ur Magnússon.
Þrír mikilsmetnir forustu-
menn Sósíalistaflokksins á svioi
verkalýðsmála, borgarmála og
fjármála náðu kosningu með
naumindum, þeir Snorri Jons-
Framhald á bls. 12.