Morgunblaðið - 03.11.1966, Page 11
M'-1'
Fimmtudagur 3. n5v. 19M
•tM 'í i*f ^ f M H •*.«
MORGUNBLAÐIÐ
11
stærsta í flotánum í dag. Hún
er 320 faðmar á korkatein, 280
á blýið, 102. faðma djúp og veg-
ur 14 tonn. Á henni eru 14 kg.
af blýi á hvern faðm, svo að þú
getur séð, að það má ekki mikið
út af bregða til að hún stein-
stökkvi, en þetta er mikið verk-
færi.
Verðið. Jú, hún kostaði
2.2 milljónir og það
þarf talsverðan afla til að borga
hana. Frá því að skipið kom
heim í endaðan marz er veiða-
færakostnaður orðinn tæpar 5
milljónir. I>að má til gamans
geta þess, að ef breitt væri úr
nótinni á þurru landi, myndi
hún þekja 10 hektara.
— Hvert er verðmæti síldar-
aflans orðið hjá ykkur í sumar?
— Þa'ð er um 15 milljónir. í
þessu sambandi væri ekki úr
vegi að minnast á hásetahlut-
inn. Svo virðist sem almenning-
ur haldi að hann sé kominn yfir
hálfa milljón eða meir. Þetta er
alger misskilningur. Við skul-
um leggja dæmið fyrir okkur og
láta svo hvern og einn um að
reikna út. Hér um borð er 16
manna áhöfn, en þar af eru allt-
af tveir í fríi. Hásetinn fær
2,2% af aflaverðmæti, sem eins
og fyrr segir er um 15 milljónir,
og reikni nú hver sem vill. Ég
veit það bara að hásetarnir hjá
mér, bera ekki sama úr býtum
og iðnaðarmenn, sem vinna eft-
ir uppmælingataxta.
„Lago“
Við sáum nú ljósin á rúss-
neska flotanum framundan og
var þá slegið af og farið að
leita. Stuttu síðar kom góð torfa
inn á asdicið. Var gaman að
fylgjast með hve fljótt og ör-
ugglega Eggert sigldi skipinu í
kastfæri og kl. 19,12 sagði hann
við stýrimanninn: „Klárir“.
Þrem mínútum síðar var hver
maður á sínum stað og Eggert
kallaðir „La go“, og pokinn féll
samstundis í sjóinn og nótin
dróst aftur af. Við fórum hring-
inn á tveimur mínútum og strák
arnir fram á kipptu baujunni
um borð. Það var auðséð á öllu,
að hér voru að verki þrautþjálf
aöir menn.
— Hún er stygg, segir Eggert.
■— Heldurðu að hún sé inni?
— Ég er ekki alveg viss, hún
svaraði vel á asdicinu, en svo
dreifðist hún eitthvað og dýpk-
aði á sér. Ég er þó vongóður
um að eitthvað sé inni.
Hásetarnir slógu nú kraft-
blökkinni út og byrjuðu að
draga brjótslínuna inn. Fram á
snurpuðu vélstjórarnir og
reyndi ekki mikið á spilið, sem
Eggert Gíslason, aflakóngur í lands og Jóhannes Christian Ja' obus Thiart, aflakóngur
S-Afríku. — Thiart er skipstjóri á 75 lesta bát, og aflaði 9000 lestir á 7 mánuðum.
er 16 tonn. Blökkin var nú sett
á fullan kraft og maður fann
vel hið gífurlega afl, sem þar
var að verki. Kvikan hafði nú
aukizt talsvert og Eggert hélt
skipinu uppí um leíð og hann
fylgdist nákvæmlega með nót-
inni. Hann var á sífelldum þön-
um frá vélsímanum að blökk-
inni og stöðvaði hana öðru
hverju til að athuga hvort
korkurinn og blýið drægjust
jafnt. Ég lét sem minnst á
mér kræla, til að trufla ekki
Eggert, því að það var sem hann
væri í öðrum heimi meðan á
þessu stóð.
„Fínt kast“, sagði Eggert þeg
ar hálfnáð var að draga. Hann
beindi ljóskastaranum út í nót-
ina og við sáum hvar síldin
bullaði í ljósinu.
„Nú þarf ég áð vera rólegur,
svo að ég geri enga vitleysu.
Það er eftir mörgu að líta þeg-
ar kvikan er svona“. Hann kall-
aði ýmsar fyrirskipanir til há-
setanna og byrsti sig stundum
hressilega. Það var auðséð að
undir rólegu yfirborðinu bjó
mikið skap, enda vitað að skap-
laus maður hefði aldrei getað
náð jafn langt og Eggert.
Sjómannslífið er enginn
leikui; og nauðsyn fyrir skip-
stjórana áð láta út „damp“
öðru hverju og þar er Eggert
áreiðanlega enginn undantekn-
ing.
>• Annar tugurinn
Smá saman þrengdi að síld-
inni og loks var kastið tekið á
síðuna og byrjað að háfa.
— Hvað heldurðu að þetta sé
mikið?
— Þetta eru 85 tonn, sagði
Eggert, — og þar með eru kom-
in tímamót í síldveiðum okkar.
— Hvað áttu við?
-— Jú, við erum áð byrja ann-
an tuginn.
sSkipti í kvöld, að við erum ein-
skipa að veiðum. Við tókum
marga slíka túra við Jan Mayen
í sumar, er flotinn var almennt
á leið til hafnar. Nú er t.d.
rneiri bræla eftir því sem nær
dregur landi og með því að
sigla þetta undan brælunni
græðum við 2 klukkutíma og
85 tonn, sem gera rúmar 116000
kr. Brælan hér er að færast i
aukana og ég myndi ekki kasta
aftur. Mannskapurinn hjá mér
er þrautþjálfaður og ég get
treyst þeim og það er eitt mikil
vægasta atriðfð. Skipið er auð-
vitað stórt og vel búið og nótin
er feikna verkfæri. En aflinn
hefur fengizt með vinnu og aft-
ur vinnu í 6 mánuði og hlutur-
inn er ekki gefins.
— Ertu ekki orðinn þreyttur
á þessum sífelldu útivistum?
— Jú, að sjálfsögðu er ég það
á köflum, en þetta er lífið.
— Hefurðu nokkuð hugsað
um að draga þig í hlé?
— Það kemur af sjálfu sér.
Lokið hefur nú verið við að
háfa og hásetarnir eru að gera
klárt fyrir landstímið. Allir
lausir hlutir eru fjarlægðir af
dekkinu og lúgurnar skálkaðar
vandlega. Upp við landið eru
milli 8 og 9 vindstig og tals-
verður sjór.
Stefnan var sett á Dalatanga
og Gísli Árni öslaði áleiðis til
lands. Siglingin tók 9 tíma og
Nótin á Gísla Árna yfirfarin við bryggju í JNeskaupstað. Eggert ræðir við Sigurð 2. stýrimann.
Skipt var um flot á nótinni, því að þau gömlu voru farin að gefa sig og þegar nótin vegur 14
tonn, er eins gott að þau séu í lagi.
A síldveiðum með Gísla Arna
— Hverju þakkarðu þennan
mikla afla?
% — Þetta er bara vinna og aft-
ur vinna. Það er ekki í fyrsta
Eggert stóð í brúnni allan tím-
ann.
Við komum til Norðfjarðar
kl. 8 á sunnudagsmorgun með
200 lestir innanborðs og nam þá
heildarafli skipsins 10080 lest-
um.
Ánægjulegri fer’ð var lokið
og færi ég skipstjóra og skips-
höfn beztu þakkir.
— ihj.
■Skipstjóri og áhöfn á Gísla Árn-a. Á myndinni eru Guðmundur Jónasson, Jóhann Guðmundsson,
Eggert Gíslason, Árni Guðmunlsson, Sigurður Bjarnason, Ingólfur Eyjólfsson, Ásmundur Böðv
arsson, Eggert Jónsson, Kristinn Traustason, Sigurbjörn Björnsson, Sigurður Kristjánsson, Sig
urjón Antonsson, Þorfinnur Valdimarsson. — Vigfús Sólberg Vigfússon og Hjalti Þorvarðsson
voru í fríi þessa ferð
2*a herb. íbúð
Til sölu er nýleg, rúmgóð 2ja herbergja íbúð á jarð-
hæð í húsi við Vallargerði í Kópavogi. Sérinn-
gangur. Sérhiti. Frágengin lóð.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgotu 4. — Simi 14314.
Nýkomið
T ery lenebuxur
á drengi og fullorðna á góðu verði.
Verzlun Ó. L.
Traðarkotssundi 3
(á móti Þjóðléikhusinu).