Morgunblaðið - 03.11.1966, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 3. nóv. 1966
i
t
Síld á Siglufirði
SIGLUFIRÐI í október 1966.
Áður fyrr biðum við stór
hópur Siglfirðinga, eftir að
síldveiðiskipin kæmu með
fullfermi síldar frá nálægum
og fjarlægum miðum, en nú
er sá draumur að mestu horf-
inn, að minnsta kosti í bili.
En í staðinn biðum við eftir
að „drekinn" komi fyrir nes,
eins og einn Þingeyingur
kemst að orði ekki alls fyrir
löngu í viðtali við Alþýðu-
blaðið. En þar átti Þingeying-
urinn við síldarflutningaskip
SR. „Haförninn'. Já, og því
skyldum við ekki bíða, við
erum búnir að sjá að „Haf-
örninn" hefur fært okkur
slíka björg í bú, að engan
hefur órað fyrir að orðið gæti.
Ekki aðeins þeim sem beina
vinnu hafa við lestun, losun
og bræðslu þeirrar síldar sem
„Haförninn“ hefur flutt, held-
ur alla bæjarbúa og raunar
þjóðina alla, því ekki væri
allt það síldarmagn, rúmlega
15 þúsund tonn, sem „Haförn-
inn“ hefur flutt til Siglufjarð-
ar, komið á land ef „Haförn-
inn“ hefði ekki komið.
En nóg af því, um daginn
er „Haförninn“ kom með
rúmlega 3300 tonn af síld af
Austfjarðamiðum, datt mér í
hug að skreppa með mynda-
vélina mína ofan í eina lest-
ina, eða einn tankinn réttara
sagt, því þetta er tankskip.
Þarna niðri voru um 12—14
röskir drengir á aldrinum 16
til rúmlega 50 ára, og ekki
veitti af að þeir væru röskir,
því mikið kapp er lagt á að
losa skipið á sem skemmstum
tíma, svo það geti farið sem
fyrst á miðin aftur. Annars
voru um helmingi fleiri niðri
í tank'núna (5. farmi) heldur
en í fyrstu förmunum, en
ástæðan var sú að haust og
vetrarsíldin er allt önnur við-
fangs heldur en sumarsíldin.
Sumarsíldin rennur mikið
betur til í lestunum því bæði
er hún feitari og meira blóð-
vatn í henni, En haust- og
vetrarsíldin á það til að tolla
eins og steyptur veggur, án
þess að renna nokkuð til að
sjálfdáðum, og veitir ekki af
röskum lempurum, en það eru
þeir kallaðir sem lempa
(moka) síldinni að síldarlyft-
unni. Til að byrja með standa
lempararnir í allt að mitti í
síldinni og nota þá 5 álma
síldargaffla til að moka til
síldinni, en þegar tekur að
grynna, þá geta þeir tekið til
fljótvirkari verkfæra, sem eru
einskonar ýtur, upphaflega
framleiddar, held ég til að
ýta snjó af gangstígum o.s.frv.
en hafa reynzt vel í síldinni.
Þetta eru um 160 cm löng
trésköft með járnsköfu á öðr-
um endanum, (ekki vélknú-
in).
Tíminn sem fer í að losa
hvern tankt er allt frá 2—5
tímum, allt undir síldinni
komið, hvernig hún rennur.
Hægt er að losa síld úr „Haf-
erninum“ theð fjórum síldar-
lyftum í senn, eða um 400-500
tonn á klukkustund, ef síldin
er „góð“ (sumarsíld).
S.K.
Vel heppnað námskeið fyrir
blaðamenn í Hasselbyhöll
— Mig var búið
Framhald af bls. 32
eldavélinni, því að ég hafði
ekki tíma til að setja olíu á
hana.
Svo var ég næstum kominn
upp í stórgrýtisfjöru við Ös-
hlíðarvitann og kastaði þá
akkeri, en þar var svoddan
sjógangur, að vírinn kubbað-
ist í sundur. Þá tókst mér að
snúa bátnum á seglum inn á
víkina og var kominn um 10
faðma frá brimbrjótnum,
þetta var á versta tíma, sunnu
dagsmoreun og enginn maður
á ferli. Þá hreif straumur bát
inn og hann rak að landi og
stefndi á stórgrýti. en ég gat
stjakað honum frá og þá
strandaði hann á sæmilegum
■tað.
— Nei, ég var ekkert hrædd
ur. Ég á ekki til hræðslu. Ég
hugsa ekki svo langt. Svo vissi
ég fyrirfram að þetta myndi
allt fara vel. Mig var búið að
dreyma fyrir þessu, að eitt-
hvað myndi koma fyrir, og
inér fannst draumurinn þann
ig, að ég hafði engar áhyggj-
ur og að ég vissi að allt myndi
fara vel. Já, mig dreymir oft.
Ef eitthvað á að koma fyrir,
þá dreymir mig alltaf fyrir
því, og þá er mér alltaf óhætt
að treysta á drauminn. Ég
hefi tekið eftir því að það kem
ur fram.
Nei, ég var ekkert þreyttur
eða syfjaður. Ég svaf sama
eg ekkert og maður verður
ekkert syfjaður, þegar maður
fer að vaka svona. Þetta kem-
ur allt af sjálfu sér. Maður
finnur ekkert fyrir bessu, þeg
ar ekkert er unnið. Annars
var ég af og til að ’-enna og
fékk fisk og fisk Ég hafði
nógan mat, en það voru bara
eldspýturnar, sem kláruðust.
Þeir segja þarna í Moggan-
um að ég sé ekki á þjóð-
skránni. Það getur verið. Ég
veit ekkert hvernig stendur á
því. Eiga ekki nrestarnir að
tilkynna þetta, Ég átti heima
i Bjargarkoti í Fliótshlið og
er nú skrifaður á Flókastöð-
um. Það yæri svo sem ágætt
að vera hvergi skrifaður, en
ég er búinn að fá útsvarsseðil-
inn úr Fljótshlíðinni. Nei,
þeir legg.ia á mann þó maður
sé ekki á þjóðskránni.
Já, ég held áfram á færun-
um. Báturinn fer í slipp á
morgun og hann er lítið
skemmdur og þegar búið er að
gera við hann held ég áfram á
færum. Ég er búinn að vera
mikið á sjó um ævina, bæði
á togurum og bátum, en þenn-
an bát keypti ég af Fiskveiða-
sjóði og hef róið hérna fyrir
vestan, því að mér lízt vel á
fiskinn, hérna út af Vestfjörð-
unum.
— H.T.
— Hörð átök
Framhald af bls. 32
son, Guðmundur Vigfússon og
Guðmundur Hjartarson.
Talið er að Eggert Þorbjarn-
arson, Páll Bergþórsson og Brynj
ólfur Bjarnason hafa sameigin-
lega hlotið 35 fultrúa af 52 og
þar með tryggt sér undirtökin á
þinginu.
Þessi miklu átök innan Sós-
íalistaflokkurinn áttu sér stað ein
mitt um þær mundir sem lands-
fundur Alþýðubandalagsins
stendur.
Skrifbók fyrir
7 og 8 ára börn
RÍKISÚTGÁFA námsbóka hefur
gefið út nýja Skrifbók eftir
Marinó L. Stefánsson, kennara.
Þetta er 1. hefti, einkum ætlað
7 og 8 ára nemendum. í því eru
nokkrar undirbúnings- og liðkun-
aræfingar, hentugar til að þjálfa
og mýkja hreyfingar fingra, hand
ar og handleggs, áður en eiginleg
skriftarkennsla hefst og jafn-
framt henni. Þá er í heftinu litla
stafrófið og smáorð, eins og
námsskrá gerir ráð fyrir, að
kennt sé í I. bekk.
Nokkrar teikningar eru í heft-
inu. — Prentun annaðist offset-
prentsmiðjan Litbrá hf
DAGANA 29. og 30. október sl.
var haldið námskeið fyrir norr-
æna ritstjóra og blaðamenn í
Hásselby-höll við Stokkhólm.
Námskeiðið var haldið á veg-
um Norðurlandaráðs og Norræna
blaðamannaskólans í Árósum.
Til námskeiðsins var boðið
þátttakendum frá 6 dagblöðum
í Danmörku, Finnlandi, Noregi
og Svíþjóð, en tveim dagblöðum
á Islandi.
Á námskeiðinu voru fluttir
EUert B. Schram
Nýr skrifstofu-
stjóri borgar-
verkfræðings.
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi fyrir skömmu að ráða
Ellert B. Schram, lögfræðing,
hinn kunna knattspyrnumann, í
embætti skrifstofustjóra borgar
verkfræðings Reykjavíkur. Tók
Ellert við stöðunni af Heíga
Jónssyni þann 1. nóvember sl.
fyrirlestrar um samband Norður
landaráðs við dagblöðin, frétta-
öflun og fréttamiðlun í og milli
Norðurlandanna og mikilvægi
blaðanna fyrir þróun norrænn-
ar -samvinnu. Þá var flutt erindi
um norræna blaðamannaskólann
í Árósum og reynsluna af hon-
um. Á eftir fyrirlestrunum voru
umræður.
Þeir, sem fluttu fyrirlestra á
námskeiðinu voru K. A. Fager-
holm, Helsingfors, Einar Ger-
hardsen, Osló., Gunnar Næsse-
lund, Kaupmannahöfn, Gustaf
Pétrén, Stokkhólmi, Oddvar
Hellerud, Osló, Erik Raske-
Nielsen, Árósum og Arnulf
Ingebrigtsen, Osló.
Námskeiðið setti Svíinn Leif
Cassel, varaformaður Norður-
landaráðs, Þátttakendur bjuggu
í Hásselby-höll á meðan á nám-
skeiðinu stóð, en það þótti tak-
ast með afbrigðum vel og hafa
Kosygin til
Frnkklnnds
í desember
Moskvu 27. október. — AP.
ALEXEI Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna mun fara
i opinbera heimsókn til Frakk-
lands fyrri hluta desembermán-
aðar. Var skýrt frá þessu af
hálfu sovétstjórnarinnar i dag.
Leonid Brezhnev, formaður
sovézka kommúnistaflokksins og
Nikolai Podgorny forseti Sovét-
ríkjanna munu fara til Frakk-
lands einhvern tíma á árinu
1967.
De Gaulle Frakklandsforseti
bauð sovézku leiðtogunum í opin
bera heimsókn til Frakklands, er
hann heimsótti Sovétríkin í júní
síðastL
verið hið gagnlegasta.
íslenzku blaðamennirnir, sem
námskeiðið sóttu, voru þeir
Andrés Kristjánsson, Tímanum,
og Björn Jóhannsson, Morgun-
blaðinu.
Sjálfstæðisfélag
Kópavogs
ABALFUNDUR félagsins ve ður
haldinn í Sjálfstæðishúsi Kópa-
vogs, Borgarholtsbraut 6, þriðju-
daginn 8. nóvember kl. 8.30. Á
fundinum mætir Jóhann Haf-
stein iðnaðarmálaráðherra og
ræðir um stjórnmálaviðhorfið.
Stjórnin.
Arabar í atvinnu-
leit
TVEIR ungir, arabískir mennta-
menn litu inn á ritstjórn blaðs-
ins fyrir skömmu, en þeir eru
nýkomnir til landsins í leit að
atvinnu við hæfi.
Þessir menn eru Jdidi Abdel-
krim frá Rabet í Marokkó, hag-
fræðingur að mennt og Jourani
Abdelkader frá Casa Blanca, lög-
fræðingur. Ástæðuna fyrir því,
að þeir komu til íslands kváðu
þeir félagar vera þá, að þeir
hefðu mikið lesið sér til um land
ið, væru hrifnir af sögu þess og
bókmenntaarfi og vilja báðir
læra íslenzku. Þeir eru báðir
miklir tungumálamenn og hafa
á yaldi sínu arabísku, frönsku,
spönsku, sænsku og tala dönsku
allsæmilega.
Arabarnir eru nýkomnir til
landsins og dvelja sem stendur
hjá Hjálpræðishernum. Héðan
kváðust þeir mundu halda á
næsta ári til Kanada og Banda-
ríkjanna.