Morgunblaðið - 03.11.1966, Síða 23
Fímmtudagur 3. n8v. 1988
MORCU N BLADIÐ
23
NORRÆNIR XÓNL.EIKAR
SINFÓNÍU-
HL J ÓMS VEIT ARINNAR
Það var óneitanlega heldur
drungalegur blær yfir sinfóníu-
tónleikunum sl. fimmtudags-
kvöld, og voru þeir þó kallaðir
„hátíðatónleikar" í tilefni af því
að tveir áratugir eru liðnir frá
etofnun hins svo nefnda Norræna
tónskáldaráðs. Eðlilegt mátti
telja, þegar þessa tilefnis er
gætt, að flutt yrðu eingöngu
verk eftir norræn tónskáld á
þessum tónleikum. En hitt orkar
fremur tvímælis, sem mér er
tjáð, að þar hafi þótt sjálfvalin
til flutnings verk eftir þá menn,
sem teljast stofnendur tónskálda-
ráðsins, einn af hverri Norður-
landaþjóð, og eru þeir þó vafa-
laust alls góðs maklegir hver
í sínu lagi. En verk þeirra eru
bæði misjöfn að gæðum og virð-
ast auk þess einhvern veginn
ekki „klæða hvert annað“, þegar
þau koma saman á efnisskrá.
Hefði verið lítill vandi að setja
saman norræna efnisskrá, sem
hefði verið allt í senn: áheyri-
legri, fjölbreyttari, samhæfðari
og stórum áhugaverðari en sú,
sem hér var flutt.
Viðfangsefnin voru: Tilbrigði
um sarabande eftir Knud&ge
Riisager (Danmörk), „Guðrún
ósvífursdóttir", 2. þáttur „Sögu-
sinfóníunnar“ eftir Jón Leifs
.(ísland), Píanókonsert nr. 2,
„Fljótið“ eftir Selin Palmgren
(Finnland), „Pan“, sinfónískt
ljóð, eftir David Monrad Johan-
sen (Noregur) og loks „Tónverk
fyrir hljómsveit" eftir Lars-Erik
Larsson (Svíþjóð). Stjórnandi
var ungur norskur hljómsveitar-
stjóri, Sverre Bruland, og ein-
leikari finnskur píanóleikari,
Kurt Walldén.
Riisager er einn virðulegasti
fulltrúi danskra tónskálda, og
mörg verka hans hafa vakið at-
hygli víða um heim. En tilbrigði
þau sem hér voru flutt eru ekki
í þeirra hópi, enda bera þau
flest einkenni æskuverks. — Um
„Sögusinfóníu“ Jóns hefi ég áð-
ur skrifað langt mál hér í blað-
ið og sé ekki ástæðu til að end-
urtaka það nú. En sá grunur
gerði vart við sig, að einstakir
þættir verksins muni vera væn-
legri til flutnings en verkið allt
í sinni óhóflegu og tilbreytinga-
snauðu lengd, og má líka vera,
að þessi þáttur þess sé sá, sem
áheyrilegastur er. — Verk Palm-
grens er ekki píanókonsert í
neinum venjulegum skilningi
þess orðs, heldur hljómsveitar-
fantasía eða rapsódía með
„obligat" pianói, býsna „bólgin“
bæði á lengd og breidd, ef svo
mætti segja, en ekki áhugavekj-
andi að sama skapi, þótt margt
fallegt komi þar fyrir. — Verk
Monrad Johansens er dregið
miklu skýrari dráttum og náði á
köflum verulegum áhrifamætti,
þótt áhrifameðulin væru vel
kunn, ekki sízt úr hliðstæðum
verkum annarra síð-ómantískra
fónskálda. — Lars-Erik Larsson
hefir um áratugi verið meðal
hinna þekktustu sænskra tón-
skálda, og þótt þetta hljómsveit-
arverk hans sé ekki stórvirki,
gefur það þó nokkra hugmynd
um kosti höfundar síns, að
minnsta kosti á vissu aldurs-
skeiði, ekki sízt hinn ljóðræni
miðþáttur verksins.
Einleikarinn, Kurt Walldén,
skilaði erfiðu en heldur van-
þakkláfu hlutverki með miklum
myndarbrag, en nokkurt ósam-
komulag um hraða spillti flutn-
ingi konsertsins. Hljómsveitar-
stjórinn, Sverre Bruland, kom
annars einkarvel fyrir og mun
yfirleitt hafa gert úr því efni,
sem fyrir lá, allt sem til stóð.
FINNSKUR KVENNAKÓR
I AUSTURBÆJARBÍÓI
Kvennakór alþýðunnar I Hels-
ingfors hafði hér stutta viðstöðu
áleið vestan um haf og hélt
söngskemmtun í Austurbæjar-
bíói sl. laugardagskvöld. Söng-
skráin hófst á nokkrum lögum
eftir 17. aldar höfunda, síðan
komu þjóðlög og loks mörg lög
eftir Sibelius og önnur finnsk
tónskáld 20. aldar. Mestallt var
þetta sungið á finnsku, og á því
máli var efnisskráin líka, svo að
flestum íslenzkum áheyrendum
mun hafa verið ofraun að fylgj-
ast nákvæmlega með þvi, sem
hér fór fram. En söngurinn var
hreinn og menningarlegur, ekki
stórbrotinn eða tilþrifamikill, en
áheyrilegur í bezta lagi. Söng-
stjóri kórsins er finnska tón-
skáldið Ossi Elokas, en í for-
föllum hans stjórnaði Maija-
Liisa Lehtinen kórnum að þessu
sinni og fór það mjög vel úr
hendi. Hún er ágætur söngstjóri,
nákvæmur og fumlaus. Ein-
söngvarar voru Orvokki Kalli-
omáki og Anneli Laitia, og áttu
þær sinn þátt í að auka ánægj-
una af þessum tónleikum.
Jón Þórarinsson.
Byggingar-
verkfræðingur
óskast til að gegna starfi byggingafulltrúa í
Keflavík. Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknir sendist skrifstofu minni
fyrir 15. nóv. n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavik.
IJtboð
Tilboð óskast um sölu á 30.000 rúmmetrum af fyll-
ingarefni komnu í grunna iðnaðarbygginga á svæði
IÐNGARÐA h.f.
Útboðslýsingar má vitja á skrifstofu vora,
Sóleyjargötu 17, virka daga nema laugardaga, milli
kl. 9 og 12.
H.f. Útboð og samningar.
Skyndisala i 2 daga
Nýjar vörur teknar upp i dag.
BARNAFATAVERZLUNIN LÓAN
Laugavegi 20 B.
(Gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg).
Skrifstofustúlka
oskast
Fjármálaráðuneytið, fjárlaga og hagsýslustofnun,
óskar eftir að ráða stúlku. Vélritunarkunnátta og
nokkur kunnátta í ensku og einhverju Norðurlanda-
máli nauðsynleg. Umsóknir sendist Fjármálaráðu-
nej tinu Arnarhvoli fyrir þriðjudaginn 8. nóvember.
Uppl. í síma veitir Örn Marinósson milli kl. 15 og 16.
T résmíðaverkstæði
getur bætt við sig verkefni í innréttingarvinnu.
Tilboð merkt: „Vönduð vinna — 8878“ sendist afgr.
Mbl. fyrir iaugardag.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Faxaskjól
Lynghagi
Kleifarvegur
Ásvallagata
F oss vogsblettur.
Skerjafjörður sunnan
flugvallar
Sörlaskiól
Rauðagerði
Tahð við afgreiðsluna síini 22480.
Model 800, sem er alveg nýr
á markaðnum, hefur fengið mjög
góða dóma í byssu- og veiðitíma-
ritum í Bandaríkjunum.
Útsölustaðir: Vesturröst hf, Garðar-
stræti 2, Rvk., Kaupf. Borgfirðinga,
Kaupf. Héraðsbúa, Kaupf. Aústur
Skaftfellinga, Höfn, Hornaf., Kaupf.
Fáskrúðsf j arðar.
MODEL 800
skota
Cal. 243, sem er ein-
hver beinskeyttasta
kúlan, sem völ er á.
Nýtízkulegur,
léttur og
nákvæmur.
Model 800 er með
hinni vel þekktu og
nákvæmu AC-KRO-Gruve
borun, sexfaldri öryggis-
læsingu, örygginu ofan á,
raufar fyrir sjónauka-
festingu, Monte Carlo
skefti úr úrvals amerískri
hnotu etc.
Model 500 og ýmsar gerðir af
Mossberg rifflum í stærðum
Cal .22 short, long, long rifle
og .22WMR Magnum, eru enn
fremur fyrirliggjandL
haglabyssur.
Skrifstofustarf
Stúlka óskast til skrifstofustarfa nú þegar.
Vélritunarkunnátta áskilin.
E. TH. MATHIESEN H.F.
Vonarstræti 4 — Sími 36570.
10 tonnu Scnnin Vnbis
týpa 66 árg 1966 lítið ekinn og í fyrsta flokks standi.
Benz vörubifreiðir 1413 árg. ’65 og ’66.
BÍLASALA MATTHÍASAR
Höfðatúni 2 — Símar 24540 og 24541.
Byggingaverkfræð-
ingur óskast
til starfa hjá Kópavogskaupstað. Umsóknir sendist
undirrituðum fyrir 15. nóvember n.k.
Kópavogi, 1 .nóvember 1966.
BÆ JAR VERKFRÆÐIN GUR.