Morgunblaðið - 04.11.1966, Side 11
Föstudagur 4. növ. 1966
MORGU NBLAÐIÐ
11
Tónlist;
Kaffihússkeimur
ÞAB er auðsætt, að Tónlistarfé-
lagið hefur ætlað sér að bæta
upp með snarheitum, það sem
óhjákvæmilega féll úr af tón-
leikum þess nú í haust. Varla
var sovézki strokkvartettinn fyrr
farinn út úr Austurbæjarbíói, en
inn gekk Shura Cherkassky til
•ð leika Chopin-tónleika á
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Cherkassky er langt frá því
ókunnugur íslenzkum tónleika-
gestum, hann kom hér fyrir
mörgum árum, og skildi eftir í
kjölfarinu margar furðusagnir,
er hafa verið á kreiki æ síðan.
Á þessum Chopin-tónleikum
núna» lék hann 24 prelúdíurnar,
h-moll sónötuna, tvær noktúrn-
ur, tvo mazúrka, As-dúr pólónes-
una — og tvær etýður í kaup-
bæti. Cherkassky fer sannarlega
eínar leiðir, og við því er í
sjálfu sér ekkert að segja. (Tón-
leikarnir hefðu betur verið
nefndir „Cherkassky-tónleikar").
Frjálsræði túlkandans hefur ver-
ið á stöðugu undanhaldi sein-
ustu áratugi. Á sumum sviðum
er svo langt gengið, að sá þykir
(af fjölda fólkg) snjallastur, sem
kaldranalegast og dauðyflislegast
getur tínt fram nótur — en svo-
leiðis er oft að finna meðal ým-
issa, sem sérhæfa sig í mjög
gamalli tónlist. Svo er á hinn
bóginn hið gagnstæða, flutning-
ur, sem tekur út yfir allan
þjófabálk, að skráðar hugmynd-
Fjaðiir, fjaðrablóð. hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
Eyjólfur K. Sigurjóusson
löggiltur endurskoðandi
Fiókagötu 65. — Simi 17903.
ir tónskálda eru svo ýktar og af-
skræmdar, að engu lagi líkjast.
í>ess sinnis er Cherkassky, hann
á það til að fara í hina sér-
vizkulegustu útúrdúra. Fingur
hans kunna sér ekki hóf, en
hann þarf sífellt að sýna, að
þeir geta afgreitt „allar þessar
runur“ á mettíma. í>að tilfinn-
ingasvið, sem hann setur Chopin
á, ber kaffihússkeim.
Setjarinn gerði mér þann
grikk í seinasta pistli, að setja
orðið „kommúnisti“ í stað
„kompónisti“, og bið ég lesand-
ann að afsaka það.
FÉLAGSLÍ F
Knattspyrnufélagið Þróttur
Æfingatafla veturinn 1966-67
Knattspyrnudeilð:
Mfl. og 1. fl.
íþróttahöllin Laugardal
Laugardagar 5.30—6.30.
2. flokkur
Hálogaland
Laugardagar 14.45—15.20.
3. flokkur
Hálogaland
Mánudagur 8.30—9.20.
4. flokkur
Réttarholtsskóli
Laugardagar 16.20—17.20.
5. flokkur
Réttarholtsskóli
Laugardagar 15.30—16.20.
Handknattleiksdeild:
3. flokkur
Hálogaland
Mánudaga 7.40—8.30.
Mfl., 1. fl. og 2. fl.
Miðvikudaga 6.50—8.30.
2. flokkur
Föstudaga 10.10—11.00.
íþróttahöllin Laugardal:
Mfl., 1. fl. og 2. fl.
Laugardaga 6.20—7.10.
Mætið vel og stundvíslega og
verið með frá byrjun.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Verzlunarhúsnæði
til leigu, ca. 50 fermetrar. Hentugt sem t. d. tann-
læknastofa eða önnur hliðstæð starfsemi. Tilboð
merkt: „Austurbær — 8041“ sendist Mbl. fyrir
7. október.
Kopavogur
Tvo reglusama skólapilta vantar herbergi í Austur-
bæ. — Upplýsingar í síma 40167.
THRIGE Rafmagnstalíur
— fyrirliggjandi —
200 — 400 — 500 — 1000 —
2000 kg. talíur — 220/380 V.
Otvegum með stuttum fyrir-
vara: allt að 10 tönna talíur
ásamt krönum.
THRIGE merkið tryggir gæðin!
Einkaumboð:
!h r- ^ 1
LUDVIC STORI ij
1 A
Laugavegi 15,
Sími 1-1620 og 1-3333.
Atvinna
óskum eftir eftirfarandi starfsmönnum:
Deildarstjóra í raftækja- og útvarpsdeild. —
Málakunnátta nauðsynleg, tæknimenntun æskileg.
Solumann í þungavinnuvélum og vörubifreiðum.
Málakunnátta nauðsynleg, a.m.k. Norðurlandamál.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur
og fyrri störf, sendist skriflega fyrir 7. nóv. nk.
untiai Lf.
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Símnefni: Wolvert - Sími 35200
HJARTAGARN
BRI - NYLON
BABY - GARN
— margir litir —
Verzl. Reynimelur
Bræðraborgarstíg 22.
Sími 1-30-76.
FÍFA
nuglýsir
Nýkomið frá Danmörku:
Plíseruð terylene-pils á 2—10
ára, kjólar úr rifluðu flaueli
á 2—6 ára, telpnaúlpur á
2—10 ára, drengja terylene-
buxur á 2—16 ára, vandaðar.
stretch-buxur 1 stærðunum
36—46.
Verzlið yður i hag.
Verzlið í Fífu.
Verzlunin FlFA
Fiskiskip
óskast til kaups
Við höfum kaupendur með miklar útborganir og
góðar tryggingar að nýlegum stálskipum ca. 200
lesta.
Uppl. í síma 18105 og utan skrifstofutíma 36714.
FASTEIGNIR og FISKISKIP,
Hafnarstræti 22.
Fasteignaviðskipti Björgvin Jónsson.
Lyfjaverzluii ríkisins
óskar að ráða bílstjóra. — Upplýsingar á skrif-
Laugaveg 99
(Inngangur frá Snorrabraut).
stofunni Borgartúni 7, föstudag 4. nóv., kl. 2—3 e.h.
HACLABYSSAN, MIÍDEL 500 - 1H-Sauge
6 skota með 30” htaupi fyrir 23A” og 3” Magnum eða venjuleg haglaskot, er
talin vera með traustustu „Pump Repeater" haglabyssum á markaðnum í Banda-
ríkjunum. Hlaupin eru úr völdu byssustáli og prufureynd. Falleg djúp byssu-
blá áferð. Skeftið er úr ekta amerískri hnotu með „Recoil Cushion". Öryggið
er ofan á — mjög þægilegt fyrir þumaifingurinn. Ýmís aukahlaup fáanleg.
Margar tegundir af Mossberg rifflúm í stærðum cal. 22 short, long og long
rifle og hinni nýju stærð 22WMR Magnum fyrirliggjandi.
Hinn nýi „High Power“ riffill frá Mossberg Model 800 Cal .243 5 skota, er ný-
kominn. Riffill þessi, sem er alveg nýr, hefur fengið mjög góða dóma í byss-
og veiðitímaritum í Bandaríkjunum.
Útsölustaðir: Vesturröst hf., Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupf. Héraðsbúa,
Kaupf. Langnesinga, Kaupf. Berufjarðar, Kaupf. Fáskrúðsfjarðar, Kaupf.
Vopnfirðinga, Kaupf. Þingeyinga, Kaupf. Austur Skaftfellinga, Sportvöruv.
Brynjólfs Sveinssonar, Akureyri, Verzi. Marselíusar Bernharðssonar, ísaf. og
Verzlun Elísar Guðnasonar, Eskifirði.