Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 1
263. tbl. — Miðvikudagur 16. nóvember 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins Gemini 12 lenti 5 km frá „Wasp“ Geimfararnlr Edwln A. Aldrin (t.v.) og James A. Lov ell um borð í flugvélamóður- skilinu „WASP", að lokinni vel heppnaðri geimferð með Gemini 12. — AP., 15. nóv. Kennedyhöfða, 15. nóv. — NTB — AP — | BANDARÍSKA geimfarið Gemini 12 með þeim James A. Lovell og Edwin E. Aldrin innanborðs, lenti í Atlants- hafinu vestanverðu laust fyr- ir klukkan hálfsjö í kvöld að íslenzkum tíma. Kom geim- farið niður um fimm kíló- metra frá herskipinu „Wasp“, sem beið þess og tók geimfar- ana upp von bráðar. t Sjónvarpað var frá lend- ingunni, allt frá því fallhlíf geimfarsins opnaðist og fylgd ust milljónir manna með því, er það sveif niður. Hvasst var þegar geimfarið lenti og nokk ur sjór og vaggaði það því hressilega á öldunum, en lend ingin gekk í alla staði snurðu- laust og voru mennirnir tveir hinir hressustu, þegar þeir komu um borð í herskipið. Geimför Geminis 12 stóð yfir í 93 klukkustundir. Hún var í heild mjög vel heppnuð, þrátt fyrir ýmis smáóhöpp, — að sögn talsmanna geimvísindamanna á Kennedyhöfða ein bezt heppn- aða Geimini tilraunin, sem gerð hefur verið. Eins og frá hefur verið skýrt, var þetta einnig síðasta Gemini tilraunin í bráð. Nú tekur við nýr tilraunaflokkur, sem nefn- ist Apollo — til undirbúnings ferða manna til mánans. Þeir Lovell og Aldrin fara til Kennedyhöfða á miðvikudag. Kosningar í Brazilíu : Þinpaöur stjórnar- andstööunnar myrtur Rio de Janeiro, 15. nóv AP — NTB. ÞINGKOSNINGAR fóru fram f Brazilíu í dag. Fór allt fram með kyrrum kjörum á kjörstöð um, en síðdegis bárust þær fregn ir, að einn af þingmönnum stjórn arandstöðunnar, Joao Rocha, hefði fundizt myrtur í skrifstofu sinni í Rio de Janeiro. Rocha hafði með höndum stjórn á kosn ingabaráttu Janios Quadros, fyrr um forseta, er hann var í fram- boði til forsetaembættisins árið 1964. Lögreglan í Rio de Janeiro Framhald á bls. 31. Fyrstu viðræður Kies- ingers og Brandts í gær Frjálsir demókratar lýsa yfir samstöðu með jafnaðarmönnum Bonn og Niirnberg, 15. nóv. NTB. KANZLARAEFNI kristilegra demókrata í Vestur-Þýzkalandi, Kurt Georg Kiesinger átti í dag sinn fyrsta fund með leiðtoga stjórnarandstöðunnar Willy Brandt formanni jafnaðarmanna flokksins um lausn stjórnardeil- unnar í landinu. Fundurinn stóð í þrjá tíma, en ekki náðist á hon um neinn árangur. Samtímis kunngerði flokkur frjálsra demókrata, sem var áð- ur samstarfsflokkur kristilegra demókrata í ríkisstjórninni, nýja stefnuskrá á flokksþingi í Niirnberg, þar sem stórt skref er stigið í áttina til grundvallar Berlín, 15. nóv. — NTB — AP — * BANDARÍSK flutninga- þota af gerðinni Boeing 727 frá Pan American Air- ways fórst í nótt í Austur- Þýzkalandi og með henni þrír menn. Fórst vélin rétt áður en hún átti að lenda á Tegel- fyrir því að mynda „litla sam- steypustjórn“, þ.e. samsteypu- stjórn frjálsra demókrata, FDP og jafnaðarmanna, SPD. 1 kvöld var það einmitt skoðun stjórn- málasérfræðinga í Bonn, að þetta mundu verða lausn stjórn- arkreppunar, enda þótt það kynni að taka sinn tíma enn. Þess var ekki vænzt, að neinn beinn árangur myndi nást af fyrsta fundi Kiesingers og Brandts. Báðir aðilar munu hafa skýrt sjónarmið sín hvor fyrir öðrum á fundinum og urðu sammála um að efna til nýs fund ar með sér á föstudag. Engin endanleg ákvörðun verður sennilega tekin á þeim fundi, flugvellinum í V-Berlín. Flugvélin var á leiðinni frá Frankfurt með um 5—6 lestir af pósti. Hún var í sambandi við Tegel-flugvöll og var að undir- búa lendingu. Talsmaður Banda- ríkjamanna í Berlín segir, að skyggni hafi verið mjög slæmt, aðeins um 600 metrar, en vélin muni hafa veri'ð komin ofan í 150 Framhald á bls. 31. því að allir stjórnmálaflokkarnir bíða úrslitanna í kosningum þeim, sem fram eiga að fara á sunnudag til fylkisþingsins í hinu mikilvæga sambandsríki Bajaralandi, áður en þeir taka nokkrar ákvarðanir varðandi stjórnarkreppuna, sem þeir síð- an yrðu bundnir af. Viðræður Kiesingers og Brandts í dag snerust einkum um utanríkis- Og öryggismál svo og um endursameiningu Þýzka- lands, að því er upplýst var eftir fundinn. Áður en næsti fundur Framhald á bls. 31. / Hagur Breta að vænkast? London, 15. nóv. NTB - AP. VIÐSKIPT AJ ÖFNUÐUR Breta við útlönd varð hagstæðari í síð- asta mánuði en verið hefur um þriggja ára skeið, eða um 29 milljónir sterlingspunda. í sept- ember sl. var viðskiptajöfnuð- urinn óhagstæður um 20 milljón- ir punda og á síðustu þremur ár- um hefur viðskiptajöfnuður að- eins þrisvar sinnum verið hag- stæður. Að sögn sérfræðinga sýnir þetta að byrjað er að færast jafnvægi yfir brezkt efnahags- líf, en talsmaður stjórnarinnar varar við of mikilli bjartsýni. Á það er hinsvegar bent að við- skiptajöfnuðurinn hafi verið ó- hagstæður um 54 milljónir sterlingspunda í júní sl. en síð- an hafi gengið æ betur. Bandarísk Boeing þota fórst í A- Þýzkalandi Þriðji lögreglumorðinginn fundinn skammt frá London London, 15. nóv. — AP — NTB — t í MORGUN var hand- tekinn skammt frá Lon- don Harry Maurice Rob- erts, einn mannanna Þrigfgja; sem taldir eru hafa myrt lögreglumenn- ina brezku á miðri götu í London í sumar. Roberts hefur verið leitað frá því^. 12. ágúst sl. og er þetta með lengstu leitum brezku lögreglunnar að afbrota- manni. Roberts fannst í skóglendi, svokölluðum Matham’s wood um 40 kílómetra norður af London. Lögreglunni hafði borizt fregn af manni nokkr- um, skuggalegum útlits, er hefðizt þar við í tjaldi og um- kringdu þeir tjaldstaðinn í dögun í morgun. Um 260 lög- reglumenn, vopnaðir og með hunda, tóku þátt í aðförinni að Roberts, sem reyndi í fyrstu að flýja en gafst fljótt upp, er hann sá að mótspyrna var þýðingarlaus. Roberts hafði búið ágæta Harry Maurice Roberts vel um sig í tjaldi sínu og það var vel falið í skógarþykkn- inu. Hafði Roberts greinilega notað sér reynslu sína, sem skæruliðshermaður í Malays- iu, er hann kom sér fyrir. Tjald hans var vandlega fal- ið í u.þ.b. 10 fermetra rjóðri í skógarjaðrinum. Hann hafði hjá sér matarbirgðir og nóg af fatnaði, nýjustu dagblöðin og ýmislegt persónulegra muna. Hann var hinsvegar órakaður og óhreinn, er hann fannst. Harry Maurice Roberts er þrítugur að aldri. Hann er ásamt tveimur öðrum mönn- um; John Duddy, 37 ára og Edward Whitney, 36 ára, tal- inn hafa drepið lögreglu- mennina brezku, þar sem þeir voru á verði á götu í London. Duddy og Whitney voru handteknir þegar viku eftir 'lögreglumorðin og hófust rétt arhöld í máli þeiiira í gær, mánudag. Þeir voru fyrir rétti í dag, er fregnin barst þangað um að Roberts væri fundinn. Var réttarfundi þá frestað um óákveðinn tíma. Saksóknari ríkisins Sir Glyn Jones sagði við upphaf réttarhaldanna í gær, að sennilega hefði Roberts skotið tvo lögreglumannanna, en en Duddy hinn þriðja, — en allir hlytu p eir að teljast samábyrgir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.