Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 16. nóv. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM sent starfsmenn sem vinna við hávaðasama iðnað til rannsóknar á stöðinni. — Það veltur á miklu að taka börnin sem fyrst til með ferðar og sjá þeim fyrir heyrnartækjum, svo að pau venjist þeim sem fyrst og að tækin komi þeim að notum á þeim aldri sem börn læra að tala, sagði borgarlæknir. Ennfremur sagði borgaiækn ir að fljótt hefði komið í l.iós að hér var um heilbrigt starf að ræða og sýndi Zontaklúbb urinn því stöðugt áhuga og kostaði hann B rgi Ás Guð- mundsson, kennara, til náms í meðferð heyrnatækja og ráð leggingastörfum fyrir heyrn- ardaufa og fjölskyldur þeirra. Kom Birgir heim til s‘arfs s.l. vor. Kom hann með tæki til framleiðslu á hlurtastykkj- um og nýjan heyrnamæii til mælinga í skólum, sem Zontaklúbburinn hefur lagt heyrnastöðinni til. Enni'remur hefur Zontaklúbburinn feng- ið hingað heim þekkta danska sérfræðinga á þessu sviðv til fyrirlestrahalda, Dr. Röjskær, 1960 og Dr. Ole Bentzen 1964. I vor kom einnig heim frvV námi vestanhafs Gylfi Bald- ursson, með meistaragráðu í tallækningu og heyrnarfræði. Með komu þessara tveggja sér menntuðu manna, gafst Heilsuverndarstöðinni tæki- færi til að auka að verulegu leyti starf deildarinnar og koma á stofn heyrnarstöð. í því skyni hafa verið gerðar breytingar hér á stöðinni in.a. komið upp nýjum hljóð- einangruðum klefa til rannn- sóknar. Með þessu hefur gef- izt aðstaða til miklu víðtæk- ari starfs en verið hefur, t.d. til nákvæmari meðferðar, út- hlutunar á heyrnartækjum og þjálfunar á meðferð þeirra og til hóprannsókna. Frk. María Kjeld hætti störfum s.l. vor en nú vinna við heyrnastöðina auk Erl- ings Þorsteinssonar áðurnefnd ir sérmenntaðir menn, sagði borgarlæknir að lokum. Mikilvægt aö börn fái heyrnartæki nógu snemma - segir borgarfiæknir í viðtali um heyrnarstöðina í tieilsuverndarstöðinni dr Jón sigur«Sson. skemmtuninnl í kvöld, vonast klúbburinn til að geta aflað fjár til aukinnar aðstoðar við þá heyrnarstöð. í gær leit tíðindamaður á Morgunblað- inu inn í Heilsuverndarstöð- ina, skoðaði heyrnarstöðina og átti tal við borgarlækni, Borgarlæknir sagði m.a. að Zontaklúbburinn hefði átt mikinn þátt í því að hér í borginni var komið á fót heyrnardeild. Klúbburinn styrkti árið 1960 Frk. Maríu Kjeld til náms í heyrnarmæl- ingum Heilsuverndarstöðin keypti ennfremur heyrnar- mælitæki, sem hægt er að flytja með sér og réði Frk. Kjeld til að taka að sér að mæla heyrn barna í skólum. Ennfremur skyldi Frk. Kjeld vinná að nákvæmari heyrn- mælingu með áðurnefndum tækjum í Heilsuverndarstöð- inni undir yfirstjórn Erlings Þorsteinssonar, eyrnalæknis. Þá sagði Borgarlæknir að aðalstarf héyrnarstöðvarinn- ar hafi verið að rannsaka börn á unga aldri og þá helzt und- ir eins og grunur lægi á að um heyrnardeyfu væri að ræða og svo börn á skólaskyldualdri. Ennfremur hefur heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkurborgar Borgarlæknir, dr. Jón Sigurðsson ZONTAKLÚBBURINN í Reykjavík heldur í dag upp á 25 ára afmæli sitt. í þvi tilefni heldur klúbburinn skemmtun í Súlnasal Hótel sögu í kvöld. Mun allur ágóði af skemmtuninni renna til hjálpar heyrnardaufum, en klúbburinn hefur það mark- mið að hjálpa mál- og heyrn- arlausu fólki, styrkja það tli starfa eða náms og á annan hátt. Hefur klúbburinn lagt fram fé til kaupa á tækjum og til þjálfunar starfsfólks, sem leiddi tii þess að komið var á fót heyrnarstöð í sam- vinnu við stjórn Heilsuvernd arstöðvar Reykjavíkur. Með Myndin sýnir Gylfa Baldursson (til vinstri) og Birgi Ás. Guðmundsson ásamt heyrnarmælingatækinu, sem Zonta- klúbburinn gaf Heilsuverndarstöðinni. Þetta er ein síða úr Ævintýrl barnanna. Sagan um Geiturnar þrjár. Af stærð myndarinnar má geta sér til um hið sérstæða brot bókarinnar. Nýjar bækur frá .. Æskunni “ BÓKAÚTGÁFA Æskunnar hef- ur sent frá sér tvær nýjar bæk- ur. Áður eru komnar út sex barna- og unglingabækur hjá útgáfunni á þessu hausti. Nýju bækurnar eru: Ævintýri barnanna. í þessari bók eru 24 fræg æv- intýri og 172 myndir. Ævintýr- in eru: Rauðhetta, Húsamúsin og hagamúsin, Sætabrauðsdreng urinn, Heimska stúlkan, Ljóti andarunginn, Þrir bangsar, Geit urnar þrjár, Ofur litla konan, Fjörutíu KONA kom eitt sinn á skrif- stofu mína og ræddi við mig um vandamál. Þá segir hún m.a. — ég ætla að gefa Grund nokkra fjárupphæð, sem ég fæ bráðum, til starfseminnar, ég þarf ekki á þessum peningum að halda. Eg þakkaði auðvitað konunni vin- semd hennar, og síðan varð þetta ekki lengra í það skiptið. Litla rauða hænan og refurinn, Ungi litli, Úlfurinn og kiðlingarn ir sjö, Heimski Hans, Úlfur! Úlfur! Refurinn og hrafninn, Litla gula hænan, Óskirnar þrjár, Stráið, kolamolinn og baunin, Kerlingin og grísinn, Bóndinn, konan ug dóttirin, Hér- inn og skjaldbakan, Ljónið og músin, Þrír litlir grísir, Pottur- inn, sem ekki vildi hætta og Gæsin, Sem verpti gulleggi. — Bók þessi er mjög vönduð og sérkennilega útgefin. Allar myndirnar eru prentaðar í Nor- egi og eru flestar í mörgum lit- um. Bókin hefur selzt í mörgum upplögum á Norðurlöndum, en alls mun þessi útgáfa þessara frægu ævintýra hafa komið út í 40 löndum á síðustu árum. Þórir S. Guðbergsson, rithöfundur, hefur gert íslenzku þýðinguna. Pappír I. Þetta er önnur bókin í Fönd- urbókaflokki Æskunnar. Með út gáfu þessa bókaflokks hyggst Bókaútgáfa Æskunnar leggja inn á þá braut að koma upp safni bæklinga um hin ýmsu tómstundastörf, sem handhægir gætu orðið hverjum sem er. Sig- urður H. Þorsteinsson sá um ut- gáfuna. seðlar En svo kom hún einn daginn með peningabunka. — Nú er ég komin með peningana, sem ég nefndi um daginn, þetta *ru fjörutíu þúsund krónur, þér get- ið varið þeim til starfsemi yðar eftir eigin vild. — Á þessu átti ég ekki von. Hafði aðeins nokkr um sinnum átt tal við hana um sameiginleg áhugamál, vanda- mál ellinnar, og svo kom hún og afhenti mér stóra fjárupphæð. Handritamálið í sjónvarpinu EINS OG áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu sendi Mbl. einn af fréttamönnum sínum, Björn Jóhannsson til Kaupmannahafn- ar til þess að fylgjast með hand- ri.tamálinu og dómsuppkvaðn- ingu sem verður á fimmtudag kl. 10 f.h. að íslenzkum tíma. Hafa lesendur blaðsins getað fylgzt með gangi mála af fréttaskeyt- um frá honum hér í blaðinu. Mbl. er kunnugt um, að frétta stofa íslenzka Sjónvarpsins hef- ur nú einnig sent fréttamann til Kaupmannahafnar, Magnús Bjarnfreðsson, og mun hann gera sjónvarpsdagskrá um hand ritamálið með aðstoð danska sjón varpsins, að sögn Emils Björns- sonar, fréttastjóra íslenzka sjón varpsins. Hugsanlega getur eitt- hvað af þessari dagskrá komið í sjónvarpinu á föstudagskvöld. — Geta má þess, að þetta er í fyrsta sinn, sem íslenzka sjónvarpið sendir mann erlendis gagngert til fréttaöflunar. Já, þannig er það enn í dag. Óvæntir gleðilegir atburðir ger- ast. Til er fólk, sem vill hjálpa til, eins og þessi kona gerði með höfðinglegri gjöf. — Peningana frá henni hef ég lagt í bankabók í Búnaðarbankann í Styrktarsjóð líknar- og mannúðarmála. Höf- um við þennan sjóð á Grund til þess, að geta hlaupið undir bagga hjá þeim, sem hjálpa vilja öðrum. Styrktarsjóðurinn okkar er ennþá ekki stór að vöxtum, en samt hefur hann getað liðsinnt nokkrum, og verður sagt frá starfi hans eftir áramótin. Konunni þakkaði ég þá og nú höfðinglega gjöf, en umfram allt er henni þakkaður skilning- ur á erfiðum viðfangsefnum, sem reynt er að leysa. Gísli Sigurbjörnsson. STANLEY SKÁPABRAUTIR 8 feta. SKOTHURÐAJÁRN fyrir einf. hurðir. RÖR OG BRAUTIR fyrir fatahengi. r r- LUDV STOI ■IG 1 IRJ L Á Laugavegi 15. Sími 1-3333

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.