Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 18
1« MORGU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 16. nðv. 1966 O F SWITZERLAND RÍMINGAR- SALfl 15% _ 40% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR VEGNA BREYTINGA. Sif’uríur Jónasson úrsmiður Laugavegi 10 ( Bergstaðastr ætismegin ). SLAND Bezta og yfirgripsmesta rit, sem skrifað var um Island á á 18. öld Bók þessi hefur verið ókunnari öllum almenningi hér á landi en hún á skilið, því að fyrir margra hluta sakir er hún merkileg heimild um land og þjóð eins og högum var háttað hér fyrir röskum tveim öldum. Bókfellsútgáfan hf, Frásagnir um ísland — eítir Niels Horrebow í íslenzkri þýðingu KOMIN er út íslenzk þýðing á íslandssögnum Nielsar Horre- bows (Tilforladelige Efterretn- inger om Island), sem gefin var út í Danmörku 1752. Bókin hefur ekki áður verið gefin út hér, en Þorvaldur Thoroddsen segir svo hana „bezta og yfirgripsmesta rit, sem skrifað var um ísland á 18. öldinni, áður en Eggert Ólafsson kemur til sögunnar". — Hér nefnist bókin „Frásagnir um ísland". Á kápusíðu segir m.a.: „Bókin hefur verið ókunnari öllum al- menningi hér á landi en hún á skilið, því að fyrir margra hluta sakir er hún merkileg heimild um land og þjóð eins og högum var háttað hér fyrir röskum tveim öldum. En auk þess hai'ði bókin töluverð áhrif, kynnti er- lendum þjóðum ísland og kvað niður margar firrur um landið og þjóðina". Danska stjórnin sendi Horre- bow til íslands 1749. Hann dvald ist hér í tvö ár og athugaði margt. Eftir heimkomuna ritaöi hann ofangreinda bók. Þegar Horrebow lagði upp í íslandsferð sína, var nýlega kom in út bók eftir borgarstjórann í Hamborg, Johann Anderson. Fjallaði hún um ísland og fleiri norræn lönd. íslandsfrásögn sína hafði Anderson eftir dönskum einokunarkaupmönnum, sem báru landi og þjóð herfilega sög- una. Samhliða íslandslýsingu sinni hrekur Horrebow firrur Andersons. Auk dönsku útgáfunn ar var bókin prentuð á þýzku, frönsku, ensku og hollenzku. Steindór Steindórsson frá Hlöð um gerði ísle'nzku þýðinguna og ritar auk þess formála. Bókin er 272 bls. að stærð. Útgefandi er Bókfellsútgáfan. AugEýst eftir v'ðhófar- v.nnukraíti NÝL.EGA auglýsti Fosskraft eftir starfsmönnum við Búrfell, og sneri Mbl. sér því til ráðning- arstjóra félagsins Jóns Jósefs- sonar og spurðist fyrir um þessa starfsmannaaukningu, sem ráð- gerð er. Jón tjáði blaðinu, að hér væri um að ræða tækjastjóra, bifreiða stjóra og járniðnaðarmenn alls konar, ennfremur trésmiði og almenna verkamenn og þá eink- um verkamenn með sérþjálfun í við Búrfell ' jarðgangagerð, borun og annari I vinnu, sem því tilheyrir. j Jón sagði, að hér væri um að I ræða fjölgun starfsmanna í sam ; bandi við vaktavinnu, sem von- 1 ir standi til að komið verði á | við nýju samningana. Hann sagði að fremur dauft hafi verið yfir : framkvæmdum að undanförnu miklar tafir og hafi margir verkamenn sagt upp störfum, vegna þess, hve samningar hafa gengið seint og tek'urýrnun þar af leiðandi orðið mikil. FjöfíræðÉs.uiiið til sEiemaiitunar og fró^BÍks Það er hentugt tæki til náms, því á augabragði er hægt að sjá hvort svarið er rétt eða rangt. Svarið er rétt þegar ljósið kviknar. Hverju spili fylgja 4 spjöld (7 flokkar), en síðan verður hægt að fá einstök spjöld eftir því sem menn óska. Nú þegar eru tilbúnir eða í undirbúningi eftirtaldir flokkar: 1. Bókmenntir 2. íslandssaga 3. Ferðamál 4. Stærðfræði 5. Mannkynssaga 6. Trúmál 7. Dýrafræði 8. Grasafra-ði 9. Leikiist 10. Landafræði Fæst í bóka- og leikfangabúðum. Söluumboð: BÓKIN H.F. Skólavörðustíg 6. Sími 10680.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.