Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 25
MiSvikudagur 16. n5v. 1966 MORCU N BLAOIÐ 25 SJÓNVARPIÐ Miðvikudagur 16. 11. Almenningsgarður 18,15 Heimsraeistarakeppnin í knattspyrnu: Sovétmenn og VesturÞjóðverjai' leika. 20,00 Frá liðinni viku: Fréttakvikmyndir utan úr heimi, sem teknar voru í , síðustu viku. 20,20 Steinaldarmennirnir: i Þessi þáttur nefnist „Barn fóstrurnar“. íslenzkan texta gerði Pétur H. Snæ- , land. — Um bókmenntir ,: Framhald af bls. 14 r . ■ I atthögum hans var og einna virkast og af mestri einingu snú- ízt gegn aldagömlu okri erlendra kaupahéðna og íslenzkra þjóna þeirra. Og Heiðrekur kemst víða mjög vel að orði í þeim ljóðum sínum í þessari bók, sem beint er til þeirra, sem með völdin fara. í kvæðinu Geimskot segir íhann: t „Ég hélt þið munduð eiga enn á okkar jödðu skotmörk nóg, í álfum hennar, öllum sjö og út um bylgjukvikan sjó. Þið hafið stjórnað henni svo, að hvergi þar neinn stað ég finn, sem gefur ykkur óðalsrétt á öðrum hnöttum fyrst um sinn“. Að innlendum valdamönnum ' víkur hann meðal annars þessu: „Verðir dotta, dansar trúður dyggir vottar standa á önd. Dúsu tottar tæknibrúður. Tekur í spotta fjarlæg hönd. I Gullið lokkar, sæmdin síður. Senn er okkar brostin von. Geyst í flokki gráu ríður giisur nokkur Þorvaldsson". A.i Heiðrekur má ekki gleyma því, sem hann hefur sjálfur sagt um hinn gráa leik þeirra, „sem hafa náð í hjörtu vor og henda þeim á milli sín“. Hann má vera vel á vedði og spyrja sjálfan sig: Gæti það nú virki- lega verið, að hjarta mitt hefði lent í höndum slíkra manna? „Vond ertu veröld með véla- Ibrögð margföld“, sagði hann forðum, biskupinn, „sem böðull- inn sjötugan hjó“.... Og út úr myrkri kvíða og kvalar berst hún, rödd skáldsins, þegar hann Ihuggar sjálfan sig og þá, sem svipað er farið, með þessum orð- um: r „Vér flýjum að sinni úr blóm- legri byggð. en bættur mun þjóðinni skaðinn, er nemur hér land milli fjöru og fjalls hinn fjölþætti gróður í staðinn. Og blómjurtir þéttast og æxlast hvert ár om aldir og búa í haginn. Svo bjargar hin milda og mátt- uga jörð, ef menningin springur einn dag- inn. Ef eldurinn kviknar í óvitans hönd og eitrast vor þéttbýlis gróður, að lokum snýr fólkið af flóttan- um heim í fang sinnar ástríku móður". Fegursta og heiisteyptasta kvæðið í þessari ljóðabók Heið- reks Guðmundssonar heitir Gest- ur. Það er aðeins sextán Ijóðlín- ur. Þar yrkir hann um bróður- missi og heimilisharm. Og ef til vill skyggnist hann alltaf ýmist að heiman eða h e i m , þeg- ar hann finnur til, hugsar og yrk iir. Hann leitar ekki nýrra leiða nm form, en hann yrkir svo, að hver maður skilur, hver maður finnur, að ljóðagerð hans er sprottin af þörf og að þar er fjallað um mál, sem eru ekki að- eins vandamál hans sjálfs, svo persónubundin, sem þau gætu þó virzt í fljótu bragði. Guðmundur Gislason Hagalín. 20.50 Við erum ung: Skemmtiþáttur fyrir ungt fólk. M. a. er brugðið upp svipmyndum frá Lands- móti skáta s.l. sumar, sýnd nýjasta tízka unga fólksins og rætt við dönsku söng- og leikkonuna Gitte Hænning. Meðal atriða í þessum þætti eru fyrstu upptökur sjónvarpsins. Kynnir er Sólveig Bergs. Umsjónarmaður og stjórn- andi er Andrés Indriðason. 21.50 Umberto D: ítölsk kvikmynd frá 1952. Leikstjóri er Vittorio de Sica. Með aðalhlutverk fara Carlo Battisti og Maria Pia Casillo. íslenzk- an texta gerði Halldór Þorsteinsson. 23,15 Dagskrárlok: Þulur er Sigríður Ragna Sig- urðai'dóttir. Á borgarráðsfundi 8. nóv, sl var lagt fram bréf frá Skógrækt arfélagi Reykjavíkur dagsett 4. nóv. um gerð almenningsgarða við Rauðavatn. Var bréfinu vísað til skipulagsnefndar og garðyrkju stjóra. Mbl. hafði í gær tal af Guð- mundi Marteinssyni hjá Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur og spurðist fyrir um garð þennan. Guðmundur sagði að hugmynd að þesum garði hefði komið upp á aðalfundi félagsins í maí sl. Skógræktarstöðin við Rauðavatn væri nú að verða 60 ára og hefði henni ekki verið sýndur nægi- legur sómi til þessa, en í henni væri eingöngu dvergfura. Ætlun Skógræktarfélagsins væri að koma þar upp álitleg- um skógarlundi, en framkvæmdir eru enn ekki hafnar og beðið er umsagna skipulagsnefndar og garðyrkj ust j óra. Guðmudur sagði að með tilliti til vaxandi byggðar á þessum slóðum sæi skógræktarfélagið ástæðu til að þar verði gerður garður. —Kúbumótið Framhald af bls. 19 um og hafa hlotið aðeins 9 vinn- inga. Austurríki sýndi enn, að það er hættulegur keppinautur okkar, þótt það vanti suma af beztu skákmönnum þess í liðið. Og ísland fékk aftur slæman skell, sem þó ætti ekki að koma að sök. Friðrik og Gligoric voru ekki í bardagaham og sömdu snemma jafntefli. Þegar Ingi gafst upp gegn Ivkoff, eftir yfirsjón, sem leiddi til afgerandi kóngssóknar, var Freysteinn kominn með tap að gegn Ciric. Guðmundur varð ist lengst. Hann hafði ágæta stöðu, er hann gerði þá skyssu, að fara í drottningakaup. Mið- borðspeð hans reyndist óverjandi í endataflinu, svo einnig hann varð að gefast upp án þess að skákin færi í bið. Havaná, 3. nóv.ember: Það er nú komið fram á miðj- an dag, og tefld hefir verið síð- asta umferð undarrása. Biðskák- um er þó enn ólokið. Við íslendingarnir höfðum tal ið okkur næstum örugga um úr- slitasæti, en atburðir í morgun er umferðin fór fram, tóku ó- vænta stefnu. ísland hafði 12% vinning fyrir síðustu umferð, Ind ónesía 9% og Austurríki 11%, en það átti að tefla við Júgóslavíu. Gunnar Gunnarsson tefldi nú sína fyrstu skák. fékk slæmt tafl og tapaði snemma. Ingi R. tapaði næstur, og Guðmundur Pálmason, sem hafði náð vinn- ingsstöðu, villtist af réttum leið- um og tapaði einnig. Indónesía hafði þá náð íslandi, og skák Friðriks var lengi nálægt jafn- tefli. Júgóslöfum gekk ekki vel framan af gegn Austurríki, og um tíma gat jafnvel svo farið, að fsland hrapaði niður í fjórða sæti í riðlinum. Barátta þessi var mikið taugastríð fyrir keppend ur og okkur áhorfendur hér, en um svipað leyti og Guðmundur gafst upp náði Friðrik yfirhönd- inni við sinn andstæðing og Júgó slavía vann tvær skákir af Aust urríki. Nú fyrir biðskákirnar er augljóst, að fsland kemst í A- úrslit, ef Friðrik vinnur sína skák. Við getum ekki séð, að andstæðingur Friðriks eigi neina vörn í skákinni. Virðumst viö því ætla að sleppa upp með skell inn og skrekkinn. Kúba, sem alla tíð hefir haft góða möguleika á úrslitasæti eft ir vinning í átta fyrstu skákum mótsins, er nú í fallhættujvegna endaspretts Hollendinga. Verða það Kúbubúum mikil vonbrigði, ef Kúba kemst ekki í A-úrslit. Keppendur þessarar þjóðar hafa að undanförnu notið sömu vin- sælda og kvikmyndaleikarar. — Ekki er þó öll von úti einn. Læt ég hér staðar numið. Við landarnir höfum hug á að reyna að standa okkur sæmilega í úr- slitunum, svo Friðrik þurfi ekki að standa einn, sem klettur úti í Atlantshafi. — Vörubilstjórar Framhald af bls. 24 stuðla að auknu öryggi og auk- inni festu í umferðinni, jafn- framt því sem þingið lýsir yfir að Landssamband vörubifreiða- stjóra er reiðubúið til samstarfs við alla aðila sem hlut eiga áð máli um að skapa hér á landi nauðsynlega og heilbrigða um- ferðarmenningu.“ „7. þing Landssambands vöru- bifreiðastjóra haldið í Reykjavík 5.—6. nóv. 1966, mótmælir harð- lega því innheimtu- og sölufyr- irkomulagi sem olíufélögin hafa nýverið tekið upp. Þingið er þeirrar skoðunar að allir verzlunarhættir olíufélag- anna, svo og dreifingarkerfi. þeirra sé með þeim hætti, að full ástæða sé fyrir hi'ð opinbera að taka allt það mál til ítar- legrar rannsóknar. Þingið samþykkir að beina því til væntanlegrar sambands- stjórnar að hún fylgist vel með framvindu þessara mála, og standi að aðgerðum ásamt öðr- um aðilum sem stuðlað geti að lagfæringu, frá því fyrirkomu- lagi, sem nú viðgengst varðandi olíusölu til landsmanna." Tvívegis ekkja af völd- um Vietnamstríðsins Meadville, Pennsylvania 12. nóvember AP. FRÚ Bernard Kistler bárust hörmuleg tíðindi, þar sem hún lá á fæðingardeild í Meadville eftir að hafa fætt son. Maður hennar hafði fallið í S-Viet- nam, er skæruliðar vörpuðu handsprengju að þyrlupalli. Þetta er annað skiptið, sem frú Kistler verður ekkja af völdum Vietnamstríðsins. Fyrri maður hennar féll í janúar 1965, eftir að þau höfðu verið gift í tvö ár. Hún giftist síðari manni sínum í ágúst 1965 og fór hann til Vietnam tveim mánuðum síð ar. Eiginmennirnir voru báðir liðsforingjar og höfðu numið við West Point lierskólann. Rannsóknarstörf Óskum eftir stúlku til rannsóknarstarfa. Stúdents- menntun æskileg. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. RANNSÓKNASTOFNUN IÐNAÐARINS. J'ÚMBÓ •-X— —-X— —-K— — -K — •-K—• Teiknari; J. M O R A Júmbó þykir það nokkuð miður að ekki er hægt að læsa hurðinni að herbergi þeirra skipstjórans. — Hvað gerir það til, segir skipstjórinn og geispar. Hver ætti að gera okkur mein hér. Og undir öllum kringumstæðum, er betra að sofa hér en undir berum himni. — Það má vera, segir Júmbó og býður góða nótt. Hverjum ætti svo sem að detta í hug að fara þar inn, þar sem Júmbó og vinir hans sofa? Já, það er spurning, sem dularfull- JAMES BOND James Bond ÍV IAN flEMING ORAWING OV JOHN McLUSKY — X-- — X-- — X- — ur næturgestur gæti svarað. Það er hljótt í húsinu, þegar ókunnug- ur maður læðist um hótelgangana. Ilann leggur við hlustir við eina hurðina .. það er um að gera að láta sem minnst i sér heyrast. Eftii IAN FLEMING Það iskraði í brautarteinunum, þegar lestin kom á skiptin. Z caughta _ sumpse of SRANS at ths CONTROLS. TW6N I FIBED, FOUR " QUICX ROUNDS... Eg sá Spang við stjórntækin eitt augna- blik. Síðan skaut ég nokkrum sinnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.