Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 16. nóv. 1966
MORCU N BLAÐIÐ
19
■—Kúbumótið
Framhald af bls. 17
13. Dxb5 a6 14. Da4f
f Mér var nú ekki lengur vært
við borðið fyrir hörðum atgangi
Ijósmyndara og öðrum þrýst-
ingi manngrúans. Auk þess stóð
túlkurinn okkar stöðugt með
skóna mína í höndunum, síðan
ég hafði staðið uppi á stól, áður
en ég komst í fremstu víglínu
áhorfenda. Ég dró mig því í hlé,
setti upp skóna, og þegar al-
mennur hlátur nokkru síðar gaf
til kynna að annar keppanda
væri mát, framdi ég hinn al-
genga glæp fréttamannsins.
Ályktaði án nægilegra stað-
reynda. Castro hafði teflt byrj-
linina illa og fengið tapstöðu.
Hann hafði því að líkindum tap-
að skákinni. Sú frétt barst til
íslands daginn eftir. En ég hafði
vanmetið Kastro herfilega.
Framhaldið tefldist svo, eins og
Terrasas sýndi mér síðar:
14. — g5 15. Bg3 g4 16. e7t Bd7
17. cxd8t Hxd8 18. Dd4 gxf3 19.
Dxh8 Dxe2t Mát.
Kastro hafði þannig unnið
þann ólympíukeppanda í nítján
leikjum með svörtu, sem ég ekki
gat unnið, að minnsta kosti ekki
formlega, með hvítu mönnunum
nokkrum dögum síðar, eins og
nánar verður vikið að í umsögn
Mm fimmtu umferð undanrása
mótsins. Ég spurði Terrasas, sem
er mjög undarleg persóna, að
því síðar, hvort hann hefði tap-
að skákinni viljandi.. Og hvort
hann þekkti Kastro ef til vill
frá fyrri tíð. Terrasas svaraði:
— Nei, ég þekkti Kastro ekk-
ert fyrir. í allri Ameríku eru að
eins tvö lönd, sem halda uppi
samskiptum við Kúbu, Kanada
og Mexí'kó. Ég held að þess
vegna hafi hann valið mig að
andstæðingi, þegar hann sá
nafnið Mexíkó á merki mínu og
ég var kynntur honum. Kastro
er mjög skemmtilegur og gáfað-
ur maður. Ég held að bæði ég
og hann hafi vel getað hugsað
sér að tapa þessari skák, en táp
mitt var ekki fyrirfram ákveðið.
í>að byggðist á yfirsjón.
EÞað hefir komið fram áður, að
sömu nóttina og þeir tefldu
saman Castro og Tarrasas, náði
ég tali af Castro í kaffihúsi hér
í borg og fékk loforð um viðtal
við hann síðar. Verður hvorki
það né persónuleiki Castros rak
ið að þessu sinni. Hverf ég nú
lítillega að skákmótinu.
Þegar kapteinar liðanna
£immt)í,u og tveggja höfðu
hitzt fyrir mótið til að undirbúa
riðlaskiptingu mótsins, röðuðu
þeir löndum eftir áætluðum
styrkleika. fsland lenti þar í 25.
sæti, sem er nokkuð í samræmi
við frammistöðu í undanförnum
Ólympíumótum. Síðan var kjör
in þriggja manna nefnd til að
gera tillögur um endanlega riðla
skiptingu á áðurnefndum grunni.
Meðlimir nefndarinnar voru frá
Ameríku, Evrópu og Asíu. Full-
trúi Evrópu var kjörinn Bent
Darsen. Hann fékk því ráðið, að
ísland var flutt úr þeim riðli
sem Danmörk var í, og í annan
riðil. Mun Larsen hafa óttazt
mörlandann að þessu sinni, en
ef til vill einnig vilja gera okk-
ur greiða um leið og hann losn-
aði við- hættulega andstæðinga.
Að minnsta kosti feng’um við nú
fremur léttan riðil. Að vísu var
Austurríki og Mongólíu báðum
spáð hærra sæti en íslandi, en
við ákváðum að reyna að slá
þessi lið út sjálfir í innbyrðis
ekki sannað vegna afstöðu
tveggja starfsmanna mótsins, og
Tarrasas slapp með áminning-
una skrekkinn og hálfan punkt!
En hugboð segir mér, að skáb
hans við Castro kunni að hafa
átt nokkurn þátt í árangri hans
af samtölum við starfsmenn móts
ins.
Sjötta umferð, 31. október:
Tyrkland Mongólía 2'/2:1V2,
Austurríki Mexíkó 4:0, Júgóslav
ía íslands 3 14: ¥2, Indónesía frL
Tyrkland sló Mongólíu niður
í C-úrslit, þar sem Mongólar
hafa nú lokið öllum skákum sín-
Framhald á bls. 25
BAHCO
Fráþingi alþjóðaskáksambandsins F.I.D.E.
keppni oklkar við þau.
Fyrsta umferð 26. október:
Austurríki vann Indónesíu
2%:1!4, Mongólía vann Mexíkó
með IV-í'.Wz, Júgóslavía vann
Tyrkland 3:1. ísland átti frí.
Þessi umferð hafði farið vel
frá okkar sjónarmiði. Aðalkeppi-
nautum Okkar hafði ekki tekizt
að vinna stórt. Júgóslavía var
hér undanskilin sem sjálfsagður
sigurvegari riðilsins.
Önnur umferð 27. okt.: Tyrk-
land Indónesía^ 2:2, Júgóslavía
Mongólía 4:0, ísland Austurríki
3 %: 14, Mexícó frí.
Við höfðum hafið keppnina
með stórsigri yfir hættulegasta
andstæðingi okkar í baráttunni
um annað sæti riðilsins. Og
Mongólía hafði tapað öllum skák
um sínum. Betra start var naum
ast hægt að hugsa sér.
Friðrik hafði hvítt og vann
örugglega í fyrstu setu. Ingi átti
unna biðs'kák, sem hann tefldi
til sigurs daginn eftir. Freysteinn
átti betri biðskák og innikróaði
og vann mann í endataflinu. Guð
mundur hafnaði jafntefli, en
varð að sætta sig við tap síðar,
er ekki var hægt að brjótast í
gegn. Góð byrjun hjá Inga og
Freysteini, sem höfðu báðir
unnið með svörtu mönnunum.
Þriðja umferð 28. október:
Júgóslavía Mexíkó 3%:%,
Mongólía Indónesía 2:2 Tyrkland
ísland 2%:1%, Austuríki frí.
Slæm umferð fyrir Island, en
sú bót var í máli, að tapið var
ekki fyrir verulega hættulegum
andstæðing.
Friðrik fórnaði skiptamun og
andstæðingurinn sá alls ekki all
ar hætturnar fyrr en allt var um
seinan. Ingi fékk verra tafl og
þáði óvænt jafnteflisboð. Guð-
mundur sá aldrei dagsins ljós,
hafði ætíð verra tafl og lék af-
gerandi af sér í tímaþröng.
Freysteinn tók á sig áhættu í
byrjuninni, náði yfirburðastöðu
í miðtaflinu, missti af beztu
sóknarleið og tapaði í tímaþröng.
Fjórða umferð 29. október:
Austuríki Tyrkland 3:1, Indó-
nesía Mexikó 314:14, ísland
Mongólía 314 14 Júgóslavía frí.
Annar stór dagur hjá fslandi,
næst hættulegasti andstæðingur-
in sleginn út. Raunar hafa Mong-
ólar ekki reynst eins sterkir og
búizt var við. Ekki vantar þá
marga af sínum beztu mönnum,
en undirbúningur mótsins hjá
þessu sinni vegna náttúruham-
fara í heimalandi þeirra og af
fleyri ástæðum.
Kaupmenn —
Kaupfélög
TYGGIGUMMI.
Heildsölubirgðir:
EIRÍKUR KETILSSON
Vatnsstíg 3 — Símar 23472—19155.
Friðrik vann enn glæsilega og
léttilega, að þessu sinni hinn
sterka og hættulega alþjóðlega
meistara Mjagmarsuren. Ingi
vann einnig nýbakaðan alþjóð-
legan meistara Utjumen, sem
hlaut þá nafnbót nú á þingi
F.I.D.E. í Havana. Fór Ingi illa
með hann í fáum leikjum. Guð-
mundur Pálmason vann tvö peð
af andstæðing sínum og þar með
sinn fyrsta sigur. Guðmundur
Sigurjónsson var komin með
heldur betra tafl með svörtu,
þegar hann þáði jafnteflistilboð
andstæðingsins. Staðan í riðlin-
um eftir fjórar umferðir var
þessi:
Júgóslavia 1914
ísland 814
Indónesía 9 af 16
Tyrkland 614 af 1'6
Austurríki 6
Mongólía 5 af 16.
Mexíkó 214
Fimmta umferð 30. október: s
Júgóslavía Indónesía 314:14
Mongólí a Austurríki 214:114,
ísland Mexíkó 314:14, Tyrkland
frí.
Eftir þennan nýja stórsigur má
heita að ísland sé öruggt úrslita
lið. Raunar átti sigurinn að vera
enn stærri og var í vissum skiln
ingi orðinn 4:0, verður sú saga
rakin hér í stuttu máli Friðrik
fékk erfiða stöðu, bauð jafntefli,
en andstæðingurinn hafnaði. Er
skákin fór í bið, höfðu báðir tvo
hróka og þrjú peð en staða
Friðriks var þá orðin betri. Hann
hafnaði nýju jafnteflisboði og
vann sinn fjórða sigur léttilega
í biðskákinni. Ingi sýndi enn
sitt góða form og styrkleika, með
því að vera fyrstur til að vinna.
Guðmundur fékk enn biðskák
með tveim peðum yfir, sem
vannst léttilega. Skák Frey-
steins og Terrasas varð ein fræg
asta skák mótsins — að endem-
um. I miðtaflinu fékk Freysteinn
betri stöðu, vann peð og fékk
létt unnið tafl, en er Terrasas,
sá er við Castro tefldi, ekki
sterkur skákmaður á alþjóða-
mælikvarða. í tapstöðu sinni
brást Terrasas við á undarlegan
hátt. Er hann maður órólegur
eða taugaveiklaður. Braut hann
nú hverja keppnisregluna af
annarri, svo að af varð hin bezta
skemmtun fyrir gamansama á-
horfendur, en vafasöm ánægja
fyrir andstæðinginn. Fyrst hætti
hann að rita niður leikina eða
merkja við þá, sem er skylda,
þá bauð hann jafntefli í tíma
andstæðingsins og talaði hátt við
hann og fleiri, þvínæst tók hann
prótokoll andstæðingsins án leyf-
is í tímahraki beggja, næst ýtti
hann á klukku andstæðings tví
vegis, þegar hann átti sjálfur leik
og loks lék hann drottningu sinni
í dauðann og tók upp leikinn
aftur!
Að þessu síðastnefnda atviki
voru nokkur vitni. Meðal ann-
ara Zandor Nilsson Svíþjóð, sem
kveðst vera reiðubúinn að leggja
eið á atburðinn. Meðan allur
þessi hamagangur fór fram,
hafði Freysteinn leikið af sér,
svo skákin gat orðið jafntefli, ef
drottningarleikurinn yrði ekki
tekinn til greina. Eftir að
Terrasas hafði rætt við
starfsmenn mótsins, báru
þeir að hann hefði ekki
sleppt drottningunni, gagnstætt
framburði Zandors Nilsson. Mót
stjóri tók framburð starfsmanna
sinna gildan. fslenzka sveitin
skaut málinu skriflega til dóm-
nefndar, en féllst á að draga kær
una til baka, gegn því að Terras
as fengi opinbera áminningu og
hótun um brottrekstur úr mót-
inu við endurtekningu á hinum
minni „afbrotum“ sínum. Aðal-
afbrot hans varð hins vegar
VEGGVIFTUR
ÞAKVIFTUR
STOKKAVIFTUR
BLASARAR
HÁ- OG LÁGÞRÝSTIR FYRIR
LOFT- OG EFNISFLUTNING.
Allar stærðir og gerðir.
Leiðbeiningar og verkfræði-
þjónusta.
FYRSTA
FLOKKS
FRÁ....
SÍMI 24420 - SUÐURG. 10 - RVÍK
FÚNIX
Fjslskfldufargjöld
Hinn 1. nóv. sl. gengu í gildi hin vinsælu fjölskyldu-
fargjöld milli íslands og Norðurlandanna. Fargjöld
þessi gilda til 31. marz nk. Forsvarsmaður fjöl-
skyldu greiðir fullt fargjald en maki og börn frá
12 til 25 ára greiða hálft fargjald.
Jólafargjöld milli íslands og Evrópu:
1. des. nk. ganga í gildi sérstök fargjöld, sem ætluð
eru þeim fslendingum, sem dvelja erlendis en vilja
halda jól á íslandi. Farmiðar gilda í einn mánuð.
Þessi fargjöld gilda frá mörgum borgum í
Evrópu. Sem dæmi má nefna að fargjaldið Kaup-
mannahöfn-Reykjavík-Kaupmannahöfn lækkar úr
kr. 8.018,00 í kr. 5.908,00.
Bezta jólagjöfin til námsmannsins, sem erlendis
dvelur er jólafarmiði með PAN AMERICAN.
Þotur PAN AMERICAN eru fullkomnustu farar-
tækin, scm völ er á milli íslands og annarra landa.
PAN AM — ÞÆGINDI PAN AM-ÞJÓNUSTA PAN AM-HRAÐI
Alíar nánari upplýsingar veifa:
PAN AMERICAN á íslandi og ferðaskrifsloíurnar.
AÐALUMBOD G.HELGASON &MELSTED HF HAFNARSTRÆTI19 SIMAR10275 11644