Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Bjargað eftir að hafa
legið nær 4 tíma í fönn
\fraður hætt Itomirm á Botnsheiði
TVEIR MENN lentu í nokkrum
lirakningum, er þeir voru að fara
jfir Botnsheiði á leið frá Súg-
aandafirði til ísafjarðar. Varð
það þeim til bjargar að leigubil-
stjóra, sem fenginn hafði verið til
að bíða eftir þeim ísafjarðarmeg
in við heiðina, fór að lengja eft-
ir þeim, og við eftirgrennslan
komst hann að því hvernig á-
statt var fyrir þeim, og kom
þeim til hjálpar ásamt félaga sin
um. Lá annar mannanna 4 tíma
í fönn áður en honum barst
hjálp.
Mbl. náði tali af leigubílstjór
anum Elíasi Sveinssyni, og bað
liann að lýsa þessum atburði.
— Ég hafði verið fenginn um
miðjan dag á laugardag, sagði
Elías, til þess að sækja tvo menn
Framhald á bls. 31.
Hestamir hafa löngum orðið einna mest allra fslendinga fyrir barðinu á vetrinum. Þeim er
ætlað að ganga úti og krafsa snjóinn. Náttúran hefur að venju sinni komið til hjálpar og klæð
ir hestana hlýjum feldi þegar haustar, þá verða þeir fjarska lubbalegir, enda gagnar lítið
snöggt og gljáandi hárafar sumarspjátrungsins. Þrátt fyrir það taka þessir sig prýðilega út á
myndinni.
2 síldveiðibátar
missa nætur sínar
MÓTMÆLA LÆKKUN
SlLDARVERDSINS
TVEIR síldveiðibátar hafa með
skömmu millibili orðið fyrir því
óhappi að missa síldarnætur sín-
ar í sjóinn, en nætur þessar eru
mjög dýrar. Eru þetta bátarnír
Sveinbjörn Jakobsson frá Ólafs-
vík, og Arnfirðingur RE.
Arnfirðingur missti nót sína sl.
laugardag, en hann var þá
staddur í Norðfjarðardýpi. Fór
nótin er bóturinn varð að snurpa,
að því er Hermann Kristjánsson
útgerðarmaður tjáði Mbl. Her-
mann sagði að báturinn hefði
aðeins verið með nótina í mán-
aðartíma, en hann hefði keypt
hana alveg nýja fyrir um 11-1200
þúsund kr.
Væri heldur óþægilegt að fá
fregnir að því, að maður hefði
á svipstundu orðið 1,5 milljón kr.
fátækari, því að með nótinni
hefði einnig farið ýmiss útbún-
aður. Hann kvaðst ekki hafa
verið búinn að greiða þessa nót,
Dómurinn á
fimmtudag
Kaupmannahöfn, 15. nóv.
Frá Birni Jóhannssyni.
TILKYNNT var í dag, að
dómur Hæstaréttar Dan-1
merkur í handritamálinu {
verði kveðinn upp kl. 10 að (
íslenzkum tíma næstkom- ,
andi fimmtudag. Þá mun
forseti réttarins, Aage Lor- ]
enzen lesa upp dóminn í
dómssalnum í Kristjáns-
borgarhöll.
er hún fór, en hann hefði sam-
stundis fest kaup á nýrri. Hauk-
ur kvað það lán í óláni á að bát-
urinn hefði aflað vel í sumar.
I fyrradag varð svo Sveinbjörn
Jakobsson fyrir því óhappi að
fá á sig sjó með þeim afleiðing-
um að nótin rann út. Var hún
lágt vátryggð.
— Samþykkja stofnun Félags
síldarsjómanna
í GÆR var haldinn á Reyðarfirði
fjölmennur fundur síldarsjó-
manna og sóttu hann um 500
manns en um eða yfir 50 síld-
veiðiskip liggja nú við Reyðar-
fjörð. Á fundinum kom fram til-
laga um að allur síldveiðiflotinn
hætti veiðum vegna lækkunar
Jónas Haralz á fundi Kaupmannasamtakanna
Vaxtarskeiðinu er lokið
- breyttar aðstæður
vegna verðfalls á út-
flutningsafurðum
- Miklar raforkuframkvæmdir oq
bygging úlbrædslu vega á móti
Á FUNDI Kaupmannasam-
taka íslands sl. mánudags-
kvöld flutti Jónas Haralz, for-
stöðumaður Efnahagsstofnun-
arinnar, ræðu, þar sem hann
lét í ljós þá skoðun, að vaxt-
arskeiði undanfarinna ára
væri lokið og breyttar aðstæð
ur hefðu skapazt fyrst og
fremst vegna verðfalls á út-
flutningsafurðum okkar.
Jónas Haralz sagði, . að
Vélar Hamrafells
reyndar í dag
SfÐASTLIÐINN sólarhring
vannst mjög seint við að gera við
vélar Hamrafells sökum veðurs,
en skipið var þá statt um 70 míl-
ur suður af Dyrhólaey. Er Mbl.
náði tali af Hirti Hjartar, for-
stjóra Skipadeildar SÍS, hafði
hann nýlega rætt við skipstjór-
ann, Ríkharð Jónsson, og sagði
hann, að öllum um borð liði vel,
og væri búizt við að hægt yrði
að reyna vélina síðdegis í dag.
Sagði Hjörtur, að ef viðgerðin
gengi samkvæmt áætlun, mætti
eiga von á skipinu til Reykja-
víkur síðla föstudags.
f gærkvöldi lægði heldur á
svæðinu, sem Hamrafellið er nú
satt á.
Er Mbl. reyndi að hafa tal við
skipstjóra Hamrafells í gær gegn
um Vestmannaeyja radíó, fékk
blaðamaður þau skilaboð, að
skipstjóri væri ekki til viðtals,
og vísaði hann á útgerð skipsins.
þjóðarframleiðslan mundi
aukast um 3—4% á þessu ári
miðað við 5—6% undanfarin
ár og svo virtist, sem verð-
fallið mundi þurrka út áhrif
þessarar framleiðsluaukning-
ar, þannig að þjóðartekjurnar
á þessu ári mundu ekki auk-
ast.
Þá kvað hann miklar raf-
orkuframkvæmdir og bygg-
ingu álbræðslu vega nokkuð
upp á móti þessari þróun en
þó mætti gera ráð fyrir hæg-
ari vexti þjóðarframleiðslu
en á undanförnum árum.
Hér fer á eftir úrdráttur úr
Ársháfíð Sjálf-
slæðisfélaganna
í Borgarfirði
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Mýra
og Borgarfjarðarsýslu efna til árs
hátíðar nk. laugardag hinn 19.
nóv., kl. 20. Verður sameiginlegt
borðhald og fjölbreytt dagskrá,
sem nánar verður birt síðar.
Jónas Haralz
ræðu Jónasar Haralz á fundi
Kaupmannasamtakanna:
Jónas Haraldz hóf ræðu sína
með því að segja, að síðustu 4-5
árin væru eitt mesta framfara-
skeið í sögu okkar þjóðar. Meðal
Framhald á bls. 21
síldarverðsins og var afgrei*’j
þeirrar tillögu frestað til fram-
lialdsfundar, sem hefst á Reyðar-
firði í dag kl. 2 e.h. og er þess
þá vænzt að fulltrúar sjómanna
í Verðlagsráði sjávarútvegsins
verði komnir til Reyðarfjarðar.
Þeir komust ekki til fundarins á
Reyðarfirði í gær vegna veðurs
en samþykkt var tillaga um að
flotinn færi ekki til veiða fyrr
en náðzt hefði saman fundur
með þeim.
Mótmælt var lækkun síldar-
verðsins og sett fram krafa um
aðild fulltrúa sjómanna að
stjórn Síldarverksmiðja ríkisins.
Þá var samþykkt að skora á
síldveiðisjómenn að hefja ekki
síldveiðar að vori fyrr en viðun-
andisíldarverð hefði fengizt að
dómi nefndar síldveiðisjómanna
eða stjórnar félags síldveiðisjó-
manna, sem samþykkt var að
stofna.
Fréttaritari Mbl. á Reyðarfirði
Arnþór Þórólfsson skýrði svo
frá í gærkvöldi að með
síldarskipunum hefðu kom-
ið til Reyðarfjarðar mun fleiri
menn en sem næmi íbúafjölda
Reyðarfjarðar. Kvað hann þenn
an mikla bátaflota og þetta fjöl-
menni hafa sett mikinn svip á
staðinn.
Hér fer á eftir frásögn hans
af fundi sjómannanna á Reyðar-
firði:
Framhald á bls. 31.
Blaðamenn
ALMENNUR félagsfundur verð-
ur í Blaðamannafélagi íslands í
dag, miðvikudag. kl. 4 síðdegis í
Tjarnarbúð, uppi.
Til umræðu verða kjarasamn-
ingar.
Selfluttur á 3 bílum
sjúkrahús hér
i
Hvammstanga, 15. nóv.
SL. laugardag varð það slys á
bænum Borðeyri í Strandasýslu
að hestur sló 7 ára gamlan dreng,
Sigurð Guðjónsson, með þeim af-
leiðingum að hann fótbrotnaði.
Var hann fluttur til læknisins á
Hvammstanga, sem ákvað að
drengurinn skyldi verða fluttur
suður til læknisaðgerðar.
Var drengurinn fyrst fluttur á
fólksbifreið frá Hvammstanga að
Brú í Hrútafirði. Þar skipti bif-
reiðastjórinn um bifreið og fór
á rússajeppa yfir Holtavörðu-
heiði, sem var allþungfær. í
Fornahvammi beið sjúkrabifreið
frá Akranesi eftir drengnum og
flutti hún hann suður til Reykja-
víkur í sjúkrahús. Gekk ferðin
bæði fljótt og vel. — S.T.