Morgunblaðið - 16.11.1966, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.11.1966, Qupperneq 3
Miðvikuðagur 16. nóv. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 3 ALLTAF FJOLGAR VOLKSWAGEN fyrir fjölskylduna fyrír starfið fyrír yður jfÁ HEKLA hf Könnun Neyienda- samtakanna Er Johnson Bandaríkjaforsetl var staddur í S-Kóreu í vik- unni, hitti hann m.a. að máli bóndann Choi Si-Chong skammt frá Suwon, og er myndin tekin við það tækifæri. Johnson er . við klæðnað kóreansks bónda. ÞJÓNUSTUKÖNNUN Neyt- endasamtakanna er nú hafin, með því að Neytendablaðið með tilheyrandi eyðublöðum á að vera komið í hendur allra félagsmanna samtak- anna. Neytendasamtökunum er það jafnmikið kappsmál og það er neytendum mikið hags munamál, að könnunin takist sem bezt og þátttakan verði sem mest. Með því að fylla út eyðublað könnunarinnar og senda það Neytendasamtökun um leggja menn sinn skerf til baráttu þeirra fyrir bættri þjónustu og auknu öryggi í viðskiptum. t Fjöldi nýrra félagsmanna Svo virðist sem mikill áhugi sé ríkj andi meðal almennings á málinu. Fjöldi manna hefur inn- ritað sig í samtökin síðustu daga, en samdægurs er þeim sent blað- ið í pós-ti ásamt nokkrum eldri ritum, sem til eru. Þá hefur og mikið verið hringt til samtak- anna af fólki, sem er að fylla út eyðublöðin, og í gær tóku fyrstu svörin að berast. Fólk er eindreg ið hvatt til þess áð senda svörin hið allra fyrsta, og er ætlazt til þess, að hver og einn hvari inn- an viku frá móttöku blaðsins. t Eftirvænting eftir niðurstöðum Mikið hefur verið spurt um Islenzkt dægurlagakvöld í Lidó Eingöngu flutt lög eftir isl. höfunda FÉLAG ísl. dægurlagahöfunda efnir til „íslenzks dægurlaga- kvölds" í Lídó næstkomandi föstudag, 18. nóv. Þar verða ein- göngu leikin og sungin létt lög eftir íslenzka höfunda. Leikur Sextett Ólafs Gauks íslenzk lög fyrir dansi og einnig verða skemmtiatriði á milli. Efnir fé- lagið til þessarar skemmturfer bæði til að styrkja fjárhag fé- lagsins og jafnframt til að kynna lög eftir íslenzka höfunda. Tók stjórn félagsins fram á fundi með blaðamönnum að þetta væri skemmtun fyrir alla. Ýms skemmtiatriði verða á kynningarkvöldinu, og þar ein- göngu flutt íslenzk músik. Leik- húskvartettinn syngur við undir- leik Magnúsar Péturssonar. Vala Bára syngur lög eftir félags- menn, bæði sönglög og létt lög. Gunnar Guðmundsson, þekktur dægurlagasmiður, leikur einleik á harmoniku, en hann er ein- hentur og blindur. Sverrir Guð- jónsson, sem margir þekkja af fagurri barnsrödd hans, syngur nú aftur eftir nokkurt hlé og flytur m. a. lag eftir föður sinn, Guðjón Matthíasson. Þá skemmt- ir danski töframaðurinn Viggo Sparr. Og loks kynnir Sextett Ólafs Gauks dægurlög eftir ísl. höfunda ásamt söngvurunum Svanhildi og Birni R. Einarssyni. Kynnir verður Jónas Jónasson. Félag íslenzkra dægurlagahöf- unda hefur starfað í 11 ár og eru félagsmenn um 30, búsettir í Reykjavík og úti á landi. En slík félög eru starfandi á hinum ÍNorðurlöndunum og hefur stjórn FÍD staðið í vinsamlegum bréfa- 6kriftum við þau og haft gagn «f, að því er stjórn félagsins sagði. En þessi félög njóta styrks bæði til kynningar á félagsstarf- semi og eins til að kynna ný lög, sem FÍD hefur ekki. Sagði for- maður félagsins, Hjördís Péturs- dóttir, að í rauninni ætti FÍD að koma á fót svona kynningar- kvöldi árlega, til að gefa ísl. lagasmiðum kost á að kynna lög eftir sig, því ekki er um mörg slík tækifæri að ræða. Efndi fé- lagið í fyrra til slíkrar kynning- ar í tilefni 10 ára afmælis félags- ins. En nú er meira til vandað og selt inn, 100 kr. fyrir mann- inn. Geta þeir sem þess óska fengið mat framreiddan kl. 7.30 e.h. í Lídó. Hljómsveit Ólafs Gauks byrjar kl. 9 að leika og verður opið til kl. 2. Loks má geta þess, að í sam- bandi við 10 ára afmælið gaf FÍD í fyrra út nótnahefti með 12 ís- lenzkum dægurlögum í píanóút- setningu, og verður hægt að fá þetta hefti á skemmtuninni. Vel sóttur fundur í Sjálf stæðiskvennafél. Hvöt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt hélt fjölsóttan félagsfund í Sjálf- stæðishúsinu sl. mánudag. Setti formaður félagsins María Maack, fundinn og stjórnaði en Magnús Jónsson fjármálaráðherra flutti aðalræðuna. Ræddi ráðherra að allega stjórnmálalega stöðu kon unnar og þátt hennar í efnahags lífinu. Að lokinni ræðu ráð herra tóku nokkrar félagskonur til máls og beindu fyrirspurnum til ráðherra, sem hann síðan svaraði. í fundarlok sýndu svo nemendur úr dansskóla Heiðars Ástvaldssonar dans við góðar undirtektir. það, hvenær sé að vænta birting- ar. á niðurstöðum könnunarinn- ar. Því er til að svara, að þátt- takan getur orðið of lítil til þess, áð neinar niðurstöður verði birt- ar. Það ætti öllum að vera aug- ljóst og þá um leið, hve nauðsyn- NEYTENDU- blaðið 0TGtfANDl. NITTINDAtAMfÖltjW Xönnun Neytendasamtakanna vegna kaupa á vörum og þjóriustu VEL ÞARF AÐ VANDA VAL Á SELJANDA Forsíða síðasta Neytendablaðs. legt er, að menn skerist ekki úr leik. Með því gera menn sér og öðrum óleik. Gangi könnunin samkvæmt áætlun, verða niður- stöður birtar jafnharðan og unn- ið hefur verið úr svörum varð- andi hvert tæki fyrir sig og byrj- að á þeim, sem mestur áhugi Virðist á. ♦ Víða fylgzt með könnuninni Það er víðar fylgzt með könn- un þessari en á íslandi. Neyt- endasamtök um heim allan hafa með sér gott samstarf. í Banda- ríkjunum fer slík könnun fram árlega, og þar fengust síðast 100,000 svör. En frændur vorir Norðmenn vom seinni til svars, og mistókst fyrsta tilraun Neyt- endaráðsins þar að mestu. For- svarsmenn þess bíða nú með eft- irvæntingu, hvernig til tekst á íslandi, og frá því verður örugg- lega skýrt rækilega í Noregi. — Færi vel, að þeir gætu bent lönd- um sínum 'hingað þeim til fyrir- myndar. ♦ Samkeppni um þjónustu Hér á landi er nú mikið fram- boð fyrsta flokks rafmagnstækja og samkeppni mikil. Eitt af því góða, sem þjónustukönnun Neyt- endasamtakanna gæti af sér leitt, væri samkeppni -um þjónustu, og nfðurstöður góðrar könnunar jafngilda á sinn hátt niðurstöð- um gæðamatsrannsókna. (Neytendasamtökin) Borten tii Svíþjóðar. Stokkhólmi, 15. nóv. NTB. ♦ Fer Borten, forsætisráðherra Noregs fer í þriggja daga opin- bera heimsókn til Svíþjóðar 12. janúar n.k. STAKSTEINAR Verðstöðvun. Vísir ræðir verðstöðvunar- stefnu ríkisstjórnarinnar í for- ystugrein s.i. mánudag og segir þar: „Eftir hóflegar almennar kauphækkanir á s.l. sumri var yfirleitt frestað frekari almenn- um samningagerðum fulltrúa verkalýðs- og atvinnurekenda þar til 1. okt. nú í haust. Eru því samningar lausir. Hins veg- ar hafa engin almenn átök átt sér stað á vinnumarkaðnum frá 1. okt. Þvert á móti hefur síðan gætt meiri varúðar í verð- ákvörðunum þeirra fulltrúa hinna ýmsu atvinnugreina er um þau mál fjalia, en við höf- um átt að venjast. Hóflegt sam- komulag náðist um verðlagn- ingu landbúnaðarvara, engar verðhækkanir hafa orðið fyrir milligöngu ríkisstjórnarinnar, en reynzt hefur auðið að greiða niður þær hækkanir, sem sam- komulag varð um vegna góðrar afkomu ríkissjóðs. Ríkisstjórnin hefur með öðrum ráðum stuðlað að verðstöðvuninni, sem fram mun koma í frumvörpum til löggjafar á næstunni, bæði um framleiðnisjóð landbúnaðar og jarðakaup rikissjóðs af þjóð- hagslegum ástæðum. Við ákvörð un um síldarverð náðist sam- komulag og vitað er í ýmsum fleiri ' tilvikum að ráðstafanir hafa verið miðaðar við verð- stöðvunarstefnu og jafnvel frestað framkvæmd ákvarðaðra hækkana fyrst um sinn“. Alþýðusambands- þing 1958 „Alþýðusambandsþing kemur nú saman hinn 19. nóv. Þetta alls herjarþing launþegasamtakanna er áhrifamikið afl í þjóðfélag- inu. Það hefur áður markað mjög ákveðna afstöðu sína með verðstöðvunarstefnu. Ágreining- ur var milli verkalýðssamtak- anna og vinstri stjórnarinriár vorið 1958, þegar sú stjórn bar fram á Alþingi efnahagsmála- tillögur. En um þær tillögur sögðu fulltrúar verkalýðsins meðal annars: ,Tuttugasta ©g fimmta þing Alþýðusambands íslands lýsti því yfir að gengis- lækkun eða aðrar hliðstæðar ráðstafanir kæmu ekki til mála, sem úrlausn efnahagsmálanna. Þær ráðstafanir, sem nú er hugs að að gera, hafa á ýmsan hátt hliðstæð áhrif og gengislækkun. Hins vegar virðist tryggt, að þær hafa ekki í för með sér al- menna skerðingu kaupmáttar vinnulauna á næstu mánuðum. Greiniiegt er að þessar ráðstaf- anir í efnaliagsmálum munu leiða tii frekari verðbólguþró- unar, og eru því fráhvarf frá þeirri stefnu, sem 25. þing Al- þýðusambandsins fagnaði og lýsti fylgi sínu við, og efna- liagsmálanefnd og miðstjórn Al- þýðusambandsins siðan hafa ítrekað, það er að stöðva verð- þenslu. Ráðstafanirnar brjóta því í bága við stöðvunarstefn- una, er verkalýðssamtökin og ríkisstjórnin þá tóku höndum saman um.“ Síðan segir Vísir: „Hafi verð- stöðvunarstefnan hljómgrunn svo ríkan á 25. Alþýðusambands- þingi, er hitt jafn víst að al- mennara fylgi hefur sú stefna ekki átt að fagna, en einmitt nú“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.