Morgunblaðið - 16.11.1966, Qupperneq 4
4
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. nóv. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 35135
OG 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR21190
eftir lokun simi 40381
>'«'1-44-44
VMÍfíBlfí
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
Og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
bíluleigon
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzín inniíalið í leigugjaldi
Slmi 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
BÍLALEIRA S/A
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
Fjaðrir, fjaðrablóð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
Bosch og AEG.
KÆLISKÁPAR
margar stærðir.
Br. Ormsson hf.
Lágmúla 9. — Sími 38820.
■+C Börnin á barna-
heimilunum
Velvakandi hefur verið
beðinn að benda á, að nokkurs
misskilnings gæti hjá sumum
mæðranna, sem rætt er við í
blaðinu í gær um dvöl barna
þeirra á barnaheimilum Sum-
argjafar. — Mæðrunum er alls
ekki gert að skyldu, að sækja
börnin sín ,á mínútunni 5“.
Starfsstúlkur verða á vakt á
barnaheimilunum eftir kl. 5,
þar sem nauðsynlegt er, eins
og skýrt er frá í greinargerð
frá Sumargjöf í sama blaði.
Mæður, sem vinna úti til kl. 5,
geta því rólegar unnið fullan
vinnudag og náð síðan í börn
sín, Hins vegar hvetur Sumar-
gjöf foreldra til að lengja ekki
dyöl barnanna á barnaheimil-
unum að þarflausu.
í
tAt Fjörugt ferðalag
Á sunnudaginn birtist
hér í dálkunum stuttur kafli
úr skýrslu áfengismálanefnd-
ar — og var þar fjallað um
hjónaskilnaði og hjúskapar-
vandamál. I þessari skýrslu
eru ennfremur umsagnir
margra skólamanna um vanda-
mál þau, sem áfengisneyzlan
skapar. Þar á meðal birtist
hluti úr ritgerð sem 16 ára
nemandi samdi eftir sumar-
vinnuna. Hann var í síldinni —
og lýsir ferðalagi, sem hann
fór með samstarfsmönnum
sínum. Sjálfsagt gætu mörg
hundruð manns sagt svipaðar
sögur — sögur af fjölmörgum
samverustundum — og væri
frásögn nemandans hrein hátíð
í samanburðinum. Þessi ungl-
ingur hefur fengið kennslu-
stund í meðferð flöskunnar,
hve margir hafa ekki farið á
þann sama skóla? Hér kemur
svo ritgerðarhlutinn:
Afrit af ritgerð nemanda í
í 2. bekk Eiðaskóla veturinn
1963—64. Nemandinn er 16 ára
gamall.
FERÐALAG.
Það var ákveðið á söltunar-
stöðinni, sem ég var á í sumar,
að fara í skemmtiferðalag
klukkan fimm á laugardegi og
stundin var komin, bíllinn til
og fólkið komið í stuð. Allir
drifu sig í bílana og hverjum
tveimur var gefin flaska af
geniver í fararnesti.
Það var skylda hvers að
drekka sig kenndan, en ég held
að ég hafi gerzt lögbrjótur eða
nærri því.
Allir drógu tappann úr og
blönduðu þegar komið var upp
á fyrsta hjallann og þar var
stoppað nokkra stund, en svo
þegar átti að halda áfram, stóð
einn farþeginn upp og réðist
á bílstjórann. Hann var skjót-
ur til ráða og fieygði honum
út úr bílnum, og var hann síð-
an skilinn eftir þarna en ferð-
inni haldið áfram upp á fjalls-
brún. Þá var orðið mál að pissa
og blanda, svo ekki yrði drukk
ið óblandað.
Nú var haldið áfram niður
í þorp og gekk á ýmsu. Mönn-
um kom ekki alltaf sem bezt
saman og verkstjórinn okkar
hafði nóg að gera að stilla til
friðar, sumir voru farnir að
rífast um hvort þeir fengju
jafnmikið úr flöskunni, en allt
gekk slysalaust að mestu.
Við stoppuðum smástund í
kaupfélagssjoppunni, en héld-
um síðan inn á Velli og hittum
fólk, sem hafði verið í stöð-
inni í sumar og buðum þeim
með og þau komu þrjú, Sibba,
Stebbi og Guðni. Síðan var
haldið áfram út á brú og norð-
ur í Fljótsdal. Sú ferð var sögu
leg, sumir dóu, aðrir rifust,
sumir næstum slógust, fáir
virtu fyrir sér hið fagra lands-
lag og einn ætlaði að henda
sér út úr bílnum á fullri ferð
en náðist í hann á síðustu
stundu, þegar hann var búinn
að opna hurðina og var kom-
inn hálfur út úr bílnum.
Við fórum á ball í Végarði
um kvöldið og vorum þar til
kl. hálf þrjú og komum ekki
heim fyrr en kl. fimm morgun-
inn eftir.
Þá var lögreglan búin að
sækja manninn, sem hent var
út úr bílnum og setja hann í
braggann."
Hestamenn
„Kæri Velvakandi.
Nýlega var haldinn aðal-
fundur Landssambands ís-
lenzkra hestamanna austur á
Höfn í Hornafirði. Þetta mun
hafa verið tiltölulega fjöl-
mennur fundur og þar flutt er-
indi um hrossarækt og ýmsar
samþykktir gerðar. Svo undar-
lega ber við, að fundur þessi
þykir ekki mikið fréttaefni
hvorki hjá blaðamönnum né
stjórn Landssambandsins því
nær engar fréttir hafa verið
birtar í dagblöðunum af þess-
um fundi. Hinsvegar er nú
svo komið að hestamenn og
hestaeigendur eru orðnir all-
fjölmennir í landinu og myndu
þeir vafalaust hafa áhuga á
fréttum af fundi þessum, álykt-
unum hans og ekki síður þeim
erindum, sem þar voru flutt.
Ég vil því biðja Velvakanda
að koma þeirri ósk minni á
framfæri, að blaðamenn Morg-
unblaðsins afli sér upplýsinga
um fundinn og birti af honum
fréttir og helzt erindin líka.
ht.“
■Jt Lá við slysi
Einn af lesendum blaðs-
ins, sem á heima úti á Seltjarn
arnesi hrigndi fyrir nokkrum
dögum móður og másandi — og
sagði:
Ég vildi hringja áðúr en ég
kæmist yfir þetta. Það munaði
nefnilega ekki nema hárs-
breidd að ég slasaði eða dræpi
dreng rétt í þessu. Og þetta er
ekki í fyrsta skiptið. Götulýs-
ing er ekki nógu góð hér á
Nesinu — og börnin eru sí-
fellt að þvælast á götunni —
fyrir bílunum — í myrkrinu.
Fæst þeirra eru með endur-
skinsmerki og ég var næstum
búinn að aka á dreng á hjóli
rétt í þessu. Sá hann ekki fyrr
en ég _var alveg kominn að hon-
um. Ég er ekki búinn að ná
mér eftir þetta."
Það ætti að vera óþarfi að
brýna það fyrir foreldrum að
láta börn sín bera endurskins-
merki. Reiðhjól eiga auðvitað
ekki að notast eftir að dimma
tekur nema að þau hafi full-
kominn ljósaútbúnað — -auls
endurskinsmerkja. Hér var á
ferðinni piltur, sem hafði
hvorugt.
Þessi glæsilegi sendi-
ferðabíll er til sölu nú
þegar. Upplýsingar 1
síma 40695 í dag og
næstu daga.
Til sölu
Fírmakeppri
Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst í Alþýðuhúsinu
miðvikudaginn 16. nóv. kl. 8.
Spilarar eru hvattir til að mæta.
STJÓRNIN.
Skermagerð
Vélar, áhöld og efni til skermagerðar
til sölu. Upplýsingar í síma 14960.
IJng barniaus h]ón
óska eftir 1—2 herbergja íbúð sem næst Miðbænum.
Upplýsingar í síma 40645 milli kl. 3—6.
Tek að mér
sjálfstæðar bréfaskriftir á íslenzku, dðnsku og
ensku. Þýzk bréf koma einnig til greina. Tilboð
sendist afgr. Morgunbl. fyrir 25. þ.m. merkt:
„Heimavinna — 8423“.
Lipur maður óskast
til útkeyrslu- og lagerstarfa m. fl.
BÓLSTRUN IIARÐAR PÉTURSSONAR
Laugavegi 58.
Síidarbátur til sölu
180 smálesta vélbátur til sölu. Báturinn er nýlegur
og í ágætu standi og með öllum nýtízku síldar-
útbúnaði þar á meðal nýrri síldarnót.
Nánari upplýsingar í síma 24635 og 16307.
Til sölu
húseignirnar Vesturgata 14 og Tryggvagata 6. Sam-
liggjandi eignarlóðir, er ná milli gatna, samtals um
560 fermetrar. Upplýsingar milli kl. 14 og 17 í
símum 12895 og 13324.