Morgunblaðið - 16.11.1966, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. nóv. 1968
Callaó, Perú,
Dean Johnson
AP.
FISKIMENNIRNIR stóðu í
smá-hópum á bryggjunum og
töluðu hljóðlega saman með-
an þeir gerðu við net sín og
kvörtuðu undan kaupinu.
Venjulega er mikið um að
vera á bryggjum. Callao er
hafnarborg Lima, höfuðborg-
ar Perú, og á bryggjunum
venjulega fjöldi sjómanna
að vinna við afla bátanna.
Nú ríkir þar kyrrð. Sjómenn-
irnir eru í verkfalli.
Nokkur hluti fiskiflotans, sem er í verkfalli í Callao.
.Okkur langar ó s jóinn
á
• >
segja sjomenn i
eftir hálfs mánaðar
verkfall
■^sffi/r&'fSfý///iMSp'/' &///"'? wsvr, yV'- ttfn ■■y/f/í •• ■■ ,/y</s'.- 'WSPS&&?-'’ ' Sf_
Wjm
„Móðir mín dó úr elli í
dag,“ sagði Delfin Carreno,
ritari eins sjómannafélagsins,
sem stendur að verkfallinu.
„En á morgun fer ég enn á
ný á fund í atvinnumálaráðu-
neytinu til að reyna að
leysa þetta vandamál," sagði
hann. „Við verðum að fá
kröfum okkar framfylgt.“
Um 20 þúsund sjómenn í
Perú lögðu niður vinnu í lok
október og hófu verkfall.
Krefjast þeir þess að verð á
ansjósum verði hækkað úr
80 soles (kr. 130,—) í 115
soler (kr. 187,—) tonnið, og
að þeim verði tryggð 3.000,—
soles mánaðarlaun (kr.
4.840,—)
Einn sjómannanna, Joseph
Mucih, sem er ókvæntur,
sagði: „Ég átti enga peninga
þegar verkfallið hófst. Þetta
er erfitt. En verra er það
fyrir fjölskyldufeðurna. Okk
ur langar að komast aftur á
sjóinn.“
Annar sjómaður, Dagoberto
Rodriguez, bætti við: „Ástand
ið er orðið mjög alvarlegt. Ég
á sex börn á skólaskyldualdri,
sem ég þarf að sjá fyrir.“
Mucich sagði að minni
bótarnir öfluðu aðeins fyrir
um 800 soles á sólarhring
(um 1.300,— krónur), „og
það fer meiri tími í að leita
að torfunum en í veiðarnar
sjálfar.“
Aðrir sjómenn ráfuðu að-
gerðarlausir um bryggjurnar.
Flestir neituðu að segja til
nafns, því þeir óttuðust hefnd
araðgerðir atvinnuveitend-
Algeng sjón í Callao.
Sjómenn huga að netunum.
anna eftir að vinna hæfist á
ný.
Margir sögðu að það væru
litlu útgerðarfélögin, sem
verst færu út úr verkfallinu.
Þau hafa ekki bolmagn að
missa tekjurnar, jafnvel ekki
um smástund, sögðu þeir.
„Og þó við séum ekki að
vinna fyrir okkur,“ sagði
einn þeirra, verðum við að
annast viðhald á netum og
bátum. Þetta dettur miklu
fyrr í sundur þegar ekki er
verið að nota það.“
Líknarfélag safnar
notuðum frámerkjum
Áibók FÍ1SÍ3
ljóspientu.
FERÐAFÉLAGIÐ hefur látið
ljósprenta árbókina 1933, en hún
hefur lengi verið mjög torfeng-
in. Aðalefni bókarinnar er lýsing
Pálma Hannessonar é Land-
mannaleið og Eldgjá, snilldar-
lega skrifú'ð, sem vænta mátti.
Bókinni fylgir litprentað kort,
sem nær yfir Veiðivötn, Land-
mannalaugar og Torfajökul.
Hin nýja útgáfa er prentuð
hjá Offsetmyndum, mjög vel
unnin og pappír sérlega góður.
Bókin fæst í skrifstofu Ferðafé-
lagsins, Öldugötu 3, og vérður
einnig send gegn póstkröfu eftir
pöntun. (Frá Ferðafélaginu).
f MBL. var þann 10. þ.m. sagt
frá Sjómannaheimili í Dan-
mörku og farið fram á notuð
ísl. frímerki til styrktar. Mbl.
hefur verið beðið um að vekja
athygli á því, að líknarfélag hér
á íslandi, sem berst í bökkum
fjárhagslega, hefur á sl. ári afl-
að nokkurra tekna með sölu á
notuðum íslenzkum frímerkj-
um. Það er Geðverndarfélag fs-
lands. Hafa sjúklingar límt
þessi frímerki smekklega á
spjöld, með skýringum á ensku,
og eru þau ætluð erlendum
ferðamönnum.
Hefur Mbl. verið beðið um að
hvetja fólk til að senda Geð-
verndarfélaginu notuð frímerki,
merkt Geðvernd, Pósthólf 1308,
Reykjavík, og styrkja með þvi
gott málefni.