Morgunblaðið - 16.11.1966, Síða 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. nóv. 1966
Skrifstofur okkar eru fluttar
á LAUFÁSVEG 12
(Nýtt hús neðan við götuna skammt frá homi
Laufásvegs og Skálholtsstígs).
H. Ólafsson & Bernhöft
(Simar sem áður 1-97-90).
Kaupmenn —
KaupféSög
EINANGRUNARBÖND 10 litir.
DRÁTTARTÓG fyrir bifreiðir.
Heild sölubirgðir:
EIRÍKUR KETILSSON
Vatnsstíg 3 — Símar 23472—19155.
Víð Safamýri
Höfum til sölu glæsilega 5—6 herb. íbúð á efri hæð
í nýlegu tvíbýlishúsi við Safamýri. íbúðin er 136
ferm.. með tvöföldu gleri, harðviðarinnréttingum,
tvennum svölum og teppum. Sérinng. Sérhitaveita,
-4.
og sérþvottahús. Bílskúrsréttindi. Skipti á ein-
býlishúsi með fjórum svefnherbergjum koma til
greina.
Skipa- & fasfeignasalan
KIRKJUHVOLI
Símar: 14916 og 13842
Nýr gagnfræöaskóli
í Garðahreppi
45% íbúanna undir 16 ára aldri
f GARÐAHREPPI eru um 2000 !
íbúar, þar af 45% undir 16 ára
aldri, svo skólamálin eru þar
af skiljanlegum ástæðum mál
málanna. Fram að þessu hafa
unglingar sótt skóla í önnur
hyggðarlög, eftir að skyldunámi
lauk. En í gær hófst þar kennsla
í nýstofnuðum gagnfræðaskóla.
Mbl. leitaði frétta af því hjá
íormanni skólanefndar í Garða-
hreppi, sr. Braga Friðrikssyni.
NÝJAR GERÐIR:
KULDASKÓR
OG
GÖTUSKÓR KVENNA
SKOVER
Extra steypustyrktarjárn
Siemensmartin gæðastál
Stóreykur styrkleika, tryggir öryggi
bygginga, sparar efni
Hentugasta steypustyrktarjárn fyrir
ibúÖa-blokkir, verksmigjur, raforkuver
og brýr að áliti sérfræðinga.
Heimsmarkaðsverð og hagstæðir
greiðsluskilmálar
Einkaumboð fyrir:
ewcmetr
Tékkóslóvakíu
R. JÓHANNSSON H. F.
Vonarstræti 12 — Sími: 2-1981.
Sagði hann, að þar sem stækkun
barnaskólans væri í gangi og
íþróttahús væri næst á dagskrá,
hefði verið tekið leiguhúsnæði
í nýju húsi við Lyngás til að
leysa bráðabirgðaþörf gagn-
fræðaskólans. Þarna fást til af-
nota 4 kennslustofur, en leikfimi
og handavinna fara fram 1
barnaskólanum.
í Gagnfræðaskóla Garða-
lirepps eru rúmlega 100 nemend-
ur í 3 bekkjardeildum, en 4.
bekkur tekur ekki til starfa fyrr
en á næsta ári. Skólastjóri er
Gunnlaugur Sigurðsson og kenn
arar eru 16 talsins að meðtöld-
um stundakennurum.
I barnaskólanum í Garða-
hreppi eru um 400 nemendur.
Ný álma er í byggingu við
barnaskólahúsið við Vífilsstaða-
veg. í henni er bráðabirgðaleik
fimissalur, sem væntanlega
verður tilbúinn á næstunni og 4
kennslustofur á efri hæð.
Óttast var um
gaseitranir
— er flutningalest fór út af
teinuvn í smábæ
Homer, Miehigan 11. nóv. — AP.
ELUTNINGALEST fór út af
teinum í smábænum Homer í
dag, og skullu þrír vagnar,
fullir af lífshættulegu gasi á
undirstöðum benzín- og olíu-
geyma við brautina. Sprakk
einn gasgeymirinn og gaus
þegar upp gífurlegt eldhaf.
Slökkviliðsmenn börðust ákaft
við eldinn. og reyndu að hindra
að kviknaði í olíu- og benzín-
geymunum sjálfum, en þeir
geyma um 680 tonn af olíum
og benzíni.
Ekki hafði frétzt um meiðsli
á mönnum í gærkvöldi, en hins
vegar höfðu um 1000 íbúar bæj-
arins, að 1700 sem byggja hann,
verið fluttir á brott vegna eitr-
unarhættu af gasinu.
í gærkvöldi var þó talið að
hættan á gaseitrunum væri af-
staðin. í gastönkunum voru
tvær gastegundir, sem við hita
mynda sameiginlega gastegund-
ina „phosgene", en henni var
m. a. beitt í gashernaði í heims-
styrjöldinni fyrri.
— Landrábamenn
Framhald af bls. 16
verið stjórnmálafélag eingöngu,
ekki klíka samsærismanna.
Réttarhöld hófust í máli þessti
í dag, eins og áður sagði, og eru
taíin getá dregizt nokkuð á lang-
inn, því 400 vitni verða þar
leidd frám, þar á meðal, aulc
höfuðvitnis saksóknara, Grivasar
hershöfðingja, forsætisráðherr-
herrann fyrrverandi, George Pap
andreou.
Glæsilegt garðhús
Höfum til sölu fokhelt glæsilegt garðhús við
Hraunbæ. Húsið hefur 4 svefnherb., geymslu og
þvottahús og að auki búr inn af eldhúsi. Eldhúsið
er stórt og með góðu rými fyrir borð. Bílskúrs-
réttur. — Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Fastelgnaþjónustan
Austurstræti 17 (Silla og Valda-húsinu)
Símar 24645 og 16870.
Ragnar Tómasson, hdl.
Reykjavík - Keflavík
- Sandgerði
Frá og með 20. nóvember n.k. verður sú breyting
á brottfarartímum bifreiða okkar, að síðasta ferð
frá Reykjavík verður kl. 11,30 í stað kl. 12 á mið-
nætti. Samkvæmt því verður brottfarartími kl. 0,30
frá Keflavík til Sandgerðis og Garðs.
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur.
IMý sending
ítalskir kjólar
og peysur
Glugginn
Laugavegi 49.