Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 30
30 MORGU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 16. nóv. 196 Frægir þýzkir handknatt- leiksmenn leika hér Koma hér á vegum Þrótfar og leika 3 leiki i næstu viku Á MÁNUDAG, þriðjudag og fimmtudag; í næstu viku gefst tæki- færi til að sjá í kappleik við beztu handknattleiksmenn okkar, ágætt þýzkt lið, Turnverein Oppum, frá bænum Krefeld í Vestur- Þýzkalandi. Þetta lið varð m. a. Þýzkalandsmeistari í útihandknatt- leik karia 11 manns, sem þar í Iandi er mjög vinsæl íþrótt, og hefur staðið sig ágætlega í innanhússkeppni, og í röðum þess eru m. a. fjórir menn sem eru landsliðsmenn í innanhússhandknattleik og einn, sem valinn er í lið Þjóðverja í næstu heimsmeistarakeppni. Segir þetta allmikið, því V-Þjóðverjar eru í fremstu röð í hand- knattleik. Tilviljun? „Tilviljanirnar“ í handknatt- leiknum gerast nú alltíðar. skemmst að minnast að tilviljun réði því á síðustu stundu, að við fáum að sjá V-þýzka landsliðið í tveim landsleikjum 29. og 30. nóv. hér í Reykjavík. Og á blaða- mannafundi í gær kom fram að lið þetta „rak á fjörur" Þróttar og fyrir einskonar tilviljun var heimsókn þessi til Þróttar flutt fram til haustsins vegna anna í vor, þegar Þróttur átti rétt á erl. liði í heimsókn. En ekki er nema gott um slíkt að segja, þegar „tilviljanirnar“ eru til ánægjuauka og skemmt- unar. Má ætla að heimsókn þessa þýzka liðs verði góð „general- prufa“ fyrir landsleikina við Þjóðverja. E.t.v. verða einhverjir leikmannanna eftir og leika í landsleikjunum, þó ekki hafi brotizt um það fregnir. Leikir liðsins Fyrst leika Þjóverjarnir frá Krefeld við Reykjavíkurmeistara Fram á mánudagskvöld kl. 8.15. Forleikur milli meistaraflokks Þróttar og Unglingalandsliðsins hefst kl. 7.45 og verður 2x15 mín. Á þriðjudagskvöld kl. 8.15 leika Þjóðverjarnir við íslands- meistara FH. Forleikur hefst kl. 7.55 milli 3. fl. Þróttar og 3. fl. Víkings. Á fimmtudagskvöld kl. 8.15 leika Þjóðverjarnir við úrvalslið HSÍ — það sem fimm dögum síðar mætir landsliði V-Þýzka- lands. Hingað koma 14 leikmenn, 5 manna fararstjórn þ. á m. J. Domkes formaður félagsins og auk þess sérstakur fulltrúi frá borgarstjórn Krefeld. Meðal leikmanna má nefna Engels markvörð, 25 ára, sem talinn er í röð beztu markvarða í handknattleik úti og inni í V- Þýzkalandi. Ratayczak, 22 ára sem 5 sinn- um hefur verið í landsliði í útihandknattleik. Schroers, 22 ára, landsliðsmað- ur í innihandknattleik. R. Schwanz, 19 ára gamall, sem 9 sinnum hefur verið í lands- liði V-Þjóðverja, æfir nú undir heimsmeistaraleikina og er tai- inn einn af efnilegustu leikmönnum síns lands. Franski sundmaðurinn Alain Mosconi, 17 ára gamall, var aðeins 8/10 frá heimsmeti Rússans Belitz-Geiman í 800 m. sundi í gær. Synti Frakk- inn á 8.48.2, en heimmetið er 8:47.4. Mosconi setti nýiega heimsmet í 400 m. skriðsundi. Bretlandsmeistari í létt þungavigt hnefaleika, Skot- inn Chic Calderwood beið bana í bifreiðaslysi skammt utan Glasgow á sunnudag. Clalderwood er eini Skotinn sem barist hefur um heimstitil í hnefaleikum — án sigurs þó. Rehbach, 22 ára. úrvalsleik- maður í úti- og innihandknatt- leik. Brauweiler, 26 ára, 4 sinnum fyrirliði í landsliði í innihand- knattleik. Schwanz, 19 ára, 9 sinnum í landsliði í innihandknattleik, er í v-þýzka úrvalliðinu er æfir undir heimsmeistarakeppnina og talinn einn efnilegasti leikmaður í Þýzkalandi. Zwiekowksy, 25 ára, 6 sinnum í landsliði utanhúss og hefur hlotið æðsu orðu afreksmanna í íþróttum frá forseta V-Þýzka- lands. Upptalningin er sem sé ekki slök — og vonandi. verða leik- irnir einnig góðir. 8 'v - Clay vann létt í 3. lotu Williams lá þrásvar ■ golfinu og kom engu höggi sem að kvað á Clay CASSIUS Clay komst létt og auð veldlega frá því að verja titil sinn fyrir Clevelands Williams í fyrrinótt. Hann gerði raunveru lega út um leikinn í 2. lotu, þó leikurinn væri ekki stöðvaður og Clay lýst sem sigurvegara fyrr en eftir að rúm mínúta var liðinn af þriðju lotu. Lá þá Cleve land Williams enn í gólfinu að vísu ekki alveg rotaður, en ófær um að halda áfram leiknum. Williams er talinn höggharð- asti hnefaleikarinn, sem Clay hefur mætt eftir að hann varð heimsmeistari. En í kappleikn- um í fyrrinótt fékk áskorandinn aldrei tækifæri til að koma al- mennilegu höggi á Clay — jafn- vel ekki sæmilegu höggi. Hinn ótrúlegi hraði Clays kom í veg fyrir það. í upphafi kappleiksins fór Clay sér rólega og mjög var- lega — eins og hann væri að kanna allar aðstæður. Er á leið lotuna gerði hann þó skyndiárás. Hann dansaði kringum Williams og ávann sér stig með sínum eldsnöggu vinstri handar högg- um. Og það mátti sjá undir lok lotunnar að þessi högg höfðu talsverð áhrif á Williams. Og tvö vinstri högg og beint hægri högg um leið og bjallan glumdi fengu hann til að vakna. f 2. lotu komu hraðayfirburðir Clays og fjölþættir hæfileikar enn betur í ljós. Williams varð æ rauðari í andliti og það var augljóst að hverju stefndi. Um miðbik lotunnar féll Will iams í gólfið eftir vinstri handar „húkk“. Hann stóð fljótt á fæt- ur en stók skynditalningu að átta. En Clay réðist að honum þegar sem tígrisdýr og sló hann aftur í gólfið. Þegar bjallan hljóm aði slagaði Williams í sitt horn og aðstoðarmenn hans höfðu nóg að gera að vekja hann til fullrar meðvitundar í hléinu. Er 3. lota hófst virtist Williams hafa náð sér. En Clay sýndi þeg 14 manna lið gegn Þjéðverjum valið „EINRÆÐISHERRANN" í handknattleik karla Sigurður Jónsson hefur nú vaiið eftir- talda 14 menn til lokaæfinga fyrir landsleiki við V-Þjóð- verja, sem ákveðnir hafa ver ið 29. og 30. nóvember. Er hópurinn valinn úr 22 manna hópi, sem valinn var upphaf- lega til landsliðsæfinga. Þessir ,.14 fóstbræður“ eru: Kristófer Magnússon F.H. Sveinbjörn Björnsson Árm. Þorsteinn Björnsson. Fram. Birgir Björnsson, F.H. Einar Magnússon Víking. Geir Hallsteinsson. F.H. Gunnlaugur Hjálmarsson Fram, fyrirliði. Guðjón Jónsson Fram. Hreinn Halldórsson Ármann. Ingólfur Óskarsson Fram. Jón Hjaltalín Viking. Sigurður Einarsson Fram. Stefán Sandholt Val. Örn Hallsteinsson F.H. ar að ekki stóð hann styrkum fótum. Höggum rigndi yfir hann og brátt tók hann að slaga í hringnum. Eftir rúma mínútu féll hann og leikurinn var stöðv- aður því þó Williams væri ekki rotaður var hann ófær til fram- halds. Clay hafði varið titil sinn í 5. sinn í ár. Williams hafði beðið sinn 6. ósigur í 12 leikjum. Þrisv ar hefur hann verið rotaður, 1959 og 1960 af Liston og eitt sinn 1954. En hann hafði ekkert svar við líkamlegum yfirburðum Clays. Sérfróðir höfðu gefið hon um smávonir og byggt það á höggþunga hans en margir dást að honum fyrir á hvern hátt hann þjálfaði sig og vann sér rétt til þessa kappleiks, því 1964 var hann 7 mánuði á sjúkrahúsi eft ir skotsár og var ekki hugað líf mánuðum saman. Arsþing IÍKÍ ÁRSÞING Körfuknattleikssam- bandsins verður haldið í Vals- heimilinu 19. nóvember (laug- ardag) og hefst kl. 14. Flokkngliman 27. nóvember FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur verður háð sunnudaginn 27. nóv. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Valdimars Óskarsson- ar, Hátúni 43, fyrir 21. nóv. Ungmennafélagið Víkverji sér um mótið. Sheffield Wed. hefur keypt John Ritchie, miðherja frá ' Stoke City fyrir 70 þúsund pund. Hagnast Stoke því vel á Ritchie því félagið heypti hann fyrir 5 árum á 2500 pund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.