Morgunblaðið - 27.11.1966, Side 11

Morgunblaðið - 27.11.1966, Side 11
Sunnudagur Tf. nóv. 1966 MORCU N B LAÐIÐ 11 hjá mér af lifa af þessu. Ég ! hef aelt nokkuð reglulega frá því að ég byrjaði að sýna. — Kostar það þig ekki neinn sársauka að láta frá þér mynd- ir þínar? Flóki hugsar sig um og dreg- ur við sig svarið. — Ne-i, yfir- leitt ekki, ef ég veit af þeim á svona nokkurn veginn góðuni stöðum, þá kemur það ekkert illa við mig að láta þær. —■ Hugsarðu til myndanna þinna? — Já, það geri ég iðulega. — Veiztu hvar þær eru? — Já, svona í það stóra heila. Eg skrifa það niður og ég held að ég haf: nokkuð góða skrá yf- ir það sem ég hef gert allt frá því að ég var tólf ára gamall | — Svo við víkjum aðeins afí- ur að þjáningunni, sem að lista- I mannalaunin leiddu okkur frá áðan, þá langar mig til að spyrja: Finnst þér þjáningin at- hyglisverðari en hamingjan? Nú er margt fólk hamingjusamt? ! — Jú, jú. Ég vil ekki segja að ég hafi neitt einskorðað mig við þjáninguna eða bitið mig fastan í lærið á henni og sleppi þaðan ekki tökum. Mitt plan er ( nokkuð stórt. Svo er það ef til Vill erfitt að skilgreina hugtök eins og hamingju og þjáningu, Það verður oft ákaflega nota- legur kokteill úr þessu. Það er rétt, að myndir sem ég hef gert hafa verið beinlín- ' is óhugnanlegar, en svo virð- | ist að þær höfði ekki síður I til fólks og verið keyptar og jafnvel hengdar upp í svefn- j herbergjum eða barnaherbergj- | um. Smekkur manna er alltaf mjög persónubundinn. —Þú telur sem sagt að mynd ir þínar nái til fólksins? — Ég held að fólk skilji mín- ar myndir. Maðurinn á götunni hefur miklu meiri tilfinningu fyrir myndum heldur en t.d. listfræðingurinn. Það er með hann eins og leikarann að hann er búinn að fá atvinnusjúkdóm, og getur ekki sagt já, já, eóa nei, nei, en allt þar á milli er frá djöflinum. Hann sér ekki lengur greinarmun gcðs og ills. Almenningur hefur miklu sterk ari tilfinningu fyrir myndlist. Það opnaði t.d. augu mín tölu- vert fyrir þessu 1956, fyrsta vet- urinn minn í Handíðaskólanum. Þá var það í listasögutíma hjá Birni Th. Björnssyni að talið barst eitthvað að hreinni mynd list og apstraktlist og Bjöm gagði af sinni alkunnu hlé- drægni að hann yrði nú að segja fyrir sig, að hann hefði mesta nautn af non fíkúratífum mynd- um. Þetta sló mig eins og það hefðu farið í mig fjörutíu þús- und leðurblökur Sko, það hlyti að vera heldur hraklegur og voðaiegiu* æviferill að sitja við það frá morgni til kvölds að búa til nautnalyf handa Birni Th. BjörnssynL Eftir þetta fór ég að sjá listasöguna í öðru Ijósi. — íslenzk myndlist er á lágu atigi pf þínu áliti? — Ég nef hugsað mér að setja •koðanir mínar um íslenzka mál aralist upp í ágæt medium sem er leynilögreglusaga, sem ég hef *vo hugsað mér að gefa út í framtíðinni í gömlu og góðu hasabiaðaformi, mikið mynd- íkreyttu. Ég skal segja þér efni •ögunnar í stuttu máli til þess að' intresera þig: Það eru tveir fulltrúar fyrir ísland sendir með íslenzka yfirlitssýningu til Ang- magssalik á GrærJandi Þetta eru hinn kunni iistfræðingur Theodór Bj. Theodórsson og Pétur Valtýsson listmálari. Þeir lenda þarna í ýmsum ævintýr- lun og það koma fram inn á milli harðar rökræður þeirra um myndlist. Þeir kynnast m.a. mjög sérvitrum amerískum millj ónamæring sem hefur komið sér upp villu þarna og á helvíti mikið safn listaverka, eftir því eem hann segir. Þeir vilja nátt- úrlega kynna sér þetta safn sem áhugamenn um myndlist. En þeir hverfa þá á mjög dularfull- an hátt og kemur það ekki fram fyrr en í bókarlok og þá gegn- um grænlenzkar vændiskonur að ameríkaninn safnaði eliki listaverkum í þeim skilningi, heldur uppstoppuðum lista- mönnum Þessi saga er sett í mjög spennandi form og er kröftuglega myndskreytt. Ég er langt kominn með hana nú. — Og þú hefur í hyggju að gefa hana út? — Ef ég lík henni, sem ég vonast nú tii að verði þá hef ég ekkerí á móti því að gefa hana út. Ég er alveg viss um að bezta ráðið til pess að koma skoðunum sínum fram, ekki sízt þegar myndlistin á í hiut, sé leynilógreglusöguformið eða eitthvað fantatiskt. Ég er í grund vallaratriðum sammála því sem franskur listmálari segir á ein- um stað 1 dagbók sinni, nefni- lega að rryndlistin hafi verið í stöðugri hnignun alit frá dög- um haendurreisnarlíabilsins, og kemur þar rnargt til. — Hefurð i ferðast víða? — Lítilsháttar. Ég hef verið langdvölum í Danmörku og þá aðallega í Kaupmannahöfn og hef einnig farið um Þýzkaland, Frakkland, Spán, Sviss og Sví- þjóð. — Er það listamanni nauðsyn- legt að ferðast? — Eg held að það sé í raun og veru er ekki hægt að kynn- ast íist r.ema að maður ferðist og fari á söfn því að bækur um listir og listastefr.ur eru ekki gefnar út. Ég talaði við dansk- an gagnrýnanda sem var við nokkuð stórt og lesið blað þar og hann sagðist ekki þora að skrifa um myndlist sem ekki væri annað hvort mon fíkúratíí eða í ætt við kóbragrúbbuna alræmdu Hann átti einfaldlega í hætu að missa stöðu sína við blaðið. Svona gengur þeta og sérstaklega þar sem afstraktlist og non fígúratíf list eiga í vök að verjast eins og í stærri lönd- unum. — Ef við tölum aðeins meira um liti Flóki. Telur þú ekki að það sé hægt að ná fram sterk- ari áhrifum með litum? — Ég held að svo sé ekki, — ekki a.m.k. fyrir mig. Það er oft gaman að sjá á stórum söfn- um þegar lítil teikning hangir við hliðina á stóru olíumálverki og teiknirsgin bókstaflega stein- drepur málverkið. Það hefur eitt skáld og listamaður kallað liti elskhuga beljurassa, en ég er því nú ekki sammála, þótt langt sé reyndar síðan ég hef séð fallegt málverk. Það er alls ekki hægt að kasta teikningunni íyrir borð, því engin mynd getur staðið á litunum einum saman. Það verð ur að vera fullkomið samspil á milli teikningarinnar og litana. j — Hugsarðu aldrei í litum þegar þú teiknar? — Jú, það geri ég gjarnan og ég held að ég geti fengið meira ! litaspil út úr pennanum og svörtu tússi hcldur en margur j málarinn. j — F.r ekki gaman að vekja um tal og vera umdeildur? — Mér finnst ákaflega gam- an af slíku. Mér líkar mjög vel . ef það verða einhverjar diskús- sjónir um myndir mínar, en það ' segi ég alveg satt, að ég hef I aldrei gert neitt til þess að vekja athygli á mér. Ég hef aðeins gert eitt það að segja mein- ingu mína svona nokkurn veg- I inn hreint út. Ég hef ekkert á móti þv' að vekja skandal, en það hef ég aldrei gert af ásettu 1 ráði. Skandalar þurfa bara að vera nógu stórir. Og einmitt sá ' áróður sem skapast í gegnum þá ’ er stærsti áróður og sterkasti sem til er. Það eru til málarar . sem dóu lóngu fyrir aldamót, en j eru umtalaðir ennþá vegna þess | að þeir sýndu einhverja mynd I á salóninu í París sem vakti hneyksli á sínum tíma. — En pop eða páfa listin? — Það er tízkufyrirbrigði sem líður fljótt hjá. Ég held að páf- inn í Róm og ég munum líta það íyrirbrigði svipuðum aug- um. — Ertu afkastamikill? — Það er tímabilsbundið. Ég get verið asskotanum afkasta- meiri á tímabilum. — Er það eitthvað árstíða- bundið? — Skammdegið hefur alltaf virkað vel á mig. Ég hef líka tekið eftir því að ég vinn bezt þegar tungl fer vaxandi eða er fullt. — Þínar myndir verða til við innspírasjón? — Já. Ég er ekki málari sem labbar með trönur út í náttúr- una. Ég vinn nokkuð reglulega, en það má heldur líta á það sem æfingar, meðan myndirnar erii að mótast í hausnum á mér. — Gerirðu skissur? — Nei, aldrei. Einmitt það er mörgum nauðsynlegt og sjáif- sagt. En það virkar þannig á mig að ef ég geri skissu ao mynd og reyni að forma mynd- bygginguna þá hef ég einhvern veginn mist lögunina til þess að búa til myndina sem ég var með í hausnum. Það er t.d. eins og þegar maður fær einhverja hug mynd og fer síðan á kaffihús og segir frá henni. Hann kjaftar sig í raun og veru frá hugmynd- inr.i og missir alla löngun til þess að búa eitthvað til. — Nú leggur þu mikla vinnu í þínar mj r.dir. Þvnnast hug- myndirnar aldrei út á meðan þú ert að teikna myi cina? — Nei, síður en svo, þær þrengjast út og magnast og ef það er einhver málari sem hef- ur örvandi áhrif á mig þá er það Alfreð Flóki. — Sérðu eftir að hafa gert sumar myndir þínar? | — Nei, aldrei jafnvel bó að ég verði óárægður með þær seinna sem sjaldan kemur fyr- ir. Þær eru alla vega heimildir um mig á vissu tímabili. j — Og ertu ánægður með myndir þínar? I — Annars væri ég ekki að þessu. Og hér gæti verið amen eftir efninu. stjL Lækningastofa okkar er flutt að Klapparstíg 25 — 27. Sími óbreyttur 12811. Stofutími hjá Árna Guðmundssyni sami og áður, 4—5, hjá Henrik Linnet laugar- dagstími 9,30—10,30 annar tími óbreyttur (1,30— 2,30, fimmtudegi 5—6). Símviðtal y2 tíma fyrir stofutíma, í síma 12811, fimmtudaga frá 12—1 í heimasíma 31173. Vitjanabeiðnir hjá báðum í síma 12811 til kl. 1 f.h. Árni Guðmundsson Henrik Linnet læknir. læknir. áSPAIAGOS SOUf MiX asperges —OCT m WHU X. DLLFRAI\!CE Franskar súpur tiu tegundir Biðjið um BEZTU súpurnar! Biðjið um ÓDÝRUSTU súpurnar! Biðjið um FRÖNSKU súpurnar! Heildsölubirgðir: Sími: 15789. John Lindsay hf. Aðalstræti 8. 1 svipmyndum Eftir STEINUNNI S. BRIEM. Upp- haflega varð ráð fyrir þvi gert, að bókin hefði inni að halda 100 við- töl og bæri nafnið «100 svipmynd- ir". En þegar farið var að vinna við hana í prentsmiðjunni, reyndist efnið of mikið i eitt bindi, og var þá horfið að því ráði að skifta því í tvö bindi. Kemur hið síðara væntanlega á næsta ári. Fyrir því er efni þessa bindis einhæfara en til stóð og takmarkast að mestu leyti við trúarieg og dulrœn efni. leiklist, dans, söng og músík. Verð kr. 397.50. * :'-X- „vj. j ■ . ý . / , ■■ ■ 1 Ljós í myrkrinu. Sigríður Einars frá Munaðarnesi þýddi bókina. — Hér er sagt frá litlum dreng, sem hrekst um Evrópu á styrjaldarárunum. Hann kynnist útlegðinni, hungrinu og skelfingum stríðsins. Hann ferðasi um tryllta veröld striðs og hörm- unga, án þess að bíða tjón á sálu sinni. Hann hefur varðveitt hjarta- lags bamsins og trúna á lífið og hið góða í mannssálinni. Verð kr. 193,50. Steinaldarþjóð heimsótt ööru sinni Eftir Jens Bjerre.------ Við fylgj- umst með, hvernig höfundur bók- arinnar og ástralskir varðflokks- stjórar brjótast yfir torgeng, skógi klædd fjöll til frumstæðra íbúa Nýju Gineu, $em aldrei hafa hvíta menn áður augum litið. — Þetta er bæði skemmtileg ferðabók og fög- ur og heillandi lýsing á fyrstu skrefum frumstæðrar þjóðar af stigi steinaldar, rituð af reyndum rnanni, sem hefur innsýn og skiln- ing á efninu. — — 1 bókinni eru 56 skrautlegar myndir, prentðar í fjórum litum. Verð kr. 349.40. LEIFTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.