Morgunblaðið - 26.01.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 26.01.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1967. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDU M MAGIMUSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 8ÍM11-44-44 \mm Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldi. Sím/14970 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022 ÖKUKENNSIA HÆFNISVOTTORÐ ÚTVEGA ÖLL GÖGN VARÐANDI BÍIPRÓF ÁVALT NÝIAR VOLKSWAGEN BIFREIÐAR 35481 Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar púströr oÍL varahlutir i margar gcrðir bifreiða. Bilavörubúðin FJÖBRIN Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga. • Lukka með sjónvarpið Þetta er nú meiri lukkan með íslenzka sjónvarpið; flestir hæla því upp í hástert. Hve lengi skyldi sú dýrð standa? Hvenær fara menn að skamma það í sömu tóntegund og bless- að ríkisútvarpið okkar hefur átt að venjast í þessum dálk- um? Annars berast fremur fá bréf um útvarpið í seinni tíð, enda hefur Guðmundur Jóns- son nú sérstakan útvarpsþátt með höndum, þar sem hann svarar bréfum um útvarpið á sinn þægilega' og skemmtilega hátt._ Þó liggur hér eitthvað af klassískum útvarpsbréfum, og verður éitthvað af þeim e t. v. birt seinna í einu lagi, þótt flest þeirra hefði átt að senda til dagskrárstjóra útvarpsins eða Guðmundar. — Nóg um það. Hér koma nokkur sjónvarps- bréf. • „í pokahorninu“ „Kæri Velvakandi. Sjónvarpið hefur verið ofar- lega á baugi síðustu mánuði, og fólk hefur fylgzt vel með upp- gangi þess. Áður en sjónvarpið kom, hafði ég lítinn áhuga á því, en fékk mér þó sjónvarp, og nú sé ég ekki eftir því. I heild er ég mjög ánægður með íslenzka sjónvarpið og finnst það góður gestur. Ég hripaði þetta niður m. a. vegna skrifa, sem ég sá um daginn um þátt- inn „í pokahorninu". Þar var verið að gagnrýna fyrri þáttinn af þessu tagi, og virtist sá, er það skrifaði, engan ljósgeisla sjá í þættinum, og var þó þama fyrirtaks fólk og margt, sem mér fannst athyglisvert. Sann- gjörn gagnrýni er holl og stuðl- ar að uppbyggingu og betri út- komu, en þarna fannst mér of djúpt í árinni tekið, og það, sem verst var, — þarna var dæmdur þáttur, sem átti eftir að sýna, og það þótti mér óheyrileg frekja og skortur á háttvísi. Seinni þátturinn „í pokahorn inu“ fannst mér með því bezta, sem hefur komið af íslenzku bergi í sjónvarpinu, og sumir kaflarnir þóttu mér frábærir. Ég hlakka til framhaldsins og þakka sjónvarpinu fyrir skemmtilegar og fróðlegar kvöldstundir. Með kveðju Vesturbæingur". • Sólskin í skamm- degi úr pokahorni Heimakær skrifar 15. jan.: „Kæri Velvakandi. Mikið hefur verið ritað lof- samlega um dagskrá Sjónvarps ins í heild, og er það vel; lang- ar mig til þess að bæta þar við. Sérstaklega var ég hrifin af þættinum „í pokahorninu“ í umsjá Árna Johnsens síðastlið- ið föstudagskvöld. Þótti mér hann með afbrigðum góður. Sendi ég sjónvarpinu þakklæti fyrir sólskinið, er þáð lætur okkur í té í skammdeginu. Bíð með óþreyju eftir næstu dag- skrá. Heimakær“. • Canaris-myndin o. fl. „Ein 100% ánægð“ skrif- ar: „Kæri Velvakandi! Ég var að enda við að horfa á myndina um Canaris í sjón- varpinu, og ég get varla orða bundizt. Hvers vegna var sagt, að þessi mynd væri ekki ætluð börnum? Hvað var það eiginlega, sem börnum var óhollt að sjá? — Ekki eitt einasta morð eða of- beldi á neinn hátt. Hvað má þá segja um Com- bat, Bonanza eða bara ýmsar myndir á 3-sýningum kvik- myndahúsanna, sem" allt niður í 3 ára börn sjá á hverjum sunnudegi? Ég rak dætur mín- ar 12 og 13 ára í rúmið, áður en myndin byrjaði og bjóst við hroðalegum glæpum eða ég veit • ekki hver ju. Mín skoðun er, að þessi mynd hafi átt er- indi til unglinga og barna allt niður í 10 ára aldur. Það myndi kannske vekja áhuga þeirra á sögunni. Þótt saga heimsstyrj- aldarinnar síðari sé að vísu ekki kennd í barna- eða gagnfræða- skólum, ætti hver og einn að vita skil á heimsviðburðum þessarar aldar, ekki síður en þvi, sem gerðist fyrir hundruð- um ára. Svo langar mig til að þakka sjónvarpinu fyrir ágætar dag- skrár. Það hefur farið vel af stað. Og þeir, sem eru að hnýta í það og þykir það „þunnt“ ættu að reyna að ímynda sér, hvort útvarpið hafi verið nokk- uð betra í bernsku sinni (og er það reyndar ekki enn). Heill sé sjónvarpinu, og fleiri mynd- ir á borð við Canaris! „Ein 100% ánægð“. • Kvikmynda- kynningar Sl. þriðjudag birtist hér í Mbl. gagnrýni á annan af tveimur kvikmyndagagnrýn- endum blaðsins. Velvakandi ætlar ekki að blanda sér í þær deilur eða stælur, en vitanlega hljóta gagnrýnendurnir að kalla yfir sig reiði sumra, af því að báðir virðast þeir vilja vera „anti-intellectuel“ í skrif- um sínum, sbr. gagnrýnina um myndina í Hafnarbíói sl. þriðjudag. Skiljanlegt má ef til vill kalla, að hið hástemmda raus, sem stundum er nefnt kvikmyndagagnrýni, framkalli mótbáru (,,reaction“) hjá nýj- um gagnrýnendum, en ekki mega þeir þó ganga of langt til móts við plebejismann. Hins vegar datt Velvakanda í hug af þessu tilefni, hve fár- ánlega kvikmyndahúsaeigendur kynna oft myndir sínar. Skömmu fyrir áramótin sýndi kvikmyndahús hér i borg hina heimsfrægu og margumtöluðu mynd „Alphaville“. Velvakandi hafði lengi beðið eftir að sjá þessa mynd, sem hann hafði lesið svo mikið um í erlendum blöðum, en þó var það svo, að hann missti af henni, vegna þess hve íslenzk nafngift henn- ar var bjánaleg. Af því að E. Constantine, sem frægur er úr Lemmy-myndunum, lék í kvik- myndinni, var hún auglýst á ís- lenzku undir mjög villandi heiti, — eitthvað á borð við „Lemmy lemur aftur frá sér“ eða „Lemmy hefur lúkuna á lofti“, þannig að ekki var nokk ur leið að átta sig á því, hvaða mynd var hér á ferð. Að vísu var nafnið „Alphaville" prent- að með smáletri undir íslenzka nafninu, en ekki auðnaðist Vel- vakanda að taka eftir því fyrr en um seinan. Svo segja kvik- myndahúsaeigendur eftir á, að ekki tjói að sýna „góðar“ mynd ir vegna skorts á aðsókn! Ferðatöskur og handtöskur alls konar stórar og smáar. NÝKOMNAR í miklu úrvali. GETsIPf Vesturgötu 2. Skrifstofustarf Byggingafélag óskar að ráða nú þegar karl eða konu til skrifstofustarfa. Kunnátta í bókfærslu og launaútreikningi nauðsyn- leg. Umsækjendur leggi inn nafn ásamt upplýsingum um fyrri störf og kaupkröfu inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „Skrif- stofustarf — 8974“ fyrir 31. jan. n.k. Algerri þagmælsku heitið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.