Morgunblaðið - 07.03.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1967,
5
Gúmnibjörguiiarbáturinn dreginn i iand meö fjóra af áhöfnini innanbords.
Bjargað í land án Jbess að blotna
Rætt við Steingrím Jónsson, formann björg-
unarsveitarinnar á Stokseyri, er bjargaði
áhöfninni af Bjarma II
fjórir fóru með bátnum í
hverri ferð. Voru þeir fyrst
komnir í land rétt fyrir kl. 3,
en þeir síðustu um kl. 5. Veð-
ur var allsæmilegt til björg-
unarstarfa, en þó var allmik-
ið brim. Sjórinn kyrrðist þó
er á leið. og blotnaði enginn
skipsbrotsmanna svo heitið
gæti.
— Ég hef mjög litla trú i
að hægt verði að bjarga bátn
um, því að aðstæður eru mjög
erfiðar þarna. Báturinn ligg-
ur um 5—6 bátslengdir fyrir
innan brimgarðinn, og er kom
inn sjór í afturlest hans.
ÞRJÁTÍU menn úr þremur
björgunardeildum austan
fjalls unnu nær alla aðfara-
nótt mánudags að því að
bjarga skipverjum aí v.b.
Bjarma II. frá Dalvík en hann
strandaði þá nótt í Baugs-
staðafjöru, skammt austan við
Knarrarósvita. Var hér um
að ræða björgunardeildir frá
Stokkseyri, Eyrarbakka og úr
Gaulverjabæjarhreppi. Björg
unarstarfið tókst mjög vel, og
fékk Mbl. Steingrím Jónsson,
formann björgunardeildarinn-
ar á Stokkseyri, til þess að
lýsa hvernig björgunin gekk
fyrir sig .
— Við fengum tilkynningu
um strandið um kl. 12.30
sagði Steingrímur, er hringt
var frá Slysavarnafélagi ís-
lands í Reykjavík. Við brugð-
um þá strax við, kölluðum
út menn bæði hér á Stokks-
eyri, og Eyrarbakka, og enn-
fremur fengum við í lið með
okkur menn úr björgunar-
deildinni í Gaulverjabæjar-
hreppi. Einnig þurftum við að
tína ^öll nauðsynleg tæki, og
tók þetta allt sinn tíma.
Strandstaðurinn er um 5—6
kílómetra frá Stokkseyri, og
gátum við komizt á bílum
alla leið. Var allt tilbúið fyr-
ir björgunarstarfið um kl.
1.30.
— Báturinn er um 300
metra frá landi, og snýr hann
stefninu að landi. Var því
miklum erfiðleikum bundið
að skjóta línu út í bátinn, og
fóru tvö fyrstu skotin í sjó-
inn. En í þriðju tilraun heppn
aðist skotið, og var það von-
um fyrr. Við ákváðum að
draga skipverjana í land á
gúmbjörgunarbátum, þar
sem fjarlægðin var svona mik
il og því ógerningur að
strekkja línu nógu mikið,
þannig að hægt væri að koma
björgunarstólum vifþ* Skip-
verjarnir settu út gúmmbjörg
unarbát, en hann slitnaði frá.
Annar bátur var þá strax sett
ur út, og nú gekk allt vel.
Við tókum skipverjana í þrem
ur ferðum í land, þannig að
Björgunarsveitamenn aðstoða skipsbrotsmenn í land. (Ljósm. Mbl. Tómas Jónsson).
Flugskýlið
á Akureyri
I MORGUNBLAÐINU hinn 28.
febrúar sl. birtist frétt frá Akur-
eyri um stofnun nýs flugfélags
þar. í síðustu málsgrein um-
ræddrar fréttar segir „ekki eru
taldar ihorfur, að sögn Tryggva
Helgasonar, að leyfi fáist til að
nota flugskýlið til viðgerða eða
skoðana á flugvélum og telur
hann það eins dæmi.“
Ekki er mér kunnugt, hvaðan
Tryggvi Helgason hefur fengið
upplýsingar um, að ofangreint
leyfi fáiat ekki. Hið rétta er, að
á fundi sínum hinn 2. jan. sl.
lýsti flugráð sig andvígt því, að
byggt verði verkstæði inni í hinu
nýja flugskýli, er óhjákvæmi-
lega hlyti að skerða notagildi
þess sem flugvélageymslu auk
hinnar auknu brunahættu, sem
því yrði samfara. Eru slíik verk-
stæði venjulega reist utan flug-
skýla, en viðhald og skoðun flug-
véla fer að sjálfsögðu fram í
skýlinu sjáifu.
Reykjavík, 7. marz 1967.
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed-Hansen.
BLAÐBURÐARFÓLK i
1 EFTIRTALIN HVERFI:
VANTAR
Tjarnagata
Sjafnargata
Baldurgata
Kjartansgata
Lambastaðahverfi
Talið við atgreiðsluna, sími 22480
Japanskar hitakönnur
krómaðar, gott verð.
Hafnarstræti 21, sími 1-33-36.
Suðurlandsbraut 32, sími 38775.
Afar ódýr frímerki
frá Austurríki
Tvö þúsund og átta hundruð falleg mismunandi
safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verðmæti
um 320 mörk, en í auglýsingaskyni aðeins 300,00
islenzkar krónur gegn póstkröfu, svo lengi, sem
birgðir endast. — Póstkort nægir.
MARKENZENTRALE, Dempschergasse 20, 1180 Wien.
Til hreingerninga
fötur, kústar, teppabank^rar, burstar,
hreinlætisvörur, tröppur, stóltröppur.
Hafnarstræti 21, sími 1-33-36.
Suðurlandsbraut 32, sími 38775.