Morgunblaðið - 07.03.1967, Blaðsíða 32
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1967
Framboðslisti Sjúlf-
stæðisflokksins I
Vestfjnrðakjördæmi
FUNDXJR kjördæmisráðs Sjálf-
stæðismanna í Vestfjarðakjör-
dæmis var haldinn á Xsafdrði um
síðustu Ihelgi. Ásberg Sigurðsson
sýslumaður formaður kjördæmis
ráðsins setti fundinn og tilnefndi
sem fundarstjóra þá Jóhannes
Árnason sveitarstjóra, Patreks-
firða og Högna Þórðarson banka
gjaldkera, ísafirði. Fundarrit-
arar voru kjörnir Óskar Krist-
jánsson framkvæmdastjóri Suð-
ureyri og Finnur Th. Jónsson
verzlunarmaðuir Bolungarvík.
Aðalfundarefnið var uppstill-
ing framiboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við næstu Ailþingis-
kosningar í kjördæminu. Fjögur
efstu sæti listans eru þannig skip
uð:
1. Sigurður Bjarnason, alþm.
frá Vigur.
2. Matt'hías Bjarnason allþm.
ísafirði.
3. Ásberg Sigurðsson sýslumað-
ur, Patreksfirði.
4. Ásmundur B. Ólsen, oddviti,
Patreksfirði.
Reglugeið um voinir gegn smit-
undi hringskyrfi ú nuutgripum
1®. FEBRÚAR sl. gaf land'búnað-
arráðuneytið ú>t reglugerð um
varnir gegn smitandi hringskyrfi
á nautgripum og öðrum húsdýr-
um af völdum sveppa (dermat-
omycosis) en sem skýrt var frá í
Mbl. á sínum tíma kom slík veiki
upp í nautgripum í Eyjafirði.
I reglugerðinni segir m. a. að
ef vart verði við hringskyrfi
(hringorm), eða grunur leiki á
því að slíkur sjúkdómur sé kom-
inn upp, þá skuli eiganda eða
umráðamanni dýranna skylt að
tilkynna það þegar viðkomandi
hreppstjóra, sem án tafar skal
síðan kveðja til dýralækni svo úr
því fáist skorið hvaða sjúkdóm
sé um að ræða. Greinir reglu-
gerðin síðan nánar frá vörnum
gegn sjúkdóminum og um með-
ferð sýktra dýra, og segir m. a.,
að þegar allir gripir eru taldir
læknaðir af sjúkdóminum að
dómi dýralæknis, skuli halda
gripum þessum frá öllum sam-
gangi við önnur dýr allt að einu
ári eftir að sjúkdómsins varð síð-
ast vart, og skal dýralæknir
fylgjaat nákvæmlega með heilsu-
fari gripanna þann tima.
Bjarmi II á strandstað í Baugstaðafjöru (Ljósm: Tómas Jónsson).
Bjarmi II. frá Daivík strandar
skammt frá Stokkseyri
12 manna áhöfn bátsins bjargað í iand eftir 4 kist.
VÉLBÁTURINN Bjarmi II. frá
Dalvík strandaði um kl. 12 að-
faranótt mánudags á Baugs-
staðafjöru skammt frá Stokks-
eyri. Björgunarsveitin frá Stokks
eyri kom á vettvang ásamt mönn
um úr björgunardeildum á Eyr-
arbakka og úr Gaulverjabæjar-
IMýskipan á úthlutun listamannalauna:
Tveir launaflokkar við úthlutun
Umsagnarréttur abildarfélaga Bandalags íslenzkra listamanna
- IMýtt stjórnarfr. á Alþingi
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram á Alþingi frv. til laga
um listamannalaun en með
því er stefnt að því að taka gildandi reglum um þetta er,
upp nýja skipan á úthlutun
listamannalauna.
Meginbretyingin frá
nu-
að skv. frv. verður einungis
um tvo launaflokka að ræða
í stað fjögurra áður og verða
laun í öðrum flokknum helm
ingi hærri en í hinum.
Aðaldarfélög Bandalags ísl.
listamanna eiga rétt á að til-
nefna hvert um sig tvo full-
trúa til samstarfs við úthlut-
unarnefndina og áður en at-
kvæði eru greidd um tillögur
nefndarinnar skulu fulltrúar
bandalagsfélaganna eiga rétt
á að láta í ljós skoðun sína á
tillögugerð um listamenn á
því sviði er hlutaðeigandi
bandalagsfélag starfar á.
Uthlutunarnefndin skal
skipuð sjö mönnum sem
kjörnir eru af sameinuðu
þingi eftir hverjar Alþingis-
Framhald á bls. 12
hreppi, ©g tókst þeim að bjarga
allri áhöfn bátsins, sem var 12
menn. Veður var sæmilegt til
björgunarstarfa, hægur vindur
af austan, en mikið brim var,
og dimmt yfir. Björgun skips-
brotsmanna tók um fjóra tíma.
Bjarmi II. fór frá Hafnarfirði
um kl. 15 á sunnudag, og ætlaði
á loðnuveiðar. Skipstjórinn á
bátnum, Kristján Jónsson, sagði
í samtali við fréttamann MbL
á Stokkseyri, er hann var spurð
ur um aðdraganda strandsins, að
hann hefði talið sig vera á 24
faðma dýpi, og átt sér einskis ills
von. Hefði hann brugðfð sér
úr stjórnklefanum inn í korta-
Framihald á bls. 31
Réðst á
vinstúlku sina
LÖGRÍEGLAN handtók aðfara-
nótt mánudagsins útlending ug
er hann grunaður um að hafa
róðizt á vinst»^ku sína og barið
hana í andlitið. Vtaðurinn er bér
í atvinnuleit, en hann hafði
engin skilríki á sér, og kvaðst
bafa týnt þeim. Hann neitar sak-
argiftum, en hann var úrskurð-
aður í gæzluvarðhald. Rannsókn
stendur enn yfir.
Úvíst um björgun
G'ófaxa í Grænlandi
Myndin sýnir skemmdirnar á Glófaxa, þar sem hann liggur í Danmarkshavn. Eins og sjá má
er hjólútbúnaðurinn brotinn og eitt skrúfublaðið bogið. Sjá samtal við flugmennina á Gió-
faxa og fleiri myndir á bls. 10- . (Ljósm. Gunnar Guðjónsson).
RÉTT fyrir kl. fjögur á sunnu-
dag lenti Gljáfaxi, fiugvél Flug
félags íslands á Reykjavíkur-
flugvelli eftir 3ja klukkustunda
flug frá Scoresbysundi. Flutti
hún þremenningana, sem teppzt
höfðu í Danmarkshavn frá því
23. febrúar til Reykjavíkur. Á
flugvellinum var margt manna
til þess að taka á móti þeim
félögum, fjölskyldur, forráða-
menn Flugfélagsins svo og frétta
menn.
Það voru glaðværir og skeggj
aðir menn, sem stigu út úr flug
vélinni, fegnir að komast heim
eftir langa útiveru, en þremehn
ingarnar á Glófaxa. Jón Ragnar
Steindórsson, Gunnar Guðjóns-
son og Jóhann Erlendsson höfðu
verið í Danmarkshavn síðan 23.
febrúar, en þann dag urðu þeir
fyrir því óhappi, að hjóla-
búnaður flugvélarinnar bilaði
og var því flugvélin óhæf til
flugtaks.
Mbl. hafði tal af Jóni R. Stein
Framihald á bls. 31