Morgunblaðið - 11.04.1967, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1967.
31
Hefur lagt tæpa
millj. til kirkjunnar
Kvenfélag Hallgrímskirkju 25 ára
U Thant í jndlandi
Ceylon vill oð Vietnam-rikin
ráöi sjálf ráðum sinum
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
er tuttugu og fimm ára um
þessar mundir og minnist af-
mælisins me3 hófi að Domus
Medica næstkomandi miðviku-
dagskvöld. Er félagið var stofn-
að var Hallgrímssöfnuður ung-
ur og eignalaus, en jafnframt
Stórhuga og áræðinn.
Kvenfélagið setti sér það
mark þegar í upphafi að láta
ekki sitt eftir liggja til þess að
söfnuðurinn eignaðist vel búna
og fagra kirkju, sem hæfði minn
ingu sálmaskáldsins frá Saur-
bæ.
Starfsemi Kvenfélags Hall-
ímskirkju hefur verið þríþætt.
fyrsta lagi hefur félagið frá
upphafi lagt mikla áherzlu á fé-
lagslíf safnaðarins og hefur í
því skyni gengizt fyrir fræðslu-
og skemmtikvöldum, þar sem
fram hafa komið listamenn, sem
bæði hafa sungið og lesið upp,
og einnig hafa verið fluttir fjöl-
margir fyrirlestrar og erindi á
þessum fundum félagsins.
f öðru Iagi hefur kvenfélagið
lagt mikið kapp á að afla fjár
til kirkjunnar. Hafa félagskon-
ur í því augnamiði lagt á sig
mikið starf í sambandi við kaffi-
sölu, basar, merkjasölu og í eina
tíð gekkst kvenfélagið fyrir úti-
skemmtun í Hljómskálagarðin-
um með mjög góðum árangri.
Setti kvenfélagið sér í uppháfi
að afla fjár til muna handa
kirkjunni og hefur sú starfsemi
borið góðan árangur. Þannig
hefur kvenfélagið gefið kirkj-
unni vandað pípuorgel, Ijósa-
krónur, kertastjaka, fermingar-
kyrtla, bikara- og tvo hökla. Er
annar hökullinn saumaður af
frú Sigrúnu Jónsdóttur, en hinn
af frú Unni Ólafsdóttur, sem
auk þess hefur ásamt manni sín-
um Óla ísakssyni, gefið kirkj-
unni þriðja hökulinn, svartan,
sem eingöngu er borinn á föstu-
daginn langa.
f þriðja lagi hefur svo Kven-
félag Hallgrímskirkju á síðari
árum í vaxandi mæli aflað fjár
til sjálfrar kirkjubyggingarinnar
og hefur lagt af mörkum rúm-
lega 5% alls byggingarkostnað-
ar kirkjunnar til þessa, sem er
hátt í eina milljón króna.
Auk þess, sem nú hefur ver-
ið talið, hefur Kvenfélag Hall-
grímskirkju frá upphafi lagt
mikla áherzlu á að hlynna að
eldri konum innan safnaðarins
og hefur þeim verið boðið sér-
staklega á eitt skemmti- og
fræðslukvöld árlega hin síðari
ár. Það hefur auðveldað Kven-
félagi Hallgrímskirkju starfsem-
ina frá upphafi. að félagið hefur
haft ókeypis aðgang að sam-
komusal í Iðnskólanum. En nú
rætist úr félagsheimilismálum
kvenfélagsins er norðurálma
Hallgrímskirkju verður tekin í
notkun, en þar fær kvenfélagið
inni með starfsemi sína. Verður
þar ágætt eldhús, rúmgott og
búið fullkomnum tækjum og
einnig rúmgóðir salir fyrir kaffi-
veitingar og fundi.
Stjórn Kvenfélags Hallgríms-
kirkju skipa nú: frú Þóra Ein-
arsdóttir, formaður, frú Guðrún
Ryden varaformaður, frú Svan-
laug Einarsdóttir, gjaldkeri, frú
Sigríður Guðjónsdóttir, ritari,
frú Sigríður Guðmundsdóttir,
frú Lydía Pálmarsdóttir, frú
Sigrid Karlsdóttir og frú Rósa
Blöndals meðstjórnendur.
Nýju Dehli, 10. apríl NTB.
C THANT, aðalritari S. Þ. kom
í dag til Nýju Dehli frá Colom-
bo höfuðborg Ceylon. Hann mun
dveljast á Indlandi í þrjá daga
og m. a. veita viðtöku heiðurs-
verðlaunum Indverja fyrir ó-
þrjótandi starf hans að þvi að
auka skllning þjóða í milli. Þá
mun hann og ræða Vietnammál
ið við frú Indiru Ghandi, for-
sætisráðherra.
- KOMMTJNISTAR
Framhald af bls. 32.
skriflega úrsögn sína úr
Alþbl. á fundinum og hið
sama gerði Einar Bragi, rit-
höfundur.
Fram komu tvær tillögur
um framboðslistann í Reykja
vík. Hörður Bergmann mælti
yrir lista er hann flutti
ásamt öðrum um að eftirtald-
ir menn skipuðu listann. 1.
Magnús Kjartansson, 2. Ein-
ar Hannesson, 3. Eðvarð Sig-
urðsson, 4. Jón Hanníbalsson.
5. Adda Bára, 6. Ingi R. Helga
son.
Guðmundur J. og fleiri
báru fram eftirfarandi lista:
1. Magnús Kjartansson, 2.
Eðvarð Sigurðsson, 3. Jón
Snori Þorleifsson, 4. Ingi R.
Helgason, 5. Sigurjón Þor-
bergsson.
Síðarnefndi listinn fékk
254 atkvæði en hinn fyrr-
nefndi 81 og báru því komm-
únistar algjöran sigur af
hólmi. Má nú vænta mikilla
tíðinda næstu daga.
U Thant lét svo ummælt við
konAina til Nýju Dehli, að hann
væri þess fullvisss að viðræður
hans við frú Ghandi yrðu hinar
gagnlegustu.
Utanríkisráðuneyti Ceylon gaf
út yfirlýsingu til fréttastofnana
skömmu eftir brottför U Thants
frá Colombo og sagði þar að
Dudley Senanayake, forsætisráð
herra Ceylon, hefði lagt til við
U Thant, að haldin yrði ráð-
stefna fultrúa stjórnanna í Suð-
ur- og NorðurVietnam og full-
trúar Viet Cong ættu þar einn-
ig sæti. Þá sagði og í yfirlýsing-
unni að sendiherra Ceylon í Pek
ing, Robert Gunawardene, hefði
verið sendur til Hanoi til við-
ræðna við stjórn N-Vietnam. Til
laga forsætisráðherrans byggist
á þeirri grundvallarreglu að inn
anríkismál hljóti jafnan að vera
einkamál lands þess er í hlut
eigi hverju sinni og erlend af-
skipti séu þar ótilhlýðileg og
ættu ekki að líðast. Þá segir og
að Ceylon hafi ekki á því neina
trú að landi verði skipt svo vel
fari og beri hinum þrem aðil-
um að styrjöldinni í Vietnam
að leysa vandamál sín sjálfir og
án íhlutunar annarra.
U THANT HJÁ PÁFA
Genf, 6. april (AP)
TALSMAÐUR Sameinuðu
þjóðanna skýrði frá því í
Genf í dag að U Thant, fram-
kvæmdastjóri SÞ gengi á
fund Páls páfa á morgun.
Ekki er vitað um ástæðuna
fyrir fundi þeirra U Thants
og páfa, en búizt er við að
Vietnam-málið beri á góma.
Þetta er í þriðja skipti, sem
þeir hittast.
„Réttarhöidin“
hefjast 26. npríl
París, 10. apríl — NTB
EXISTENSÍALISTINN Jean-
Paul Sartre og hinn aldraði heim
spekingur Bertrand Russell upp
lýstu í dag, að „stríðsglæparétt-
arhöld“ þau, er þeir sviðsetja,
muni hefjast í París 26. april nk.
Einungis blaðamenn og valdir
gestir fá að vera viðstaddir „rétt
arhöldin", sem fara fram - í
Continental-hótelinu í hjarta
Parísar. f þessu hóteli höfðu SS-
sveitir nazista höfuðbækistöðvar
sínar í heimsstyrjöldinni síðari.
Svo sem kunnugt er á hinn
sjálfskipaði dómstóll að skera
úr um hvort bandamenn S-Viet-
nam-stjórnarinnar hafi framið
stríðsglæpi í Vietnam. Undir
leiðsögn Sartre hefur undirbún-
ingur „réttarhaldanna" farið
fram f Lundúnum og París sL
þrjá mánuðL
- ÓEIRÐIR
Framhald af bls. 1.
yfirfull af lygum, en í þetta
sinn segja þeir satt. Það eiga
eftir að verða skjótar breyting-
ar í þessu þjóðfélagi .Ef við njót-
um ekki réttlætis mnnum við
splundra þessu landi".
Á mánudag héldu staðbundnar
óeirðir áfram og stúdentar og
lögreglumenn skiptust enn á
skotum. Talsvert var um inn-
brot og þjófnað í verzlunum í
negrahverfinu við Fisk-háskól-
ann.
Ekki hefur komið til kynþátta
átaka í Nasville síðustu fjögur
ár.
BæH um samszúngsaðild BandaSags
háskólamenntaðra manna
Lögreglan ungl-
ingaskemmíun
— og kjarðsamninga við opin-
bera starfsmenn á Alþingi í gær
MAGNÚS Jónsson, fjármálaráð-
herra, gerði í gær í Efri de;ld
Alþingis grein fyrir frv. sem rík-
isstjórnin hefur lagt fram á Al-
þingi um breytingu á lögum um
kjarasamninva opinberra starfs-
manna. Sagði fjármálaráðherra
að breytinar bessi væri verð skv.
óskum BSRB, sem teldi nanð-
synlegt að framlengja lögbundna
fresti vegna óvissu sem fram-
undan væri.
Fjármálaráðherra sagði að 1965
hefði verið skipuð nefnd til að
endurskoða lög um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna. Lík-
ur voru á að nefndin gæti lokið
störfum og frv. yrði lagt fyrir
þing en það tókst ekki en
hins vegar þótti skv. framan-
sögðu óhjákvæmilegt að gera
BANDARÍSKU hjónin Milton
og Peggy Salkind eru ekki
ókunn reykvískum tónicikagest-
um. Þau eru ein af þeim sára-
fáu tónlistarmönnum. sem ferð-
asv um heiminn og leika fjór-
hent á píanó.
Fyrst komu þau hingað fyrir
fjórum árum og léku þá fyrir
Musica nova, og þá nær ein-
göngu nýja píanómúsík. Ári
síðar léku þau hér í Reykja-
vík á vegum Tónlistarfélagsins
í Austurbæjarbíói. Nú eru þau
aftur hér á ferðinni. Þau hafa
þær breytingar sem nú er lagt
til.
Fjármálaráðherra sagði að í
vetur hefðu stórir hópar gengið
undan merkjum BSRB og m. a.
komið fram kröfur frá Banda-
lagi háskólamenntaðra manna
um samningsaðild. Af þeim sök-
um væri nauðsynlegt að athuga
mál þetta allt nánar. Ráðherrann
sagði að samkomulag hefði náðst
við BSRB um endurskoðun á
launaflokkakerfinu og hefifi
menn farið utan til þess að
kanna fyrirkomulag mála þess-
ara í öðrum löndum.
óiafur Jóhannesson (F) spurði
hvað stæði í vegi fyrir því að
Bandalagi háskólamenntaðra
manna yrði veitt samningsaðild
ekki sízt þar sem BSRB hefði
meðferðis ný-uppgötvuð til-
brigði eftir Chopin, sem þau
fundu í Póllandi. Þau hafa
einnig meðferðis tónsmíðar eftir
Ben Weber, Debussy, Felciano
og eina óþekkta íslenzka tón-
smíð.
Þess vegna býður Musica
nova öllum, sem áhuga hafa, að
koma á tónleika Miltons og
Peggy Salkind í sal Tónlistar-
skólans í Reykjavík á miðviku-
dagskvöldið, 12. þ.m., kl. 11.
Aðgangur er ókeypis.
ekkert við það að athuga.
Magnús Jónsson sagði að mál
þetta væri flóknara en svo að
hægt væri að taka um það
skjótar ákvarðanir. Allar líkur
væru á því að BSRB gæti sundr-
azt enn meir en orðið væri.
1 Bandalagi háskólamenntaðra
manna væru ekki einungis ríkis-
starfsmenn. í vetur hefði sú
þróun ágerzt að stórir hópar
segðu sig úr BSRB. Ef hejlir
hópar rí'kisstarfsmanna neituðu
að vera aðilar að BSRB yrði
tæplega hjá því komizt að viður-
kenna slík samtök eða er hægt
að banna öllum öðrum en há-
skólamenntuðum mönnum að
segja sig úr BSRB? Það þarf
að byggja upp heilsteypt launa-
kerfi hins opinbera og erfiðara
er að ná samningum um skipt-
ingu í launaflokka við marga
aðila.
SKAÐABÆTUR
Stokkhólmí, 6. apríl
(NTB)
VERKAMENN vi» Eriksbergs
skipasmiðastöðina í Gauta-
borg sem í ágúst sl. lögðu nið
ur vinnu til að mótmæla
notkun stimpilklukku á
vinnustað, hafa verið dæmdir
til að greiða vinnuveitendum
sínum skaðabætur. Nema
skaðabæturnar 100 sænskmn
krónum á hvern þann, er
lagði niður vinnu 17. ágúst,
en þeir, sem einnig lögðu nið
ur vinnu 19. ágúst, eiga að
greiða 200 s. kr.
Bandarísk hjón leika á
psanó hjá Musica Nova
Hr. ritstjóri.
Vegna fréttar í blaði yðar 9.
apríl 1967, með yfirskriftinni
„Fulltrúi uhgu kynslóðarinnar
1967“, vil ég taka fram eftirfar-
andi út af ummælum í niðurlagi
greinarinnar, þar sem segir m a.:
„Tvisvar horfði þó til vandræða.
Þegar verið var að hleypa inn,
stóðu fyrir fulltrúar frá barna-
verndarnefnd og lögreglu og
munu hafa verið óþarflega stíf-
ir, því að töluverður órói gerði
vart við sig. Það ætti að vera
óþarfi að vera með miklnn
strangleika við svona tækifæri".
Hvorki lögreglan né barna-
verndarnefnd hafði neitt v:ð
skemmtunina að atihuga, he’.dur
hitt á hvaða tíma hún var hald-
in. Við álítum að skemmtanir
sem ætlaðar eru börnum og jng
lingum eigi ekki að vera nmð-
næturskemmtanir. og hefjast eft
ir að útivistartíma barna lýkur.
Ástæðan til þess að barnavernd-
arnefnd og lögreglan höfðu af-
skipti af skemmtun þessari var
sú, að framfylgja 19. gr. lög-
reglusamþykktar Reykjavíkur.
Margir foreldrar og skólastjór
ar hafa hringt til lögreglunnar
og kvartað yfir, að börnum og
unglingum skuli stefnt lil
skemmtanahalds, sem byrjar
undir miðnætti og stendur fram
til kl. 0200. Ég hefi rætt við þá
aðila sem að skemmtun þessari
stóðu, og hafa þeir fallizt á, að
velja hentugri tíma, næst þegar
boðið verður upp á svipaða
skemmtun af þeirra hálfu. Skv.
þeim upplýsingum sem ég tiefi
fengið, mun skemmtun þessi
hafa farið í alla staði vel fram.
Með þökk fyrii hirtinguna.
Bjarki Elíasson,
yfirlögt egluþjónn.
BIAÐBURÐARFOLK
OSKAST
í EFTIRTALIN
HVERFI:
Snorrabraut
Aðalstræti
Lambastaðahverfi
Tjarnargata
Miðbær
Talið við afgreiðsluna sími 22480