Morgunblaðið - 11.04.1967, Side 32
Hermann
Jónsson
úrsmiður
Lækjargötu 2.
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Flugvél kubbar há-
spennulínu í sundur
Rafmagnslaust i Landeyjum
BERGÞÓRSHVOLI 10 apríl. —
Það bar til hér við bæinn Kúfhól,
að lítil flugvél frá Flugskólanum
Þyt flaug á háspennulínuna og
kubbaði hana í sundur.
Vélin slapp með skemmdir,
nenca hvað rúða brotnaði framan
á vélinni. Flugmaðurinn og far-
þegi vc í vélinni og tókst að
fljúga henni að Hellu, þar sem
gert var við gluggana. Var henni
svo flogið til Reykjavíkur.
Rafmagnslaust var í Landeyj-
um í nokkra klukkutíma. Við-
gerðarflokkur kom frá Selfossi
og gerði við skemmdirnar á há-
spennulínunni.
Þetta gerðist um kl. 4.30 og
var rafmagnið komið á um 8
leytið. Rafmagnsleysið varð mörg
um til trafala, m. a. töfðust
mjaltir víða.
Fólk hér í sveitinni er gramt
vegna þessa gáleysis flugmanns-
ins, sem mátti þakka fyrir að
verða ekki fyrir stórslysi.
Þeir sem sáu atburðinn álítað,
að tilgangurinn hafi verið að
fljúga undir háspennulínuna.
Óðinn tekur
fjóra báta
VARÐSKIPIÐ Óðinn tók fjóra
báta sl. laugardagsmorgun fyrir
meintar ólöglegar veiðar innan
fiskveiðatakmarkanna.
Varðskipið tók tvo báta út af
Stokkseyri, aðeins 1.8 sjómílur
frá landi. Bátarnir voru Þor-
lákur ÁR 3 og Sæborg BA 25,
sem gerð er út frá Vestmanna-
eyjum.
Þá tók óðinn Suðurey VE 20
út af Þorlákshöfn og á leiðinni
til Vestmannaeyja tók varðskip-
ið einnig Hrafn Sveinbjarnarson
VE 141.
MáJ skipstjóranna verða tekin
fyrir í heimahöfnum.
FréttaritarL
Annasamt var í lyfjabuöum í gær og þurftu margir að biða talsvert lengi eftir afgreiðslu.
Myndin var tekin í Ingólfsap óteki í gær. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Lyfjafræðingar hófu verkfall í gær
Næturvaktir falla niður — Apótekar-
ar skiptast á afgreiðslu til lækna
VERKFAIX lyfjafræðinga
hófst í gærmorgun klukkan
níu og síðan hafa apótekarar
orðið að vera einir að af-
greiða lyf sem búa þarf til í
apótekunum sjálfum. Nætur-
vaktir falla niður meðan á
verkfallinu stendur en apó-
tekarar skiptast á um að af-
greiða til lækna þegar í nauð
irnar rekur Birgir Einarsson.
formaður Apótekararfélags
fslands sagði að afgreiðsla á
tilbúnum lyfjum héldi áfram
með venjulegum hætti meðan
hægt væri.
f haust sögðu lyfjafræðing-
ar upp samningum frá og
með fyrsta janúar. I febrúar
boðuðu þeir svo til verkfalls,
þar sem samningaumleitanir
höfðu verið árangurslausar,
en ^ð beiðni ríkisstjórnarinn
ar var þvi frestað meðan at-
hugun færi fram, og saman-
burður á launakjörum lyfja-
fræðinga og annarra háskóla
menntaðra manna. Morgun-
blaðið hringdi í gær í nokkr-
ar lyíjabúðir til þess að
kynna sér ástandið þar, en
apótekarar höfðu svo mikið
að gera við að afgreiða Ivf
að enginn þeirra hafði tíma til
að svara í síma. Ekki mun þó
hafa verið svo mikið meira
að gera en á venjuiegum
mánudegi, heldur var að
þeir þurftu að taka að _,er
störf þriggja til tjögurra
lyfjafræðinga. Sem fyrr scgir
verða tilbúin lyf afgreidd
meðan hægt er. En öll lyfja-
kaup frá útlöndum fara í
gegnum heildverzlun og þar
eiga Iyfjafræðingar að hafa
eftirlit með sendingunum.
Og þar stranda þær meðan á
verkfallinu stendur. Formcr.n
félaga lyfjafræðinga og apó-
tekarar vildu ekki láta upp-
skátt hversu mikið ber á
milli hjá samningsaðilum.
Morgunblaðið hafði í gær-
kvöldi samband við To-fa
Hjartarson, sáttasemjara rík-
isins, og sagði hann, að ekk i
hefði þá verið boðað til sátta-
fundar milli deiluaðila.
FÍ veitt lendingar-
leyfi i Frankfurt?
MORGUNBLAÐIÐ hringdi í gær
til sendiherra fslands í Bonn,
Magnús V Magnusson, og spurð-
ist fyrir um, hvað liði umsókn
Flugfálag- fslands um heimild
til lendinga í Frankfurt.
Sendiherrann sagði. að um-
sóknin hefði verið lögð fra.n í
september-mánuð’ sl. og hefði
hún verið í athugun. Flugfé’ag
íslands hefur sóti um tvær lend-
ingar í viku í Frankfurt á sumr
in og einu sinni ; viku á vetrum.
Magnús Magnússon sagði, að
hann hefði ástæðu til að halda,
að umsónnin verði afgreidd bráð
lega og niðurstaðan verði Flug-
félagi ísiands hagstæð.
Kommúnistar báru algeran sigur af hólmi:
,Ég hræðist það að nú sé búið að
ganga af Alþýðubandal. dauðiT
— sagði Hannibal Valdemarsson
„Ég hræðist það að nú sé
búið að ganga af Alþýðu-
bandalaginu dauðu“ sagði
sögulegs fundar Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík,
eftir að listi sem stuðnings-
Hanníbal Valdimarsson í lok i menn hans höfðu borið fram
Ríkisstjórnin leggur fram á Alþingi frumvarp til nýrra hafnalaga:
Hluti ríkissjóðs við ytri mannvirki
og dýpkanir hækki úr 40% í 75%
— Hafnabótasjóði verði tryggðar 20 milljónir árlega
— Framkvæmdaáætlun um bafnargerð til fjögra ára i senn
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram á Alþingi frv til nýrra
hafnalaga. Skv frv. er lagt
til að hluti ríkissjóðs í kostn-
aði við ytri mannvirki og
dýpkanir hækki úr 40% í
75% en að þátttaka ríkisins í
öðrum kostnaðarliðum verði
óbreytt eða 40% af stofn-
kostnaði annarra styrkhæfra
hafnarmannvirkja. Skv frv.
eru lög um hafnabótasjóð
felld inn í hafnalög og
verða tekjur sjóðsins þrenns
konar. Framlög ríkissjóðs
hækki í 8 milljónir króna,
lagt verður á sérstakt hafna-
bótasjóðsgjald á íslenzk skip
5 rúmlestir brúttó eða stærri
og innheimt einu sinni á ári,
kr. 12.00 á hverja nettó rúm-
lest svo og á ÖII skip sem
koma frá öðrum löndum til
íslenzkra hafna kr. 12.00 á
hverja nettó rúmlest. —
Skemmtiferðaskip, sem að-
eins flytja farþega greiða kr.
3.00 á hverja nettó rúmlest.
í þriðja lagi verða svo tekjur
af starfsemi sjóðsins. Samtals
eiga þessir tekjuliðir að
Framhald á bls. 14.
til framboðs í Reykjavík
hafði verið kolfelldur. For-
maður Alþýðubandalagsins
fékk vart málfrelsi á fundin-
um vegna framíkalla og sví-
virðinga fundarmanna í hans
garð.
Varaborgarfulltrúi Alþýðu
bandalagsins x Reykjavík.
Guðrún Helgadóttir afhenti
Framhald á bls. 31.
Akureyringur
vilju iú einn
skuttognrnnn
Akureyri 10. apríl.
GÍSLI Konráðsson, framkvæmda
stjóri Útg’erðarfélag’s Akureyr-
inga h.f. hefur skýrt frá þvi, að
félagið hafi óskað eftir því við
ríkisstjórnina, að fá einn hinna
fjögurra skuttogara, sem fyrir-
hugað er að fá tii landsins.
Hefur félagið óskað eftir þvi,
að fá að fylgjast með þeim
athugunum, sem verið er að gera
varðandi kaupin á fjórum skut-
togurum af mismunandi gerð-
um. — Fréttaritari.