Morgunblaðið - 19.05.1967, Side 2
2
•*' L&Vf «J -ru ftn itbí i'i ( J ’ laiM’IDKOM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MAl 1967.
Frá fundinum í Sjálfstæðishúsinii í gærkvöldi. Fra vinstri: Auður Auðuns, Sveinn Guðmunðsson,
Pétur Sigurðsson, Geir Hallgrímsson og Birgir Kjaran.
í FYRRINÓTT var enn frost
um allt land að kalla, víðast
2—4 stig norðan lands, en
heldur mmna sunnan lands.
Mest var frostið 7 st. á Hvera-
völlum, en 6 st. á Grímsstöð-
um og Þingvöllum. Síðdegis
komst hitinn í 5—8 st. á Suð-
urlandi en víðast var enn
frost fyrir norðan. Vindátt
var miUi A og N og verður
sennilega áfram. Lítil von er
um að hlýni verulega í bráð.
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðis-
flokksins i Norðurlandskjördæmi
eystra efndu til almenns kjós-
endafiundar í Félagsheimilinu
Tjarnarborg í gærkveldi. Ræður
fluttu: Magnús Jónsson, fjár-
miálará'ðherra. Jónas G. Rafnar,
alþingismaður, og Lárus Jóns-
son, viðskiptafræðingur. Fundar
stjóri var Ásgrímur Hartmanns-
son, bæjarstjóri. Var ræðum
frambjóðendanna afbragðsvel
tekið og ríkir mikill baráttuhug-
ur í Sjálfstæðismönnum i Ólafs-
firði til að gera hlut Sjálfstæðis-
flokksins sem stærstan í vænt-
anlegum alþingiskosningum.
Fundurinn var fjölmennur.
Spellvirki usmin
á summhústaB
GRÍÐARLEG spellvirki voru
unniu á sumarbústað í Hamra-
lilíð fyrir helgina. Voru þar möl-
brotin öll húsgögn, rúður, Ijósa-
útbúnaður, salernisskál og fleira.
Gísli Guðmundsson, hjá rann-
sóknarlögreglunni, sagði að það
væri eins og óðum manni hefði
verið sleppt þar lausum.
Spaði, sem notaður er við
garðsnyrtingu hafði verið notað-
ur sem barefli á loft, gólf og
veggi. Tvær kósangaslugtir höfðu
verið rifnar niður og mölbrotnar
og veggur hlaðinn úr hellum er
meira að segja mikið skemmdur.
Loftið er stórskemmt, veggir og
gólf sömuleiðis. Ef einhverjir
kynnu að geta gefið upplýsing-
ar um þessa skemmdarstarfsemi,
eru þeir vinsamlegast beðnir að
snúa sér til rannsóknarlögregl-
unnar.
I
Danir og Grikkir deila
Flúði eltir
úrekstur
ÁREKSTUR varð á mótum
Hverfisgötu og Snorrabraut um
þrjú leytið í gær, er tvær bif-
reiðar af SAAB-gerð óku saman.
Var önnur bifreiðin, U-972, á
leið austur Hverfisgötu en hin,
sem er græn að lit, kom sunnan
Snorrabraut. Skullu bifreiðarn-
ar saman að framan og losnaði
hjólkoppur af framhjóli grænu
bifreiðarinnar við áreksturinn.
Báðir ökumennirnir námu stað-
ar, en siðan lagði sá á grænu
bifreiðinni á flótta án þess að
númer bifreiðarinnar næðist.
Rannsóknarlögreglan skorar á
hann svo og vitni, ef einhver
voru, að gefa sig strax fram.
SJÁLFSTÆÐISMENN efna
til almenns fundar á Sauðár-
i króki í kvöld 19. þ. m. Verður
fundurinn haldinn í félags-
heimilinu Bifröst og hefst kl.
9 e.h. Frummælendur verða
Jóhann Hafstein dómsmálaráð
herra sem flytur aðalræðu
Kaupmannahöfn, 18. maí, AP.
DANSKA þingið og ríkisstjórn-
in hafa nú til athugunar harð-
ort skeyti frá grískum stjórnar-
völdum, þar sem mótmælt er
opinberri yfirlýsingu Jens Otto
Krags, forsætisráðherra, en i
yfirlýsingu þessari er valdataka
gríska hersins fordæmd. Getur
þetta skeyti orðið til þess, að
samband Grikklands og Dan-
merkur versni að mun, en þessi
tvö ríki eru tengd konungleg-
um fjölskylduböndum og eru að
auki bæði í NATO.
f gríska skeytinu segir m.a.
að Grikklandsstjórn eigi örðugt
með að skilja mikla umhyggju
kvöldsins, Sr. Gunnar Gísla-
son, Pálmi Jónsson á Akri og
Eyjólfur Konráð Jónsson
ritstjóri. Að loknum ræðum
frummælenda verða frjálsar
umræður og er öllum heimill
aðgangur.
dönsku stjórnarinnar fyrir ör-
lögum grískra kommúnista.
Væri þessi umhyggja ekki minni
en sú, sem kommúnistalöndin
hefðu látið í ljósi. Segir enn-
fremur í skeytinu, að ráðizt
hefði verið á Grikkland með
röngum og niðrandi ákærum,
sem búnar væru til á verkstæði
hins alþjóðlega kommúnisma.
Ekki liggur það ljóst fyrir hvort
danska stjórnin hefur í hyggju
að svara skeytinu.
Hásefahlutur
varð 115 þús.
FRÁ Höfn í Hornafirði voru á
vetrarvertíðinni gerðir út 7 bát-
ar, sem bæði stunduðu net og
línu, og var heildarafli þeirra
5037 lestir.
Hæsti báturinn á vertíðinni
var Jón Eiríksson SF—100 með
925 tonn, en hann byrjaði ekki
veiðar fyrr en í febrúar sl. Hann
landaði eftir siðasta róðurinn
69.740 tonnum, og mun það vera
hæsta löndun á vetrinum. Há-
setahluturinn reyndist vera við
skiptin 115 þús. krónur, og mun
hann óvíða hafa verið betri.
Skipstjóri á Jóni Eiríkssyni er
Ástvald Valdimarsson.
Næsti bátur var Gissur hviti
með 816 tonn og hinn þriðji í
röðinni var Ólafur Tryggvason
með 779 tonn. Fjórir trollbátar
voru gerðir út frá Höfn i vetur
og öfluðu þeir mjög sæmilega.
IVfikill hugur
Sjálfstæðis-
mönmim á
Ólafsfirði
Almencai kjósendolundur
n Snuðórkióki
Fnndnr Sjólfstaeðis-
monnn ó Þingeyri
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Dýrfirð-
inga boðaði til almenns stjórn-
málafundar að Þingeyri sl. mið
vikudagskvöld og hófst hann
klukkan níu. Jónas Ólafsson,
frkvstj., formaður Sjálfstæðis-
félagsins setti fundinn og stjórn
aði honum. Þá flutti Sigurður
Bjarnason alþm. frá Vigur fram
söguræðu um héraðsmál og
landsmál.
Miklar umræður urðu að
ræðu hans lokinni, og tóku þess
ir til máls: Páll Pálsson, séra
Stefán Eggertsson, Sigmundur
Jónsson, Matthías Guðmundsson
og Steinþór Benjamínsson. Að
lokum svaraði Sigurður Bjarna-
son ýmsum fyrirspurnum er
fram höfðu koomið.
Fundurinn fór í öllu hið bezta
fram. Kom fram mikil ánægja
með þær miklu framkvæmdir
er staðið hafa yfir í héraðinu sl.
kjörtímabil, sérstaklega á sviði
hafna og vegamála. Bent var á
nauðsyn þess að lengja flugvöll-
inn á Þingejrri, þannig að þar
gæti lent stærri tveggja hreyfla
flugvélar. Ennfremur var rætt
um nauðsyn aukinna íbúðabygg
inga á staðnum. — Fréttaritaru
Vertíð léleg
í Þorlákshöfn
Þorlá'kshöfn 12. maí. —
HEILDARMAGN sem borizt
hefur á land á vetrarvertíð í
Þorlákshöfn af heimabátum er
4896 lestir, en auk þess hafa
landað hér nokkrir aðkomu-
bátar. Aflahæstu bátamir eru
ísleifur með 779.4 lestir og
Friðrik Sigurðsson með 670.0
lestir.
Sjómenn telja vertíðina lélega
og þá einkum vegna þess að
veður hafi hamlað veiðum. Mjög
sjaldan hefur verið sæmilegt
sjóveður í allan vetur. Bátarnir
munu halda áfram með þorsk-
eða humartroll. —• Stefán.
Kjósendafundur á
Patreksfirði
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
boðar til almenns kjósendafund-
ar á Patreksfirði í kvöld þann
19. maí kl. 20:30. Ræðu-
menn verða Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra, Sigurðu
Bjarnason, alþm. frá Vigui
Matthías Bjarnason, alþm. og Á
berg Sigurðsson, sýsjumaður.
öllum er heimiil aðgangur.
Almennur kjósendoiundur
ó Flnteyri
Sjálfstæðisflokkurinn boðar
til almenns kjósendafundar á
Flateyri n.k. laugardag 20. maí
kl. 20:30. Ræðumenn verða
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, Sigurður Bjarnason
alþm. frá Vigur, Matthías
Bjarnason alþm. og Ásberg Sig-
urðsson sýslumaður. Öllum
heimili aðgangur.
Almennur kjósendufundur
ó ísufirði
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
almenns kjósendafundar á ísa-
firði sunnudaginn 21. maí kl.
20:30. Ræðumenn verða Bjarni
Benediktsson, forsætisráðlherra,
Sigurður Bjarnason alþm.
Vigur, Matthías Bjarnason a
og Ásberg Sigurðsson sýslur
ur. öllum heimill aðgangur
Bruni á Akureyri
AKUREYRI 18. maí. — Um sjö-
ur í húsinu númer 39 við Strand-
leytið í gærkvöldi kviknaði eld-
götu og var hann mestur á götu-
hæð. Húsið er þriggja hæða timb
urhús og var búið á öllum hæð-
um. íbúðin á götuhæð eyðilagð-
iat alveg í eldinum og einnig
komst eldur á tveimur stöðum
upp á aðra hæð, þar sem hann
olli fremur litlum skemmdum,
og upp með reykháf á þriðju
hæðt en náði þar engri út-
breiðslu.
Húsfreyjan í íbúðinni á
neðstu hæð hafði brugðið sér
með tvö börn sín upp á mið-
hæðina og tafið þar í fimm min-
útur eða svo. Þegar hún kom
niður aftur komst hún ekki inn
í íbúð sína, sem var orðin alelda.