Morgunblaðið - 19.05.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.05.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1967. 19 Nemendasamhands Verzlunarskólans AÐ VENJU efndi Nemendasam band V.í. til veglegs samkvaem- is 30. apríl, að þessu sinni að Hótel Sögu. Var hóf þetta mjög fjölmennt og hinn bezti mann- fagnaður. Formaður Nemendasambands V.Í., Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, setti hófið með ræðu og stýrði því. Bauð hann gesti velkomna og þá fyrst og fremst heiðursgestin- a, sem voru þau hjónin Grím- ur Jónsson, fyrrum útvegsbóndi og kaupmaður í Súðavík, og frú Þuríður Magnúsdóttir. Var Grímur einn í hópi þeirra nem- enda, er brautskráðust fyrir 60 árum, þ.e.a.s. árið 1907, er fyrstu nemendur skólans luku burtfararprófi. í þeim hópi voru 8 piltar og 2 stúlkur. Áf þeim eu nú aðeins á lífi þeir Gímur Jónsson frá Súðavík og Gunnar nafni 25 ára nemenda. Kvað hann þeim félögum vel hafa enzt það veganesti,, er skólinn hefði þeim í té látið. Færðu þeir félagar skólanum að gjöf kr. 42.000 til tækjakaupa. Einar H. Ásgrímsson hafði orð fyrir 20 ára nemendum. Höfðu þeir félagar áður, við skólauppsögn, fært skólanum IBM rafmagnsritvél að gjöf. Af hálfu 15 ára nemnda tal- aði Othar Hansson. Höfðu þeir daginn áður við skólaslit afhent skólanum að gjöf myndvarpa. Ellert Schram hafði orð fyr- ir þeim nemendum, er braut- skráðust fyrir 10 árum. Kvað hann þann árgang vera hinn fyrsta, er verið hafði öll sín ár í V.í. undir stjórn núverandi skúlastjóra, dr. Jóns Gíslasonar. Við skólauppsögn hafði Kristj- Grímur Jónsson og frú. Grím og færði skólanum nú gjafir. Þorsteinsson, starfsmaður á Víf ilsstöðum. í veizlunni voru margar ræð- ur fluttar. Grímur Jónsson flutti á'gæta ræðu og rifjaði upp ýmislegt frá fyrstu árum skólans. Þótti honum hafa orðið mikil og heillavænleg þróun í skólanum á þessu sextíu ára tímabili. Fór hann einkar hlýj- um orðum um starf fyrsta skólastjórans, Ólafs G. Eyjólfs- sonar, og kennaranna. Að lok- um árnaði hann skól- anum heilla og bless- unar um alla framtíð. Færði hann peningagjafir bæði Nem- endasjóði og sjálfseignarstofnun inni Verzlunarskóla íslands, samtals kr. 5000.00. Hallur Þorleifsson hafði orð fyrir nemendum, er brautskráð- ust fyrir 55 árum. Fór hann miklum viðurkenningarorðum um starf skólans bæði fyrr og nú. — Veizlustjóri vakti á því athygli, að í samkvæminu væru þrír ættliðir, er allir hefðu stundað nám og lokið burtfar- arprófi frá V.í. Hallur Þorleifs- son, sonur hans Kristín, óperu- söngvari, og dóttir Kristins, Guðrún, sem væri í hópi þeirra, er brautskráðust á þessu vori. Bað hann menn að rísa úr sæt- um og hylla þessa ágætu nem- endur. 1 nafni 50 ára nemenda tal- aði Jón Gunnarsson, skrifstofu- stjóri. Rakti hann að nokkru þróun skólans, sem hann var ánægður með. Færði hann skól anum að gjöf kr. 10.000 frá þeim félögum til tækjakaupa. Af hálfu 35 ára nemenda tal- aði Ásmundur Olsen. Rakti hann ýmsar minningar úr skóla lífinu. Til tækjakaupa gáfu þeir félagar skólanum kr. 10.000. Orð fyrir 30 ára nemendur hafði Guðmundur Sigurjónsson Fór hann viðurkenningarorðum um starf skólans, flutti þakkir þeirra félaga, er gáfu kr. 30.000 til tækjakaupa. , Ingvar N. Fálsson talaði í ur brautskráðist fyrir 60 árum án Ól. Ragnarsson afhent frá þeim félögum kr. 25.000, er verja skyldi til að styrkja út- gáfu nýrra kennslubóka. Jón Sigurðsson hafði orð fyr ir nemendur, er brautskráðust fyrir 5 árum. Árnaði hann skól anum heilla og afhenti frá þeim félögum kr. 15.000 til tækja- kaupa. Að lokum talið skólastjórinn, dr. Jón Gíslason, og bar fram þakkir í nafni skólans fyrir hinar rausnarlegu gjafir, er skól anum hefðu verið færðar við þetta tækifæri. Þær væru vissu lega mikils virði .og kæmu í góðar þarfir. Þó væri sá vinar- hugur, er þær bæru vott um, enn mikilvægari. Væri að hon- um mikil hvatning fyrir alla þá, er störfuðu við skólann og fyr- ir hann. Að lokum mælti skólastjóri: „Ég vil óska þess, að hinir ungu menn og konur, sem brautskráð voru í gær úr 4. bekk, verði jafnstyrk á líkama og sál og fulltrúi fyrsta árgangs ins, Grímur Jónsson frá Súða- vík, er nú á sextíu ára braut- skráningarafmæli sínu. Árið 2027 gæti þá einhver ræðumað- ur úr þeirra hópi sagt eitthvað á þessa leið: Fyrir sextiu árum, þegar ég var brautskráður, ár- ið 1967, var hylltur í hófi Nem- endasambands V.í. fulltrúi fyrsta árgangsins. Því má segja að handtak mitt spanni meira en öld: — Þannig skilar hver kynslóð kyndli lífs og sögu í hendur hinnar næstu. Vér skul- um vona, að kyndill V.í. brenni jafnan glatt og beri góða birtu. Mun svo verða, ef þróttmiklar hendur framtakssamra atorku- manna halda honum hátt á loft, Veizlustjóri, Þorvaldur Þor- steinsson, sæmdi heiðursgestina Grím Jónsson og frú Þuríði Magnúsdóttur, gjöf sem er veg- leg blómakarfa. Einnig þakkaði hann fráfarandi formanni Nem- endasambands V.I. Sigurbirni Þorbjörnssyni, ríkisskattstjóra, ágæt störf og færði honum blómagjöf sem lítinn þakk- lætisvott. Að borðhaldi loknu var dans stiginn af miklu fjöri. Þótti þessi samkoma hafa tekizt með miklum ágætum og verið hafa öllum hlutaðeigendum til ánægju og sóma. SjúkraliSair með Ingibjörgu M agnúsdóttur forstöðukonu, Guð- mundi Karli Péturssyni yfirlæk ni og deildarhjúkrunarkonum. 17 sjnbruliðar frá Akureyri FRÁ Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri voru brautskráðir 17 sjúkraliðar þ. 10. maí sl. Forstöðukona Ingibjörg R. Magnúsdóttir sleit námskeiðinu og afhenti nemendum prófskír- teini. Námskeiðið stóð yfir í 8 mán- uði. Nemendur luku skriflegum prófum í líkamsfræði og heilsu- ■ fræði og verklegu prófi í hjúkr- un. Verklegt nám var á fjór- um deildum sjúkrahússins — hjúkrunardeildunum þremur og fæðingardeildinni. Þetta er annað námskeið 1 sjúkrahjálp, sem haldið hefir verið í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og hafa nú braut-- skráðst þaðan 31 sjúkraliði. í sumar munu starfa þar 19 sjúkraliðar. Vegir víðast ófærir ÁSTAND VEGA á landinu er mjög slæmt þessa dagana og víð ast hvar ófært. Hjörleifur Ól- afsson, hjá Vegagerðinni sagði Morgunblaðinu að þeir ættu alltaf von á því á hverju vori að vegir skemmdust af aur- bleytu. Tvennt gerði þetta sér- lega áberandi í ár, leysingar eru venjufremur seint og hvítasunn an, þessa mikla ferðahelgi, hitti á versta ástandið. Allir vegir landsins eru meira eða minna spilltir af aurbleytu og víðast hvar hafa verið sett- ar 5 tonna hámarksþungatak- markanir. Sums staðar hefur jafnvel öll umferð verið bönn- uð öðrum farartækjum en jepp um. Allsæmileg færð er þó um Suðurlandsveg og ástandið í Rangárvalla- og Skaftafellssýsl- um er mun skárra en í Árnes- sýslu, þar sem ýmsir vegir eru aðeins færir jeppum, t.d. að Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og um Grafninginn. Sæmilega er fært um Borgarfjörð, Snæ- fellsnes og Dalasýslu norður til Akureyrar og Húsavíkur um Dalsmynni. Þó er ákaflega við- sjárvert að fara þetta á lágum fól'ksbifreiðum. Aðrir vegir eru svo yfirleitt ófærir nema Suð- urnesj avegur, sem hægt er að fara á jeppum. Víða er unnið að viðgerðum, heflunum og slíku. En sums staðar er ekk- ert hægt að gera, meðan allt er á floti ofan á klakaskorp- unni. Áskorun tog- araskipstjóra NÍTJÁN togaraskipstjórar hafa sent ríkisstjórninni eftirfarandi ádkorun: Vegna fenginnar reynslu margra togaraskipstjóra óskum við þess eindregið að ríkisstjórn- in hindri ekki innflutning á þeim vetðarfærum til togaranna, sem bezt reynast á hverjuim tíma. Reynslan hefur sýnt að Hamp iðjunetin hafa ekki líkt því sama styrkleika í notkun og portú- gölsk net, sem togararnir hafa almennt notað undanfarið. Við erum ekki á móti því að íslenzkur iðnaður sé styrktur, en mótmælum því eindregið að það sé gert á kostnað togaranna, þar sem það getur skipt milljónum í afla að togararnir hafi þau net, sem bezt reynast á hverjum tima. Kennedy-viðræður hafnar að hausti á ný Rœtt um vandamál landbúnaðarins Briissel, 18. maí — NTB — KENNEDY-viðræðurnar verða hafnar að nýju næsta haust, að því er Jean Rey formaður samn inganefndar Efnahagsbandalags landanna upplýsti í dag. Verð- ur þá reynt að leysa vandamál landbúnaðarins, sem ekki var lokið við að Ieysa í nýafstað- inni umferð viðræðnanna. Þetta er í fyrsta sinn, sem Rey minn- ist á árangurinn af Kennedy- viðræðunum. Sagði hann, að Efnahagsbandalagslöndunum þætti mjög miður, að samning- ar varðandi landbúnaðarafurð- ir með betra skipulag og meiri aga í huga heppnuðust ekki nú. En vafalítið hefjast samnings- viðræður að nýju í Genf í haust, sagði Rey, — og þá verða þessi vandamál rædd. Um samningsviðræður Efna- hagsbandalagsins og Norður- landa sagði Rey, að þær yrðu bæði langvinnar og erfiðar vegna ósamkomulags um hvern ig mætti fá jafnvægi milli til- boðanna. Hann sagði að lokum, að Kennedyviðræðurnar væru efnahagslegur og pólitískur sig ur. Þær sönnuðu, að þrátt fyrir yfirburði Bandaríkjanna yfir Evrópu á mörgum sviðum m.a. hernaðarsviðinu — stæði Ev- rópu þeim jafnfætis á viðskipta sviðinu. Clay í fangelsi CASSIUSI Clay var í dag varp að í fangelsi í Miami. Vegalög- regluþjónn þekkti kappann og handtók, en handtökuskipun hafði verið gefin út vegna þess að Clay mætti ekki til að svara saka fyrir umferðarbrot í fyrra. Brot Clay var fólgið í því að taka ranglega vinstri beygju. Og einnig hafði hann ekki gilt ökuskírteini. Sektin var þá ákveðin 75 dalir — en Clay hef ur enn ekki greitt hana og féll því fangelsisdómur á hann. Hann hlýddi án nokkurs mót þróa en sagðist hafa látið til- greindan mann hafa fé til að greiða sektina. Sá maður sagði aðspurður: Það kann að vera að ég hafi tekið við peningun- um, en ég bara man það ekki. Og Clay var settur bak við lás og slá - Iþróttir Framhald af bls. 30 11,5 sek. Trausti er einnig mjög efnilegur hlaupari sem búast má við miklu af. Þórarinn Ragnars- son sigraði í 400 metra hlaup- inu á 51.6 sek., sem telja má góðan árangur. Halldór Guð- björnsson varð annar á 52.1 sek:, og Trausti þriðji á 53.6 sek. Mjög hörð keppni varð I sleggjukasti og skiptust kastar- arnir á forustu framan af. í fjórðu umferð náði Þórður B. Sigurðsson ágætu kasti 50,43 metr. er nægðu til sigurs. Annar varð Þorsteinn Löve, ÍR, kastaði 49,41, þriðji Jón Magnússon, ÍR, kastaði 49,20 metr og fjórði Ósk- ar Sigurpálsson, Á, rfteð 47,38 metr. Jón Þ. Ólafsson stökk 2 metra léttilega í hástökki. Hafði hann ekki einu sinn fyrir því að fara úr æfingabúningi sínum er hann stökk þá hæð. Reyndi Jón næst við 2.04 metr. og var mjög nálægt að fara þá hæð í tilraun- um sínum, sérstaklega annaxri en þá felldi hann klaufalega með því að slá hendinni í rána. Virðist Jón í góðri æfingu nú, og mikið má vera ef met hans 2.10 verður ekki í hættu 1 sumar, þegar betri skilyrði verða til keppni. í hástökki kvenna sigraði Sig- rún Sæmundsdóttir, HSÞ, stökk 1.45 metr., í 100 metra hlaupi sveina sigraði Þorvaldur Baldurs son, KR, á 12,4 sek., en í þvi hlaupi varð Elías Sveinsson, ÍR, annar og Rudolf Adolfsson, Á, þriðji. í 100 metra hlaupi drengja sigraði Kjartan Kjart- ansson, ÍR, á 12,0 sek., annar varð Einar Þorgrímsson, ÍR, á 12,3 og þriðji Pálmi Bjarnason á 12,4 sek. í 1500 metra hlaupi sigraði svo Halldór Guðbjörnsson, KR, auð- veldlega og náði allgóðum tíma 4:09,3 mín. Virðist Halldór í á- gætri æfingu nú. Annar varð Þórarinn Arnórsson, ÍR, á 4:21,8 mín. og þriðji Gunnar Snorrason á 4:29,4 mín. stji.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.