Morgunblaðið - 19.05.1967, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MAl 1967.
17
Loksins vard ættjördin
laus við listgjarna fúskara
Mörgum er gjarnt að spyrja
þessa dagana: „Hvað finnst þér
«un úthlutun listamannalauna í
ár?“ í>á svara ég bara: „Eitt
stórt NÚLL“, akkúrat eins og
einkunnargjöf úthlutunarnefnd-
«r til mín nam í krónutölu I
þetta sinn af opinberu virðingar-
fé til listamanna. Aftur á móti
fer trauðla hjá því, að sært stolt
og kannski líka hégómlegur heið-
ttr sumra skapheitra listamanna
sjóði nú upp úr sjálfum geðkötl-
tmum, ekki hvað sízt meðal
þeirra, sem hlutu enga sneið af
kökunni. Fyrir utan súkkatið,
sykrið og allt nýja kryddið frá
G-ylfa átti þessi nýskipaða út-
hlutunarnefnd að þeyta öllum
fyrri nefndum langt aftur fyrir
ffig um alla sanngirni, dómgreind,
ábyrgð, grandvarleik og réttsýni
á opinbext listmat. Og ef trúa átti
þessari nýskipan réttlætisins átti
ekki sjálfur Guð almáttugur að
komast í skóna þeirra alsjáandi
nefndarmanna. Þessi nýja út-
hlutunarnefnd með þá Helga
Sæm og Halldór á Kirkjubóli í
fararbroddi minndr einma helzt
á sænsku og frönsku Akademí-
urnar til samans um allan virðu-
leik, menning og mennt á öllum
sviðum listanna. Enda timi til
kominn, að til yrði íslenzk „Aka-
demía“ og loksins lokið öllum
pólitískum betlilúku-mæðiveiki-
nefndum til handa íslenzkum
listamönnum. Hver véfengir líka
lengur slíkan sannleika? Þrátt
fyrir þessa nýju dýrð, eða öllu
fremur vegna hennar er ég hálf-
vegis feginn að vera á förum af
landi brott, til lengri eða
skemmri dvalar ( ekki vegna úr-
skurðar nefndarinnar eða af ein-
hverjum líkum hvötum og Svet-
lama Stalín, sussu nei). Heldur
opnuðust staurblind augu mín nú
fyrir því, að hér í þessari Para-
dís listanna virðist ekki lengur
pláss né listrænt olnbogarými
fyrir fúskara á borð við mig
þegar litið er til allra viður-
kenndu snillinganna á heiðurs-
lista háttvirtrar úthlutunar-
nefndar í ár. >ó get ég ekki að
skilnaði látið hjá líða að þakka
sjálfri þjóðinni fyrir frábærar
viðtökur bóka minna og mynda.
Ég er manna fúsastur til að við-
urkenna galla og vankanta verka
minna og veit, að lengi má deila
um listrænt gildi þeirra, eins og
flest mannanna verk, og þar eru
verk margra þeirra sízt undan-
skilin, sem nutu náðar og viður-
kenningar úthlutunarnefndar í
ár. Að lokum finnst mér ekki úr
vegi að kasta kveðju á þessa
nýju „Akademíu", að góðum og
gömlum íslenzkum sveitamanna-
sið: „Ég bið kærlega að heilsa í
bæinn og gangi ykkur allt í hag-
inn.“
Örlygur Sigurðsson.
Peking og Shanghai:
Miklar mótmœlaað-
gerðir gegn Bretum
vegna óeirðanna í Hong Kong fyrir helgi
ÓEIRÐIR urðu í brezku nýlend-
unni Hong Kong fyrir helgina
er verkbann var sett þar í verk-
smiðju einni og síðan bafa mót-
mælaaðgerðir ýmiskonar í Kína
ágerzt mjög. Margar mótmæla-
göngur hafa verið farnar undan-
farna fjóra daga að brezka sendi
fulltrúaskrifstofunni í Peking og
til bústaða brezkra sendimanna.
Brenndar hafa verið strábrúður
af Wilson, forsætisráðherra
Bretlands og mótmælaspjöld
verið hengd upp fyrir utan dyr
sendiskrifstofunnar, sem á var
letrað m.a.: „niður með brezka
heimsveldisstefnu", og „Styðj-
um verkamennina í Hong
Kong".
í Shanghai gerðu kínverskir
ofbeldismenn, rauðir varðliðar
og fleiri aðsúg að heimili Peter
Hewitts, brezka sendiráðsnauts-
ins þar í borg og brutu og bröml
uðu innanstokksmuni, ekki gerðu
þeir þó fjölskyldu Hewitts
mein. Brezka stjórnin hefur
sent stjórninni í Peking harðorð
mótmæli vegna atburðarins og
krafizt þess að öryggi brezka
sendifulltrúa á kínverskri
grund verði tryggt. t Hong
Kong fóru mörg hundruð Kín-
verjar í mótmælagöngu að bú-
stað brezka landstjórans í dag
og þöktu bygginguna og fram-
hiið hennar með mótmæia-
spjöldum vegna þess að land-
stjórinn neitaði að taka á móti
sendinefnd úr hópi göngumanna.
Óeirðirnar í Hong Kong hófust
á fimmtudag í fyrri vibu er sett
hafði verið verkbann við verk-
smiðju eina í Kowloon-hverfi,
þar sem búin eru til gerviiblóm.
Unnu þarna þúsundir verka-
manna, sem þá urðu atvinnulaus
ir. Hófu vinstrisinnaðir verka-
menn mótmælaaðgerðir, fóru
hópgöngur um verksmiðjúhverf-
ið og kom þá brátt til átaka við
lögregluna. Sett var á útgöngu-
Tónleikar leysast upp
Það fór fiðringur um allar
músíkalskar taugar borgarinnar,
þegar spurðist, að Igor Oistrakh
ætti nú að koma og leika fyrir
Tónlistarfélagið, hvað hann og
gerði á annan í hvtíasunnu og
Mka kvöldið eftir. Nafn Oistrakh-
feðganna er eitt hið frægasta í
tónlistarheiminum nú á dögum,
og þess vegna vonbrigði að geta
ekki verið orðlaus af ánægu.
Verkefnavalið var líka ekki hið
heppilegasta (tónleikarnir byrj-
uðu með því að kuldahrollur
fór um alla „Vorsónötu" Beet-
hovens) og eftirvæntingin sner-
ist þannig ekki í óblandna
ánægjuna, heldur undrun og
furðulost á stundum.
Igor Oistraks hefur fimi, ör-
yggi og styrk svo að það er
hrífandi að virða fyrir sér hreyf-
ingar fingna og boga. Leikur
hans virðist alliur miðast við
tröllaukin salarkynni eða óhag-
stæð skilyrði eins og tónlistar-
flutning úti undir beru lofti og
þar af leiðir, að öll tjáning verð-
ur einhæf (mikill tónn, ekki allt-
af „fallegur“ eða skarpar „rhýt-
mískiar“ útlínur t. d.)
Prókofiev-sónatan (í f-moll nr.
1) var hámark tónleikanna og
hefði verið mun fróðlegra að
heyra meir af sliku, og þá sér-
staklega af því, sem nú er nýj-
ast að gerast í sovézkum tón-
skáldskap. í þessari sónötu nutu
kostir Oistrakhs sín að fullu, það,
sem mega kallast ókostir í „Vor-
sónötunni" (eða þá í G-dúr són-
ötu Ravels, sem tónleikunum
lauk með), kom að góðum not-
um í Prókofiev.
Meðleikari á píanó var Usevo-
lod Petrushansky, og leikur hans
minnti óþægilega á „blaðlestur“„
fingumir komust naglalega yfir
nótnaborðið, slepptu ekki mörg
um nótum, en tónn var ómót-
aður.
Margir áheyrendur báðu um
aukalög á meðan aðrir áheyr-
endur voru uppteknir við að
brölta út. Tónleikarnir leystust
því upp samkvæmt venjulegri
reykvískri tónleika-„etíkettu“.
Þorkell Sigurbjörnsson.
bann í borginni um kvöldið og
var þar allt með kyrrum kjörum
um nóttina, en er morgnaði hóf-
ust óeirðir á nýjan leik og gekk
svo fram undir helgi. Tók lög-
reglan höndum nær 400 manns í
óeirðunuim.
Málgögn kommúni'sta í Hbng
Kong, blöðin „Ta Kung Pao“ og
„Wen Wei Po“ réðust harðlega
á brezka landstjórann í nýlend-
unni, Sir David Trench, fyrir
„kynþáttakúgun gagnvart kín-
verskum verkamönnum“. Segja
blöðin að hér sé um skipulagða
árás að ræða á kínversku þjóð-
ina og sýni yfirdvöldin „fasist-
íska grimrnd" í ofsóknum sínum
og ofbeldi.
f portúgölsku nýlendunni
Macao, rétt vestan við Hong
Kong, handan Perlufljótsins,
hafa Kínverjar einnig efnt til
óeirða. Handtóku þeir brezka
ræðismanninn þar í borg á föstu
dag og héldu honum í nær tvær
klukkustundir meðan sungnir
voru yfir honum kommúnista-
söngvar og lesið úr verkum Mao
Tse tungs.
Eins og áður sagði voru um
400 manns handteknir í óeirðun-
um og hafa um 250 þeirra þegar
játað sekt sína og hlotið fyrir 1
til 18 mánaða dóma. Um 100
áttu að mæta fyrir rétti í dag og
tókst kínverskum óeirðaseggj-
um sem fjölmenntu að einu
dómshúsinu að hleypa upp rétt-
arhöldum þeim sem þar áttu
fram að fara í máli 20 sak-
borninga með ólátum og þrá-
söngli úr verkum Maos for-
manns. Kínverjar hafa krafizt
þess formlega að brezk yfir-
völd láti lausa alla þá sem hand-
teknir voru í óeirðunum. Sendu
þeir orðsendingu í gær brezka
sendifulltrúanum í Peking, D.
A. Hopson og settu þar fram
ýmsar aðrar kröfur að auk. Er
það mál margra emfoættismanna
í Hong Kong að brugðið geti nú
til foeggja vona um ástandið í
nýlendunni og þykir nokkur
hætta á því enn að aftur komi
þar til óeirða.
Helma Þórðardóttir við nýja skiptiborðið.
IMýbreytni á Landakoti
UM síðustu áramót tók Landa
kotsspítali upp þá nýbreytni
að starfrækja sérstaka síma-
vörzlu allan sólarhringinn. Er
símaklefinn í hinni nýju and-
dyrisálmu spítalans, sem tek-
in var í notkun um svipað
Ieyti. Þar sem þetta er eini
spitalinn í Reykjavík, sem býð
ur upp á slíka þjónustu, þótti
okkur tiihlýðilegt að fara
þangað og spyrjast nánar fyr-
ir um þetta nýmæli.
— Við byrjuðum með sólar
hrings vakt 1. janúar í ár,
segir systir Emanuele, skrif-
stofustjóri Landakots.. Hún
er fyrst og fremst hugisuð sem
aulkin þjónusta við þá, sem
hér eru og foingað þurfa að
leita, aulk þess sem 'henni er
samfara meiri hagræðing á
störfum spítalans.
— Hvað starfa margir við
símavörzluna?
— Við símarvörzluna starfa
fjórar manneskjur, þrjár kon-
ur og einn karlmaður, sem
jafnframt er næturvörður.
— Er þetait ekki nofokur
fjárhagsbaggi fyrir sjúkrahús
ið?
— Það er það vtssulega, en
við teljuim að ávinningurinn
sé peninganna virði, sagði
systir Emanuele að lokum.
Fljótandi vörusýning
hér um næstu helgi
UM NÆSTU helgi er væntan-
legt hingað til landsins skipið
Frost-Monsunen, og er það hlað-
ið ýmsum vörum frá sex erlend-
um fyrirtækjum, sem Hervald
Eiríksson sf. hefur umboð fyrir
hérlendis. Þessi fljótandi vöru-
sýning verður væntanlega opin
n. k. sunnudag, mánudag og
þriðjudag, og skal mönnum bent
á að nálgast aðgangskort á skrif-
stofu Hervalds Eiríkssonar, Aust-
urstræti 17, og verða þau ókeyp-
is. Forstjórar og fuUtrúar allra
þessara fyrirtækja verða um
borð i skipinu til leiðbeiningar
og aðstoðar.
Fjrrirtæki þau, sem hér um
ræðir eru: Skandinavd.sk Elektro
IWO, sem framleiðir mjög fjöl-
breytt úrval af kælitækjum, allt
frá litlum kæli- og frystikistum
upp í fullkomna frystiklefa,
Antonson-Avery A/S, sem fram-
leiðir verðmerkivélar, sem marg-
ar verzlanir hér eru þegar fam-
ar að nota. Er þetta fyrirtæki
eitt hið stærsta á þessu sviði í
veröldinni. DKI A/S, sem fram-
leiðir alls kyns vélar og tæki
fyrir kjöt- og kjörverzlanir, svo
sem kjötsagir, áleggshnífa, pökk
unarvélar o. fl. Koh-I-Noor A/S
sýnir um borð í Frost-Monsunen
Hasker-búðakassa, Sören Mygind
A/S sýnir Reynolds PVC plast-
filmur, sem þykja mjög hentug-
ar við pökkun hveris konar mat-
vöru. Loks sýnir fyrirtækið
Speedrite auglýsingateikniáhöld,
sem þegar er farið að nota viða
í verzlunum hér.
Vortonleikar
T ónlistarskólans
HINIR venjulegu vortónleik-
ar Tónlistarskólans verða haldn-
ir í Austurbæjarfoíói laugard. 20
maí og hefjast Od. 3 síðdegis.
Þar koma fram í einleik og sam-
leik 15 nemendur skólans, þar
á meðal tveir, sem nú ljúka
kennaraprófi í píanóleik, þau
Sigríður Ása Ólafsdóttir og
Karl Sigurðsson.
Öllum er heimill aðgangur að
þessum tónleikum, meðan hús-
rúm leyfir.
Þrír nemendur, sem nú í voir
ljúfca brottfararprófi í hljóðfæra
leik, hafa nýlega haldið sjáltf-
stæða tónleika á vegum skólans.
Eru það þau Anna Áslaug Ragn-
arsdóttir, píanúleikari, Guðný
Guðmundsdóttir, fiðluleifcari og
Gunnar Björnsson, sellóleikarL