Morgunblaðið - 19.05.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1967.
- MINNING
Framhald af bls. 14
lega það. Börn tómthússfólks
voru þá send í sveit í þeim er-
indum, en ekki fyrst og fremst
til að njóta sveitasælunnar. Kem-
ur þetta vel fram í síðustu bók
Ragnheiðar og viðhorf barna
þeirra tíma til þessara atvinnu-
ferða til framandi fólks í fjar-
lægar byggðir.
Á unglingsárum tók Ragnheið-
ur virkan þátt í félagslífi æsku-
fólksins í sveit sinni, þar á með-
al leiklistarstarfsemi. Þá kynnt-
ist hún fyrst leiksviðinu, og
hneigðist hugur hennar lengi
meir að því, sem þar er flutt, en
öðrum greinum lista.
Ragnheiður hafði meiri bóka-
kost, en börn og unglingar al-
mennt þar í þorpinu. Var það
bæði, að foreldrar hennar voru
bókhneigð og bókasafn lestrar-
félags sveitarinnar var þar til
húsa um alllangt skeið. Fór
snemma orð af bóklestri hennar
og frábærum gáfum.
Ragnheiður unni mjög föður
sínum, eins og kemur beint og
óbeint fram í sögum hennar og
ritgerðum og tileinkunn bóka.
Hann stundaði barnakennslu all-
lengi austur þar, og fór orð af
hversu góð tök hann hafði á
nemendum sínum.
Kennslustörf voru Ragnheiði í
blóð borin, og ólst hún upp við
þau. Fór hún í kennaraskólann
er hún hafðí aldur til. Var það
meiri hamingja en mörgum
hlotnaðist á þeim árum, að geta
stundað skólánám til starfa, sem
hugurinn beindist að.
í kennaraskólanum kynntist
hún eftirlifandi manni sínum,
Guðjóni Guðjónssyni, skóla-
stjóra, En þótt Ragnheiður
hefði mikinn áhuga fyrir upp-
eldis- og kennslumálum og hvetti
t
Jarðarför
Benedikts Sveinssonar,
bókara, Borgarnesi,
fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 20. maí kl.
13.30. Ferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 8 árd.
Jóhanna Jóhannsdóttir.
t
Jarðarför eiginmanns míns og
föður okkar,
Guðjóns Jónssonar,
Reykjum,
V estmannaey jum,
fer fraom frá Landakirkju
laugardaginn 20. maí kl. 2.
Minningarathöfn úr Kópa-
vogskirkju verður útvarpað
kL 10,30 samá dag.
Bergþóra Jónsdóttir og börn.
t
Kveðjuathöfn um móður og
fósturmóður okkar,
Ragnhildi J. Björnsson
frá Borgarnesi,
verður í Dómkirkjunni laug- ■
ardaginn 20. maí kl. 10,30 f.h.
Útför verður gerð frá Borg- (
arneskirkju kl. 4 sama dag.
Ferð verður frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 12 á hádegi
og til baka samdægurs.
Árni Björnsson,
Ragna Björnsson,
Ása Björnsson,
Hanna Helgadóttir,
Ágústa Björnsson.
aðra og styrkti til náms á því
sviði, bæði í orði og verki, fór
henni nú sem fleirum, að ástin
varð öllu öðru yfirsterkari, og
giftist hún Guðjóni áður en hún
lauk kennaraprófi. Nokkrum ár-
um síðar fór hún aftur í kenn-
araskólann og lauk þar prófi.
Var það fátítt á þeim árum, að
móðir og húsfreyja settist á
skólabekk og lyki embættisprófi.
En Ragnheiður lét það aldrei
aftra för sinni, að gatan væri
væri ekki fulltroðin og vegurinn
ekki fjölfarinn, ef leiðin lá að
því marki, sem hún keppti að.
Þau Ragnheiður og Guðjón
hófu búskap í Vestmannaeyjum
haustið 1916, og kenndu þar bæði
þann vetur. Árið eftir tóku þau
við barnaskólanum á Stokkseyri.
Tveim árum seinna varð Guð-
jón kennari í Reykjavík. Fluttu
þau þá suður og stundaði Ragn-
heiður kennslu við barnaskóla
borgarinnar öðru hvoru meðan
þau bjuggu þar.
Eftir að Ragnheiður flutti til
Reykjavíkur, kom hún austur á
Stokkseyri flest sumur meðan
móðir mín lifði. Voru þær mikl-
ar vinkonur, eins og kunnugir
sjá í sumum sögum Ragnheiðar
og ritgerðum. Ragnheiður dvaldi
þá stundum hjá okkur nokkra
daga, og voru mér það önnur
jól. Sagði hún mér þá einatt
frá því, er hún hafði nýlega
lesið, eða las upp gamlar sögur
og fór með kvæði, ýmist í litlu
kompunni minni eða á heilsu-
bótargöngu í góðu veðri austur á
bakkana, þar sem ilm úr grasi og
angan frá sænum leggur fyrir
vitin á sumardögum, og víðsýni
er meira en víðast hvar annars
staðar á byggðu bóli á landi hér.
Urðu þá í meðferð Ragnheiðar
gamlar sögur nýjar og kunn
kvæði fengu fyllri þokka og
sterkari hughrif. Ljóð Einars
Benediktssonar urðu oft fyrir
valinu, og vel sómdi sviðið við
útsæinn flutningi kvæða skáld-
jöfursins.
Ragnheiður las mikið, allt frá
barnæsku og fram á banalegu,
en ég held, að hún hafi lesið
mest meðan þau hjón kenndu í
Reykjavík. Las hún þá auk inn-
lendra höfunda, norrænu stór-
skáldin og enskar bókmenntir.
Forlögin eru markvís og með
lestri öndvegishöfunda bjuggu
þau hana vel undir ritstörf
seinni tíma.
Ragnheiður og Guðjón skóla-
t
Þökkum innilega auðsýnda
hluttekningu við andlát og
jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Guðlaugsdóttur,
Freyjugötu 37.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
t
Þakka auðsýndan vinarhug
við jarðarför,
Þórðar Jónssonar,
Hverfisgötu 23.
Gíslína Sigurðardóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð
við andlát og jarðarför föður
okkar, tengdaföður og afa,
Gísla Sigurðssonar,
járnsmiðs,
Aðalgötu 5, Keflavík.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
stjóri fluttu úr Reykjavík til
Hafnarfjarðar árið 1930. Guðjón
tók þar við stjórn barnaskólans
haustið áður, en Ragnheiður
hafði á hendi stundakennslu við
skólann um skeið.
í Hafnarfirði hófst nýr þátt-
ur í sögu Ragnheiðar. Hún gerð-
ist mikilvirkur rithöfundur.
Fyrsta verk hennar var sjónleik-
ur, sem settur var á svið í Hafn-
arfirði. Skólabörnin þurftu sjón-
leik á skemmtun sína. Ragnheið-
ur leysti vandann og gaf börn-
unttm sjónleikinn. Börnin léku
hann sjálf sér til þroska og til
mikillar ánægju fyrir yngri og
eldri áhorfendur. Eftir það gaf
Ragnheiður hafnfirzkum skóla-
börnum árlega sjónleiki um all-
langt skeið.
Þorsteinn M. Jónsson á Akur-
eyri gaf fyrst út sjónleiki Ragn-
heiðar 1934 og færði þá þar með
öllum börnum landsins. Bættist
þá nýr þáttur íslenzkum bók-
menntum, sem að vísu hefur lít-
ið aukizt. Sjö árum síðar kom út
fyrsta skáldsaga Ragnheiðar, og
síðan rak hver bókin aðra frá
hennar hendi, ævintýraleikir fyr-
ir börn, og sögur fyrir unglinga
og fullorðið fólk.
Ragnheiður var að vísu skóla-
kennari færri barna og skemmri
tíma en hún vildi, olli því heilsa
hennar. En í bókum sínum hefur
hún orðið kennari fleiri barna
en nokkur ævi endist.
En hér verður ekki rakinn
skáldskapur Ragnheiðar, enda
munu aðrir og mér færari gera
það.
Þegar Guðjón hætti skóla-
stjórn í Hafnarfirði 1954, fluttu
þau aftur til Reykjavíkur og hafa
búið þar síðan í húsi sínu á
Laugarásvegi 7. Hafa þau hjón
átt fagurt og gott heimili, hvort
sem það var í litlu þorpi, fá-
mennum kaupstað eða fjöl-
mennri borg. Þangað var gott að
koma á gleðistund og döprum
dögum, því að í það skjól fauk
aldrei. Þar ólust börn þeirra upp,
Jón Ragnar, stýrimaður í Boston,
og frú Sigrún teiknikennari.
Hefur hún skreytt síðari bækur
móður sinnar ágætum myndum,
enda hlotið sóma fyrir á nor-
rænni sýningu. Þó teljum við
sem kunnug erum, að mestan
sóma hafi hún unnið sér á heim-
ili sínu, sem dóttir heilsulítillar
móður, og sem húsfreyja á Laug-
arásvegi 7.
Um sextán ára aldur fór Ragn-
heiður að finna til magakvilla og
upp frá því var hún aldrei hraust
og oft sárþjáð, og líkamsþróttur
hennar virtist fremur lítill. Hún
ávann sér þó fljótlega þá seiglu,
sem einkennir stundum líkam-
lega sjúkt fólk. En andlegur
dugnaður hennar var frábær,
bæði sem húsmóður og eigin-
konu, móður og ömmu, sem dótt-
ur og systur, vinar og félaga,
liðsmanns og foringja í félags-
málum, sem nemanda og kenn-
ara, en þó ekki hvað sízt sem
skálds og rithöfundar.
Síðasta legan var alllöng og
ströng, fyrst á sjúkrahúsi og síð-
ast á heimili hennar við ágæta
hjúkrun og ástríki, eiginmanns
og dóttur, tengdasonar og barna-
barna. En sonurinn í Vesturheimi
lét sig ekki muna um, að heim-
sækja móður sína á sjúkrabeðið
Og færa henni fagra gjöf frá út-
lendri tengdadóttur í fjarlægri
heimsálfu.
Ég hef gleymt að geta þess, að
Ragnheíður var fögur kona.
Kannske á þessi gleymska rætur
að rekja til þess hvað kynni
okkar hófust snemma og að út-
litið gleymdist mér vegna gróm-
lausrar vináttu og yndisþokka
andlegs atgjörfis frú Ragnheiðar
Jónsdóttur.
Þegar ég nú lít yfir það, sem
ég hef hér skrifað, koma mér
aftur í hug orðin, sem Ragn-
heiður rithöfundur mælti til mín
fyrir nokkru síðan, og geri þau
að kveðjuorðum mínum og fjöl-
skyldu minnar til vinkonu okk-
ar:
„Enn þá skortir mig orðin,
er á ég þig að kveðja
of margt er að minnast
of margs er að minnast
Ilm úr grasi, angan frá sænum
fyrir vitin bregður.
Vertu blessuð."
Bjarni M. Jónsson.
75 ára:
- AFMÆLI
Kristinn
Bjarnason
75 ÁRA er dag Kristinn
Bjamason frá Ási í Vatnsdal.
Hann er sonur hjónanna
Bjarna Jónssonar oddvita þar og
Sigríðar Hjálmarsdóttur, Hjálm
arssonar frá Bólu. Ungur var
hann tekinn í fóstru af Guð-
mundi Ólafssyni alþingismanni
í Ási og könu hans Sigurlaugu
Guðmundsdóttur og ólst þar
upp til fullorðinsára.
Kristinn bjó á ýmsum stöð-
um í Húnavatnssýslu unz hann
flytur til Vestmannaeyja 1927.
Hann byrjar svo búskap aftur
1940, þá að Borgarholti í Bisk-
upstungum og bjó þar um 10
ára skeið, þá flutti hann til
Reykjavíkur og hefur átt hér
heima síðan og starfar nú hjá
MúlalundL
Kristinn er mjög vel hagmælt
ur og árið 1963 gaf hann út
ljóðabók sína „Ómar frá ævi-
dögum“.
Kvæntur er hann Guðfinnu
Árnadóttur frá Grund í Vest-
mannaeyjum.
í kvöld dvelst hann á heimili
sonar síns að Múla við Suður-
landsbraut.
Vinur.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Framhald af bls. 12
sjálfur hefir hann ort mikið.
,,Vísnakver“ heitir ljóðasafn
hans, allstór bók og önnur heit-
ir „Tvær rímur“ og er önnur
um skáldaflotann á fslandi á
19. öld, ekki færri en 436 skáld
og hagyrðinga, og er þessi bók
merkileg að því leyti að fyllra
skáldatal hefir aldrei verið orkt
á íslandi. Hann hefir þar að auki
sýnt þann sóma þremur vanmetn
um skáldum, Sigurði Bjarna-
syni, Brynjólfi Oddssyni og
Bertel E. O. ÞorleifssynL að
gefa út ljóð þeirra og rita jafn
framt ævisögubrot þeirra allra
af næmum skilnir.gi.
Það mun varla eiga við nú
orðið á þessari tækniöld, að lýsa
mönnum, því að fólk vill sjálft
fá að sjá þá í kvikmyndum eða
sjónvarpi. Önnur var tíðin á
uppvaxtarárum okkar, þá þótti
gaman að mannlýsingum, og
eins eru þær prýði margra forn-
sagna. Og þar sem Snæbjörn
mun tæplega birtast í sjónvarpL
má hér geta þess, að hann vakti
athygli hvar sem hann fór.
Hann er með hæstu mönnum
sinnar kynslóðar, hvatur í
spori á yngri árum og sópaði
að honum. Nokkuð var hann
skarpleitur og einarðlegur, og
augun hygg ég að fornmenn
hefði kallað, haukfrán", en nokla
uð er nú síðan að þau biluðu,
og hefir það verið hontun þungt
mein á seinni árum, að mega
ekki lesa eins mikið og hugur
hvatti til. Og meðal annars mun
það hafa verið vegna þessa að
hann brá á það ráð að flytjast
til Englands og vera þar í skjóli
dóttur sinnar. En sjónarsviptir
er nú að því að hann gengur
ekki lengur um götur Reykja-
víkur — það er eins og bærinn
missi nokkuð af sínum svip
þegar sumir hverfa. Og allir
hinir mörgu vinir hans munu
sakna hans sárt og finnast allt
tómlegra fyrst hann er farinn
f stuttu máli mun það sann-
ast sagt um Snæbjörn, að í engu
hafi hann verið meðalmaður.
Hann er afburða fróðleiksmað-
ur og skarpgáfaður, og til hans
var jafnan gott að leita heil-
ræða. Hann er vinfastur og
hreinlyndur og gerir sér enga
tæpitungu við hvern sem er að
skifta. Alla ævi hefir hann ver-
ið sannleiks leitandi og reynt
að skilja rök tilverunnar. Verði
honum nú sú viðleitni giftu-
drýgri í ellinni en þótt hann
hefði safnað gulli og metorðum.
Ámi Óla.
Ytri-Njarðvík
Morgunblaðið óskar eftir umboðsmanni til að ann-
ast dreifingu og innheimtu blaðsins í Ytri-Njarð-
vík. Uppl. á skrifstofu blaðsins.
Morgunblaðið.
íbúð til lcigu
fbúð 80 ferm. í blokk í Laugarneshverfi. Einungis
reglusamt fólk kemur til greina. Leigist frá næstu
mánaðarmótum. Tilboð merkt: „Útsýni 733“ legg-
ist inn á afgr. Morgunblaðsins.
Lokað í dag
frá kl. 1—3 vegna jarðarfarar.
Almennar tryggingar h.f.